Tíminn - 18.09.1988, Blaðsíða 12
helgin
Laugardagur 17. september 1988
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁI
Þegar engin fingraför fundust í herberginu, sem allt var atað blóði,
var fokið í flest skjól. Árvökull lögreglumaður mundi seinna
að hann hefði sama morgun séð pilt í verslun með óhrein föt í poka
Stórir flutningabílar með margs
konar farm, þ.á.m. matvæli, áburð
og húsgögn, komu og fóru allan
sólarhringinn við stöðina og þar var
mikið að gera. Þarna var fastur
viðkomustaður bílanna og bílstjór-
arnir fengu sér að borða og röbbuðu
saman áður en þeir héldu áfram í
allar áttir.
Konan við kassann brosti vin-
gjarnlega er þeir greiddu reikning-
ana. Hún og eiginmaður hennar
ráku viðkomustöðina við Lamar í
Suður-Karólínu og þckktu marga
viðskiptavinina allvel eftir mikil
samskipti. Sumir bílstjórarnir höfðu
fengið sér hressingu þarna árum
saman.
Þennan sama morgun, föstudag-
inn 31. október 1986, brosti konan
ekki jafn glaðlega og endranær. Hún
var þreytt eftir aukavakt daginn
áður því starfsstúlka hafði veikst
skyndilega. Hún leit oft á klukkuna.
Dóttir hennar þurfti að fara á fætur
bráðum til að fara til tannlæknis
klukkan II. Eftir nokkrar mínútur
ætlaði ntóðirin að hringja heim til að
fullvissa sig um að Sandra væri
vöknuð.
Sandra Cheryl Blackmon var
einkar lagleg 18 ára stúlka scm var
heima í löngu helgarleyfi frá
menntaskólanum í North Green-
wich.
Nú greip móðir hennar símann og
valdi númerið heima hjá sér. Síminn
hringdi en enginn svaraði. Líklega
var Sandra í steypibaði og heyrði
ekki hringinguna.
Nokkra stund hafði konan mikið
að gera því að margir bílar komu og
ökumenn þeirra þurftu að fá morg-
unverðinn sinn. Loks gafst færi á að
hringja aftur. Enn svaraði enginn.
Móðirin lagði á en gat ekki hætt
að hugsa um þetta. f>að var ólíkt
Söndru að svara ekki í símann.
Venjulega hljóp hún að símanum.
Kannski var hann bilaður. Hún hélt
áfram að hringja heim öðru hvoru
en með sama árangri.
Klukkan 9 gátu hjónin farið úr
vinnunni því að annað fólk var
komið á vaktina. Eiginmaðurinn
þurfti að fara til Darlington í banka
en kona hans ók rakleitt heim á
hinurn bílnum, nokkuð suður fyrir
Darlington. Hún andaði léttar þegar
hún kom að húsinu því að litli grái
bíllinn hennar Söndru var ekki úti
fyrir. Sandra hlaut að hafa farið
snemma og borðað morgunverð með
einhverjum vini sínum. Þá lægju
skilaboð um það á sjónvarpinu eins
og venjulega.
Allt atað blóði
Konan opnaði dyrnar og leit beint
að sjónvarpinu en þar var engan
miða að sjá, og heldur ekkert sjón-
varpstæki. Það var horfið! Óttinn
greip móðurina heljartökum er hún
þaut inn í herbergi dóttur sinnar.
Sandra lá á bakinu á gólfinu,
klædd náttkjólnum einum sem var
ataður blóði. í eins konar leiðslu
kraup konan ósjálfrátt niður og
lagði eyrað að brjósti Söndru til að
hlusta eftir hjartslætti en heyrði
ekkert nema sinn eigin eins og
hamarshögg.
Þó furðulegt mætti teljast hélt kon-
an ró sinni enn og hringdi til lögregl-
unnar. Á meðan hún beið, hélt hún
í hönd dóttur sinnar en fann engan
æðaslátt. Hún litaðist um og sá ýmsa
hluti, sem ekki áttu að vera í her-
berginu, liggja þar á víð og dreif.
Hún sá m.a. sjónvarpstækið, raf-
magnsdósahníf, síma, hamar, byssu,
krullujárn, plötuspilara og möl-
brotna kaffivél. Allt var löðrandi í
blóði.
Raunar var allt herbergið í blóð-
slettum, bæði loft og veggir. í ör-
væntingu sinni greip móðirin símann
aftur. Hún hringdi á vinnustað sinn,
til mágs síns, sem þar starfaði og
sagði honum hvað gerst hafði. Síðan
hringdi hún til bankans og bað um
samband við mann sinn, stjúpföður
Söndru. Aftur lýsti hún aðkomunni
á heimili sínu.
Nokkrum mínútum síðar heyrði
hún til lögreglubílanna í heimreið-
inni og eftir nokkur andartök var
húsið fullt af lögreglumönnum.
Vettvangsrannsókn hófst strax en
engin fingraför fundust. Blóðið úr
fórnarlambinu hafði spillt svo miklu
að útilokað var að finna morðingj-
ann af fingraförunum. Hins vegar
fannst far eftir íþróttaskó á laki í
herberginu og annað á útidyrahurð-
inni bakdyramegin. Morðinginn
hafði að líkindum sparkað í hurðina
tii að komast inn. Einnig fannst loks
hluti af handarfari á sömu hurð.
Annað morð
í fjölskyldunni
Rannsóknarlögreglumenn tóku
þegar að yfirheyra nágrannana sem
flestir voru raunar samankomnir úti
Hin 18 ára Sandra Blackmon var
myrt á hroðalegan hátt er hún var
ein heima að morgni dags.
raunar væri Damon einn þeirra sem
fyrst hefði verið rætt við þegar líkið
fannst, en þegar grunur féll loks á
hann, hefðu hlutirnir gengið hratt
fyrir sig. Ekki fékkst upplýst hvers
vegna grunurinn hefði farið að bein-
ast að honum.
Rekinn úr vinnu
Talsmaðurinn sagði að Damon
hefði þekkt Söndru eftir að hann
starfaði fyrir stjúpa hennar á við-
komustöðinni og einnig hafði hann
starfað á býli sem stjúpinn átti þar
skammt frá. Stjúpinn hafði hins
vegar rekið Damon þremur mánuð-
um fyrir morðið en ekki var gefin
upp ástæða fyrir brottrekstrinum.
Upplýst var að stjúpi Söndru hafði
þekkt Damon í ein sex ár. Pilturinn
var sonur prédikara sem bjó skammt
frá heimili Söndru. Þá kom fram að
lögreglan hefði handtekið annan
mann fyrir innbrotið og málin teldust
ekki lengur tengd.
Tveimur dögum eftir handtökuna
var Damon færður aftur til Suður-
Karólínu í Iögreglufylgd. Hann kom
til Darlington seint um kvöldið.
Daginn eftir kom hann fyrir dómara
sem úrskurðaði hann í gæsluvarð-
hald og geðrannsókn án möguleika
á tryggingu.
Dómarinn tilkynnti að fjölskylda
Damons hefði ekki ráð á að kaupa
sér einkalögfræðing og tilnefndi því
lögfræðing frá hinu opinbera sem
verjanda piltsins. Fjölskyldan undi
því hins vegar ekki og sagðist reyna
hina leiðina einhvem veginn.
Þegar fréttist um handtöku Dam-
ons voru íbúar þessa litla samfélags
þrumu lostnir yfir að hann, prédik-
arasonurinn, skyldi geta framið svo
viðurstyggilegan glæp. Damon var
fyrir þegar hér var komið sögu og
fylgdust með öllum bílastraumnum
að húsinu. Rannsóknarlögreglu-
maðurinn Jay Cox var einn hinna
fyrstu á vettvang.
Þegar hann var búinn að kynna
sér aðkomuna inni fyrir, fór hann
með félögum sínum út að ræða við
fólkið ef vera kynni að einhver hefði
séð til mannaferða milli klukkan 6
um morguninn og þar til líkið fannst.
Einnig var lýst eftir bíl Söndru,
gráum Nissan Sentry, árgerð 1984.
Númer hans var LBS 847 og límmiði
með skólamerkinu var á afturstuðar-
anum.
Einn nágranni kvaðst hafa séð
líkan bíl kl. rúmlega 7. Konan sagði
hann hafa ekið hægt í átt til Lamar.
Annað vitni sá einnig svipaðan bíl
en hann hefði ekið hratt. Ökumað-
urinn var svartur karlmaður.
Þegar fréttist um morðið, linnti
ekki hringingum til lögreglunnar
með ábendingar um grunsamlega
bíla eða menn. Fæstar höfðu við
nokkuð að styðjast en allt var athug-
að. Samt fannst hvorki bíllinn né
morðinginn.
Kvöldið eftir var svo brotist inn í
fyrirtæki foreldra Söndru, viðkomu-
stöð bílstjóranna. Lögreglan sagði
að þjófarir hefðu farið inn á karlasal-
emið, þaðan upp í gegn um geymslu-
loft og niður á skrifstofuna þar sem
þeir tóku um það bil 90 þúsund
krónur. Útilokað var að segja til um
hvort innbrotið tengdist morðinu.
Það gæti verið tilviljun en einnig
gæti sami maður hafa verið að verki,
sagði lögreglan.
Piltur handtekinn
Síðdegis sama dag og útför Söndru
fór fram, laugardaginn 8. nóvember,
var bóndi einn á ferð milli akra sinna
er hann kom auga á bíl við afskekkt-
an slóða. Býlið var tæpa 4 km frá
heimili Söndru og bíllinn var hálffal-
inn milli þéttra runna við slóðann.
Farangursgeymslan var opin. Bónd-
inn fór þegar heim til sín og hringdi
til lögreglunnar.
Lögreglumenn komu á staðinn
innan fárra mínútna og þekktu þegar
í stað bíll Söndru Blackmon. Blóð
var á stýrinu, gírstönginni og mæla-
borðinu. Lögreglan taldi nokkra
daga geta liðið þar til niðurstöður
rannsóknar segðu til um hvort blóðið
væri úr Söndru.
Á fréttamannafundi nokkrum
dögum eftir morðið, sagði talsmaður
lögreglunnar, að ekki væri enn hægt
að segja til um hvort samband væri
á milli innbrotsins í viðkomustöðina
og morðsins en farið væri með málin
eins og þau væru tengd. Hann sagði
einnig að maður sem í fyrstu var
grunaður, hefði nú verið hreinsaður
af öllum grun.
Þann 18. nóvember var gefin út
handtökuskipun á Darren nokkurn
Damon, 18 ára pilt, frá Lamar. Ljóst
þótti að skófarið á hurðinni væri
eftir hann. Hann var handtekinn
daginn eftir í Kentucky og ákærður
fyrir morðið á Söndru. Damon var í
starfsþjálfun í Kentucky og yfirmenn
hans þar höfðu verið Iögreglunni
hjálplegir við að útvega far eftir skó
hans.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
Allir voru harmi slegnir vegna
morðsins. Fólk ræddi varla um ann-
að sín á milli næstu daga. Við þetta
rifjaðist upp annar harmleikur í
fjölskyldunni. í desember tveimur
árum fyrr var náfrændi Söndru, hinn
18 ára Jeffrey van Lee, myrtur í
Florence í Suður-Karólínu þar sem
hann var í skóla.
Jafnaldri Söndru, Darren Damon,
sást sama morgun á ferli með
óhrein föt í poka.Stjúpi Söndru .
hafði rekið hann úr vinnu.
Lagleg stúlka í
blóðugum náttkjól