Tíminn - 04.05.1988, Blaðsíða 20
Sparisjóðsvextir
qg yfirdráttur
á téKKareiKnirgum
SAMVINNUBANKI
(SLANDS HF.
Auglysingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Okeypis þjónusta
Tíminn
HRESSA
KÆTA
Stefán Ólafsson bústjóri Kanínumidstödvarínnar í
Eitt stærsta angórakanínubú í Evrópu Kanínumiöstöðin í Njarðvík, leggur upp laupana:
Kanínumiðstöðin hætt,
þúsund kanínur seldar
Kanínumiðstöðin í Njarðvík,
langstærsta kanínubú landsins,
og jafnframt eitt stærsta angórak-
anínubú Evrópu, hefur nú hætt
rekstri og er nú verið að selja
„innanstokksmuni“ búsins ásamt
áhöfninni sjálfri, sem eru angóra-
kanínur af völdum þýskum Zika
stofni.
Kanínumiðstöðin, sem er í
eigu Járniðnaðar og pípulagning-
averktaka á Keflavíkurflugvelli,
var hleypt af stokkunum árið
1984. Þá voru 126 kanínur fluttar
inn frá Þýskalandi. Sfðan hefur
búið eflst og dafnað og flest voru
dýrin um 2600, en voru í kringum
1000 talsins, þegar rekstrinum
var hætt.
Að sögn Stefáns Ólafssonar,
bústjóra Kanínumiðstöðvarinn-
ar, er meginskýringin á sölu fyrir-
tækisins fjárhagserfiðleikar,
minnkandi tekjur, fjármagns-
kostnaður og mikill launakostn-
aður. Hjá fyrirtækinu hafa verið
6 starfsmenn á launum, 4 við
klippingu og 2 við umhirðu kan-
ínanna.
Stefán telur að miðað við nú-
verandi aðstæður sé ekki unnt að
reka slíkt fyrirtæki. Hann bendir
á að í dag sé skilaverð til bænda
tæpar 2000 krónur fyrir kító
l.flokks ullar (þess má geta að
ársafrakstur af einni angórakan-
ínu er nálægt einu kílói af ull), en
til að endar nái saman í rekstri
Kanínumiðstöðvarinnar þurfi
2900 krónur fyrir kílóið. Hinsveg-
ar fengust rúmar 5000 krónur
fyrir kílóið (á núvirði) á hveiti-
brauðsdögum búsins, árið 1984.
Á árunum 1985 og 1986 fór
verðið niður á við, og á síðast-
liðnu ári enn neðar. Stefán segir
að lögmál framboðs og eftir-
spurnar ráði alfarið því verði sem
unnt er að greiða til bænda fyrir
framleiðsluna. f augnablikinu sé
mikið framboð af kanínuull í
heiminum og verð af þeim sökum
í lægri kantinum.
í ljósi þessarar staðreyndar
vaknar sú spurning hvort grund-
völlur sé fyrir bændur að stunda
kanínurækt. Stefán telur að svo
sé, a.m.k. ef rekstur hennar er
ekki með verksmiðjusniði með
tilheyrandi launa-, fóður og fjár-
magnskostnaði. Undir þetta tek-
ur formaður Landssambands
kanínubænda, Gunnlaugur
Magnússon, Miðfelli I í Hruna-
mannahreppi. Að hans sögn er
fjöldi kanínubænda í dag, sam-
kvæmt forðagæsluskýrslum, 87
talsins, en ætla má að þeir séu
nokkru fleiri, eða nálægt 100.
„Kanínubúskapur er eflaust
skuldlausasti búskapur sem til er.
Það hafa einungis 3 fengið lán að
einhverju marki, þannig að grein-
in hefur að mestu fjármagnað sig
sjálf. Þessir 87 aðilar koma út
með 50 kanínur að meðaltali,"
sagði Gunnlaugur.
Stefán Ólafsson segir að e.t.v.
megi segja að markaðurinn fyrir
kanínuull hafi ekki verið nægi-
lega kannaður áður en farið var
af stað með Kanínumiðstöðina.
Menn hafi farið út í þennan
rekstur fullir bjartsýni á sínum
tíma, enda hafi heimsmarkaðs-
verðið þá verið mjög gott.
Öll sú kanínuull, eða fiður,
sem til fellur hérlendis, fer til
Fínullar í Mosfellsbæ, sem hefur
á sínu fyrsta starfsári mest nýtt
hana í framleiðslu á nærfatnaði.
Kanínumiðstöðin hefur framleitt
um 2 tonn árlega, sem er tæpur
helmingurinnlends hráefnis. Inn-
lenda ullin er einungis lítill hluti
þess hráefnis, sem verksmiðjan
þarf nú til framleiðslunnar. Ullin
sem upp á vantar er flutt inn.
Sigurður Sigurðarson, hjá
Fínull, segir að vissulega sé slæmt
fyrir verksmiðjuna að Kanínu-
miðstöðin skuli nú leggja upp
laupana, en hinsvegar hafi þetta
ekki úrslitaáhrif fyrir rekstur Fín-
ullar. Þessu verði að mæta með
auknum innflutningi kanínuullar.
„Þó svo að við vildum frekar
skipta við innlenda aðila, vegna
þess að íslenska ullin er mjög
góð, breytir þetta ekki öllu fyrir
reksturinn hjá Fínull þótt einn
framleiðandi hætti. Við kaupum
hvort eð er bróðurpart þess hrá-
efnis, sem við þurfum, erlendis
frá,“ sagði Sigurður Sigurðarson.
óþh
HANDBOLTA-BÍLAHAPPDRÆTTIÐ
LOKAATAKIÐ:
Stöndum saman - ISLAND á verðlaunapall á ólympíuleikunum’
Sameiginlegt átak okkar gerir það mögulegt. %
Dregið 9. MAI næstkoman
Greiðum heimsendan gíróseðil (k