Tíminn - 18.09.1988, Blaðsíða 2

Tíminn - 18.09.1988, Blaðsíða 2
2 HELGIN Laugardagur 17. september 1988 SÍDASTA ÆRIN tóninn, síðan fylgdi Ómar Arnbjörns., þá Tjarnarbræður, þeir Kristján og Hjörleifur, Ingvi bóndi á Bakka tók síðan undir svo og skagfirski hetjutenórinn Magnús á Sökku. Von bráðar sungu allir Af- réttarmenn sem best þeir gátu brag Árna Hjartarsonar á Tjörn, Kross- hólshlátur hinn nýja: Á Krosshóli við kyrjum hátt og kneifum vínið blíða. Klæmumst, bölvum, dönsum dátt svo dynurinn heyrist víða. Augafullir erum við í kvöld, augafullir erum við i kvöld, augafullir erum við í kvöld en allsgáðir á morgun! Tungurétt daginn eftir og jafnvel fram undir Höfðaball að kvöldi réttardags, þ.e.a.s. ef raddböndin halda út allan þann tíma. Það er gamall og góður siður í Afréttargöngum að skrá annál gangna í þar til gerða bók. Til fjölda ára var nákvæmur annáll skráður í bókina Krosshólshlátur en arftaki hennar frá árinu 1985 er svokölluð „Svarta bók“. Prólógus þeirrar bók- ar ritaði Þórarinn Hjartarson á Tjörn og naut við það dyggrar aðstoðar nokkurra valinkunnra gangna- manna. í þessum prólógus er getið um allar jrær skyldur sem hvíla á annálaritara hverju sinni: / „Svörtu bók“ skal setja á blað sér í lagi og einkum það allt sem góðir gangnamenn gerðu fyrr og bralla enn: Klifur eftir kindunum, hvíld á fjallatindunum, var það smali eða var það fé? sem vinning hafði í glímunni? Látið svo í letur hér líka hvernig veðrið er, skyggni, átt og skýjafar skráið hitagráðurnar. Fólk kom í Tungurétt til að sýna sig og sjá aðra. Auðvitað verður að festa öll herlegheitin á filmu! Börðust menn í bökkunum? bognuðu þeir í hnökkunum? Skripluðu þeir í skriðunni? skáru þeir margt úr riðunni? Höfðu þeir nóg af hákarli? harðfiski og góðmeti? Þegar vínið vermdi sál vaknaði þá ei skáldamál? Rauluðu menn rökkurljóð? Ríkti kannske grafarhljóð? Varð þeim illt af veigunum? Var nokkuð í fleygunum ? Gleymdist ekkigráturinn? Glumdi Krosshólshláturinn? Pytlan var vitanlega dregin á loft og látin svínga fram og til baka í takt við sönginn. Og einstaka sinnum var henni lyft að vörum og sopið duglega á. Litla fólkinu fannst lítið til þessara æfinga þeirra fullorðnu koma. Það hafði sérstakan áhuga á nokkrum bleðlum úr veski pabba til þess að fjárfesta í KEA-pulsu með sinnepi, tómat og hráum lauk í kaffisöluhúsi kvenfélagsins Tilraunar. í gegnum tvær sölulúgur streymdu pylsur, kók og prins til soltinna viðskiptavina sem gerðu góðan róm að Tilraunar- þjónustu. Fullorðna fólkið færði sig hinsvegar inn í hlýjuna og naut veglegra kaffiveitinga Tilraunar- kvenna. Allan liðlangann daginn unnu þær Kristín í Dæli, Svana á Melum, Gagga í Brekku, Helga á Bakka og fleiri kjarnorkuhúsmæður við að þjóna svöngum réttargestum og gangnamönnum. Og nema hvað. Yfir rjúkandi Bragakaffinu þótti söngmönnum við hæfi að taka nokkrar vel valdar gangnamanna- syrpur. Hvaða Svarfdælingur kann- ast ekki við vísurnar um Gunnar Eitthvað er Bakka- Baldur búinn að smakka það! Allt þetta er skylt að skrá, skal svo ekkert dregið frá. Þá er talið það sem hér hylja má og skrifa ber. Ekkert klám og ekkert níð í okkar gangnabók ég líð. Haldið ’ana heilaga hún er okkar hihlía. Hefðbundin réttarstörf Pað var heldur lítilfjörlegt safnið sem var rekið á Tungurétt úr Sveins- staðaafrétt að morgni sunnudagsins 11. september sl. Margir höfðu á orði að samanlagður fjöldi hunda, klára og gangnamanna væri meiri en fjöldi fjárins. Hvað sem því líður var stemmningin kringum þetta alltsam- an engu síðri en á mörgum undan- förnum árum. Gífurlegur fólksfjöldi safnaðist saman á Tungurétt, við rætur Stólsins, undir hádegi og tók á móti eldhressum gangnamönnum og jarmandi búfénaði. Hefðbundin réttarstörf, sundur- dráttur fjárins, voru leyst á undra- skjótan hátt enda lögðu þar ófáir hönd á plóg. Mönnum gafst því betri tími til að spjalla um lífið og tilver- una, stirðleika Steina, Denna og Jóns Baldvins í ríkisstjórnarsæng- inni, veðrið eða kartöfluuppskeru. Söngmönnum úr hópi gangnamanna bættist fljótt góður liðsauki afburða söngmanna úr sveitinni og frá Dalvík. Þarna mátti sjá vígreifa söngmenn eins og Jóhann Dan., Dóra Jó. og Einar bónda á Urðum taka lagið með Stebba Frið., Ómari og öllum hinum söngmönnunum. Á Tungurétt hið röska lið ríður snemma dagsins. Dregur fé og daðrar við dætur byggðarlagsins. Augafullir erum við í kvöld, augafullir erum við í kvöld, augafullir erum við í kvöld og ef til vill á morgun! Á Höfðaballi haugfullt stóð herjar á meyjafansinn. Undir vegg við fíflum fljóð og förum svo í dansinn. Augafullir erum við í kvöld, augafullir erum við í kvöld, augafullir erum við í kvöld og örugglega á morgun! Augafullir erum við í kvöld, augafullir crum við í kvöld, augafullir erum við í kvöld og alla næstu viku! Annállinn skráður í „Svörtu bók“ Á síðari árum hefur þessi bragur þótt ómissandi innlegg í göngur í Svarfaðardai. Menn byrja að syngja hann yfir fleygum fram í Sveins- staðaafrétt og halda því áfram á „Kvöldið er fagurt/sól er... “ öflugt söngtríó tekur lagið. Frá vinstri: Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi að Tjörn og form. Búnaðar- félags íslands, Stefán Friðgeirs- son frá Tungufelli, nú búsettur á Dalvík og Jóhann Daníelsson frá Syðra-Garðshorni, einnig búsett- ur á Dalvík. Það skyldi þó aldrei vera að Hjört- ur skæruliði á Bakka væri búinn að fá sér aðeins of mikið neðan i því?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.