Tíminn - 20.03.1988, Side 2
2 Tíminn
Sunnudagur 20. mars 1988
Matreiðslus
kólinn OKKA
M
atreiðsluskólinn OKKAR er nýr matreiðsluskóli sem
hafið hefur göngu sína, en hann er í eigu hjónanna Hilmars
Braga Jónssonar og Eiínar Káradóttur. Þessi skóli er ætlaður
jafnt ungum sem öidnum og gefur hann nemendum sínum kost
á að læra alit er lýtur að matreiðslu, matreiðsluaðferðum,
meðferð matvæla, úrbeiningu á kjöti, meðferð á vínum, ger- og
kökubakstri, borðlagningu, tertuskreytingum, sósugerð, megr-
unarfæði, fæði fyrir sykursjúka, austurlenskri matargerð,
franskri matargerð og sláturgerð svo eitthvað sé nefnt.
Á dögunum var Tímanum boðið
á eitt slíkt námskeið þar sem við
fengum fyrst sýnikennslu í að mat-
reiða svokallaða „Fiskrönd" sem
forrétt en síðan tók við verkleg
kennsla þar sem tekist var á við að
útbúa „Innbakaðar svínalundir".
Óhætt er að segja að þar hafi maður
sýnt á sér alveg nýja hlið í matartil-
búningi, með aðstoð matreiðslu-
meistaranna, Hilmars B. Jónssonar
og Sigurvins Gunnarssonar.
Gamall draumur
„Fyrsta hugmyndin að þessu kem-
ur sennilega fram fyrir um tíu árum
þegar ég var veitingastjóri á Hótel
Loftleiðum, þá settum við í gang
dagskrá fyrir útlendinga á ensku,“
sagði Hilmar B. Jónsson matreiðslu-
HVAR
Hgs
* _ JT _
ODYRAST
AÐ VERSLA?
ln>t0c
ER UMBOÐIÐ
ALLTAF DÝRAST?
í nýgeröri verökönnun Verðlags-
stofnunar kemur fram aö verö á
varahlutum í þá blla, sem
Hekla hf. hefur umboð fyrir, er
lægst í Varahlutaverslun
Heklu hf. í 7 tilfellum af 12. Þar
að auki var Hekla hf. aldrei með
hæsta verö á þeim varahlutum,
sem könnunin tók til. Þessar
niöurstööur eru sannarlega
góöur vitnisburður um að
varahlutir geta veriö ódýrastir
hjá viökomandi bifreiðaumboöi.
113% VERÐMUNUR
í könnun Verðlagsstofnunar
kom fram aö þaö munaði allt
aö 113% á veröi varahlutar í
Heklu hf. og samskonar vara-
hlutar í þeirri verslun, sem
hæsta verðið haföi. Þaö liggur
því í augum uppi aö hægt er aö
spara verulega meö því aö
kaupa þar sem verðið er lægst.
GÆÐIN SKIPTA
LÍKA MÁLI
í varahlutaverslun Heklu hf. eru
aöeins seldir viðurkenndir vara-
hlutir meö ábyrgö, sem stand-
ast ýtrustu kröfur framleiðenda
bílanna.
Umboö ■ Bilanaust Borgar- túni 26 Háberg Skeifunni 5a Oliu- élagið hf. (Esso) GS vara hlutir Hamars- höfóa 1 I. Erlings- son Ármúla 36 Oliufélagió Skeljungur (Shell) Blossi Ármúla 15 Oliuversl- Stilling un íslands Skeif- (Olis) unni 11 Álimingar Lægsta Ármúla 22 verð Hæsta verð Mismunur ' i% 1
| MITSHUBISI GALANT 1600 í ÁRG . 1983 — HEKLA HF, |
Kortl 1 stk OO 02 110 110 105 110 03 125 100 oo 125 30,0%
Platina 110 110 144 153 105 106 1 50 106 165 55,7%
Loftsín 2 40 403 370 240 403 62,5%
Oliusia 237 312 305 237 312 31,6%
Bremauborðar, 4 stk. 1070 * 1514 1277 1200 1070 1514 40,4% *
Bremsuklossar, 4 stk. 040 045 570 1200 077 004 570 1260 110,0%
Stýrisendl 750 700 eoo 600 760 10,1%
Kúplingsdiskur 1710 1750 2270 1050 1700 1710 2270 33,3%
Kupllngsprossa 2250 * 2270 3004 3014 2250 3014 00,5% *
Þurrkublaö 105 + 320 301 415 314 207 105 415 * 0 cí T* *
Vifturolm 201 107 170 205 170 205 20,0%
K voikjulok 250 240 210 200 345 203 255 210 345 50,7%
. Lægsta vorð.
Kynntu þér okkar verð • það borgar sig!
HF
|Laugavegi170-172 Simi 695500
#
RANGE ROVER
meistari. „Það voru matreiðslunám-
skeið ætluð fyrir hótelgestina og
gekk mjög vel. Við vorum nær
eingöngu með sýnikennslu á fiskrétt-
um og eftirréttum. Þar má segja að
ég hafi fengið fyrstu reynsluna af
.j svona sýnikennslu.
Tveim árum eftir að ég stofnaði
Gestgjafann, tímarit um mat, fyrir
rúmum sjö árum, leigðum við hús-
næði sem ég hugsaði mér að nota
undir sýnikennslu samhliða tímarita-
útgáfunni, en vinnan við Gestgjaf-
ann var bara það mikil að það var
aldrei hægt að koma því við. f ágúst
seldum við hjónin síðan Gestgjafann
og keyptum húsnæði að Bæjarhrauni
16 í Hafnarfirði sem við fengum
síðan afhent í desember síðastliðn-
um og höfum nú lagt nótt við nýtan
dag við að innrétta og skipuleggja
dagskrána þar til við opnuðum núna
í mars.“
Námskeið fyrir útiendinga
„Þetta fer rólega í gang hjá okkur.
við höfum ekki auglýst mikið vegna
þess að við erum að undirbúa okkur
og það vantar svona eitt og annað.
Við höfum ekki viljað setja allt á
fullt, en það er greinilega mikill
áhugi, því það er mikið hringt og
spurt og töluvert um pantanir.
í sumar ætlum við líka að bjóða
upp á námskeið fyrir útlendinga og
eigum von á því að ferðaskrifstof-
urnar láti þá útlendinga sem koma
til landsins vita af þessum skóla og
þeir hjá Flugleiðum eru byrjaðir að
segja frá okkur í Bandaríkjunum,
þannig að við megum eiga von á því
að það verði nóg að gera allt árið hjá
okkur. Ef margir Bandaríkjamenn
koma til okkar, ætlum við einkum
að miða við að kenna þeim að
matreiða fisk, því það kunna tiltölu-
lega fáir Bandaríkjamenn. Þeir eru
allir í steikunum, kjúklingunum og
kalkúnunum, en þegar kemur að
fiski þá eru alveg ótrúlega margir
Bandaríkjamenn sem ekki kunna að
matreiða hann. Ef þeir borða fisk þá
er það á veitingahúsi eða þeir kaupa
tilbúinn pakka úti í búð.
Það er alls ekki eingöngu kvenfólk
sem hefur skráð sig á þessi nám-
skeið, þetta er einnig mjög vinsælt
meðal karlanna. Meira að segja hafa
heilu karlaklúbbarnir eins og Lions
og Rotary, haft samband við okkur
og verið að spyrja um jafnvel sérstök
námskeið fyrir félaga sína og að
sjálfsögðu munum við verða við
þeim óskum.
Þeir tveir mánuðir sem við höfum
skipulagt og gefið út dagskrá um,
eru til þess að bæði við finnum okkur
og einnig til að hlera hverju fólk
hefur mestan áhuga á. Við finnum
það að það er spurt mikið um
austurlenska rétti og óvenjulegri mat
sem við þekkjum minna til. Ég er
núna að leita að kennara sem hefur
sérhæft sig í þess konar matreiðslu
eða kann það betur heldur en aðrir.
Það er auðvitað best að það sé
einhver sem kann virkilega vel til
verka. Ég gæti örugglega kennt aust-
urlenska matreiðslu, en það vantar
ábyggilega punktinn yfir i-ið, eins
og sagt er.“
Fyrir alla konur sem karla
„Við komum til með að leggja
meiri áherslu á sýnikennslu, að
minnsta kosti til að byrja með, því
það þarf svo gífurlega skipulagningu
í kring um verklegu námskeiðin og
við verðum að átta okkur betur á
þörfinni áður en við hellum okkur út
í verklegu námskeiðin af meiri krafti