19. júní - 01.05.1929, Side 1

19. júní - 01.05.1929, Side 1
Ritstjóri: Inga L. Lárusdóttir. 19. JÚNÍ Afgreiðsla: Sólvallarg. 15. - Sími 1095. XII. árg. Reykjavík, maí. 1929. tölubl. Vimia kvenna. í Skutli 19. april er grein með þessari fyrirsögn, sem bregður einkennilegu ljósi yfir afstöðu karl- manna, þó jafnaðarmenn séu, tit samkepni kvenna á atvinnumarkaðinum: jjSúf' óbæfa hefir talsvert tíðkast hér í bænum að kvenjólk er látið ganga að þeirri vinnu, sem karl- menn eiga fullerfitt með að inna af hendi, má þar t. d. nefna vinnu við að taka fisk úr togurum og línuveiðurum, kolavinnu o. fl. Fyrir þessa vinnu hefir kvenfólki verið goldið mikið tægra kaup en körlum, enda þótt það hafi afkastað eins miklu. Eru dæmi til þess hér að karlmenn hafi setið heima en konur fengið vinnu, vegna þess að þær tóku minna kaup. Slik óhæfa nær auðvitað ekki neinni átt. í fyrsta lagi lýsir það atgerðri villumensku að láta kvenfólk vinna karlmannaverk og í öðru lagi getur slíkt orðið til þess að kaup karlmanna lækki. Til þess, ef unt væri, að bæta ofurlitið úr þessu, var ákveðið i siðasta kaupgjaldssamningi, að kven- fólki skyldi goldið sama kaup og karlmönnum þeg- ar það inni i sömu vinnu. En það er aðeins lítilfjörleg tilraun til að bæta þessar misfellur. Eina ráðið, sem líkindi eru til að dugi er, að slík þrælameðferð á kvenfólki og hér hefir tíðkast sé bönnuð með lögum«. Auðvitað er það virðingar- og góðra gjalda vert að verkamenn á Isafirði hafi orðið fyrstir til þess að stuðla að þvi, að reglan um sömu laun fyrir sömu vinnu sé viðurkend þó konur eigi i hlut. En bros- legt er, að umhyggja þeirra skuli ekki stafa af öðru en ótta fyrir því að konur fái vinnu, sem karlmenn hefðu annars getað leyst af hendi. t*ær eiga með öðrum orðum að sitja heima svo karlmennirnir komist að. Annað kalla þeir óhœfu og villimensku og vilja láta banna slíkt með lögum, enda þótt þeir viðurkenni i sömu greininni að kvenfólk hafl afkastað eins miklu i slíkri vinnu. En er fram undir helmingsmunur á verkakaupi kvenna og karla, þó þau haldi sitt undir hvorn endann á fiskbörum allan daginn. 1 kaupavinnu standa fjöldi kvenna við slátt, í hvaða veðri sem er, fyrir helmingi minna kaup en karlmenn, eða því sem næst. Lengra er jafn- réttisbarátta kvenna i kaupgjaldsmálum ekki komin. Hér á íslandi höfum við átt marga þrekkonuna, sem unnið hefir verk utan heimilis og irtncm, sem karlmenn hefðu átt »fullerfitt með að leysa af hendi«, almenningur hefir ekki haft ástæður tii að finnast það ókvenlegt að þær neyttu krafta sinna til að bjarga sér. Er það nú nýtt spor jafnaðarmenskunn- ar aö banna þeim það með lögum. L. V. Baugabrot. Svo er sagt í fornsögum vorum, að Þórólfur Mostrarskegg, sá er nam land um Pórnesþing, hafði svo mikla helgi á felli því er hann nefndi Helgafell, að þangað mátti engi maður óþveginn lita og engu skyldi þar kviku granda. Eflaust er það mjög mikilsvert fyrir hvern ein- stakling, að eiga sér hugsjón, sem sé honum svo heilög og kær, að hún ætið skipi öndvegið i hjarta hans. Hann ætti þar vfgðan reit, sem hann teldi sér skylt að verja fyrir öllu þvi, er spillir fegurð og samræmi. En eins og þetta er einstaklingum mikils virði, eins hlýtur það að vera þjóðinni mjög mikils vert, að eiga sameiginlega eign, sem enginn getur frá öðr- um tekið; en allir, jafnt rfkir og fátækir njóta frá vöggu til grafar. Eign, sem dægurþras og hagsmuna- pólitik hafa engin umráð yfir. Slíka eign eigum vér Islendingar, og það er móðurmálið okkar. »Ástkæra ylhýra málið«. Það er víst líka orð og að sönnu að flestir ís- lendingar elski móðurmálið sitt i raun og veru. En þó er rækt sú, sem lögð er við fegrun þess i dag- legu tali, oft furðu lítil. Það er býsna algengt að heyra útlend orð og afbakanir notaðar um ýmislegt það, sem málið á góð og gild orð yfir. Þetta mun oftast spretta af vanþekkingu hjá alþýðunni, og með aukinni mentun hennar ætti það að lagast. En þá verða leiðtogarnir — mentamennirnir — að ganga á undan með góðu eftirdæmi. Þeir verða að nota fslensk orð yfir hugmyndir sínar, þar sem þau eru til. En á það virðist oft talsvert skorta, af hverju sem það stafar. En svo er það margt sem segja má með misjatn- lega fögrum og viðeigandi orðum, þó ekki sé farið út fyrir veldi islenskunnar. Þetta stafar eflaust af

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.