Tíminn - 14.07.1988, Blaðsíða 10
T
10 Tímipp
Fimmtudagur 14. iúlí 1988
Fimmtudaaur 14. iúlí 19RR
Jafnt á
Siglufirði
Frá Erni Þórarinssyni fréttamanni
Tímans.
KS og Selfoss skildu jftfn þegar
liðin mættust á Siglufirði í 2. deildar-
keppninni í knattspyrnu á þriðju-
dagskvftldiö.
Úrslit uröu 1-1 og voru bæði
mörkin skoruð í síðari hálfleik. Fyrir
KS skoraði Hafþór Kolbeinsson á
55. mínútu, en Guðmundur Magn-
ússon jafnaði fyrir Sclfyssinga 10
mínútum síðar. KS-ingar, sem léku
án Jónasar Björnssonar og Baldurs
Benónýssonar sóttu meira í síðari
hálfleik, en tókst ekki að knýja fram
sigur.
ÍÞRÓTTIR
“Greinlega
að komast í
leikæfingu“
íslenska landsliðið í handknattleik vann stórsigur, 26-15, á
Pólverjum í gærkvöld, cr liðin mættust á alþjóðlega mótinu sem
fram fer í A- Þýskalandi.
íslendingar náðu strax yfirhöndinni, skoruðu án afláts meðan
Pólverjum gekk illa að koma boltanum í netið. Staðan í hálfleik var
14-5, Islendingum í vil. Pólverjar skoruðu þrjú fyrstu mörkin í síðari
hálfleik og breyttu stöðunni í 14-8, en okkar menn tóku þá sprettinn
á ný og tölur eins og 18-9, 23-11 23-15 sáust á markatöflunni.
Lokatölurnar urðu 26-15, ellefu marka íslenskur sigur.
Ólympíulúörasveitin undirbýr opnunarathöfnina í Seuol:
Einar Þorvaröarson átti stórleik í
gærkvöld, fékk aöcins á sig 5 mörk
í fyrri hálfleik.
Að sögn Jóns Hjaltalíns Magnús-
sonar formanns HSÍ, átti allt ís-
lenska liðið stórleik í gærkvöld.
Einar Þorvarðarson stóð í markinu í
fyrri hálflcik og varði stórvel, eins og
markatalan gefur til kynna. Brynjar
Kvaran lék í markinu í síðari liálf-
lciknum og varði cinnig mjog vcl.
Hann kórónaði stórleik sinn með
því að vcrja vítakast á síðustu mínút-
unum. Sigurður Sveinsson gladdi
áhorfcndur í hftllinni í Dessau með
þrumuskotum í síðari hálflcik, en þá
lék hann í sókninni í stað Kristjáns
Arasonar. Kristján stóð sig vel í fyrri
hálfleik og cinnig í vörninni í þeim
síðari.
„Það er grcinilcgt að strákarnir
eru að komast í góða lcikæfingu,
eftir erfiðar þrekæfingar að undan-
förnu og það var augljóst að það eru
íslendingar en ekki Pólverjar sem
keppa á Ólympíuleikunum." sagði
Jón Hjaltalín.
„Við leikum gegn Kínverjum á
morgun og erum ákvcðnir að sigra í
þcim leik. I úrslitakeppmnni munum
við að ftllum líkindum lcika gegn
Sovétmönnum og V-Þjóðverjum
Okkar lokatakmark er sem fyrr að
lenda í einu af 6 efstu sætunum í
Seoul." bætti Jón H jaltalín Magnús-
son við.
Mörkin í gær skoruðu: Þorgils
Óttar Mathiesen 5, Alfreð Gíslason
5, Sigurður Sveinsson 4/2, Kristján
Arason 3, Guðmundur Guðmunds-
son 3, Páll Ólafsson 2, Bjarki Sig-
urðsson 2, Geir Svcinsson 1 og
Júlíus Jónasson I. BL
Siguröur Sveinsson lét þrumuskotin vaöa að Pólverjum í gærkvöld, þegar íslendingar unnu stórsigur, 26-15.
Nevin metinn á
925 þúsund pund
Óháöur dómstóll hefur komist að
þeirri niðurstöðu aðskoski landsliðs-
maöurinn Pat Nevin sé 925 þúsund
punda viröi. Dómstóllinn var feng-
inn til þess að skcra úr urn verðmæti
Nevins, því Everton og Chelsea gátu
ekki komið sér saman um
verðmæti kappans. Mikið bar á rnilli
því Chelsea vildi fá 1,7 milljónir
punda fyrir Nevin, en Everton var
tilbúið til að borga aðeins 30(1 þús-
und pund. Mat dómstólsins er því
mcira cn þrisvar sinnum hærra cn
boð Everton. BL
Ná Valsmenn að
stöðva Framara?
í kvöld verður sannkallaður stórleikur
SL-deildinni, I. deild, í knattspyrnu.
Framarar, sem hafa átta stiga forystu í
deildinni, mæta Valsmönnum, sem eru í
öðru sæti.
Le'kurinn í kvöld gæti orðið úrslitaleikur
deildarinnar. Fari svo að Framarar sigri.
verður forskot þeirra orðið 11 stig og
næstum ómögulegt að vinna það upp. Sigri
Valsmenn verður munurinn aðeins 5 stig
og möguleikar Vals og næstu liða í dcild-
inni enn talsverðir.
Jafntefli er hálfur sigur fyrir Fram, því þá
verður áfram 8 stiga munur á þeim og
Valsmönnum.
Leikurinn í kvöld verður háður á heim-
avclli Valsmanna að Hlíðarenda og hefst
hann kl. 20. BL
McNulty lofar sjálfum sér
óvenjulegum verðlaunum
1 linn heimsfrægi golfleikari, Mark
McNulty frá Zimbabwe, hefur lofað
sjálfum sér nokkuð óvenjulegum
verðlaunum, verði hann í cinu af
þremur efstu sætunum á opna breska
meistaramótinu sem hefst í dag.
McNulty, sem varð að hvíla sig á
golfi í fjóra mánuði í lok síðasta árs
og fram á þetta ár, vegna alvarlegrar
lungnabólgu, hafði ákveðið að láta
fjarlægja hálskirtla sína í lok þessa
árs. Nú vill hann losna viö kirtlana
fyrr, því hann segir þá angra sig
mjög. Eftir lungnabólguna fyrr á
árinu var Ijóst að kirtlana yröi að
fjarlægja. Nú ætlar hann sem sagt að
nota kirtlana sér til hvatningar í
mótinu.
„Ef ég verð í einu af þremur efstu
sætunum fer ég heim og læt fjarlægja
kirtlana í næstu viku, annars held ég
mínu striki og keppi á næsta móti.
Hálskirtlarnir hafa engin áhrif á
mína spilamennsku," segir
McNulty, sem gekk illa á opna
skoska meistaramótinu unt síðustu
helgi og brenndi meðal annars af 1
tommu pútti. BL
Fer Beckenbauer
til Bandarikianna?
„Ekkert formlegt boð hefur borist
frá Bandaríkjamönnum og engirsamn-
ingar hafa vcrið gerðir við v-þýska
sambandið." segir Franz Beckenbauer
landsliðsþjálfari V-Þjóðverja í knatt-
spyrnu, en frétt þess efnis að Becken-
bauer mundi taka við bandarfska
landsliðinu árið 1990, birtist í cinu
v-þýsku dagbiaði fyrir skömmu.
Samkvæmt frétt v-þýska blaðsins
átti Beckenbauer að gerast fram-
kvæmdastjóri bandaríska landsliðins í
fjögur ár. frá 1990 og frant yfir heims-
meistarakeppnina 1994, en hún fer
sem kunnugt er fram í Bandaríkjun-
um. Beckenbauer er samningsbundinn
hjá v-þýska landsliðinu fram til 1990.
„Það eina sem hæft er í þessu er það
að fulltrúar bakhjarla keppninnar
komu lil mtn, löngu áðuren mótsslaö-
urinn var ákveðinn, og spurðu mig
hvort ég vildi taka á einhvern hátt þátt
t keppninni. Ég svaraði þeim á þann
hátt að ég væri til í ails konar viðræður
eftir að samningi mfnum við v-þýska
sambandið lýkur." BL
„Hvernig á hann að snúa?“
límaniynd Pjetur.
Bjarni Friöriksson júdókappi með
vcrölaunin, sem hann vann í Los
Angeles. Bjarni vcröur fánaberi ís-
lenska keppnishópsins í Seoul.
ÞAKMALNING SEM ENDIST
má!ning%
Tímann ígær. „Þaðvitaallirað viðeig-
um mjög sterkt handknattleikslið og
Einar Vilhjálmsson hcfur kastað spjót-
inu vcl að undanförnu. Þá vonum við
að Bjarni Friðriksson. bronsverð-
launahafi frá síðustu leikum. standi sig
jafn vel í júdóinu og i Los Angeles."
sagði Ingvar.
„Allur undirbúningur af ltálfu Kór-
cu-manna viröist vera á undan áætlun.
Við sendum nauðsyniega hluti cins og
fána, þjóðsftnginn og íslenskt þjóðlag
út til Kóreu, lyrir meiraen ári. Núnaer
lúðrasveit vafalaust að æfa „Öxar við
ána“ í Seoul."
„Þá er undirbúningur okkar hér
heima á lokastigi. Verið er að saunta
Ólympíuklæðnað keppendanna í Dan-
mörku. en fötin eru frá Herrahúsinu og
það verður endanlega gengið Irá þcim
hér heima," sagði Ingvar ennfremur.
„Fjárhagslega staðan cr þokkaleg,
en enn vantar nokkuð uppá að endar
nái saman. Frjáröflunarnefnd undir
stjórn Arnar Eiðssonar er að vinna í
þeim málum," sagði Ingvar Pálsson hjá
Ólympíunefnd Islands að lokum.
Þess má geta í lokin. að fánaberi Is-
lands á Olympíuleikunum í Seoul
verður Bjarni Friðriksson júdókappi.
BL
Undirbúningur fyrir Ólympíuleikana í Scuol er nú á loka-
stigi. tslenska Ólympíunefndin hefur ákvedið að senda alls 32
keppendur á leikana.
íslenski keppnishópurinn sem fer til Seuol í S-Kóreu verður
alls skipaður rúmlega 50 mönnum. íþróttamennirnir sjálfir
verða 32 talsins. Þar eru handknattleiksmenn að vonum fjöl-
mennastir með 15 keppendur, frjálsíþróttamennirnir verða 8,
sundmennirnir 5, 2 júdómenn fara til Seuol og 2 siglinga-
menn.
Frjálsíþróttamennirnir sem fara á
leikana verða að öllum líkindum: Ein-
ar Vilhjálmsson, Sigurður Einarsson,
íris Grönfeldt, Vésteinn Hafsteinsson,
PéturGuðmundsson, Eggert Bogason,
Helga Halldórsdóttir og Ragnheiður
Ólafsdóttir. Ákveðið er að júdó-
mennirnir Bjarni Friðriksson og Sig-
urður Bergmann fara og siglinga-
nrennirir verða þeir Gunnlaugur Jón-
asson og ísleifur Friðriksson. Tveir
sundmenn hafa þegar náð Ólympíu-
lágmörkum. þau Eðvarð Þór Eðvarðs-
son og Ragnheiður Runólfsdóttir.
Hverjir hinir 3 sundmennirnir verða er
enn óljóst, en 3-4 sundmenn eru nálægt
því að ná lágmörkunum. Svo gæti farið
að sundmennirnir yrðu 6, ef árangur á
næstunni verður viðunandi.
Sveinn Björnsson forseti ÍSÍ og
varaformaður Ólyntpíunefndar verður
aðalfararstjóri hópsins.
„Okkar væntingar um árangur eru
hóflegar," sagði Ingvar Pálsson starfs-
maður Ólympíunefndar í samtali við
Þeir æfa „ðxar við ána“
Veldu
Steinvara
2000
gegn
steypu-
skemmdum
málning'lf
Knattspyrna:
Handknattleikur:
Knattspyrna: