Tíminn - 31.01.1989, Blaðsíða 3
, ÞÁ&jud^eur.3.1, :rjfjrWr'1989
■ Ti/mírfn r> 3
Snjóþyngsti janúarmánuður á höfuðborgarsvæðinu frá því 1984:
Kostnaður við snjóruðning
orðinn um átta milljónir
Litlar líkur virðast vera á því að snjó taki að leysa á
Suður- og Yesturlandi í bráð. Spá fyrir næstu daga er á þá
leið að í dag verða aðeins tímabundin hlýindi og rigning en
síðan fer að snjóa á ný, a.m.k. á Suður- og Vesturlandi.
Hjá veðurstofunni fengust þær
upplýsingar að þessi janúarmánuð-
ur er orðinn sá snjóþyngsti á höfuð-
borgarsvæðinu síðan 1984.
í viðtali við Tímann sagði Ingi
Ú. Magnússon gatnamálastjóri að
kostnaður vegna snjómoksturs í
höfuðborginni þessa viku sem
snjórinn hefur verið, er nú þegar
orðinn á bilinu sjö til átta milljónir
króna. Allur tiltækur mannskapur
vinnur við að halda götum borgar-
innar opnum og sagði Ingi að hér
væri um að ræða allt að 150 manns.
Ekki lítur út fyrir að veðrið eða koma og slydda. Starfsmaðurinn
þá færðin batni á næstunni. Starfs- orðaði veðrabrigðin eins og veður-
maðurveðurstofunnarsagðiísam- fræðingum einum er lagið: „Á
tali við Tímann í gær að best væri þriðjudag er spáð suð-vcstan átt
að lýsa veðrinu, sem í vændum er, meðskúrum ogstðanslydduéljum.
með orðinu umhleypingar. Síðan kemur sejmilega vcst-norð-
Yfir Evrópu er heljarmikið há- vestan átt og éí, þá kemur aftur
þrýstisvæði sem heldur öllum lægð- suð-vestan átt mcð snjókomu og
um þaðan. Vegna þessa þræða síðan rigning. Þú getur bara sagt í
lægðirnar Grænlandssundið og fara eir.u orði að það verði umhleyping-
yfir landiö vestanvert. Það kemur ar.“. SSH
sem«agt til með að skiptast á snjó-
Snjóflóðahætta
Miðað við meðaltöl hefur að
undanförnu verið mjög snjóþungt
á Suðurlandi, Vesturlandi og Vest-
fjörðum. Aftur á móti hefur verið
óvenjulega lítill snjór á austan-
verðu landinu.
Snjóflóðadeild veðurstofunnar
fylgist með og metur snjóflóða-
hættuna frá degi til dags, sérstak-
lega með tilliti til veðurbreytinga,
snjódýptar, lagskiptingar snævar-
ins, samloðunar einstakra snjólaga
o.s.frv. Út frá þessum upplýsingum
eru síðan gefnar út spár og aðvar-
anir.
í gær var ekki talið að snjóflóða-
hætta væri fyrir hendi gagnvart
byggðum svæðum en snjóflóð hafa
verið að falla á vegi víða um
landið. Slík snjóflóð falla tiltölu-
lega reglubundið og segja lítið til
um snjóflóðahættuna almennt, en
þau falla yfirleitt úr bröttum giljum
eða hömrum þar sem snjó festir
illa. Eitt slíkt snjóflóð féll við
Bíldudal s.l. sunnudag. Flóðið féll
á veginn miðja vegu milli bæjarins
og flugvalíarins. Engin slys urðu á
fólki en samkvæmt upplýsingum
frá Almannavörnum ríkisins var
flóðið um 30 metra breitt og alll*ð
]__________________________________________________________________
Snjóruðningur í höfuðborginni síðustu vikuna hefur kostað borgarbúa á
milli 7 Og 8 milljónir kr. Tímamynd: Árni Bjarna
því 4 melra djúpt. l'alið er að
snjóhengja sem hafði safnast efst í
fjallið hafi brotnað niður og komið
flóðinu af stað.
Mestu snjóflóðasvæðin á landinu
yfir byggð eru við Flateyri, ísa-
fjörð, Siglufjörð, Neskaupstað og
Seyðisfjörð. Auk þess má nefna
staöi eins og Súðavík, Suðureyri,
Patreksfjörð og Ólafsvík en á þess-
um síðarnefndu stöðum þarf
ákveðnari veðurskilyrði. t.d. með
tilliti til snjósöfnunar til þess að unt
vcrulega hættu verði að ræða.
SSH
iiók\n\Rh\mn vöioj-helgafells
____ _ \fir luiaf
OTRUÆGm
VERÐÍÆKKW
Dæmi um nokkur sértilboð
á bókamarkaðnum: Venjulegt verð Tilboðs- verð Afsláttur
Ljóðmæli Steingríms Thorsteinssonar . Hagleiksverk Hjálmars í Bólu . 1990,- 295,- 85%
eftir dr. Kristján Eldjárn Á matarslódum - ferðahandbók . 1686,- 195,- 88%
eftir Sigmar B. Hauksson Drykkir við allra hæfi . 795,- 195,- 75%
-vönduð litprentuð handbók Kver með útlendum kvæðum . 1880,- 795,- 58%
Jón Helgason þýddi Ástardraumarrætast . 987,- 95,- 90%
skáldsaga Georgette Heyer .. 1388,- 345,- 75%
HELGAFELL
Mörg hundruð bókatitlar á einstöku verði bjóðast nú á
bókamarkaði Vöku-Heigafells í forlagsversluninni að
Síðumúla 29 í Reykjavík.
Hér gefst einstakt tækifæri til þess að bæta eigulegum
verkum í bókasafn heimilisins, - bókum af öilum gerðum
við allra hæfi.
Bókamarkaður Vöku-Helgafells stendur til 4. febrúar
næstkomandi, margar bókanna eru til í takmörkuðu
uVlagi og því best að drífa sig sem fyrst!
AUt að 90% aísláttur! Verð niður í 50 krónur!