Tíminn - 31.01.1989, Page 11
10 Tíminn
Þriðjudagur 31. janúar 1989
Þriðjudagur 31. janúar 1989
Tíminn 11
Enska knattspyrnan:
Rush og Aldridge
sáu um Millwall
Meistarar Liverpool slógu Mill-
wall út úr ensku bikarkeppninni á
sunnudaginn með 2-0 sigri. Það var
John Barnes sem var maðurinn á
bak við sigur Liverpool, hann lagði
upp bæði niörkin fyrir þá John
Aldridge og Ian Rush.
Norwich unnu stærsta sigurinn í 4.
umferð bikarkeppninnar er þeir
slógu utandeildaliö Sutton úr kcppn-
inni. Sutton sem sló Coventry út í
þriðju umferð, þurftu 8 sinnum að
hirða knöttinn úr netinu. Malcolm
Allen skoraði 4 mörk, þar af 3 í
síðari hálfleik og Robcrt Fleck gerði
þrennu á 19. mín. kafla.
Bikarmeistarar Wimbledon geta
þakkað markverði sínum, Hans
Segers, fyrir sigurinn á Aston Villa.
Segers varði vítaspyrnu frá Allan
Evens á 75. mín. cn áður hafði
Vinny Jones skorað eina mark leiks-
ins fyrir Wimbledon.
Watford gerði bikardraum Derby
County að engu. Watford sigraði 2-1
og það voru þeir Rick Holdcn og
Niel Redfern. Fyrir Derby skoraði
Gary Micklewhitc.
Colin West var rekinn af lcikvelli
á55. mín. leiks Sheffield Wednesday
og Blackburn. Wednesday var þá
!
I
515 kr.kg
295 -
590 _
570 _
695 -
821 _
720 _
379 _
490 -
1.590 _
I
Hvalrengi
Bringukollar
Hrútspungar
Lundabaggar
Sviðasulta súr
Sviðasulta ný
Pressuð svið
Svínasulta
Eistnavefjur
Hákarl
Hangilæri soðið 1.555
Hangiftp.soð. 1.155
Úrb. hangilæri 965
Úrb. hangifrp. 721
Harðfiskur 2.194
Flatkökur
Rófustappa
Sviðakjammar
Marineruð síld
Reykt síld
Hverabrauð
Seytt rúgbrauð
Lifrarpylsa
Blóðmör
Blandaður súrmatur
í fötu 389 -
Smjör 15 gr. 6.70 kr.stk.
43 kr.
130 kr.kg
420 _
45 flakið
45 kr.stk.
78 kr.
41 _
507 kr.kg
427 _
KjöfcsfeöðÍR
Glæsibæ
SS 68 5168.
0-1 undir, en liðið var mjög að koma
inní leikinn. Eftir brottrekstur West
náði Blackburn aftur undirtökunum
og liöiö sigraði 2-1. Mörkin fyrir 2.
deildarliðið gerðu Simon Garner og
Tony Finnigan, en David Hirst
minnkaði muninn fyrir Sheffield
Wednesday.
Lengi vel leit út fyrir að Plymouth
legði Everton að velli. Sean
McCarthy skoraði fyrir Plymouth á
65. mín. en Kevin Sheedy bjargaði
deginum fyrir Everton, með marki
úr vítaspyrnu undir lok leiksins.
Manchester United átti náðugan
dag gegn Oxford. United liðið, vel
stutt af tæplega 48 þúsund áhorfend-
um, skoraði 4 mörk gegn engu marki
Oxford. Mark Hughes, Steve Bruce
og Brian Robson gerðu mörkin, en
citt markið var sjálfsmark Oxford.
Úrslitin í 4. umferð bikarkeppn-
innar:
Aston Villa-Wimbledon...... 0-1
Blackburn-SheHield Wed. .. 2-1
Bradford-Hull ............. 1-2
BrenHord-Man.City.......... 3-1
Charlton-KeHering.......... 2-1
Grimsby-Reading............ 1-1
Hartlepool-Boumemouth ... 1-1
Man. United-Oxford ........
Norwich-SuHon..............
NoH.Forest-Leeds...........
Plymouth-Everton...........
SheH.United-Colchester....
Stoke-Barnsley.............
Swindon-West Ham ..........
WaHord-Derby ..............
Míllwall-Liverpool.........
Úrslitin í 3. deild:
Bristol Rovers-Bolton......
Bury-Fulham................
CardiH-Port Vale ..........
Chesterfield-Northamton ...
Gillingham-Huddersfield ...
Mansfield-Blackpool .......
Preston-Bristol City ......
Southend-Aldershot.........
NoHs County-Wolverhampt. .
Úrslitin í 4. deild:
Burnley-Stockport .........
Cambr. United-Tranmere ...
Carlisle-Halifax...........
Darlington-Crewe...........
Exeter-Rochdale............
Lincoln-Peterborough.......
Scarborough-Hereford.......
Scunthorpe-York ...........
Torquay-Doncaster..........
4-0
8-0
2-0
1-1
3-3
3-3
0-0
2-1
0-2
2-0
3-1
3-0
1-1
1-2
0-1
2-0
1-1
1-1
1-0
1-1
3- 1
1-1
5-1
1-1
0-2
4- 2
3-2
Körfuknattleikur:
Hraustir strákar
í körfubolta
Frí Júhannesi Bjarnasyni fréttamanni
Tfmans:
Það voru ekki notuð nein vettl-
ingatök þegar Þór og ÍR mættust í
Flugleiðadeildinni í körfuknattleik á
sunnudagskvöld, er leikið var
nyrðra.
Leikmcnn skiptust á pústrum og
álíka vinsamlegum sendingum og
samræður manna á milli voru síður
en svo uppbyggilegar. Leikurinn
sjálfur burt séð frá hörkunni var
þokkalega leikinn og margar fallegar
körfur litu dagsins Ijós. ÍR-ingar
leiddu allan fyrri hálfleik, en Þórsur-
um tókst þó að jafna einu sinni,
35-35, en aðkomumenn höfðu náð 7
stiga forskoti í hálfleik 47-40.
Fyrri hluti síðari hálfleiks var
besti kafli heimamanna, en þá sigu
þeir yfir og náðu 5 stiga forystu
66-61. En þá hrökk allt í baklás og
ÍR-ingar náðu frumkvæðinu á ný.
Hægt og sígandi náðu þeir tökum á
leiknum og í lokin munaði 12 stigum
á liðunum, 92-80.
Það ætlar að reynast Þórsurum
erfitt að spila heilan leik á eðlilegu
getustigi, Auðvitað spilar margt inní
þetta dæmi, en undirritaður minnist
þess ekki að hafa séð leik meö liðinu
þar sem leikmcnn eru ekki sínöldr-
andi í dómurum og einbeiting leik-
ntanna gufar upp í réttu hlutfalli við
nöldrið. Ekki er öll sagan sögð enn,
því í uppnáminuyfirsjóndeprudóm-
ara brjóta Þórsarar oft gróflega og
Leikur: Þór-ÍR 80-92 Lið: Þór
Nófn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST stiq
BjörnSv. 6-4 3-1 1 3 1 _ 2 12
Kristján 1-0 - 1 1 - _ - 0
Stefán 3-2 - - 2 - - _ 4
Johann 12-7 - - 1 _ - 2 17
Guðmundur 13-4 3-2 1 3 3 _ _ 16
Eiríkur 12-4 1-1 1 4 1 _ _ 11
Konráð 9-6 6-2 1 3 - - 2 20
Leikur: Þór-ÍR 80-92 Lið: ÍR
N6tn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stifl
BjörnSt. 9-3 _ 1 3 _ _ _ 6
Karl 2-1 7-4 1 1 1 1 _ 18
Sturla 9-3 4-1 2 8 2 - - 16
Ragnar 3-1 - 1 2 - - - 4
Jóhannes 7-5 - 2 2 1 3 - 17
Gunnar 1-1 - 1 - - - - 2
Bragi 6-4 - 2 - - - - 11
JónÖrn 8-5 2-0 1 1 1 - - 18
algjörlega óþarflega af sér. Svona
hefur þetta gengið hingað til, en
hugsanlega verður einhver breyting
á þessu í næstu heimaleikjum, því
Rafn Benediktsson dómari hér á
Akureyri lýsti því yfir að hann væri
hættur dómgæslu á heimaleikjum
Þórs og kemur það satt best að segja
ekki á óvart eftir það svívirðingaflóð
sem dunið hefur á honum frá áhor-
fendum og leikmönnum. En Þórsar-
ar geta nagað sig í handarbökin,
liðið sem hefur getuna ekki einbeit-
inguna.
Konráð Óskarsson var þeirra best-
ur í leiknum og þeir Jóhann Sigurðs-
son og Guðmundur Björnsson áttu
báðir þokkalegan leik. Hjá ÍR-ing-
um voru bakverðirnir Karl Guð-
laugsson og Jón Örn Guðmundsson
skæðir, en auk þeirra var Jóhannes
Sveinsson góður. Sturla Örlygsson
þjálfari skoraði mikilvægar körfur,
en ljótur blettur á leik hans voru
pústrar og kjaftshögg sem hann að
ástæðulausu gaf.
Dómarar voru þeir Rafn Bene-
diktsson og Magnús Jónatansson,
sem hljóp í skarðið á síðustu stundu.
Þeir félagar gerðu sín mistök, en
þeir höfðu þá alls ekki úrslitaáhrif á
leikinn þrátt fyrir gífuryrði Þórsara.
Þeirra stærstu mistök í leiknum voru
að vísa ekki Sturlu þjálfara úr úr
húsinu.
JB
Leikur: S-UMFT 65-84 Lið: ÍS
Nitn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stifl
Helgi 13-4 - 3 5 3 - - 8
Sólmundur 2-2 - _ 1 2 - - 4
Heimir 7-4 - _ - 1 - - 8
Gísli 2-0 - - - 1 3 - 1
Kristján 1-0 1-0 - 1 1 - - 0
Auðunn 1-0 2-0 2 1 1 - - 0
Þorsteinn 2-1 2-1 - 1 1 5 - 7
Valdimar 17-9 5-1 1 2 5 3 _ 23
Jón 9-4 3-0 3 4 3 3 1 8
Bjarni 6-2 - 2 3 - 1 - 6
Leikur: S-UMFT 65-84 Lið: UMFT
Nðtn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stig
Kárí 3-2 1-1 - 1 1 _ 1 8
Sverrir 10-5 1-1 - 2 3 8 _ 15
Eyjólfur 6-4 11-4 1 2 4 2 6 32
Björn 3-2 1-0 _ 2 - 1 _ 2
Haraldur 5-5 1-0 3 4 2 1 - 10
Valur 11-5 4-1 3 9 2 3 1 17
Síðari hálfleikurinn
gefur góð fyrirheit
Þoreils Óttar Mathiesen leiddi íslenska liðið til sigurs gegn Tékkum á laugardaginn.
Tfmamynd PJetur.
íslendingar unnu sannfærandi sigur á
Tékkum 28-23 í síðari landsleik þjóðanna
í handknattleik í Laugardalshöll á laugar-
dag. íslenska liðið sýndi allar sínar bestu
hliðar í síðari hálfleiknum, eftir brösótt
gengi í fyrri hálfleik.
Það var hinn hættulegi hornamaður
Tékka, Sovadina sem gerði fyrsta mark
leiksins, en Þorgils Óttar jafnaði fyrir
ísland. Jafnræði var framan af 3-3, en
Tékkar náðu síðan undirtökunum 3-5.
íslendingar náðu að jafna 7-7 og síðan
10-10, en þá gerðu Tékkar 3 mörk í röð og
staðan í hálfleik var síðan 11-14 fyrir
Tékka.
íslendingar mættu mjög ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og gerðu 4 fyrstu
mörkin og komust yfir 15-14. Tékkar
jöfnuðu 15-15, en eftir það var forystan
ávallt okkar manna. Þrjú mörk í röð
breyttu stöðunni í 18-15. Áfram hélt
íslenska liðið góðum leik sínum og með 5
mörkum gegn 1 breyttist staðan í 28-21,
þegar skammt var til leiksloka. Liptak
gerði 2 síðustu mörk leiksins fyrir Tékka
og lokatölur urðu 28-23 fyrir ísland.
Síðari hálfleikurinn er með því besta
sem lengi hefur sést til íslenska liðsins.
Liðið náði sér ekki á strik í fyrri leiknufn
á föstudag og lengi vel í fyrri hálfleiknum
á laugardag. Sóknarleikuinn gekk illa gegn
tékknesku vörninni, sem kom vel út á móti
okkar mönnum, en í síðari hálfleiknum í
leiknum á laugardag fékk. einstaklings-
framtakið að njóta sín og menn fóru á
kostum. Varnarleikurinn gekk einnig
betur, en íslenska vörnin var hriplek í
Firðinum á föstudagskvöld.
Kristján Arason átti sinn besta landsleik
í langan tíma, þó sérstaklega í síðari
hálfleik er hann gerði 6 af 7 mörkum sínum
í leiknum. Sömu sögu er að segja um
Sigurð Gunnarsson sem allur er að koma
til eftir dapurt gengi með liðinu nokkurn
tíma. Þorgils Óttar, Bjarki og Alfreð náðu
sér einnig vel á strik í þessum leik.
Með þessum sigri sýndi íslenska liðið
fram á að það getur leikið mjög vel ef svo
ber undir. Aftur á móti er einnig ljóst að
stöðugleiki í leik liðsins er ekki fyrir hendi
og því í raun lítil von um að liðið vinni
stórafrek í B-keppninni í Frakklandi í
næsta mánuði. Þó má gera ráð fyrir að liðið
verði með í baráttunni um sæti í A-keppn-
inni, en eins og áður segir eru sveiflur í leik
liðsins of miklar til þess að bóka megi sigur
fyrirfram, hvað þá í móti þar sem leikið er
dag eftir dag.
Síðustu leikir íslenska liðsins áður en
haldið verður til Frakklands, verða gegn
Norðmönnum og þá ætti að koma í ljós
hvar íslenska liðið stendur í keppni við
B-þjóðir.
Mörkin ísland: Kristján Arason 7, Sig-
urður Gunnarsson 5/1. Alfreð Gíslason
4/1, Þorgils Óttar Mathiesen 4, Bjarki
Sigurðsson 4, Guðmundur Guðmundsson
3 og Valdimar Grímsson 1. Liptak var
markahæstur Tékka með 6 mörk. BL
Körfuknattleikur:
Eyjólfur skaut
ÍS á bólakaf
Stúdentar réðu ekki við Saúðkræking-
inn Eyjólf Sverrisson í Kcnnaraháskólan-
um á sunnudagskvöldið, er fS og Tinda-
stóll mættust í Flugleiðadeildinni í körfu-
knattlcik. Eyjólfur gerði 32 stig
nurðanmanna í leiknuni, en þeir fóru
með 2 stig með sér norður.
í fyrri hálfleik höfðu Stúdentar undir-
tökin framan af, cn Tindstælingar tóku
síðan við sér og höfðu yfir í leikhléinu
46-32. Síðari hálfleikur var jafn munurinn
breyttist lítið. Þegar upp var staðið var
munurinn IV stig, 84-65. Eyjólfur var
mjög góður í þessum leik og Siúdentur
náðu ekki að halda honuni niðri. Valur
Ingimundarson var einnig stcrkur undir
körfunni. Hjá ÍS var Valdimar Guðlaugs-
son bestur. Helgi Gústafsson lék nú á ný
sinn fyrsta leik i vetur með ÍS-liðinu.
„Ég er bjartsýnn á að við höldum
okkur í deildinni. Leikurinn við Þórsara
2. mars verður hreinn úrslitalcikur um
fallið og þar nægir okkur að sigra með
nokkurra stiga mun,“ sagði Valdimar
Guðiaugsson þjálfari ÍS í samtali við
Tímann eftir leikinn.
Það lið sem hafnar í neðsta sæti
Flugleiðadeildarinnar fellur beint í 1.
deild, en liðið sem verður næst neðst þarf
að leika gegn liðinu sen hafnar í öðru sæti
i 1. deild.
BL
Körfuknattleikur:
Fyrsti sigur KR-inga á
Njarðvíkingum í fimm ár
Fimm ára bið KR-inga eftir sigri á
Njarðvíkingum er nú á cnda. Á
sunnudaginn biðu Suðurnesja-
mennirnir sinn annan ósigur í vetur
gegn Vesturbæingunum í Haga-
skóla. Úrslitin 83-78, eftir að Njarð-
víkingar höfðu haft yflr í hálfleik
34-38.
Gestirnir voru öllu aðgangsharð-
ari framan af leiknum, en heima-
menn voru þó aldrei langt undan.
Blaðið snérist þó við í síðari hálfleik
er KR-ingar sigu frarn úr og á
spennandi og skemmtilegum loka-
mínútum náðu KR-ingar að sigra
83-78. Leikurinn var mjög skemmti-
legur og góðir dómarár leiksins voru
þeir Gunnar Valgeirsson og William
Joncs.
Stigin KR: Birgir 19, Guðni 18,
Ólafur 17, Matthfas 12, Jóhannes
10, fvar 4 og Lárus Valgarðs. 3.
UMFN: Teitur29, ísak 18, Helgi 10,
Hreiðar 10, Friðrik Ragnars 7 og
Friðrik Rúnars 4. BL
■■■ ■ ii ■ Staðan i
Ohittmr Valsmenn
deildinni
Möguleikar Valsmanna á að kom-
ast í úrslitakeppni íslandsmótsins í
körfuknattleik fara nú stöðugt
minnkandi. Á sama tíma og Grind-
víkingar vinna hvern leikinn á fætur
öðrum, þá tapa Valsmenn leik eftir
leik.
Á sunnudaginn voru það væng-
brotnir Keflvíkingar sem tóku Vals-
menn í bakaríið að Hlíðarenda.
Lokatölur leiksins voru 79-91, eftir
að Keflavík var yfir í hálfleik 32-50.
Óhittni Valsmanna var slík í þess-
um leik að með eindæmum var.
Matthías Matthíasson og Arnar
Guðmundsson voru einu mennirnir
í Valsliðinu sem hittu eitthvað, en
Matthías átti sinn besta leik með Val
í vetur. Einar Ólafsson var ekki með
Val vegna meiðsla og Þorvaldur
Geirsson kvað vera hættur að leika
með Valsliðinu. Forföll voru einnig
í herbúðum Keflvíkinga. Magnús
Guðfinnsson er meiddur og Axel
Nikulásson er ekki sáttur við brott-
rekstur Lee Nober þjálfara og óvíst
hvort hann leiki meira með liðinu.
Jón Kr. Gíslason stóð sig vel í
erfiðu hlutverki leikstjórnanda og
þjálfara, en það var Falur Harðarson
sem átti stórleik að þessu sinni og
var maðurinn á bak við sigur Kefl-
víkinga. 8L
UMFGIURSLIT?
Körfuknattleikslið Grindvíkinga
er án efa það lið sem mest hefur
komið á óvart í Flugleiðadeildinni í
körfuknattleik í vetur. Aðeins mikil
óheppni getur nú komið í veg fyrir
að liðið leiki í fjögurra liða úrslitun-
um um íslandsmeistaratitilinn, en
liðið er nú á sínu öðru ári í efstu deild
körfuknattleiksins.
Á sunnudagskvöld voru það ís-
landsmeistar Hauka úr Hafnarfirði
sem voru fórnarlömb Grindvíkinga.
Jafnræði var með liðunum allan
leikinn og spenna mikil í troðfullu
íþróttahúsinu. Heimamenn náðu 11
stiga forskoti undir lokin og það
dugði þeim til sigurs í leiknum.
Munurinn var 5 stig þegar upp var
staðið 78-73. " " BL
Leikur: Valur-ÍBK 79-91 Lið: Valur
Nðfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stig
Matthias 16-13 _ 3 1 3 1 - 31
Hreinn 5-1 3-0 1 2 1 1 2 4
Ragnar 14-3 2-0 2 4 4 1 2 6
Aðalsteinn _ - - - - _ 0
Bárdur 9-3 10 4 3 2 _ 9 8
Björn 4-1 - 1 4 0 4 2 4
Jóhann 3-0 _ 1 - 1 1 1 0
Arnar 6-4 - 3 5 4 - - 8
Tómas 16-6 2-0 - 3 - 3 5 18
Ari - - - - - - - 0
Leikur: Valur-ÍBK 79-91 Lið: ÍBK
Nðfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stig
Falur 16-10 3-2 4 - 1 1 4 32
Guðbjöm - - - - - - - 0
Gestur - - - - - - - 0
Albert 8-4 _ 3 5 3 _ - 8
Egill x8-4 - 3 4 2 1 - 9
Einar 2-0 2-1 1 3 2 1 1 3
Guðjón 6-3 9-1 - 6 6 4 5 10
Kristinn 2-2 _ 1 - 2 _ - 4
JónKr. 13-5 2-2 4 4 2 1 4 19
Brynjar 7-3 - 1 1 1 2 - 6
Keflavík .... 19 15 4 1668-1416 30
KR .......... 20 14 6 1577-1474 28
Haukar...... 20 11 9 1756-1624 22
ÍR........... 20 10 10 1562-1559 20
Tindastóll ..19 4 15 1525-1656 8
Njardvík ... 20 18 2 1781-1498 36
Grindavik .. 20 13 7 ,1620-1482 26
Valur....... 19 10 9 1604-1493 20
Þór.......... 19 2 17 1461-1786 4
ÍS .......... 20 1 19 1272-1867 2
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGEJRA
SPARISKÍFfTEINA RÍKISSJÓEJS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1984-1. fl. 1984-1. fl.SDR 01.02.89-01.08.89 06.02.89 kr. 349,16 kr. **
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextirog verðbót.
**Á gjalddaga, mánudaginn 6. febrúar 1989, eruspariskírteini í þessum flokki innleyst
miðað við breytingar á kaupgengi SDR frá 6. febrúar 1984, sem var 30,5988, til
innlausnardags hinn 6. febrúar n.k. auk 9% fastra ársvaxta á ofangreindu tímabili að
viðbáettum vaxtavöxtum. Eftir 6. febrúar 1989 greiðast hvorki vextir af spariskírteinum
í þessum flokki né verða breytingar á innlausnarverði þeirra vegna skráningar á
kaupgengi SDR eftir þann dag, nema ákvæði 4. gr. skilmála skírteinanna eigi við.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi nánari
upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, janúar 1989
SEÐLABANKIÍSLANDS