Tíminn - 11.01.1989, Side 10
10 Tíminn Miövikudagur 11. janúar 1989 Miövikudagur 11. janúar 1989 Tíminn 11
llllllllllllllllllllllllllll IÞRÓTTIR . ÍÞRÓTTIR '
Körfuknattleikur-NBA:
Seattle Supersonics
stöðvaði sigurgöngu
Cleveland Cavaliers
- stórleikur Derrik McKey skipti sköpum
11 leikja samfelld sigurganga
Cleveland Cavaliers í NBA-deild-
inni var stöðvuð í fyrrakvöld er liðið
tapaði 103-105 fyrir Seattlc Supers-
unics. Derrik McKey átti stórleik í
Sonicsliðinu og skoraði 32 stig,
mesta sem hann hefur skorað á ferli
sínum í dcildinni.
Philadelphia 76‘ers unnu Dallas
Mavericks stórt 121-103, en Sixers
liðið hafði tapað 5 leikjum í röð fyrir
þennan leik. Charles Barkley var
stigahæstur með 26 stig.
Keppni í NBA-deildinni í körfu-
knattleik er nú vel á veg komin og
línur farnarað skýrast nokkuð. Ljóst
er að nýju liðin í deildinni, Miami
Heat og Charlotte Hornets eiga
erfitt uppdráttar. Þá hafa Washing-
ton Bullets, Indiana Pacers, Los
Angeles Clippers og Sacramento
Kings ekki náð góðum árangri og
komast að öllum líkindum ekki í
úrslitakeppnina.
San Antonio Spurs, lið Péturs
Guðmundssonar hefur einnig tapað
mörgum leikjum og liðið virðist ekki
vera líklegt til þess að tryggja sér rétt
til að leika í úrslitakeppninni.
Pað lið sem mest hefur komið á
óvart í vetur er tvímælalaust lið
Clevelans Cavaliers. Liðið hefur náð
bestum árangri allra liðanna í deild-
inni, aðeins tapað 6 leikjum af 30.
Næst Cleveland kemur lið Detroit
Pistons með 9 tapleiki úr 30 leikjum.
Cleveland liðið er mjög jafnt og
liðið skartar ekki einni stórstjörnu.
í liðinu eru 4 leikmenn með um 20
stig að meðaltali í leik, þeir Larry
Nance, Ron Harper, Brad Daug-
herty og Mark Price. Þá er framherj-
inn John Williams einnig góður
leikmaður. Þjálfari liðsins er Lenny
Wilkins, sem áður þjálfaði Seattle
Supersonics, en undir hans stjórn
varð Seattle meistari í NBA-deild-
innni 1978.
Urslit leikja að undanförnu hafa
verið þessi:
Phoenix Suns-Boston Celtics ... 106-104
Indiana Pacers-Atlanta Hawks .. 116-113
N.Y.Knicks-N.J.Nets............... 105-96
WashingtonBullets-Charlotte ... 109-86
Milwaukee Bucks-LA.CIippers . 110-102
Golden State-Miami Heat........ 109-100
LA.Lakers-Portland Trailbl .... 133-120
Cleveland Cavaliers-Chicago .... 103-98
S.A.Spurs-Philadelphia ’76ers .. 119-104
SeattleSupers.-Sacramento ... 120-106
Denver Nuggets-Golden State .. 131-129
N.Y.Knicks-L.A.CIippers......... 134-100
L.A.Lakers-San Antonio Spurs ... 126-96
Boston Celtics-L.A.CIippers..... 119-84
Utah Jazz-Charlotte Hornets .... 114-92
Philadelphia’76ers-Dallas M. .. 121-103
Seattle Supers.-Cleveland Cav .. 105-103
GoldenState-PhoenixSuns .... 130-124
Staðan í deildinni er nú þessi:
Austurdeildin
Atlantshaísriðill:
New York Knicks . . ............ 32 21 11 42
Philadelphia 76‘ers ............ 23 17 15 34
Boston Celtics ................. 31 15 16 30
New Jersey Nets ................ 32 13 19 26
Washington Bullets.............. 31 9 21 18
Charlotte Hornets .............. 32 9 23 18
Miðriðill:
Cleveland Cavaliers ............ 30 24 6 48
Detroit Pistons................. 31 21 9 42
AUanta Hawks.................... 32 21 11 42
Milwaukee Bucks................. 29 18 11 36
Chicago Bulls................... 30 16 14 32
Indiana Pacers.................. 31 8 23 16
Vesturströndin
Miðvesturriðill:
Houston Rockets ................ 31 19 12 38
Denver Nuggets.................. 31 19 12 38
Utah Jazz ...................... 33 19 14 38
Dallas Mavericks................ 30 17 13 34
San Antonio Spurs.............. 31 10 21 20
Miami Heat...................... 31 3 28 6
Kyrrahafsriðill:
Los Angeles Lakers.............. 33 22 11 44
Phoenix Suns.................... 32 20 12 40
SeatUe Supersonics.............. 30 18 12 36
PorUand Trailblazers ........... 31 18 13 36
Golden State Warriors .......... 29 13 16 26
Los Angeles Clippers ........... 33 10 23 20
Sacramento Kings................ 28 7 21 14
BL
Michael Cage og Xavier McDaniel í Seattle liðinu í baráttu um frákast.
Þorgils Óttar Mathiesen fyrirliði landsliðsins átti í erfiðleikum með að koma knettinum framhjá Mats Olson markverði Svía
Tímamynd Pjetur.
■-V- ** I T * ■ r-y': . Mir \
Handknattleikur:
Víkingsstúlkur fyrstar
til að sigra Framara
Fyrsta deild kvenna í handknattleik er
nú opin uppá gátt eftir að Víkingsstúlkur
sigruðu Fram um helgina. Þetta var fyrsti
tapleikur Fram í vetur.
Leikurinn var mjög spennandi frá upp-
hafi til enda og úrslit réðust ekki fyrr en á
síðustu mínútu. í hálfleik var staðan 8-7
fyrir Víking. Víkingur stóð uppi sem
sigurvegari í lokin, 13-12. Inga Lára Þóris-
dóttir var markahæst Víkingsstúlkna með
4 mörk, en þær Svava Baldvinsdóttir og
Valdís Birgisdóttirgerðu 3mörk hvor. Hjá
Fram skoruðu þær Margrét Blöndal og
Jóhanna Halldórsdóttir 4 mörk hvor.
Stjörnusigur á Val
Stjarnan vann óvæntan sigur á Val er
liðin mættust um helgina. Valsstúlkur
höfðu yfir allan leikinn og í hálfleik var
staðan 12-7. Stjörnunni tókst að jafna
undir lok leiksins og síðan að skora
sigurmarkið, meðan dauðafæri Vals runnu
út í sandinn. Markahæst Stjörnustúlkna
var Erla Rafnsdóttir með 8 mörk, en hjá
Val skoraði Kristín Arnþórsdóttir 6 mörk
og Katrín Friðriksen 4.
Haukarunnu ÍBV
Haukastúlkur unnu öruggan sigur á ÍBV
um helgina. Haukar náðu smám saman að
tryggja sér sigurinn eftir að ’staðan í
hálfleik var 10-8 fyrir Hauka. Lokatölur
leiksins urðu 25-16. Flest mörk mörk
Hauka gerði Þórunn Sigurðardóttir 8, en
Stefanía Guðjónsdóttir gerði 7 mörk fyrir
ÍBV.
Staðan í 1. deild kvenna er nú þessi:
Fram ........... 8 7 0 1 162-92 14
Víkingur........ 8 6 0 2 150-120 12
FH ............. 6 5 0 1 115-89 10
Stjarnan........ 7 3 1 3 146-119 7
Haukar.......... 7 3 1 3 126-125 7
Valur........... 7 3 0 4 107-112 6
ÍBV............. 8 1 0 7 105-175 2
Þór............. 9 1 0 8 126-205 2
Handknattleikur:
Framarar sýndu mótspyrnu
Framarar komu nokkuð á óvart í fyrra
kvöld er þeir léku gegn KR í 1. deildinni í
handknattleik. Það var ekki fyrr en í
lokakafla leiksins að KR-ingar náðu að
hrista Safamýrardrengina af sér og sigra
22-18.
Eftir 2 tapleiki í röð áttu KR-ingar erfitt
uppdráttargegn Fram. í hálfleik varstaðan
jöfn 10-10 og lengi vel í síðari hálfleik var
jafnræði með liðunum. Undir lokin náðu
KR-ingar að sýna styrk sinn og nýta sér
mistök Framara. Vesturbæingar tryggðu
Lágvaxnir í
framtíðinni
Júgóslavneski þjálfarinn Tomislav Ivic
sagði á mánudaginn á þjálfaranámskeiði í
Belgrad, að framtíðin í knattspyrnu væru
lágvaxnir leikmenn. Hann sagði að þeir
væru leiknari og fljótari, enda er þyngdar-
pukturinn neðar. „Knattspyrnumaður
framtíðarinnar, sérstaklega í vörn, verður
um 1,60 m á hæð,“ sagði Ivic.
sér sigur 22-18 og eru sem áður í 2. sæti
deildarinnar með 18 stig. Baráttan um
Evrópusæti á eftir að verða hörð milli KR,
Stjörnunnar og FH, en Valsmenn eru svo
gott sem búnir að tryggja sér sigur í
deildinni.
Mörkin KR: Alfreð Gíslason 6/2, Guð-
mundur Albertsson 6, Stefán Kristjánsson
3. Páll Ólafsson 3, Sigurður Sveinsson 2,
Staðan í 1.
deildinni í
handknattleik
Valur.......11
KR .........11
Stjarnan .
FH .....
Víkingur
Grótta . .
KA .....
‘BV.....
ram
IBK .
11
11
11
10
11
11
11
10
11
9
7
6
5
3
4
1
1
1
294-220 22
278-247 18
254-232 15
290-272 13
284-290 11
208-223 8
257-267 8
223-255 5
228-268 5
8 214-256 3
Einvarður Jóhannsson 1 og Þorsteinn
Guðjónsson 1. Fram: Birgir Sigurðsson
7/3, Júlíus Gunnarsson 6, Egill Jóhannsson
2, Hermann Björnsson 2 og Gunnar
Andrésson 1. BL
Blak:
KAvannFram
Um helgina voru nokkrir leikir á Islands-
mótinu í blaki. Hið sigursæla lið KA frá
Akureyri brá sér suður yfir heiðar og lék
gegn Frömurum. Sunnanmenn voru engin
hindrun fyrir KA-menn sem enn eru
taplausir á mótinu.
KA sigraði nokkuð létt í leiknum 3-0.
Þróttarar úr Reykjavík fóru til Neskaup-
staðar og léku þar gegn heimamönnum í
Þrótti. Reykjavíkur Þróttur bar sigur úr
býtum, 3-1. Kvennalið sömu félaga léku
einnig þá sigruðu heimamenn 3-0.
Lið HSK vann 3-0 sigur á HK á föstudag-
inn, en kvennalið Breiðabliks vann 3-0
sigur á KA-dömum. Þá voru 2 leikir í
kvennadeildinni á sunnudaginn, Víkingur
vann KA 3-0 og ÍS vann HK 3-1. BL
Handknattleikur:
Eins marks sigur
Svía í Gautaborg
íslenska landsliðið í handknattleik
lék í gær fyrsta leik sinn á Eyrar-
sundsmótinu í handknattleik. Mót-
herjarnir Svíar náðu að vinna eins
marks sigur 25-24, eftir að hafa haft
yfir í hálfleik 13-11.
íslendingar náðu forystu í upphafi
leiksins, 2-1, en Svíarskoruðu næstu
6 mörk, flest úr hraðaupphlaupum
og komust yfir 7-2. í hálfleik höfðu
Svíar yfir 13-11. f síðari hálfleik
hresstust íslendingar mjög og náðu
að jafna leikinn og eftir það var jafnt
á öllum tölum þar til íslendingar
komust yfir 20-19 með marki Guð-
mundar Guðmundssonar. Svíar
komust aftur yfir 21-20, en Sigurður
Sveinsson jafnaði 21-21. Kristján
Arason kom okkar mönnum yfir, en
aftur gerðu Svíar 2 mörk í röð.
Sigurður Sveinsson jafnaði úr víta-
kasti, síðan gerði Magnus Vislander
tvö mörk í röð og tryggði Svíurn
sigur. Héðinn Gilsson minnkaði
muninn í 24-25, en mikill darraðar-
dans var á lokasekúndum leiksins.
Þegar leikurinn rann út var Guð-
mundur Guðmundsson til að mynda
í hraðaupphlaupi og hefði getað
jafnað leikinn með því að skora.
Einar Þorvarðarson varði mjög
vel í síðari hálfleik, eftir fremur
slakan fyrri hálfleik. Héðinn Gilsson
átti ágætan lcik og sömuleiðis Sig-
urður Sveinsson. Kristján Arason
lét Mats Olson markvörk Svía verja
frá fjöldann allan af skotum, en þeir
leika báðir mcðTeka áSpáni. Sömu-
leiðis varði Olson oft skot Þorgils
Óttars Mathiesen. Olson átti bestan
leik Svía, eins og svo oft áður gegn
íslendingum og varði 14 skot.
Á morgun leika fslendingar gegn
D.önum í Danmörku, en í íslenska
liðinu sem leikur á mótinu eru
eftirtaldir leikmenn: Einar Þorvarð-
arson, Hrafn Margeirsson, Leifur
Dagfinnsson, Júlíus Jónasson,
Valdimar Gríntsson. Þorgils Óttar
Mathiesen, Héðinn Gilsson, Páll
Ólafsson, Birgir Sigurðsson, Sigurð-
ur Sveinsson, Kristján Arason, Guð-
mundur Guðmundsson og Bjarki
Sigurðsson.
Markahæstir í leiknum gegn Sví-
um voru Sigurður Sveinsson með
7/3, Kristján Arason með 5 og
Héðinn Gilsson með 4. BL
Vélsledasýning - Yélsleðamarkaður
nk. laugardag og sunnudag frá kl. 13-18
í íþróttahöllinni á Akureyri
Sjáið allar 1989 ár-
gerðirnar frá Ski-
Doo, Polaris, Yama-
ha, Artic Cat.
-0O0-
Komið og ræðið við
umboðsmenn og sölu-
menn - Fáið verð og
bæklinga.
Björgunar-
sveitir sýna
útbúnað sinn á
útisvæði.
Úrval af notuðum
sleðum og hjólum til
sýnis og sölu á úti-
svæði.
-0O0-
Komið með gamla
sleðann á markaðinn
strax á föstudag og
reynið að skipta í
nýrri.
Komið
Aftanísleðar, vél-
sleðakerrur, kulda-
fatnaður, kuldaskór,
hjálmar og alls konar
aukabúnaður til sýnis
og sölu.
-0O0-
Bílsímar, lórantæki,
varahlutir, olíur, átta-
vitar.
Kuldafatnaður,
kuldaskór, vélsleða-
kerrur og aftanísleð-
ar.
-0O0-
Námskeið á staðnum
í fjallaferðum og lór-
an-rötun.
og spáið
Velkomin í íþróttahöllina, efri sal.
Landssamband íslenskra vélsleðamanna
Akureyrardeild