Tíminn - 14.07.1988, Síða 3
, f.imrntycjagur )4, júlj .1J988
■ ' 1 1 J ' i ■> /- /.J.'.jIí-.!----
jXíminn; 3
Samdráttaraðgerðir hjá Flugleiðum:
Færri ferðir
til Ameríku
Stjórn Flugleiða ákvað á fundi sínum í gær að fækka ferðum til
Bandaríkjanna á vetraráætlun úr 9 í sex. Þannig falla niður ferðir til
Boston, Chicago og Baltimore og veður aukin áhersla lögð á að sinna
markaðsstarfi í þessum borgum, en halda áfram flugi til New York
og Orlando. Hins vegar verður stefnt að tengiflugi til borganna
þriggja sem ferðir falla niður til, með öðrum flugfélögum frá New
York.
Á sama tíma verður lögð aukin
áhersla á Evrópuflug félagsins með
fjölgun ferða til London og Frank-
furt og til síðarnefndu borgarinnar
verður nú vetrarflug f fyrsta sinn.
Nýjar flugvélar af gerðinni Boeing
737-400 munu koma inn á Evrópu-
leiðirnar undir lok vetrarins. Segir í
tilkynningu frá Flugleiðum að þrátt
fyrir að áætlunarferðum til Banda-
ríkjanna fækki, verði áfram lögð
áhersla á aukna þjónustu þangað í
fraktflugi.
Þessar breytingar koma í fram-
haldi af skýrslu ráðgjafarfyrirtækis-
ins Boston Consulting Group, sem
birt var í vor. Samdrátturinn er hins
vegar mun minni en fyrirtækið lagði
til, en í tillögum þess var gert ráð
fyrir að flugi yrði aðeins haldið uppi
til New York. Flugleiðamenn segja
hins vegar að aðstæður hafi breyst
síðan skýrslan hafi verið gerð og nú
sé einnig hagkvæmt að fljúga til
Orlando og nota tvær DC 8 vélar í
stað einnar, eins og BCG lagði til.
Þá er einnig ljóst að þar sem niður-
skurðurinn er mun minni en upphaf-
lega var reiknað með, þá munu
uppsagnir innan fyrirtækisins haldast
í lágmarki.
„Það hjálpar einnig fyrirtækinu að
undanfarið hefur lítið verið ráðið í
stöður sem hafa losnað og einnig er
óvenju hátt hlutfall sumarafleysinga-
fólks hjá félaginu sem fer sjálfkrafa
úr starfi í haust," segir í tilkynningu
Flugleiða.
-s<5l
Haraldur Gunnarsson hjá Bílaleigunni Geysi:
Jafn gramir yf ir
dýrri bílaleigu
Þaö eru margar skýringar á dýrri bílaleigu hérlendis að sögn
Haraldar Gunnarssonar hjá bílaleigunni Geysi. Borið var undir
hann annað dæmi en það sem var í Tímanum í gær. í þessu dæmi
var tekinn fimm manna fólksbíll á leigu í Lúxemborg og annar
jafnlengi í Reykjavík. Útkoman var sú að nýr Nissan Sunny hér
heima var 180% dýrari miðað við hálfan mánuð, en Ford Sierra
1600 í Lúxemborg.
Ferðalangar að reiða upp á farkosti sínum
Helstu ástæður þessa mikla
vcrðmunar sagði Haraldur vera
25% söluskatt, 10% tolla á inn-
flutta bílaleigubíla og mjög stutt-
ur háannatími. Sagði hann að í
Lúxemborg tækju menn ekki
peninginn inn á venjulegu leigu-
gjaldi. Þar hugsi yfirvöld vel um
ferðamannaiðnaðinn og þann
gjaldeyri scm ódýr bílalciga getur
skapað. Til dæmis er ekki sölu-
skattur lagður á bílaleigur í nein-
um mæli miðað við ástandið á
íslandi. Þá eru bílaleigubílar
tollfrjálsir í innkaupum og samt
sem áður er lcigunum heimilt að
endurselja bflana fullu veröi eftir
aðeins þrjá mánuöi. Þetta gerði
gæfumuninn fyrir afkomu þeirra.
Þá er annatíminn mjög langur cn
ekki 6-8 vikur eins og hér.
Sagði Haraldurað mikill kostn-
aður væri því fylgjandi að reka
stóran bílaflota allt árið til þess
að geta annað eftirspurninni í júlí
og ágúst. Ekki þyrfti að skýra út
fyrir íslendingum hvað fjár-
niagnskostnaður getur verið dýr.
Það sem einnig gcrði allan
samanburð crfiðari cn ella væri
vegakerlið. „Bílarnir slitna allt
að tíu sinnum hraðar hérlendis,"
sagði Haraldur hjá Geysi.
180% dýrari hérlendis
Samkvæmt upplýsingum hjá
Samvinnuferðum Landsýn kostar
það tæplega 24 þúsund krónur að
leigja Ford Sierra 1600 í hálfan
mánuð með ótakmarkaðri
keyrslu, skatti og kaskótrygg-
ingu. Hjá Bílaleigunni Geysi er
hægt að fá Nissan Sunny. sem
einnig er fimni manna, í hálfan
mánuð og greiða fyrir það 67
þúsund krónur. Er þá reiknað
með 25% söluskatti, tryggingum
og 2000 km akstri. Án söluskatts
lækkaði þessi heildarupphæð í
nálægt 50 þúsund krónur og yrði
þá ekki nema 100% dýrari en í
Lúxemborg.
„Við erum jafn gramir og aðrir
yfir þessu verði og höfum verið
að berjast fyrir því að ná skilningi
yfirvalda á þessari atvinnugrein,"
sagði Haraldur. Vildi hann í því
sambandi benda á að bílafloti sá
sem kemur með bílaferjunni
Norröna væri stærri en allur bíla-
leigufloti landsntanna. Það staf-
aði meðal annars af háu bílaleigu-
verði hér og hefði það í för með
sér að þorri þcssa fólks skilaði
ekki einni krónu í gjaldeyriskassa
okkar. Þeirsem þannig ferðuðust
á cigin crlendum bifreiðum
greiddu engan þungaskatt, vega-
skatt eða söluskatt. Gengi það
svo langt að þeir væru jafnvel
með allan mat og allt bensín
meðfcrðis, án þess að við það sé
gerð nokkur athugasemd. KB
Stórhœkkaóir
Dæmi
25% 7,5% 41,6%
dagvextir á á18 mánaöa ávöxtun á
tékkareikningum og verðtryggðum Hávaxtabókum,
sparisjóósbókum, reikningum.
SAMVINNUBANKIISLANDS HF