Tíminn - 11.01.1989, Qupperneq 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 11. janúar 1989
íslendingar selja hermönnunum á Keflavíkurflugvelli einungis lítið brot af því kjöti sem þeir neyta, en íslenskir bændur gætu samt selt meira:
KANARNIR ÆSTIRI
KJÚKLING OG SVÍN
íslendingar selja varnarliðinu í Keflavík einungis 6% af því
svínakjöti sem það neytir, 5% af nautakjötinu, 11% af
kjúklingunum og loks um 55% af þeim eggjum sem
varnarliðið neytir. Árið 1987 var samið um sölu íslenskra
landbúnaðarafurða til bandaríska hersins á Keflavíkurflug-
velli en íslenskir framleiðendur sáu sér hvorki fært að selja
jafn mikið af kjúklingum eða svínarifjum og samið var um.
Þetta kom fram í svari utanríkis-
ráðherra viö fyrirspurn Guðna Ág-
ústssonar um liversu mikið af land-
búnaðarafurðum íslendingar seldu
varnarliðinu á árunum 1985, 1986 og
1987 og hvcrsu mikill innflutningur
á kjötvörum var á vegum varnarliðs-
ins á sama tíma. Kaup varnarliðs-
manna á kjöti, eggjum, mjólkuraf-
urðum og brauðvörum frá íslenskum
aðilum námu samtals tæplega 62000
dollurum, eða sem svarar 2,8 millj-
ónum kr. Fyrir tæplega tveimur
árum var samið við herinn á Kefla-
víkurflugvelli um kaup á 16 tonnum
af nautakjöti, um 50 tonnum af
eggjum, en sala á kjúklingum var
talsvert undir því 34 tonna marki
sem um var samið, enda telja kjúkl-
ingabændur sig ekki geta annað
þeirri eftirspurn sem samið var um.
Þá var einnig samið um sölu á 4,5
tonnum á svínarifjum en ekki reynd-
ist unnt að anna þeirri eftirspurn
þegar til kom.
Kjötvörur keyptar innanlands eru
einungis lítill hluti þess sem flutt er
inn. Á árinu 1987 voru til dæmisflutt
inn 504 tonn af kjöti, þar með töldu
kjúklingakjöti og einnig flutti herinn
á Keflavíkurflugvelli inn 40 tonn af
eggjum. Unnar landbúnaðarafurðir
voru fluttar inn fyrir jafnvirði 24
milljóna ísl. króna og landbúnaðar-
afurðir fyrir um jafnvirði. 7,2 millj-
óna.
Guðni Ágústsson sagði innflutn-
ing á kjöti og það jafnvel hráu kjöti
mjög varhugaverðan og taldi tíma-
bært að ríkisstjórn íslands hæfi við-
ræður við varnarliðið um að íslenskir
bændur önnuöu allri eftirspurn eftir
kjöti fyrir þennan markað út frá
öryggissjónarmiðum um sjúkdóm-
avarnir.
Steingrímur J. Sigfússon landbún-
Guðni Ágústsson alþingismaður tel-
ur tímabært að Islendingar sjái
Bandaríkjamönnum á Keflavíkur-
flugvelli fyrir kjöti.
aðarráðherra tók í sama streng og
sagði þennan innflutning hreina lög-
leysu af því tagi er gengi í gegnum
öll samskipti við herinn og helgaðist
af því að einhver æðri lög þættust
hafa verið búin til með svo nefndum
varnarsamningi sem tæki af almenn
ákvæði íslenskra laga að því er ýmsir
vildu meina. - ág
Miklilax
stækkar
Ujá Miklalaxi hf. í Fljótum er nú
um það bil að ljúka vinnu við
byggingu mannvirkja og eldiskcrja
fyrir matfiskeldisstöð fyrirtækisins
við Miklavatn, cn eins og áöur
hefur komið fram hentar Mikla-
vatn í Fljótum mjög vel til fiskeldis
frá náttúrunnar hendi.
Frá því í september hefur verið
unniö sleitulaust við byggingu
fjögurra eldiskerja, miölunar-
tanks, dælu og lagerhúss ásamt
röralögnum úr Miklavatni að dælu-
liúsi og frá eldiskerjum til sjávar.
Þarna cr aðeins um fyrri áfanga
framkvæmdanna að ræða sem gerir
kleift að koma í eldisker á landi
allri gönguseiðaframleiðslu þessa
árs sem fram til þessa hefur verið í
netkvíum í Miklavatni. Næsta vor
er fyrirhugað að hefjast handa við
nokkur eldisker til viðbótar, einnig
byggingu sláturhúss og íbúðar-
húsnæðis fyrir starfsmenn. Þegar
uppbyggingu Miklalax hf. verður
lokið mun eldisrými í útikerjum
verða um 18 þús. rúmmetrar. Áætl-
uö framleiðslugeta er 800-1000
tonn af laxi á ári. Þegar áframeldið
verður komið í fullan gang er
reiknað með að 25-30 manns muni
að jafnaði vinna hjá fyrirtækinu.
Eins og áður sagði hefur verið
unnið síðan í haust við þessa
uppbyggingu. Þrátt fyrir hagstætt
tíðarfar það sem af er vetri hcfur
ýmislegt orðið til að tefja fram-
kvæmdir þannig að ekki er enn
Ijóst hvenær hægt vcröur að flytja
seiðin, sem nú eru raunar orðin
3-500 gramma þungir fiskar. í
kerin. Eins og gefur að skilja hafa
þessar framkvæmdir skapað mikla
atvinnu, meiri en svo að Fljóta-
menn næðu að anna henni einir og
unnu allmargir Siglfirðingar hjá
Miklalaxi meðan hvað mest var að
gera. ÖÞ Fljótuni
Erföamengun villta íslenska refastofnsins af völdum alidýra er hugsanlega aö veröa stórt vandamál:
KEMUR UPP NYR ST0FN
VILLTRA SILFURREFA?
Tíminn skýrði frá því fyrir nokkrum mánuðum að íslenska
refastofninum stafaði hugsanlega hætta af erfðamengun frá
blárefum er slyppu úr búrum og blönduðust stofninum. Nú
hafa þeir sem fylgjast með íslenska refastofninum vaxandi
áhyggjur af annarri ógnun og hættulegri, að silfurrefur er
sloppið hefur úr búrum nái að fjölga sér úti í náttúrunni og
ógni þar lífsafkomu villtra refa.
Af og til verða refaskyttur og aðrir
varir við silfurrefsblendinga sem
sloppið hafa út úr búrum og var til
dæmis einn slíkur skotinn skammt
frá Dalvík s.l. haust. Alkvæmi silfur-
refs og íslenska refsins og silfurrefs
og blárefs eru ófrjó og ná ekki að
fjölga sér. Takist silfurref á hinn
bóginn að para sig úti í náttúrunni
gæti það þýtt nýjan stofn villtra
silfurrefa. Sá ættbálkur gæti ógnað
verulega þeim stofni villtra refa sem
fyrir er í landinu.
Nú er vitað um allnokkra silfurrefi
er hafa sloppið af refabúum og ekki
náðst aftur. Að sögn Páls Hersteins-
sonar veiðistjóra hafa ekki enn fund-
ist nein greni villtra silfurrefa hér á
landi, en þeir eru að stofni til bæði
stærri og styggari og þar sem þessir
tveir stofnar, villtur heimskautarefur
og silfurrefur, hafa keppt sín á milli
úti í náttúrunni hafi silfurrefurinn
yfirburði. Lappar, samar og aðrir er
kynnst hafa þessum tveimur tegund-
um eru sammála um að mun erfiðara
sé að veiða silfurrefinn, þar sem
hann sé mun varkárari en bæði
blárefurinn og heimskautarefur.
Það er ekki í fyrsta skiptið nú á
undanförnum árum að silfurrefir
sleppi út af búum. Það gerðist einnig
á 4. og 5. áratugnum, en þá í svo
litlum mæli að viðkomandi dýr náðu
ekki að tímgast. í þessu sambandi
verður að líta á gífurlega fjölgun
alirefa á þessum áratug og má sem
dæmi nefna að árið 1980 voru full-
orðnir refir aldir í búrum hér á landi
280 talsins. Einungis sex árum síðar,
eða árið 1986 voru þeir komnir yfir
20.000. - áe