Tíminn - 04.05.1988, Side 19

Tíminn - 04.05.1988, Side 19
Miðvikudagur 4. maí 1988 Tíminn 19 “Iceland's Hofi“ (eins og segir í enska blaðinu) sýnir aðskor- inn svartan kvöldkjól í „Mari- lyn Monroe stíl“ fyrir tískufyr- irtækið Top Shop með tilheyr- andi skartgripum Við höfum oft séð þessa mynd af Hófi í bláa kjólnum sem hún var í þegar hún vann titilinn „Miss World“. Hann er með einni ermi, en Diana prinsessa er mjög hrifin af þessu sniði og hefur oftar en einu sinni verið mynduð í einerma samkvæmiskjólum am rið eftir að fegurðardrottningin okkar, Hólmfríður Karlsdóttir. hlaut hinn eftirsótta titil „Miss World“ 1985, þá var það eitt af skyldustörfum hennar að krýna nýkjörna fegurðardrottningu næsta árs. í sjónvarpsblaði frá 1986, þegar verið var að kynna hina árlegu kosningu „Miss World“, var Hólmfríður að ljúka „fegurðardrottningarárinu" sínu og hún var eftirsótt í viðtöl og sem sýningarstúlka í London. Hún var m.a. mynduð í gullfallegum svörtum hlýralausum kvöldkjól frá Top Shop og með skartgripi frá Rocks. Förðun og hárgreiðsla var í höndum Val MacDonald, er sagt í myndartexta. f viðtali við Hólmfríði er hún spurð um hvernig kjóla stúlkur í fegurðarsamkeppni eigi helst að velja sér. Hófí segir þar, að blái glitrandi kjóllinn, sem hún var í í keppninni, hafi áreiðanlega haft sitt að segja fyrir hana. Kjóllinn var mjög klæðilegur og liturinn fór vel við augun. Hún segist trúa því, að skærlitir og glitrandi kjólar séu heppilegir fyrir stúlkur á sviðinu í keppninni, því að þá veki þær frekar athygli. En fyrst og fremst þarf kjóllinn að vera þannig að stúlkan finni að flíkin klæði hana og henni líði vel í kjólnum. Annars geti hún ekki tekið sig vel út og verið eðlileg. Eric Morley, sem enn sér um „Miss World“ keppnina, hélt hina fyrstu árið 1951. Þá vann sænska stúlkan Kiki Haakonson. Pá voru stúlkurnar í bikini-sundfötum í keppninni, en næsta ár komu þær fram í heilum sundbolum, og þannig hefur það verið síðan. Það ár komu fegurðardísirnar líka fyrst fram í kvöldkjólum. Þá vann aftur sænsk stúlka titilinn. Hún hét May Louise Flodin. Þá er sagt í greininni, að Diana prinsessa hafi mikið dálæti á ..Afcw...: kvöldkjólum með einni ermi (ein^ og blái sigurkjóllinn hennar Hófíj "’ Jg og eins hefur Diana sýnt sig við 'Æ hátíðleg tækifæri í hlýralausum samkvæmiskjólum, svipuðum og flfc, *►* Hólmfríður sýnir hér á ftéíM myndunum. Þessi tíska var mjög vinsæl á sjötta áratugnum og hefur skotið upp kollinum við og við síðan. Einkum er hún vinsæl hjá fegurðardrottningum og öðrum fögrum konum sem geta borið slíka kjóla svo vel fari. Sænska stúlkan May Louise Flodin sem vann 1952 var í hlýralausum kjól með víðu „tjullpilsi“

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.