Tíminn - 30.04.1988, Side 9
Laugardagur 30. apríl 1988
HELGIN
19
AMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKA
Tidaholm glertrefja
ini oft hótað öllu illu svo menn
heyrðu til.
Fleiri gátu svo sem fallið undir
grun, til dæmis menn sem Lanzolla
hafði átt viðskipti við, einkum gripa-
sölu. Flestir þeirra reyndust þó hafa
örugga fjarvistarsönnun fyrir tímann
milli kl. 4 síðdegis, þegar Lanzolla
var myrtur og um kvöldið, þegar
eldurinn var kveiktur.
Myrtur eftir ástarleik
í skýrslu slökkviliðsstjórans um
eldinn sagði, að hann hefði verið
kveiktur milli 22.30 og 23.30, ein-
faldlega með því að opna lokann á
gaskútnum og bera eld að. Kúturinn
lá á hliðinni og stóð því eldstrókur-
inn beint í logt upp en sprengingin
varð seinna, þegar kúturinn var
orðinn nógu heitur.
Skýrsla læknisins staðfesti, að
fleiri að einn aðili hefði átt hlut að
máli. Sýni af kynfærum líksins bentu
til að Lanzolla hefði haft samfarir
rétt fyrir andlátið. Hann hafði verið
myrtur, áður en hann gat þvegið sér
og farið í buxur.
Þetta auðveldaði lögreglunni eilít-
ið störfin. Ljóst var að morðingjarnir
höfðu verið að minnsta kosti tveir:
kona, sem fór með Lanzolla í rúmið
og karlmaður með krafta til að
brjóta á honum höfuðið með þungu
sveðjunni. Þarna komu Daniella
Marinelli og Pietro Caraballo vissu-
lega til greina, en einnig grannhjón-
in, Júlía og Giovanni Venturini. í
báðum tilvikum voru konurnar að-
laðandi og karlar þeirra kraftalegir.
Vissulega komu fleiri til greina,
en ekki var auðvelt að hafa uppi á
þeim. Einn var fyrrum félagi Lan-
zollas, sem hafði flutt inn til hans
1973, skömmu eftir dauða konu
hans. Vændiskona í Colle, hin46 ára
Maria Mastrofrancesco hafði búið
með Lanzolla í átta ár, fram í
febrúar 1981, þegar hann kom að
henni í rúminu með öðrum og
fleygði henni á dyr. Hún fór til Bari
og ekkert hafði frést af henni síðan.
Maria var falleg kona og vinsæl í
starfi sínu í Colle. Hún hafði oftsinn-
is tekið á móti viðskiptavinum í
svefnherbergi Lanzollas, meðan
hann þrælaði á ökrunum. Hún fór
ekki í launkofa með að hún yrði að
gera þetta, því annars hefði hún ekki
í sig, vegna nísku LanzoIIas. Auk
þess þyrfti hún að fullnægja sérlega
miklum hvötum hans, iðulega fram
á miðjar nætur, en fara svo á fætur
klukkan sex að morgni til að annast
heimilisverkin, launalaust.
Illa svikin ráðskona
Áður en Maria flutti inn á býlið,
hafði hún talið að sér veittist auðvelt
að mýkja Lanzolla með fjölbreyttum
atlotum sínum, en hann hafði allan
tímann verið þiggjandi og ekkert
látið í staðinn. Er tímar liðu, sótti
þetta svo á Mariu, að hún sagði
hverjum sem heyra vildi, að hún
myndi með glöðu geði drepa karlinn,
ef hún hefði burði til þess.
Þau átta ár, sem Maria bjó á
Santeramo-býlinu, hafði fjöldi
vinnumanna komið og farið. Enginn
tolldi til lengdar, því launin voru
hrein smán. Talið var víst að Maria
hefði sængað hjá þeim öllum, enda
nefndi hún það stundum.
Gat verið að hún hefði gert sam-
komulag við einhvern þessara
manna, um að þau snéru aftur og
reyndu að koma höndum undir fjár-
sjóð Lanzollas? Hún hafði áreiðan-
lega svipast um eftir aurunum, á
meðan hún bjó í húsinu og þótt súrt
í broti að finna ekkert.
Viletti taldi þessa tilgátu eins góða
og hverja aðra og leitaði aðstoðar
Bari-lögreglunnar við að hafa uppi á
Mariu, sem hann taldi að væri á skrá
yfir vændiskonur í Bari.
Hvert sem starf Mariu var, reynd-
ist hún ekki skráð vændiskona og
Bari-lögreglan fann hana ekki í
snatri. Þó fengust upplýsingar um
hana, sem leiddu til þess að grunur-
inn styrktist. Hún hafði seinast sést
með Carlo nokkrum Sollazzo, 42 ára
heljarmenni, sem látinn var laus úr
fangelsi fyrir bílþjófnað í mars 1980.
Hann hafði yfirgefið Bari skömmu
síðar og nú var að vita, hvort hann
hefði komið til Colle. Síðan kom
hann aftur til Bari tæpu ári síðar,
ásamt Mariu, en það var um sama
leyti og Lanzolla fleygði henni á dyr.
Líklegt var að þau hefðu kynnst
skömmu áður.
Síðasti vinnumaðurinn
Svo sannarlega höfðu þau það og
meira að segja á Santeramo-býlinu
sjálfu. Þar hafði Sollazzo leitað sér
vinnu, þegar hann kom úr fangelsinu
og orðið sá seinasti í röð vinnu-
manna, sem störfuðu fyrir Lanzolla
og sváfu hjá ráðskonu hans.
Handtökuskipanir á Sollazzo og
Mariu voru þegar gefnar út, en áður
en til þeirra náðist, varð annað
hneyksli í Colle, sem talið var geta
tengst morðinu.
Að kvöldi 2. janúar 1983, reyndi
granninn Venturini, sem eldað hafði
grátt silfur með Lanzolla, að myrða
konu sína. Ástæður voru ekki fylli-
lega ljósar, en frú Júlía, notalega
þybbin kona, hafði hlaupið til næsta
býlis, allsnakin, með eiginmanninn,
froðufellandi á hælunum. Fólkinu
þar tókst með naumindum að koma
í veg fyrir að hann kyrkti hana á
þröskuldinum.
Farið var með Júlíu inn fyrir, hún
vafin teppum og gefið koníak. Ná-
grannarnir voru vissir um að í fátinu
nefndi hún nafn Lanzollas og auðséð
var að hún var komin eina fimm
mánuði á leið. Þar sem fólkið lagði
saman tvo og tvo, þótti því ráðlegast
að hringja til Vilettis.
Það var þó ekki gert fyrr en
daginn eftir, en þá var Júlía búin að
jafna sig og farin heim. Þegar lög-
reglan kom, virtist allt í besta lagi og
hjónin neituðu að neitt væri að. •
Viletti var ekki viss um réttmæti
þess, enda höfðu þau verið eins og
fest upp á þráð og sagt nei við jafnvel
saklausustu spurningum. Nágrann-
arnir þóttust vissir um að Lanzolla
væri faðir ófædda barnsins og að
Veturina hefði drepið hann fyrir
vikið. Gallinn á kenningunni var
bara sá, að hefði Venturina verið að
komast að þessu núna, hvers vegna
hefði hann þá myrt Lanzolla í októ-
ber?
Götóttar kenningar
Viletti taldi sig geta svarað því.
Venturini hafði ef til vill komið að
konu sinni með Lanzolla og drepið
hann í reiði sinni. Þá hafði hann ekki
vitað að Júiía var ófrísk, en sæi það
núna og tengdi það Lanzolla.
Eins og svo margt annað í málinu,
voru þetta getgátur einar og studdust
ekki við neinar áþreifanlegar sann-
anir. Lögreglan hafði þegar farið
fýluferð til að rannsaka hagi Dan-
iellu Marinelli og Pietro Caraballo,
sem virtust lifa notalegu lífi á skika,
sem dygði ekki einu sinni kú. Rosk-
inn bóndi hafði Iofað þeim peningum
fyrir blíðu Danielle, sem hann fékk
ekki, en þau kúguðu ef honum
peninga, í skjóli þess að Daniella
væri aðeins 15 ára, annars kærðu
þau hann fyrir áreitni við barn.
Þá var það loks í júní 1983, að
Carlo Sollazzo og Maria Mastro-
francesco voru handtekin í Bari,
eftir misheppnað innbrot. Hvorugt
þeirra stóðst nema hálftíma yfir-
heyrslu, þá játuðu bæði morðið á
Lanzolla. Hann hefði fleygt þeim á
dyr eins og þau stóðu og síðdegis 11.
október 1983 höfðu þau farið þangað
til að reyna að fá laun sín og eigur
aftur.
Lanzolla svaraði því til, að þau
fengju allt, ef Maria kæmi með sér í
rúmið í síðasta sinn. Þau samþykktu
það, en þegar karlinn hefði lokið sér
af, hefði hann harðneitað að afhenda
þeim nokkuð. í hita rifrildisins hefði
Solazzo gripið sveðjuna, sem stóð í
eldhúsinu og keyrt hana í höfuð
Lanzollas.
Réttarhöld fóru fram í janúar
1984 og fékk Sollazzo 14 ára fangelsi,
en Maria 6 ár.
Pietro Caraballo og Daniella Marinelli voru fljótlega grunuð um morðið
á hinum sextuga, kvensama nirfli.
Flaggstengur
Sterkar - viðhaldsfríar
með öllu tilheyrandi
BYGGIR h/f
Grensásvegi 16. - Sími 91-37090
i Breyttur opnunartími
í sumar
Frá 1. maí til 1. september verður skrifstofa Rauða
kross íslands að Rauðarárstíg 18 opin frá kl. 08.00
til kl. 16.00.
uJ -á Rauði kross íslands
III REYKJKJÍKURBORG HHI
__________ _______1% H
T Aau&vi Stó4u>i
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar eftir að ráða eftirtalið starfsfólk:
Sjúkraliða við heimahjúkrun á fastar næturvaktir
og til sumarafleysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri og hjúkrunar-
framkvæmdastjóri heimahjúkrunar í síma 22400.
Umsóknum skal skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar fyrir kl. 16.00 mánudaginn 9.
maí n.k.
1« REYKJÞMIKURBORG 111
>^ +** H___________ ____
>»» •<>
J.auwt Stöeávi
Skrifstofumaður
Óskast hjá Húsatryggingum Reykjavíkurborgar.
Starfið er fólgið í almennri afgreiðslu og færslum
á tölvu.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 18000.
Jiamvinnufi focj in áma vmumíi fvfíi tií
ójávar ocj jmta aífrn fuiífa á faráttu-ocj
mtiéiócíccji affjjóifccjrar ircrfafijéófimjjiníjar.
@ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA