Tíminn - 20.03.1988, Side 13

Tíminn - 20.03.1988, Side 13
Sunnudagur 20. mars 1988 Tíminn 13 að er árið 1910. Gestur kemur heim traðirnar á bænum Hofteigi í Jökuldal. Hann er ríðandi en lætur sér þó ekki liggja ýkja mikið á heim undir, því merin sem hann ríður kemur af og til auga á grastopp við brúnina á vegarslóðanum og þá er knapinn ekki að hotta á hana, heldur lofar henni að kroppa nægju sína, uns henni þóknast að lötra spöl í viðbót. En loks er komið í hlaðið. Einhverjir eru komir út að líta á mann þennan, sem allir þekkja, ef ekki í sjón, þá af afspurn. Húsbónd- inn er gamall kunningi komumanns og velgjörðamaður og hefur orðið fyrstur til að bera kennsl á hann. En hann hefur mikið látið á sjá frá því er þeir bóndi síðast mættust, enda hefur margt verið honum and- streymt. Hann hefur þjáðst af sinn- isveiki og það er kunnugt á Jökuldal sem víðar að hann hefur verið á hinu nýstofnaða geðveikrahæli í Reykja- vík, Kleppi, um hríð. Þessi maður sem altalað var hve hafði falleg augu er nú kominn með líkt og ský á hið vinstra og bregður hendinni af og til upp að auganu, eins og það setji að honum svima. Að gömlum sið eru allir kysstir þarna á hlaðinu, líka sonur bóndans, Gunnlaugur, sem liggur á örmum móður sinnar. Þá er skyndilega eins og gesturinn lifni allur við. Hann réttist í bakinu og fyrr en varir stendur út úr honum orðabunan. Það er vísa: „Lítill bauga - ljómar - grér / líkur fjalla- baðmi. / Hann Gunnlaugur indæll er / ungur í móðurfaðmi." Og brátt flýgur fregnin um bæinn allan og kotin í kring: „Símon Dalaskáld er kominn!" Það er sagt um Jónas Hallgríms- son að þegar hann var barn í vöggu hafi Jón gamli Þorláksson á Bægisá spáð því fyrir móður hans að þarna hefði hún alið af sér tilvonandi skáld. Kannske er þetta þjóðsaga, en mjög lík saga er til um Símon skáld Bjarnason, sem hér er fjallað um. Er mælt að þegar hann var þriggja ára hafi Bólu Hjálmarkomið á fæðingarheimili hans og sagt er hann sá drenginn: „Það er ekki skálda von í Skagafirði, ef þessi drengur verður ekki hagorður!“ Símon var fæddur á Höskuldar- stöðum í Blönduhlíð þann 2. júlí 1844 og þar ólst hann upp til 14 ára aldurs. Foreldrar hans voru þau Björn Magnússon bóndi þar og kona hans Elísabet Jónasdóttir frá Ökrum. Sagt er að í æskunni hafi hann verið í miklu eftirlæti, enda haft snemma eitthvað það við sig sem athygli vakti. Einkum mun nafni hans og ömmubróðir hafa haft dálæti á honum. Sá var Símon á Ökrum. En hann andaðist þegar Símon yngri var aðeins tólf ára. Þegar Símon var sextán ára réðist hann sem smaladrengur til Guð- mundar Guðmundssonar bónda á Ábæ. Hann var frændi Símonar og reyndist honum prýðisvel. Símon var þá þegar byrjaður að yrkja og skrifaði Guðmundur upp allt sem hann orti, þar á meðal fyrstu rímuna hans, Aronsrímu, sem varð til er hann var á nítjánda árinu. Er Símon fór frá Ábæ eftir fimm ára dvöl var hann heitbundinn ungri heimasætu á grannbænum Merkigili og hét hún Jakobína Jónsdóttir. Hún var aðeins sextán ára og hefur það verið von þeirra að Símon kæmi aftur í Austurdalinn og þau settu saman bú. En vorið á eftir dó Jakobína og var þar með mikill harmur að unnustanum kveðinn. Telja margir að ævi hans hefði orðið á annan veg ef þau hefðu fengið að lifa saman. Þá hefði Símon orðið skáldmæltur bóndi, en hvorki sá drykkju og kvennamaður sem hann síðar var stundum sagður vera. Hið mesta glæsimenni Frá Ábæ flutti Símon að Goðdöl- um til séra Snorra sem þar bjó. Var klerkur nokkuð gefinn fyrir vín, en þó í öllu hófi og gleðimaður og ljúfmenni var hann talinn, en það voru eiginleikar sem Símon mat mikils. Á þeim árum áttu bændur flestir fjögurra potta brennivínskút og fékk nú Símon sér einn slíkan og voru dalbúar liðugir með að kaupa á kútinn handa honum, þegar þeir fóru í kaupstað. Símon geymdi kút- inn í beitarhúsunum og meðan hann gegndi smalamennsku er sagt að jafnan hafi hann komið heim með fyrra fallinu, meðan eitthvað var í kútnum. Símon hefur á yngri árum verið eitt hið mesta glæsimenni, andlitið frítt en þó skarpleitt, hárið nærri því hrafnsvart, þykkt og dálítið liðað, ennið hátt og augun dökk og íhugul. Hann talaði hratt en hafði þó mál- galla. Hann vantaði öll s-hljóð, var smámæltur eins og það er kallað. Við kappræður gat hann aldrei setið kyrr en æddi um gólf, settist við og við en spratt jafnharðan upp aftur. Upp út tvítugu mun hann hafa farið að sækja sjóróðra suður með ýmsum Skagfirðingum og þegar í verið kom þótti mikill veigur í öðrum eins andans manni. Hann reyndist afar fljótur að kasta fram stökum og gerði vísu um hvern mann, orti formannavísur og kvað rímur eftir sjálfan sig og aðra á löngum kvöldum í landlegum. Fór brátt mikið orð af þessum hæfileika hans og ekki var hann gamall þegar við hann festist nafnið „Dalaskáld“, sem hann síðar notaði jafnan sjálfur. Og á þrítugsaldri fór hann að láta prenta þessi skáldverk sín og gerðist þá í einu rithöfundur, útgefandi og farandsali. Tuttugu og sex ára gaf hann út Kjartans rímur Ólafssonar og tuttugu og sjö ára Búa rímur Andríðarsonar. Tuttugu og átta ára var hann er út kom Aronsríma og síðan hvert af öðru. Þetta var mikið afrek, því skáldið var nefnilega varla skrifandi. Það lærði hann ekki fyrr en á fimmtugsaldrinum og hafði því jafnan menn nærhendis er skrifuðu fyrir hann. Seint á ferð Ekki vantaði að skáldinu og rím- unum hans væri tekið með ágætum í hinum íslensku sveitum. Búningur þessara Ijóða var þó ekki viðhafn- armikill, Iítil kver, illa prentuð og snautlega úr garði gerð. Og víða voru viðtökurnar með öðrum brag, því þeir voru ýmsir sem ekki þótti ekki mikið til koma. Símon þótti réttílega ekki rista djúpt í skáldskap sínum, fremur en flestir rímnahöfundar og það voru komnir nýir tímar - Fjölnismenn höfðu kvatt sér hljóðs og þar hafði Jónas farið háðulegustu orðum um rímurnar og einkum sjálfan konung þessarar listar - Sigurð Breiðfjörð. Því áttu menn eins og Símon og eldri skáldbróðir hans, Níels skáldi, ekki upp á pallborðið hjá þeim mönnum, sem eitthvert skynbragð þóttust bera á skáldskap. Dálítið grátbrosleg er sagan um það er Símon sat hjá Níelsi og þeir höfðu verið að lesa eitthvert ljóða Jónasar. Er þá sagt að Símon hafi mælt: „Hann er bara ágætlega hagorður þessi Jónas.“ Svaraði þá Níels: „Hann er meira, hann er skáld mannfjandinn." Þarna má sjá ráðleysi fulltrúa hinnar eldgömlu rímnaskemmtunar í landinu, sem var að ganga sér til húðar, andspænis nýjum straumum sigldra mennta- manna. Þó má segja það ýmsum andans mönnum um daga Símonar til hróss að þeir voru honum flestir ljúfir og mátu hann sem fulltrúa þeirrar þjóð- legu listar sem hann var. Þar á meðal var Matthías Jochumsson sem jafn- an vék góðu að skáldinu og Grímur Thomsen, sem líkti honum og fleiri oft auðnulitlum alþýðuskáldum við frönsku trúbadúrana. Það voru oft- ast miðlungsmennirnir sem harðorð- astir voru urn þennan skáldskap.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.