Tíminn - 30.04.1988, Blaðsíða 2

Tíminn - 30.04.1988, Blaðsíða 2
12 gH HEUGIN Laugardagur 30. apríl 1988 Tveir hluaparar, 8 lakeyar og 2 skyttur þjónuðu til borðs... digrari en þá ég var hér seinast og var hinn náðugasti. 3. Frá konungi keyrði ég til prins Kristjáns. Var þar fullt fyrir af höfðingjum til að heilsa honum og votta heiðrun. Hann spurði mig ítarlega frá íslandi og hvort ég ei vissi að hann léti sér um það annt? Ég ansaði því síðara jú, og hinu sem ég gat. Hann kvaðst lengi hafa í huga haft að sjá ísland og nú einkum að sumri. Það mundi kosta rúma tvo mánuði. Eg kvað ísland hlakka til þeirrar náðar og heiðurs að sjá sinn tilkomandi konung í fyrsta sinni á lóð sinni, en mega fyrirverða sig hvergi að geta boðið þvílíkum herra undir sitt þak. Hann tók því náðug- lega, spurði mig um Viðey og æðar- fuglinn og hvað liði byggingu bisk- upshússins, um eldgosin, um trjávöxt, um hverana. Spurði hvert eg ei hefði verið hér seinast sér samtíða. Ég kvað nei við. Hann kvað okkar fundum oftar mundi í vetur saman bera. Með það kvaddi ég hann, mikinn skynsemdar, góð- semdar og ljúflyndis herra.“ HENNAR HÁTIGNAR STAKLEGA NÁÐ Magnús Stephensen átti eftir að sitja margar veislur og miklar með hinum dönsku hátignum. Oft var fyrirvarinn lítill og dæmi um slíkt gæti verið það sem skrifað var í dagbókina 9. nóvember: „Nú kom ég heim klukkan 1 um miðdegi. Stökk vertinna mín móti mér með öndina í hálsinum og kvað hiaupara kóngs hafa verið hér með skipun um að eg borða skyldi í dag við borð konungs. Fór ég strax að pússa mig og lét panta mér vagn, þar regn og for á strætum var. Keyrði svo með toppuðum hestum og þén- ara aftan á upp að sloti drottningar kl. 2VL í forsal þar söfnuðust 5 prinsar, prinsessur og allir statsmin- istrar, því statsráð var þann dag og fjöldi borðgesta meðal hverra ég heilsaði þar og hjalaði við statsmin- ister Mösting og aftur við Kaas og prins Kristján kom til mín og skraf- aði um ýmislegt náðuglega. Stats- minister Sehested fagnaði mér og minntist á kappróður okkar anno 1800 á Bagsværdsvatni, kammer- herra Oldenborg, etatsráðin Mandix og Schleyer. Þá konungur og drottn- ing komu með fylgd þeirra dró marskálkur Brockenhus mig fram úr röðinni og sagði drottningu hver ég væri. Hún gekk blíð og náðug beint að mér með heilsunum. Kvaðst fagna komu minni hingað, spurði ítarlega af ferðum mínum og hversu langt væri síðan hún hefði seinast séð mig, um ætt mína heima og árferðið, um húsakynni embættis- manna á íslandi. Kvaðst vita að erfitt væri um þau, þar biskup Steingrímur ekkert hefði haft eða getað fengið. Talaði þá Kaas við hvers vinstri hlið ég stóð frammí og tjáði drottningu að eg hefði það besta hús og ætti þá bestu jörð á íslandi. Spurði drottning mig um nafn hennar og kosti og um æðar- fuglinn mikið og ýmislegt. Kvaðst á mér heyra að eg hefði fengið kvef á ferðinni og óskaði að Danmerkur mildara loft fljótt mætti bæta úr því og veran hér til vors verða mér ánægjusöm. Ég laut henni til jarðar og þakkaði hennar hátignar staklegu náð. Prins Kristján spurði mig hvort refar á íslandi voguðu að ráðast á gamla sauði og játaði ég því.“ LAKEYAR, HLAUPARAR OGSKYTTUR „Drottning talaði síðan með sömu blíðu við flesta boðsgesti af karl- mönnunum, en kóngur á meðan við hoffrúr. Þegar hún hætti gekk fram prins Kristján, tók drottning í arm honum og leiddi hann hana þannig til borðs í næsta sal fyrir miðju langvegs á borðinu og settist við hlið hennar. Strax eftir kom konungur eins með prinsessuna, konu prins Kristjáns, settist hjá drottningu en hin kóngi til hægri handar. Hún er fögur kona og þægileg. Friðrik sonur prins Kristjáns tók krónprinsessu Karólínu, prins Ferdinand krón- prinsessu Vilhelminu og settust hjá þeim, prinsar hinir hver eina prins- essu, svo statsministrar hoffrú 1 hver. Eg lenti hinum megin and- spænis skáhallt móti kóngi og drottn- ingu milli tveggja kammerherra. Annar var kunningi minn Oldenborg og þeim næstir etatsráð Mandix og Schleyer og voru ræðnir vel við borðið. 20 pager, ungir offiserar og aðalsmenn báru á borð, 8 lakeyer, 2 hlauparar og 2 skyttur. 1 kammer- júnkur stóð bak við drottningarstól. 15 réttir, allir vel ætir, voru á borðum, þar á meðal östers, karper, posteyer, ís, ný vínþrúgnaber græn með honum og portvín, annars rauðvín, ekkert madera eða annað vín. 60 sátu til borðs. Konungur reis fyrstur frá borðum og hver fór með sína frú í sömu röð í næsta sal aftur, hvar allir söfnuðust og kóngur og drottning hjöluðu við ýmsa, meðan kaffi var af lakeyum í fjölda bolla á stórum presenterfötum borið á milli og boðið. Eg drakk einn lítinn og fann að betra var hér heima. Þar gengu menn svo aftur og fram litla stund eftir það konungur og drottn- ing og hirð þeirra fór burt og smá- tíndust svo heim í vögnum. Eg kom heim klukkan lítið yfir sex um kvöldið." DAGLEGT AMSTUR Sem fyrr er á minnst hafði Magnús mikilvægum erindum að sinna, ekki síst lagaverkinu, sem hann gekk nú að með mikilli elju, en ýmsu daglegu amstri þarf hann að gegna á milli, eins og dagbókin sýnir dagana 22. til 24. nóvember 1825: 22. Votviðri, Tók eg saman og raðaði í bunka sérhverju Jónsbókar- handriti á borð mitt. Tók svo til að skrifa tvisvar á íslensku og einu sinni á dönsku saman taka og inn í auka formálana frásögn um fundi, yfir- skoðun og álit mitt um þær 4 skinn- bækur, við nú bárum saman frá kóngs mikla bókasafni og Sívalí- turni, sem ég þar fann og náði til, og varð það alllangt. Kom til mín, sat hér og rabbaði lengi prófessor Bor- nemann, svo Benedikt Bergsson. Missti hann allt sitt að heiman með Wulfs strandaða skipi, hans benefi- cia (styrkir) eru þrotin og hann því í fári. Falaði að skrifa fyrir peninga og tók eg hann til þess. Svaf ei í nótt enn. 23. Sama veður. Hélt eg áfram að, auka inn í formálana og lauk við um kvöldið, en varð að láta skrifa þá upp alla 3. Fékk Benedikt Bergsson það. Fékk nýja sóla í mín gömlu stígvél. Kom etatsráð Thorkelín til mín, var hér góða stund og gaf mér framhald af enskri bók, Danmark delineatet með koparstykkjum. 1 part á eg á fslandi. Hér kom og stúdent Westey Petræus og Pétur Sú góða matmóðir kvað hægðatregðuna stafa af hreyfingarleysi og skipaði konferensráðinu að fara út að ganga um „vollana“, svo hratt sem hann gæti. Jónsson með honum í húsvitjun hjá mér. Enn fór eg ekkert út, en sat að veislu heima hér með proprietaire (landeiganda) Jörgensen utan úr Sjálandi, sem með konu sinni, er kennt hafði prins Kristjáns konu ungri frönsku og aðra kvenkosti. Kom því hingað til að finna prinsess- una, en var vinkona vertinnu minnar, og voru þau hjón því boðin hingað til miðdags. Átum allra bestu kjötbollusúpu, spánýjan lax á hálf- vættar stærð, uxasteik með langkáli og tvennslags syltetöj og þá bestu köku eg hefi smakkað, en veit ei að nefna, öngulvarma. Við Jörgensen drukkum upp okkar flösku víns til samans og skálir. 24. Hrakviðri. Sá eg ei til að klóra þetta við gluggann fyrr en kl SVi vegna dimmviðris. Fór svo að laga dönsku útleggingu Jónsbókar eftir því nú inn í aukna úrskinnbókunum, sem var býsna mikið. Fékk mér hjá skraddara Halldorsen íslendingi saumaðan hversdagsfrakka bláan úr . i? Spurði konungur um hreindýrin á íslandi, hvort ekki væru skaðlega mörg og hvort þau ekki yrðu tamin. Skinnbækur bornar frá kóngs mikla bókasafni á Sívalaturni. ódýru töi, kalmuk, svipuðu, næstum snöggu, alin kostar 8 mörk og dökk- gráar klæðisbuxur víðar. Keypti 6 smá vínglös til að bjóða þeim vín í, helstu kunningjum, er mig heim- sæktu, hvert á 20 sk. Lét mína 4 rakhnífa slípa fagra og beitta, svo ágætir urðu og gaf 1 mark á hvern. Fékk Benedikt Bergsson nóg að skrifa. Sat eg heima við umbreyting dönsku Jónsbókar, komst langt inn í Mannhelgi." JARÐARFÖR Magnús hafði mörgum skyldum að gegna gagnvart því fólki sem hann þekkti í gleði og sorg. Þannig er hann þann 1. desember 1825 viðstaddur útför gamallar kunn- ingjakonu: „Fylgdi eg sálugu maddömu Knudsen til Grafar. Vorum 30 í 15 vögnum, allir í sorgarkápum, út á gamla Assistentskirkjugarði utan fyrir Norðurporti. Ekki var eitt orð sungið og ekki eitt gott orð við líkkistu eða gröf mælt. Prestur snar- aði á þeim 3 moldarspöðum og sagði þartil heyrandi orð og gekk svo burt. Eg sá líkið dýrðlega til moldar búið. Var það í andliti ekkert afmyndað, þótt hún í 5 dægur eða 60 klukku- tíma ætti í harðasta andláti og sí- felldum slögum. Vagn, sorgarkápa, etc. kostuðu mig rúma 2 rbd. Veitt var á hospitalstofunni áður en líkið var út hafið, maderavín og sæta- brauðskaka sælgætakryddara. Knudsen og Petræus mjög sorgandi. Komu til mín kaupmaður Christen- sen að austan, Bregsen, Kristján Skúlason etc. Fór Jakob Thoraren- sen út á Friðrikshospital um tíma til lækninga þar við heyrnardeyfu. Reit eg athugsemdir á dönsku til Jóns- bókar.“ HÆGDATREGÐA í allri velsældinni á Hafnarslóð hefur Magnús sjálfsagt átt til að borða yfir sig og það ásamt kyrrset- unum við skriftimar varð til þess að lengi desembermánaðar þjáðist hann af hægðatregðu, uns bót fékkst þann 14. mánaðarins: „Sama veður. Engar hægðir, en eg miklu lakari. í dögun setti vert- inna mín á eldinn mikið af sveskjum og sennesblöðum handa mér, sem eg borðaði, en þar kom ekkert út af. Rak hún mig svo út um hádegi upp á staðarvollana, því veður var gott til að ganga um, þá,. sem hraðast eg gæti í 2 klukkutíma og kvað þetta orsakast af langvarandi kyrrsetum við skriftir. Eg fann að eg lasnaðist dag frá degi og gjörði svo með veikan mátt. Sá þaðan yfir staðinn, forstaðina og landið, yndisleg sjón. Mætti þar á rölti frú Magnússen,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.