Tíminn - 18.09.1988, Side 6

Tíminn - 18.09.1988, Side 6
6 % HELGIN_________________ Kokkáluð guðshetja skrokkinn í skemmunni og hann skrifar það sér til minnis. Þessu næst ríða Skálhyltingar til Þingvalla á Öxarárþing. Þar stýrir Ögmundur prestastefnu í hinsta sinni og tuttugu og fjórir prestar sem í dóm eru kvaddir lýsa Gissur Ein- arsson réttan biskup. En þegar heim í Skálholt kemur tekur Gissur að ganga all hart eftir fullum reikningsskilum af gamla biskupinum. Og áður en júlímánuð- ur er úti ríður fáliðaður öldungur heiman frá Skálholti sem leið liggur upp í Haukadal. Þetta er Ögmundur biskup að flytjast búferlum af stólnum. Gissur ríður aftur á móti austur í æskubyggð sína og í heim- leiðinni kemur hann við í Lambey í Fljótshlíð, þar sem hann lætur níu presta dæma þann dóm að Ögmundi beri að skila honum jafnmiklum eignum og hann hafði tekið við af Stefáni biskupi Jónssyni, auk þess sem honum er heimilað að brigða allar jarðir sem seldar höfðu verið undan stólnum í tíð Ögmundar, ef hann kysi heldur en þær jarðir er komið höfðu í staðinn. Já, nú er kominn uppskerutími þeirra manna sem fyrrum réðu ráð- um sínum í skúmaskotum í Skál- holti. Að áliðnu hausti lætur Ög- mundur þau bréf ganga að hann vilji gera stólnum full reikningsskil að Torfastöðum í Biskupstungum snemma maímánaðar hið næsta ár. En þá bregður svo við að Gissur vill ekki þýðast þetta og ber við önnum. En öldungnum sýnist samt að nokk- urt efni geti verið til mannfundar á Torfastöðum, því hann skrifar Jóni biskupi Arasyni á Hólum og heitir á i hann að koma suður yfir fjöll um | vordaga. Gamla biskupinum þykir | flest ganga í sukki hjá Gissuri og ekki vanþörf á að taka í taumana: „Vitið kæri bróðir að hér fer mjög hryggilega fram sem allsmektugur guð vinni bót á. Hvergi eigum vér þess kost inn í hús að koma, heldur förum vér sem einn fátækur maður... Kirkjunnar silfur og háfur er burt tekið úr dómkirkjunni, látið í eina kistu og læst í því húsi sem hann sjálfur sefur. Megið þér sjálfur sjá meininguna þar til. Bagaldúkur og annað það klenódíum sem vér höfum kirkjunni lagt er borið hingað og þangað... “ Honum sárnar meðferðin á vígð- um kirkjugripum sem saumaðir hafa verið og smíðaðir af mikilli alúð og gefnir af ræktarsemi og lotningu og hann órar fyrir því hver verða muni áhrif þess gulls og siifurs, sem dóm- kirkjan hefur eignast á mörgum öldum. En öldungnum blinda lærist seint: að sjá við vélráðum. Bréfið til Jóns ! Arasonar lendir í höndum Gissurar Einarssonar, sem stefnir liði í j Skálholt, svo hann ekki muni standa uppi liðvana, ef til tíðinda dregur. Þegar hann þykist hafa dregið saman nægan liðsafla, stefnir hann biskupi, fyrir prestadóm á Öxarárþingi hinu næsta og ber Ögmund þungum sökum: Svikráð við Gissur biskup og Kristjáii konung III. Gissur launar fóstrið En Jón biskup kom aldrei á fund að Torfastöðum og prestar fella ekki neinn dóm um gerðir Ögmundar Pálssonar. Nokkrum dögum fyrir þing koma til landsins tvö herskip og eru þar á Kláus van der Marwitzen og Kristófer Hvítfeldur, lénsmaður konungs í Þrándheimi. Gissur ríður þegar vestur yfir heiðar til fundar við valdsmennina. Fregnin um komu skipanna flýgur um allar sveitir og vinir Ögmundar leggja honum það ráð að forða sér austur í Skaftafellssýslu, þar sem útlendum hermönnum yrði eftirreið- in torveld. Ögmundur vill þekkjast þau ráð, en þykist þó fyrst verða að ríða vestur að Hjalla í Ölvusi til fundar við Ásdísi systur sína er þar býr. Nú förum vér fljótt yfir sögu, þar sem þessi þáttur mun flestum les- enda vel kunnur: Með ráði Gissurar Laugardagur 17. september 1988 senda þeir hæstráðendur skipanna þrettán eða fjórtán danska menn austur að Hjaíla undir forystu Eyj- ólfs nokkurs Halldórssonar, er fyrr meir hafði flúið vegna vígsmáls á Norðurlandi á náðir Ögmundar biskups. Þessi lýður dregur gamla manninn fram úr rúmi sínu og flytur hann nauðugan suður og um borð í herskipið Brima Samson. Ásdís syst- ir hans er blekkt til að láta af hendi allt það fé sem bróðir hennar hafði átt hjá henni fólgið gegn loforði um að hann verði laus látinn. Það er svikið og fastast gegn lausn hans leggst fóstri hans Gissur Einarsson. Það eitt er nú eftir að Ögmundur gefi upp lén sín og umboð í hendur þeim siðbótarmönnum, sem til valda hafa hafist í Skálholtsbiskupsdæmi. Og þetta er allt komið í kring hinn fimmta dag júlímánaðar. Þá eru segl undin upp á Brima Samson og Kristofer Hvítfeldur lætur í haf með fanga sinn. Sú var tíðin að Ögmundur Pálsson þoldi sjóvolk. Nú er um skipt. Hann hefur ekki verið nema átta daga á sjónum þegar hann geispar golunni. Hjalli í ölfusi á vorum dögum. Gissur biskup er þá riðinn á Aust- firði. Að þessu sinni sjá Austfirðingar mjög hermannlegan biskup á yfir- reið. Honum fylgja vopnaðirsveinar og altygjaðir, fimmtán að tölu, og þeir fara ekki einu sinni úr herklæð- um um nætur. Þeir prestar sem miklir þykja fyrir sér verða að sverja honum hollustueiða. Og allir beygja sig fyrir þessum höfðingja, sem hefur haft svo mikinn og skjótan framgang. Enn vantar nokkuð á tíunda árið frá þeim degi er hann sat umkomulítill úti í Hamborg og hét Ögmundi Pálssyni því að hann skyldi vera góður drengur og duglegur að læra, svo hann þyrfti ekki að sjá eftir peningunum, sem fóru í námskostn- aðinn. Vígsla Gissurar Biskupunum á íslandi hafa nú borist þau boð frá Kristjáni konungi að þeir skuli sigla á hans fund sumarið 1542, eða ári eftir að Ög- mundur sté fanginn á skipsfjöl. Giss- ur Einarsson bregst fúslega við þess- ari kvaðningu, enda á hann erindi til Danmerkur, þar sem hann hefur enn ekki tekið vígslu. Jón Arason á Hólum ætlar ekki að fara utan - hann sendir í umboði sínu þrjá menn af Norðurlandi. Eitt er það þó sem Gissur ætlar ekki að láta hjá líða áður en hann fer af landinu: Nú er kennimönnum öllum heimill hjúskapur og forráða- maður Skálholtsstóls ætlar sér ekki að lifa einlífi. Hann hefur beðið sér konu af norsku fremdarkyni, Guð- rúnar, dóttur Gottskálks Hólabisk- ups Nikulássonar og systur Odds á Reykjum og fengið jáyrði. Og áður en hann stígur á skipsfjöl er festaröl- ið drukkið. Festarkonan er þegar komin í Skálholt og þar skal hún bíða heimkomu unnustans. Nýi kirkjupresturinn í Skálholti, síra Eysteinn Þórðarson, nýtur mik- ils trausts húsbónda síns og Gissur felur honum á hendur að annast Guðrúnu, svo að henni verði ekki langsamt. Slíks hins sama biður hann móður sína, Gunnhildi, er hann hefur tekið heim á biskupsstól- inn, ásamt þremur bræðrum sínum, séra Jóni, Þorláki og Halldóri. Síðan gengur Gissur á skip í Drottins nafni. Hann hefur tekið sér fari með Stakknum, sem legið hefur í Straumsfirði -í kauptíðinni og þeir verða vel reiðfara. Gissuri er tekið með kostum og kynjum í Höfn. Aðfarir hans við Ögmund biskup eru metnar mikið manndómspróf og háfur Skálholtskirkju hefur verið meðtekinn þakksamlega. Þessi há- vaxni súperintendant frá Skálholti hefur gengið undir jarðarmen hins nýja siðar á lofsamlegan hátt. Kon- ungur eftirlætur honum biskups- vígslu og Pétur Palladíus, hinn frægi Sjálandsbiskup, vígir hann snemma hausts. Gissuri Einarssyni gefst tæki- færi til að gista Hamborg enn einu sinni í nokkra mánuði og áður en hann kveður Kaupmannahöfn lætur konungur honum í té kvittun fyrir sex hundruð níutíu og fimm lóðum silfurs, auk peninga og gullkaleiks þess hins mikla, sem kenndur er við Klæng biskup Þorsteinsson og fylgt hefur dómkirkjunni í Skálholti í nálega fjórar aldir. Barma hans hafa varir hinna göfugustu íslendinga snortið, er þeir gengu til ábergingar á hinum mestu viðhafnarstundum. Nú skal hann bræddur upp í stríðsgjald. Kokkáluð guðshetja Veturinn er fljótur að líða í glaumi og gestaboðum Hamborgar og um það bil sem brumið fer að þrútna á trjánum er tekið að ferma íslands- förin og reiðbúa þau. Skúta sú sem Gissur fer með vindur upp segl snemma í aprílmánuði. Það líður líka að vori á íslandi og þá tekur fólk í Skálholti að halda uppi spurnum um hvort Hamborg- ara hafi ekki orðið vart við landið. Það má ætla að festarkonunni leiki ekki hvað sísthuguráslíku. Ólíklegt er að aðrir bíði heimkomu biskups með meiri óþreyju. Samterþaðeinn dag, þegar mjög er að vori liðið, að hún stendur ferðbúin á hlaði í Skál- holti. Hún ætlar að ríða austur yfir Tungufljót að Bræðratungu. Og hún tekur með sér undarlega margt af því sem hún á í Skálholti. Próventu- kerlingar Ögmundar biskups hnipp- ast á og stinga saman nefjum af áfergju, þegar þær horfa á eftir henni austur úr tröðunum og vinnu- konur staðarins standa á gægjum við húshornin. Viku fyrir krossmessu spyrst það til Skálholts að Gissur Einarsson er út kominn í Hafnarfjörð. Litlu síðar kemur hann heim í Skálholt. Bræður hans þrír fagna honum af blíðu, móðir hans faðmar hann að sér. Þó er líkt og ekki sé allt með felldu. Guðrún Gottskálksdóttir kemur ekki í leitirnar og loks leiðir Jón Einarsson bróður sinn afsíðis og segir honum ill tíðindi. Festarkonan er í brott farin, þunguð af völdum kirkjuprestsins, séra Eysteins Þórð- arsonar. Gissur setur hljóðan. Sjálf- sagt veit hann þó ekki að því er hvíslað um göng og hlöð á biskups- stólnum að móðir hans, fimmtug kona eða eldri, sem átti að gæta Guðrúnar með presti, hafi einnig gerst honum vikaliprari en góðu hófi gegnir. Gissur Einarsson gengur hljóður til sængur og hin fyrsta nótt hans á stólnum líður af. Hinn næsta dag er séra Eysteinn er kominn í matstofu og sestur að borði, snarast bræður Gissurar, séra Jón, Þorlákur og Halldór, inn með alvæpni. Það verð- ur fátt um kveðjur. Séra Eysteinn hleypur upp og vefur kápu sinni að höndum sér, en þeir bræður sækja að honum allir þrír. Leikurinn berst fram og aftur, og kirkjupresturinn reynir að bera af sér höggin með kápunni. En það berast brátt á hann sár. Þá stekkur hann yfir borðið og fær dregið fram sleddu er hann bar á sér. Eftir nokkur vopnaviðskipti hleypur hann á Þorlák og keyrir hann undir sig. Rekur hann þá sledduna fyrir brjóst andstæðingi sínum og hleypur á hann ofan. En með því að Þorlákur er í pansara bognar vopnið, en gengur ekki í gegn. í þessum svifum kemur séra Jón höggi á kirkjuprestinn, svo að af verður mikið sár og tekur nú blóðrás að mæða hann. Þegar menn koma til og fá skilið þá er séra Eysteinn óvígur orðinn og eru á honum talin þrettán sár. Þó þöktir öndin í vitun- um á honum. Það er nýr fógeti konungs á Bessa- stöðum, sem tekur þennan brotlega mann að sér og græðir hann - í óþökk biskups þó. Sætleiki valdsins Andrúmsloftið kring um Gissur er dálítið óþægilegt. Hann hefur unnið lokasigur á undraskömmum tíma og hlotið fulla biskupsvígslu. Valdið liggur honum í höndum, þó að það hafi orðið honum dýrkeypt. Ekki er teljandi fyrirstaða á að menn snúist til fylgis við hann, enda vita mektar- menn í landinu að betra muni að snara frá sér heilagri Maríu mey, en missa lén sín og hreppa ónáð konungs. Gissur á líka við örðugleika að etja á Skálholtsstað, sem rúinn hefur verið öllu fémætu - allt silfur, bæði skraut helgimuna og peningar hefur verið sent utan í botnlausa hít stríðs- rekstrar Kristjáns konungs. Þegar ungur maður leitar á náðir hans til þess að biðja um fjárstyrk til náms verður hann að gera hann afturreka með orðunum: „Auðurinn fór til Danmerkur-hvíli hann þar í friði.“ Ástamál hans eru og áfram milli tannanna á fólki. Hin hverflynda unnusta hans lætur sig hafa það að fæða þríbura, þegar konur í sóma- samlegu ektastandi láta sér nægja eitt eða í hæsta lagi tvö börn. Börnin deyja þó öll við fæðingu. Það þykir og saga til næsta bæjar þegar það spyrst að biskupinn vill taka hana í sátt og leiða hana að altarinu, eins og ekki hafi í skorist. En viti menn! Guðrún Gottskálksdóttir hafnar góðu boði og stráir með því salti í sár þessa manns, sem nú hefur vissulega prófað á sjálfum sér hvað það er að vera svikinn. Hann verður því að leita á önnur mið og fyrir valinu verður Katrín Hannesdóttir á Núpi í Dýrafirði. Hún fæðir honum tvö börn, en bæði deyja þau nýfædd. Ef til vill eru getur hafðar uppi um hvað þessu muni valda. Getur verið að blessun Guðs fylgi ekki biskupn- um? Árin líða og Marteinn Lúther spyrst andaður suður á Þýskalandi. Fátt gerist að vísu stóratburða á við það sem var er viðureignin við Ögmund stóð sem hæst. Stóratburð- ir eru geymdir biskupnum á Hólum, Jóni Arasyni. Gissur er þó athafna- samur við að má út leifar pápiskunn- ar og gera upptæka ýmsa helga gripi. í kirkjunni í Kaldaðarnesi er til dæmis róðukross, sem mikil helgi er á. Hann er silfurbúinn og hin mesta gersemi og menn flykkjast að honum til að snerta hann og þykjast við það fá bót hinna ýmislegustu meina. Einn daginn gerir Gissur biskup ferð sína úr Skálholti niður í Flóa. Nú skal látið til skarar skríða gegn róðunni í Kaldaðarnesi. Krossinn er tekinn og allur hinn dýri búnaður rifinn af honum, því biskupinn ætlar að hafa eðalmálminn með sér heim. Þegar þessu er lokið er krossinn borinn út og litla kirkjan á bökkum Ölfusár svipt þeim helgidómi sem hún er vígð. Litlu síðar berast fréttir frá Skál- holti, sem ekki koma þó öllum á óvart, eftir slíkt framferði: Gissur biskup er sjúkur. Og biskupi elnar sjúkleikinn, svo að hann fær ekki riðið á Öxarárþing. Á langaföstu veturinn 1548 gefur hann upp önd- ina, maður á miðjum aldri. Það ber kannske að nokkuð um svipað leyti að Gissur biskup Einars- son er grafinn í kór Skálholtskirkju og heilagur kross er aftur kominn á sinn stað í kór litlu kirkjunnar í Kaldaðarnesi. Þannig lýkur sögu fyrsta lútherska biskupsins á íslandi. Sjálfsagt hefur Gissur trúað því að sá siður væri betri er hann ruddi braut í landinu en hinn fyrri. Samt v£rð hin fyrsta uppskera Islendinga af siðaskiptunum megn hjátrú og átakanlegt uppburðarleysi, örbirgð og kröm. Og hversu trúaður sem hann hefur orðið á siðbótina, þá verður aldrei af honum þvegið að hann beitti undirferli og svikum til þess að koma sínu fram, sigldi undir fölsku flaggi og níddist þar á ofan á þeim manni, sem hann átti allt að launa, blindum og örvasa. BÁSAMOTTUR FRÁ ALFA-LAVAL Sterkar og einangra mjög vel. Stærð: 1400x1100 mm.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.