Tíminn - 20.03.1988, Blaðsíða 15

Tíminn - 20.03.1988, Blaðsíða 15
Sunnudagur 20. mars 1988 í TÍMANS RÁS !!!I!!í!I1!I1HÍ1(U11I1III1 Agnar Birgir Óskarsson Tíminn 15 Gettu nú Jæja, þá er söngvakeppnin, hin íslenska hafin og við höfum fengið að sjá og heyra hvað tónlistarlega sinnaðir landar okkar hafa látið frá sér fara. Það verður eflaust lengi um það deilt hvaða lag eigi að fara í hina árlegu Evrópukeppni sjón- varpsstöðva en eitt er víst að við munum ekki sætta okkur við minna en sextánda sætið, frekar en hingað til. Það hefur komið í ljós að mörg þeirra laga sem kynnt hafa verið í liðinni viku eru vel frambærileg en eitt þeirra ber þó af, að minnsta kosti fyrir minn smekk. Það er lag Sverris Stormskers, Þú og þeir, og ætti að mínu mati að senda það í söngvakeppnina evrópsku, enda er það altalað manna í milli að aldrei hafi Sverrir tekið sig eins vel út í sjónvarpi eins og einmitt þctta umrædda kvöld, í kjól og hvítt. Lagið hans er góð tilbreyting frá eilífum ástarsöngvum sem ævin- lega eru megin uppistaðan í söng- textum þegar taka á þátt í keppni sem þessari. Það er engin undan- tekning núna frekar en fyrri daginn að textahöfundarnir yrkja nær undantekningarlaust um ástina og í öllum þeim myndum sem hún getur tekið á sig, bæði á andlega og holdlega sviðinu. Ekki ætla ég að fara að velta mér upp úr því hvernig á því stendur, það er best að ég láti það öðrum eftir. Fyrir síðustu Evrópusöngva- keppni kom hinn marg rómaði fréttaritari útvarpsins Jón Bergs- son í Suður-Landeyjum með at- hyglisverða tillögu um að það væri síður en svo full reynt með Gleði- bankann. Væri það svo vitlaust að fara að ráðum þessa ágæta manns? Ef dómarar hér heima geta ekki ákveðið hvaða lag þeir vilja senda, hví þá ekki að senda Gleðibankann aftur? Þetta var nú bara smá útúrdúr fyrir þá sem hafa gaman af því að velta sér upp úr fornri frægð, því væri ekki svo vitlaust að valið yrði lag sem fyllilega er samkcppnishæft á erlendri grund, til að við getum kannski komist á topp tíu listann í Evrópukeppninni. Jú, það var Laxá í Þingeyjarsýslu sem var ráðning gátunnar hjá okkur síðasta sunnu- dag. Við færum okkur nú út að sjó og spyrjum hverj- ir þekki kauptúnið við þennan fagra fjörð hér á myndinni, en byggðin dregur nafnið af firðin- um. KROSSGÁTA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.