Tíminn - 06.08.1988, Qupperneq 3

Tíminn - 06.08.1988, Qupperneq 3
Laugardagur 6. ágúst 1988 HELGIN 3 sáust eftir hríngana í eyrunum á mér. “ Biskupinn í feikna stuði Þótt prestum og biskupum sé ætlað að vera fyrirmyndir ann- arra hvað varðar sannsögli og aðrar göfugar dyggðir vill þó við brenna að meira að segja þeir fara út af strikinu. Þannig var með Halldór nokkurn biskup. Lesendum læt ég eftir að dæma um hvort tvær eftirgreindar sög- ur honum eignaðar eru trúlegar eður ei. Fyrri sagan segir frá óhræsis hvassviðri: „Eitt sinn var ég úti staddur þegar slagbyljaveður var hið mesta sem ég man. Þá voru kýr reknar úr fjósi. En þá vildi svo til að einn bylinn rak á þegar fyrsta kýrin rak höfuðið út. Bylurinn tók af höfuðið við fjósstafinn. í sama bili kom annar bylur og rak höfuðið aftur á kúna svo fast að ekki losnaði aftur. “ Hin seinni segir frá undra- verðu keraldi: „Einu sinni smíð- aði ég kerald og lét ausa það við lind áður en það var gyrt, og lak ekki einum dropa. Þetta var á laugardagskvöld. Á sunnudag- inn kom fólk til kirkju. Þá gengu margir að keraldinu og undruð- ust að ekki Iak. Þótti þeim svo mikils um vert að tveir dóu af undrun. “ Hagara gagara skruggu skraungli Maður er nefndur Þorbjörn, sem gengið hefur alla jafna undir nafninu Æri-Tobbi. Hans er víða getið í sögnum fyrir hrekk- vísi og sérkennilegan skáldskap. Sú sögn er til af Tobba að hann hafi með hrekkvísi sinni vísað ókunnugum manni á vað- leysu með eftirfarandi stöku: Veit ég víst hvar vaðið er vil þó ekki segja þér fram af eyraroddanum undir svarta bakkanum. Svo illa vildi hinsvegar til að á þessum stað var djúpur hylur og Veiðisögumar era margar hverjar með ólíkindum vel kryddaðar. Einhverju sinni var veiðimaður spurður um hversu stór laxinn hafi verið sem hann missti. Svar veiðimannsins var á þessa leið: „Það veit ég ekki, en skuggi hans var sjö pund.“ Gat á sokknum Seinni veiðisagan af Kristófer er ekki síðri en sú fyrri. Hann á að hafa verið í smala- mennsku á ákaflega heitum degi. Að honum sækir mikill þorsti sem svalað er með því að leggjast á árbakkann og drekka frískandi vatnið. Kristófer segist ekki hafa drukkið lengi þegar lax hafi komið og rekið sporðinn uppísig. Mótleikur Kristófers fólst í því að bíta í laxinn og ná honum á þurrt land. „Þetta var ' smálax, “ á veiðimaðurinn að hafa sagt. i Þessi saga endurtók sig ári síðar, nema þá vildi til að laxinn var það stór aðhann dró Kristóf- er á bólakaf. Hann mun þó ekki hafa dáið ráðalaus og spyrnti ■ svo fast í árbotninn að hann flaug á þurrt land. Til að undir- strika sannleiksgildi þessarar sögu á Kristófer að hafa sagt: „Svo fljótt brá ég við að ég vöknaði ekki nema í aðra stóru- tána. Það var nefnilega gat á sokknum. “ Hausinn mölbrotnaði Ekki er hægt að segja hér skilið við Kristófer þennan án þess að greina frá viðskiptum hans við lágfótu. Hann segir svo frá: „Ég varað gæta að ánum um sauðburðinn og þóttist sjá vænan ullarlagð á holti ekki langt frá túninu heima. Ég ætlaði að hirða lagðinn. En þegarégkom nærsá ég aðþetta varhvít tófa steinsof- andi. Ég læddist að tófu ofurhægt. 1 Greip í skottið og sló henni við stein svo að hausinn mölbrotn- aði. Svo handfljótur var ég að hún vaknaði ekki fyrr en hún var dauð. “ Og síðan ein Kristóferssaga í lokin. Eins og fyrri sögur af honum er þessa að finna í bók Björns J. Blöndal, Sögnum og sögum. Ferðamaður sem ekki þekkti Kristófer gaf sig á tal við hann „Ég læddist að tófu ofurhægt. Greip í skottið og sló henni við stein svo að hausinn mölbrotnaði. Svo handfljótur var ég að hún vaknaði ekki fyrr en hún var dauð.“ Kristófer á Hamri sagði túnið þar vera svo stórt að kýmar þar hafi týnst og ekki fundist fyrr en að' hálfum mánuði liðnum. „Grasið og víðáttan bókstaflega gleypti þær.“ drukknaði því förumaðurinn. Vísur Æra-Tobba voru yfir- leitt hið mesta bull og að því er virðist algjörlega meiningarlaus- ar. Hvað má t.d. segja um eftirfarandi vísur Tobba um fiskidrátt: Heyrði ég sagt í haglda gaungli hagara gagara skruggu skraungli mimira stimira randa raungli reif sig keilan hans af aungli. Heyrði ég sagt í haglda gó hagara gagara skruggu skró mimira stimira randa ró hún reifsig af í miðjum sjó. Enginn venjulegur drjóli Einn angi lygasagna eru veiði- sögur. Laxveiðimenn eru ekki viðurkenndir sem slíkir fyrr en þeir geta sagt stórkarlalegar veiðisögur. Það fer yfirleitt sam- an að langbestu sögurnar eru jafnframt þær lygilegustu. Hver ; kannast ekki við veiðimanninn sem kemur laxalaus úr löngum og ströngum veiðitúr. Breitt er yfir laxaleysið með sögum um einstaka veiðiólukku. Veiði- maðurinn hafði fengið einn, þetta líka rosalegan drjóla, en því miður, misst hann rétt í þann mund er átti að landa honum. Úr veiðisögupottinum eru hér dregnar upp þrjár sögur úr bók Björns J. Blöndal, Sögnum og sögum, þar af tvær sögur af Kristófer bónda á Hamri í Borg- arhreppi í Mýrasýslu. Svo er sagt að veiðimaður hafi fest flugu í risastórum laxi. Ein- vígi þeirra stóð í rúman klukku- tíma og lauk með því að veiði- maðurinn missti laxinn. Þá á félagi hans að hafa spurt hann um hversu þungur laxinn hafi verið. Veiðimaðurinn svaraði: „Það veit ég ekki. En skugginn hans var sjö pund. “ Einhverju sinni á Kristófer á Hamri að hafa komið að ónefndri snæfellskri á á hesti sínum. Kristófer segir sjálfur svo frá að í sér hafi verið mikill galsi og því hleypt hestinum á stökk yfir ána. Það er ekki í frásögur færandi nema hvað að þegar Kristófer lítur til baka yfir vaðið sér hann að feiknastór lax flýtur dauður á ánni. Það skiptir engum togum að hann stígur af baki og veður út í ána og handsamar laxinn, sem reynist vera um 20 pund. Kristófer hugsar með sér að þetta tækifærí skuli hann ekki láta sér úrgreipum ganga. Hann stígur á bak klárnum og þeysir til baka yfir ána. I þetta skiptið fljóta upp tveir fiskar. Þarmeð er fjandinn laus og Kristófer ríður fram og til baka stanslaust í tvo tíma og hefur 22 stórlaxa upp úr krafsinu. Þeim orðum Kristófers var hnýtt aftan við söguna að hann hefði getað fengið miklu fleiri fiska, en klárinn hafi verið svo uppgefinn að ekki hafi verið á blessaða skepnana leggjandi að halda áfram veiðinni. og spurði: „Er ekki túnið á ] Hamri í Borgarhreppi ákaflega stórt og grasgefið?“ Kristófer svaraði: „Það má nú segja. í fyrrasumar týndust kýrnar þar og fundust ekki fyrr en eftir hálfan mánuð. Grasið og víðáttan bókstaflega gleypti þær. “ óþh

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.