Tíminn - 11.02.1989, Síða 1

Tíminn - 11.02.1989, Síða 1
nr*i*vtiT C< t Hann fór í Kanalinn Jón Eiríksson viröist hafa verið óaöfinnanlegur í öllu sem hann aðhafðist. En við úlfana í stjórnardeildunum og kvenfólkið á heimili sínu réði hann ekki Dagur er að kvöldi kominn í hinu konunglega rentu- kammeri Kristjáns 7. í Kaupmannahöfn. Að vanda stígur Jón Eiríksson, konferensráð, upp í vagn sinn og heldur heimleiðis eftir mæðusaman dag. Hann hefur að vanda hlýtt á mörg mál um daginn, bænir og áklögur, en sem 5. „depúteraður“ í rentukammerinu hefur hann úrskurð- arvald í verslunarmálefnum íslands, Grænlands, Finn- merkur og Færeyja við þessa miklu valdastofnun. Hann er einn elsti og virtasti embættismaðurinn þarna, 59 ára að aldri, oftast Ijúfur og hægur við háa sem lága, en á þó til að fuðra upp svo augun skjóta gneistum. Meira að segja forseti rentukammersins hefur séð hann í slíkum ham. Vagninn skröltir yfir ósléttar götur dönsku höfuðborgarinnar - leiðin liggur heim að Stormgötu númer 5, þar sem hann hefur búið hin síðustu níu árin. En að þessu sinni ætlar Jón Eiríksson ekki alla leið. Hann veit að það er ekki aðeins þessi dagur sem er að kvöldi kominn, heldur iíka sjálfs hans ævi. Daprandi sjón, þrúgandi svefnleysi og slitnir kraftar af stanslausu erfiði síðustu áratuga hafa sett mark sitt á magurt og slitið andlitið og mótstöðuaflið til þess að spyrna gegn undirróðri metnaðar- gjarnra úlfa í ráðuneytunum fer þverrandi. Rentukammerið er sjálf höll Goðmundar á Glæsivöllum og þær vistarverur þekkja fáir betur en Jón. Sjónir hugans hvarfla um æsku- stöðvarnar í Suðursveit, staðinn í Skálholti, þar sem Harboe tók hann upp á arma sína og árin í Þrándheimi hjá Dass. Hann hefur átt vináttu bestu og voldugustu manna ríkisins og hafist til æðstu metorða, án þess að leita sjálfur eftir þeim. Á íslandi hefur nafn hans lengi verið vafið ævintýraljóma, þaðan hafa aliir mænt út til hans. En allir dagar eiga sér kvöld... Hann kallar tii ekilsins og biður hann að stansa. Ekillinn hlýðir, en áður en hann getur litið við heyrir hann skvamp í vatninu. Inni í vagn- inum liggur aðeins vasaúr Jóns Eir- íkssonar, hattur hans og yfirhqfn. Ekillinn hieypur til og fær dregið húsbónda sinn á land. En hann hefur hlotið meiðsl á höfði og læknum tekst ekki að bjarga lífi hans. Með handabandi þakkar hann þeim hjálpartilraunir þeirra, áður en hann gefur upp öndina. Hann var fæddur að Skálafelli í Suðursveit þann 28. ágúst 1728. Ekki var björgulegt um að litast á íslandi og þá síst í fæðingarsveit hans er hann sá fyrst dagsins ljós. Árið áður hafði orðið stórgos í Öræfajökli og jökulhlaup orðið þrem mönnum að bana, eytt lönd og búfénað. Þetta ár urðu og mikil gos í Mývatnssveit og mátti segja að eldar og harðindi veittu mönnum geysilegar búsifjar, en veturinn 1728-29 voru hafþök af ís fyrir Norðurlandi og Vesturlandi, allt suður á Suðurnes og fellir afskapleg- ur. Það hefur því ekki verið af miklu að taka hjá Eiríki Jónssyni að Skála- felli, snauðum bónda með mikinn barnahóp, en systkini Jóns sem upp komust voru sjö. En Jón bóndi og kona hans, Steinunn Jónsdóttir, voru hins vegar vandað fólk og gott og talin meðal helstu merkismanna í almúgaröð. Einkum mun Steinunn hafa verið orðlögð fyrir góðar gáfur. Naut Jón eldri sonur hennar snemma góðs af tilsögn hennar og hvatningu. í Skálholtsskóla Það er sagt um Jón Eiríksson, svo sem til marks um gáfur hans að hann hafi verið fermdur aðeins átta ára gamall, því þá var ferming ekki bundin við aldur heldur námsgáfur og skynbragð lærdómsins, eins og Sveinn Pálsson kemst að orði í æviágripi Jóns. Það er haft eftir yngra bróður hans, sem raunar hét einnig Jón, að þegar hann var barn að aldri hafi hann mjög lagt sig eftir öllum utanaðbókarlærdómi, sem þá var í mestum metum. Lærði hann mikinn fjölda af bænum og sálmum og eitt sinn er hann hafði eignast nýtt lærdómskver og þótti sem ekki gengi nógu fljótt að læra það utan að, þá reif hann eitt eða tvö blöð úr kverinu og renndi þeim niður. Mun álíka lærdómsáhugi vandfundinn nú á dögum í skólum voruni. Jón var á barnsaldri settur til mennta til móðurbróður síns, Vig- fúsar prests Jónssonar og níu ára var hann sendur í læri til prestsins í Einholti á Mýrum í Hornafirði, sem brátt komst að lærdómsgáfum hans og tók að segja honum til í latínu. Frá tíu til fjórtán ára aldurs var hann svo á ný í umsjá Vigfúsar, sem þá var orðinn prestur á Stöðvarfirði. Á sumrin var hann hins vegar hjá foreldrum sínum og var sendur ein- samall á milli vor og haust, sem nú mundi þykja heldur harðneskjulegt. í æviágripi sínu hefur Jón sagt: „Svona varð ég strax á unga aldri að ferðast, oftast aleinn, vor og haust, þann langa og vegna brattra fjalla og stórvatna hættulega veg. En þar með gafst mér á öndverðri ævi hentugt tilefni að þekkja náðarríka vernd guðs af eigin reynslu." Að liðnum námstímanum hjá Vig- fúsi þótti Jón vel hæfur til inntöku í Skálholtsskóla. Jón biskup Árnason hafði hins vegar lagt svo fyrir að námssveinarnir skyldu sjálfir kosta sig fyrsta árið og engrar „ölmusu" njóta, og var þetta gert svo hún veittist ekki óverðugum. Foreldrar Jóns rituðu þó biskupi og báðu hann vægðar gegn þessu ákvæði, vegna gáfna hans og námshæfileika. Lagði Jón af stað í góðri trú haustið 1742, en fékk neitunarbréf frá biskupi á miðri leið. Sneri hann þá við og var um veturinn í forcldrahúsum. Jón biskup andaðist hins vegar skömmu eftir þetta og fengu góðir menn því til leiðar komið að stjórnendur Skál- holtsskóla, ekki síst Finnur biskup Jónsson, veittu honum strax við- töku. Fékk hann sæti ofarlega í neðra bekk. Fararefnin voru rýr hjá þessuni unga námssveini og „ölmusa" bauð ekki upp á beysinn kost og er rétt að láta Jón Eiríksson sjálfan lýsa kost- inum, en hann var ekki vanur að lasta né finna að neinu án orsaka: „Þar á móti lá við sjálfa garða að ég minn fyrra vetur í Skálholtsskóla, ef ekki dæi útaf - þá nálega koðnaði upp af sulti og órækt, þar vasapyngj- an var helst til lítt hlaðin, til að ég gæti keypt mér það ég þurfti og ég of fjarlægur foreldrum mínum til að þau gætu hjálpað mér, en skuldum Jón Eiríksson. Myndin er hluti af brjóstmynd, sem Bertel Thorvald- sen gerði af honum í fullri stærð. Styttan mölbrotnaði hinsvegar í flutningi til íslands og aðeins andlitið varðvcittist. vildi ég ekki safna. Allar viðgerðir til fæðis og þjónustu voru í sannleika svo að gáfuvænlegum piltum var ei viðurvært, því síður að rétt væri af þeim betalingur heimtaður þar fyrir, framar en konungleg boð til stóðu. Það var dýrkeypt nóg að leggja þar fjör sitt og heilbrigði í sölurnar." Harboe kemur til sögu Eftir dvöl í foreldrahúsum um sumarið hélt Jón enn í skólann og nú var breyting á orðin, þar sem Ludvig Harboe, prestur og síðar Sjálands- biskup sat í Skálholti þennan vetur. Var hann sendur til íslands af kon- ungi, til þess að kynna sér ástand kirkjunnar og skólanna. Gaf hann m.a. út svonefnda „skólaforordn- ingu" sem bætti mjög aðbúnað pilta og þjónustu. Þess er getið að Jón hafi strax aðhyllst Harboe öðrum piltum framar, enda veitti Harboe honum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.