Tíminn - 14.07.1988, Side 16
16 Tíminn
Fimmtudagur 14. júlí 1988
DAGBÓK
lllllllllllllllllllllllllllí
Susan Landale heldur tónleika
í Fríkirkjunni í Reykjavík
Susan Landale er fædd í Skotlandi og
þar hóf hún tónlistarnám sitt. Hún lauk
svo prófi sem Bachelor of Music frá
Edinborgarháskóla. Eftir framhaldsnám
í píanó- og orgelleik í London fór hún til
Parísar og var þar nemandi André
Marchal. Par var hún organisti vió ensku
kirkjuna um árabil. Hún sérhæföi sig í
síðrómantískri tónlist og einnig nútíma-
verkum.
Susan Landale er heimsþekkt sem
einleikari og plötur hennar frá frönskum
og þýskum útgáfufyrirtækjum hafa veröi
lofaðar. Hún hcfur oft komið fram í
útvarpi báðum megin Atlantshafsins.
Tvívegis hefur hún fengið fyrstu verölaun
í orgelkeppnum í Englandi 1963 og
Frakklandi sl. vor.
Frá árinu 1977 hefur hún verið aðstoð-
arorgelkcnnari við Tónlistarháskólann í
Rueil Maimaison (7 km utan við París) og
aðstoöarorganisti viö Saint-Louis-des-ln-
valides kirkjuna í París. (Par sem Napó-
leon Bonaparte er kistulagður).
Árbæjarsafn um helgina
l'áll Eyjólfsson gítarli-ikari spilar á
gítar í Dillonshúsi kl. 15:00-17:00 sunn-
udaginn 17. júli. Páll lcikur lög frá
ýmsum löndum.
Árbæjarsafn cr nú opið alla daga kl.
10:00-18:00 ncma mánudaga.
Starfsmaður Tímans
óskar eftir 2-3 herb. íbúð á leigu sem fyrst.
Reglusemi heitið.
Upplýsingar gefur Óskar í síma 686300.
Bændur og aðrir
ferðafrömuðir
Tilvaiin aukabúgrein.
Til sölu færanlegt 10fm2 (veitingahús). Rennandi vatn og rafmagn.
Pylsupottur, hamborgarapanna, djúpsteikingarpottur, grill, örbylgju-
ofn, kælir og fl. Tilbúin til afhendingar strax, verð kr. 800.000,-. Góð
kjör.
Upplýsingar á auglýsingadeild Tímans í síma 686300.
Garðsláttur
Tökum að okkur að slá garða. Fast verð. Afsláttur
ef samið er fyrir sumarið.
Upplýsingar í síma 41224.
Starfsmaður Tímans
óskar eftir 3-5 herb. íbúð á leigu frá 1.8. eða 1.9.
Leigutími 1-1 1/2 ár.
Nánari uppl. í síma 686300 (Gísli) og 93-13049.
Frjáls verslun
4. tbl. 1988
Ritstjórnargrein þcssa blaðs hcfur
fyrirsögnina: Þörf fyrir hlutabréfamark-
að. Þá cru fréttir, innlendar og erlendar,
m.a. cr sagt frá mcstu hálaunamönnum
Bandaríkjanna o.fl. Þá eru ferðamálin á
dagskrá og er sagt að tekjur af erlendum
ferðamönnum 1987 hafði orðið rúmir
fimm milljarðar.
Grein er um þróun hlutabréfamarkaðar
á íslandi og er rætt við ýmsa framkvæmda-
menn um þá þróun. Benetton-undriö:
óvenjulegt skipulag er skýring á velgengni
Bcnetton-fyrirtækisins.
Samtíðarmaður í viðtali í þessu blaði er
Jónas Þór Jónasson. Fyrirtæki hans nefn-
ist Kjöt- og matvælavinnsla Jónasar Þórs.
Mynd af Jónasi Þóri er á forsíðu Frjálsrar
verslunar. í þættinum um fcrðalög er rætt
um kaupsýslukonur sem vaxandi hóp
ferðalanga, en fyrirsögnin er: Konur
mæta fordómum í viðskiptaferðum.
Frændsemi (Nepotismi) er efni sem
Bjarni Ingvarsson vinnusálfræðingur
skrifar um. Einnig er grein um veitinga-
húsarekstur á (slandi og tölvukynning frá
IBM. Að lokum er „Bréf frá útgefanda",
Magnús Hreggviðsson skrifar: (sland og
Evrópa.
MANNLÍF
- 6. tbl. 5. árg.
Á forsíðu þessa hlaðs er mynd af
Magnúsi Þór Jónssyni, sem betur er
þekktur undir nafninu Megas. Frcmst í
þessu blaði er frásögn hans af ýmsu, sem
á daga hans hefur drifið, í viðtali sem
Þorstcinn J. Vilhjálmsson hefurvið hann,
en Gunnar Gunnarsson hefur tekið
myndir af Megasi. Þar næst kcmur grein
eftir Árna Óskarsson bókmenntafræðing:
Dægurlagasöngvarinn snýr aftur, og snýst
sú grcin líka um Megas. Friðrik Erlings-
son myndskreytir greinina.
Ari Gísli Bragason. 21 árs Ijóðskáld, er
kynntur í þættinum Fólk. Þá er kvik-
myndaþáttur: Konur og hvíta tjaldið.
Meistarakokkur með bíladellu er frásögn
af Úlfari Eysteinssyni eigandi veitinga-
staðarins „Úlfar og Ijón".
Ragnhildur Davíðsdóttir skrifar um
íþróttir og ncfnir grcinina: Gullaldar-
ntennirnir, og þar ræðir hún um þekkta
íþróttamcnn á6. og7. áratugnum. Magn-
ús með á nótunum, er fyrirsögn á grein
um „markaðsspckinginn" Magnús
Pálsson.
Ljósmyndaþáttur Gunnars Gunnars-
sonar í þessu blaði nefnist „Úr móður-
lífi“, og eru það nokkrar myndir af
nöktum, barnshafandi konum, ásamt
Ijóði Bcrglindar Gunnarsdóttur „Tímarn-
ir og börnin“ úr bók hennar Ljóðsótt.
Hcimurinn fyrirhandan heitirgrein um
Þórhall Guömundsson, ungan mann með
miðilshæfileika. Margar aðrar greinar eru
í þessu 130 bls. riti, svo sem frásögn frá
útlöndum, en þar er sagt frá Madrid og
sagt frá Bryndís Schram. Guðrúnu Þor-
bergsdótturog Ingibjörgu Rafnar, en þær
snæða saman og ræða um pólitík og
flcira. Ritstjóri er Svanhildur Konráðs-
dóttir. Útgefandi er Frjálst framtak
Minningarkort Styrktarsjóðs
barnadeildar Landakotsspítala
Styrktarsjóður barnadeildar Landa-
kotsspítala hefur látið hanna minninga-
kort fyrir sjóðinn. Sigríður Björnsdóttir
myndlistarmaður og kcnnari teiknaði
fjögur mismunandi kort. Eftirtaldirstaðir
selja minningakortin:
Apótek Seltjarnarness, Vesturbæjar-
apótek, Hafnarfjarðarapótek, Garðs-
apótek, Holtsapótek, Mosfellsapótek,
Árbæjarapótek, Lyfjabúð Breiðholts,
Reykjavíkurapótek, Háaleitisapótek.
Kópavogsapótek, Lyfjabúðin íðunn.
Blómaverslanirnar; Burkni, Borgarblóm,
Melanóra Seltjarnarnesi og Blómaval
Kringlunni. Einnig eru þau seld á skrif-
stofu og barnadeild Landakotsspítala.
:POWERPART=
Fáðu þér sæti.
Dráttarvélasæti
Hagstætt verð
BUNMARHILO
S? BAMBANDBIHB
ARMULA 3 REYKJAVIK SiMI 3«ð00
Myndlistarsýning
Auðar og Sigríðar
Að Frakkastíg 8 stendur nú sýning
þeirra Auðar Aðalsteinsdóttur og Sigríð-
ar Bjarnadóttur á olíu- og akrýlverkum.
Sýningin er opin kl. 17:00-22:00, cn um
helgar kl. 14:00-22:00. Sýningunni lýkur
n.k. sunnudag.
Gallerí Gangskör
Nú stendur yfir sýning Gangskörunga á
keramik, grafík og málverkunt í Gallerí
Gangskör í Torfunni. Sýningin stendur
fram í miðjan mánuðinn.
Opið er alla virka daga nema mánudaga
kl. 12:00-18:00.
ÚTVARP/SJÓNVARP
FIMMTUDAGUR
14. júlí
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Valdimar Hreiðars-
son flytur.
7.00 Frétíir.
7.03 I morgunsárið með Ingveldi Ólafsdóttur.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku að loknu
fréttayfirliti kl. 7.30. Lesið út forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00. Sigurður Konráðsson talar um daglegt
mál laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna Meðal efnis er
sagan „Salómon svarti" eftir Hjört Gíslason.
Jakob S. Jónsson les (3). Umsjón: Gunnvör
Braga. (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi Umsjón: Halldóra Björns-
dóttir.
9.30 Landpósturinn - Frá Norðurlandi Umsjón:
Gestur Einar Jónasson. (Einnig útvarpað um
kvöldið kl. 21.00).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð Hermann RagnarStefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur Umsjón: Daníel Þorsteinsson.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn Umsjón: Álfhildur Hallgríms-
dóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir.
13.25 Miðdegissagan: „Lyklar himnaríkis“ eftir
A.J. Cronin Gissur 0. Erlingsson þýddi. Finn-
borg Örnólfsdóttir lýkur lestrinum (42).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Heitar lummur Umsjón: Inga Eydal. (Frá
Akureyri) (Einnig útvarpað aðfaranótt þriðju-
dags að loknum fréttum kl. 2.00).
15.00 Fréttir.
15.03 Heimshorn Þáttaröð um lönd og lýði í umsjá
Jóns Gunnars Grjetarssonar. Annar þáttur:
Kuwait. (Endurtekinn frá kvöldinu áður).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið - Styttur bæjarins Barnaút-
varpið fer og skoðar myndverk í Reykjavík og
nágrenni. Staldrað við í garði Einars Jónssonar.
Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi. a. Inngangur og rondó
capriccioso eftir Camille Saint-Saéns. Arthur
Grumieaux leikur á fiðlu með Lamoreaux hljóm-
sveitinni í París; Manuel Rosenthal stjórnar. b.
„La Mer" - „Hafið" eftir Claude Debussy.
Fílharmóníusveitin í Berlín leikur; Herbert von
Karajan stjórnar. c. „Le Tombeau de Couperin"
- „I minningu Couperins" eftir Maurice Ravel.
Suisse Romande hljómsveitin leikur; Ernest
Ansermet stjómar.
18.00 Fréttir.
18.03 Torgið Umsjón: Jón Gunnar Grjetarsson.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Sigurður Konráðsson flytur.
19.40 Að utan Fréttaþáttur um erlend málefni.
20.00 Morgunstund barnanna Umsjón: Gunnvör
Braga. (Endurtekin frá morgni).
20.15 Tónlistarkvöld Ríkisútvarpsins - Lista-
hátíð í Reykjavík 1988 Ljóðatónleikar Söruh
Walker í íslensku óperunni 13. júní sl. Á
efnisskránni eru lög eftir Franz Schubert, Arnold
Schönberg, Felix Mendelssohn, Benjamin Brit-
ten og George Gershwin. Roger Vignoles leikur
á píanó. Kynnir: Hanna G. Sigurðardóttir.
22.00 Fréttir . Dagskrá morgundagsins . Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Ljóð frá ýmsum löndum Úr Ijóðaþýðingum
Magnúsar Asgeirssonar. Fjórði þáttur: „I míns
hjarta hólfum fjórum". Umsjón: Hjörtur Pálsson.
Lesari með honum: Alda Arnardóttir.
23.00 Sumartónleikar í Skálholtskirkju 1988 -
fyrri tónleikar 9. júlí sl. Á efnisskránni eru verk
eftir Þorkel Sigurbjörnsson. a. „Dagur er, dýrka
ber“, gamalt íslenskt sálmalag við morgunsálm
séra Þon/aldar Stefánssonar (1666-1749), fyrir
kór og orgel. b. „Orðlaus söngur" fyrir sópran
og orgel. c. Kirkjusónata í fimm þáttum fyrir
bassetthorn, selló og orgel. d. „Te deum" fyrir
kvennaraddir og orgel. e. „Lofsöngur Davíðs",
150. sálmur, fyrir kór og orgel. Sönghópurinn
Hljómeyki, Marta Halldórsdóttir, sópran, Hörður
Áskelsson organisti og höfundur flytja. Kynnir:
Daníel Þorsteinsson. (Seinni hluta verður út-
varpað sunnudaginn 17. júlí kl. 17.00).
24.00 Fréttir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
01.10 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið Dægurmálaútvarp með
fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00.
Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
9.03 Viðbit - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri)
10.05 Miðmorgunssyrpa - Eva Ásrún Albertsdótt-
ir og Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milli mála - Valgeir Skagfjörð og Kristín
Björg Þorsteinsdóttir.
16.03 Dagskrá Dægurmálaútvarp.
18.00 Sumarsveifla með Gunnari Salvarssyni.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Kvöldtónar Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Af fingrum fram
00.10 Vökudraumar Umsjón með kvölddagskrá
hefur Rósa Guðný Þórsdóttir.
01.10 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00
verður endurtekinn frá mánudegi þátturinn „Á
frívaktinni" þar sem Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri og flugsamgöngum kl.
5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
1.00 og 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30,
9.00,10.00,11.00,12.00,12.20,14.00,15.00,
16.00,17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
18.30-19.00 Svæðisútvarp Austurlands
Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir.
SJÓNVARPIÐ
Fimmtudagur
14. júlí
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Heiða. Teiknimyndaflokkur byggður á skáld-
sögu Johanna Spyri. Leikraddir Sigrún Edda
Björnsdóttir.
19.25 íþróttasyrpa. Umsjónarmaður Ásdís Eva
Hannesdóttir.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Stangaveiði (Go Fishing) Bresk mynd um
sportveiðar á vatnakarfa. Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
21.05 Matlock. Bandarískur myndaflokkur um lög-
fræðing í Atlanta. Aðalhlutverk Andy Griffith.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.55 ísrael í nýju Ijósi (Magasinet - Ny syn pá
Israel) I þættinum er fjallað um vaxandi gagnrýni
Svía á Israelsríki síðustu ár, nú síðast í
framhaldi af ofbeldisverkum ísraelskra her-
manna á Gazasvæðinu. Þá er fjallað um aukna
andúð í garð gyðinga í Svíþjóð. (Nordvision -
Sænska sjónvarpið).
22.25 Gróðurhúsaáhrif Jón Valfells fjallar um hin
svokölluðu gróðurhúsaáhrif og í því sambandi
ræðir hann við veðurfræðingana Pál Bergþórs-
son og Tim Wigley og Jakob Jónsson fiskifræð-
ing. Áður á dagskrá í Kastljósi 19. apríl sl.
22.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Fimmtudagur
14. júlí
17.00 Krullukollur. Curly Top. Hugljúf fjölskyldu-
mynd með undrabarninu Shirley Temple í
aðalhlutverki. Auðkýfingur, sem ekki vill láta
nafns síns getið, ættleiðir litla, munaðarlausa
stúlku. Aðalhlutverk: Shirley Temple, John Bo-
les og Rochelle Hudson. Leikstjóri: Irving
Cummings. Framleiðandi: Daryl F. Zanuck.
Þýðandi: Sævar Hilbertsson. 20th Century Fox
1935. Sýningartími 75 mín. s/h.
18:20 Furðuverurnar. Die Tintenfische. Leikin
mynd um börn sem komast í kynni við tvær
furðuverur. Þýðandi: Dagmar Koepper. WDR.
18.45 Dægradvöl ABC’s World Sportsman. Þátta-
röð um frægt fólk með spennandi áhugamál.
Þýðandi: Sævar Hilbertsson. ABC._____________
19:1919:19 Lifandi fréttaflutningur ásamt umfjöllun
um málefni líðandi stundar.
20:30 Svaraðu strax. Léttur spurningaleikur.
Starfsfólk ýmissa fyrirtækja kemur í heimsókn í
sjónvarpssal og veglegir vinningar eru í boði.
Umsjón: Bryndís Schram og Bjarni Dagur
Jónsson. Samning spuminga og dómarastörf:
Ólafur B. Guðnason. Dagskrárgerð: Gunnlaug-
ur Jónasson. Stöð 2.
21:10 Morðgáta. Murder She Wrote. Sakamála
höfundurinn Jessica Fletcher leysir flókin
morðmál af sinni alkunnu snilld. Þýðandi: Páll
Heiðar Jónsson. MCA.
22:00 Davíð konungur. King David. Það er árið
eitt þúsund fyrir Krist. Davíð, ungur hjarðsveinn,
verður þjóðhetja eftir að hafa lagt Golíat risa að
velli í bardaga við Philista og er settur eftirmaður
Israelskonungs. Persónutöfrar, hugvitssemi og
metnaður gera Davíð fremstan allra Israelskon-
unga. Hann tekur sér fjórar konur og þráir heitt
þá fimmtu en það kann að hafa hræðilegar
afleiðingar í för með sér. Aðalhlutverk: Richard
Gere, Edward Woodward og Denis Quilley.
Leikstjórn: Bruce Beresford. Framleiðandi:
Martin Elfand. Þýðandi: Páll Heiðar Jónsson.
Paramount 1985. Sýningartími 110 mín. Ekki
við hæfi barna.
23:50 Viðskiptaheimurlnn. Wall Street Joumal.
Nýir þættir úr viðskipta- og efnahagslífinu.
Þekktir sérfræðingar fjalla um þaö helsta í
alþjóða efnahagsmálum á hverjum tíma. Þætt-
imir eru framleiddir af dagblaðinu Wall Street
Joumal og eru sýndir hér á stöð 2 í sömu viku
og þeir eru framleiddir. Þátturinn verður endur-
sýndur laugardaginn 16. júlí kl. 12:00.
00:15 Fyrirmyndarlöggur. Miami Super Cops.
Spennumynd um tvo lögreglumenn sem reyna
að hafa upp á ránsfeng sem glataður hefur verið
í ellefu ár. Aðalhlutverk: Terence Hill og Bud
Spenser. Leikstjóri: Bruno Corbucci. Framleið-
andi: Max Wolkoff. Þýðandi: Ingunn Ingólfsdótt-
ir. Columbia. Sýningartími 95 mín. Ekki við hæfi
bama.
01:50 Dagskrárlok.