Tíminn - 11.02.1989, Blaðsíða 8
18
HELGIN
Laugardagur 11. febrúar 1989
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Afmælisveislan
breyttist í blóðbað
Var hann brjálaður eða ekki? Hann myrti
þrjár manneskjur að tilefnislausu. Hins
vegar var hann það vel með sjálfum sér
að hann þvoði morðvopnið og ók milli
ríkja til að komast undan lögreglunni.
Allt hófst það með tvöfaldri af-
mælisveislu en endaði á þreföldu
morði. Cook-fjölskyldan hafði lengi
átt heima í Omaha í Nebraska.
Barbara Cook var 45 ára og hafði
verið fráskilin í 12 ár. Hún starfaði
sem hjúkrunarfræðingur á her-
sjúkrahúsinu og lenti í vanda þegar
henni var boðin staða yfirmanns á
hjartadeild við sjúkrahús í Denver í
Colorado.
Barbara ræddi málið við 16 ára
son sinn, Kevin og dæturnar sem
voru 18 og 20 ára. Þær hvöttu móður
sína til að þiggja stöðuna en sögðust
sjálfar ætla að verða um kyrrt í
Omaha. Báðar voru þar í störfum og
sú yngri beið þess að fá flugfreyju-
stöðu. Kevin var ekki ýkja hrifinn af
að flytja til Colorado og skiljá við
vini sína og skólann, en hann fór þó
og systurnar urðu eftir.
Kevin og Barbara vöndust fljótt
nýjum aðstæðum í Aurora en í
október kom þeim saman um að mál
væri komið til að heimsækja fornar
slóðir. Báðar dætur Barböru voru
fæddar í október og kjörið tækifæri
gafst þvf til að halda upp á afmælin
í einni ferð.
Kevin og móðir hans lentu á
flugvellinum í Omaha, föstudaginn
2. október 1987 og yngri dóttirin tók
á móti þeim. Systurnar höfðu ákveð-
ið að Kevin og Barbara byggju hjá
henni. Hún bjó ein í lítilli íbúð, en
svstir hennar bjó með annarri stúlku.
A leiðinni heim útskýrði hún að
meðan hún biði eftir flugfreyjustarf-
inu, ynni hún á næturvakt á veitinga-
stað, frá kl. 23 til 04. Þá hefðu
mæðginin íbúðina ein alla nóttina,
því hún kæmi sjaldan heim fyrr en
undir morgun.
Á föstudagskvöldið fóru Barbara
Cook og eldri dóttirin á veitingastað-
inn þar sem hin systirin vann en
Kevin í heimsókn til vina sinna. Þær
ræddu áætlanir um afmælisveisluna
og ákváðu að halda hana á sunnu-
dagskvöldið. Eldri dóttirin sagðist
ætla að bjóða vinafólki sínu og koma
við til að sækja móður sína, bróður
og systur og þau færu síðan öll út að
borða.
Eldri systirin og vinir hennar
komu stundvíslega síðdegis á sunnu-
dag og fóru upp á þriðju hæð, þar
sem íbúðin var. Þau urðu hissa
þegar enginn kom til dyra og allt var
læst. Hópurinn ákvað að bíða örlítið
ef ske kynni að þau hefðu skroppið
út og tafist.
Öll myrt í svefni
Piltur í hópnum benti á að auðvelt
vasri að klifra út á svalirnar og opna
rennihurðina inn í íbúðina. Það væri
notalegra en að standa í ganginum.
Hann lét ekki sitja við orðin tóm og
andartaki síðar kom hann út úr
íbúðinni og skellti dyrunum í lás á
eftir sér. -Ekki fara þarna inn, sagði
hann með andköfum. - Þau eru öll
dáin og það er alveg hrylliegt.
Lögreglumenn á eftirlitsferð í
grenndinni svöruðu kalli og fóru inn
í íbúðina, rétt til að ganga úr skugga
um að fórnarlömbin væru látin, en
innsigluðu hana síðan og kölluðu út
lið morðdeildarinnar.
Þeir sögðu þrjár manneskjur látn-
ar í íbúðinni, miðaldra konu og aðra
yngri, sem báðar voru í náttkjólum
í svefnherberginu og ungan mann,
fullklæddan á bedda í stofunni. Öll
höfðu þau verið barin svo í höfuðið
að þar var lítið annað að sjá en
blóðuga kássu. Eldri systirnin bar
kennsl á þau sem móður sína, systur
og bróður. Að vonum var þetta
henni mikið áfall og hún gat engar
skýringar gefið eða ímyndað sér
hver gæti hafa verið að verki.
Meðan tæknimenn voru að störf-
um með tæki sín og tól var reynt að
ræða sem nánast við eldri dótturina
en hún gat aðeins sagt að móðir sín
og bróðir hefðu komið frá Colorado
til að halda upp á tvöfalt afmæli
þeirra systra þá um kvöldið. Síðan
var farið með stúlkuna á sjúkrahús
þar sem hún fékk róandi lyf.
Rætt var við aðra íbúa hússins en
þeir höfðu lítið þekkt Danae Cook
enda vann hún á nóttunni og var
heima á daginn þegar aðrir voru í
vinnu.
Sú staðreynd að báðar konurnar
voru í náttkjólum benti til að morðin
hefðu verið framin um nóttina eða
snemma morguns. Nokkrir grannar
höfðu heyrt háværa tónlist úr íbúð-
inni kvöldið áður og fólk hefði
komið og farið en ekkert hefði verið
óvenjulegt við það.
Bíllinn horfinn
Þegar vettvangsrannsókn var
lokið, tilkynntu tæknimenn og lækn-
ir að ekkert benti til að konurnar
hefðu verið áreittar kynferðislega
eða að neinu hefði verið stolið úr
íbúðinni. Ekki var ljóst með hvernig
vopni fórnarlömbin höfðu verið
myrt en það gat verið rör eða
járnstöng. Ekki fundust nein merki
um innbrot. Morðinginn gat vissu-
lega hafa farið inn um svaladymar
eins og pilturinn sem fann líkin.
Einkennilegt þótti að engin merki
fundust um átök og því var talið að
maðurinn hefði ráðist að fólkinu
sofandi. Kevin var í gallabuxum og
bol en berfættur og álitið var að
hann hefði sofnað í fötunum.
Lögreglumenn fóru á vinnustað
Danae til að kanna hvort nokkuð
óvenjulegt hefði borið við þar eða
hvort nokkur gæti ímyndað sér
ástæðu morðanna. Einu upplýsing-
arnar sem fengust þar voru að Danae
hefði unnið eins og venjulega til 4 að
morgni en þá farið að hitta vini sína
sem störfuðu á öðrum slíkum stað
skammt frá heimili hennar. Þar sat
hún að spjalli í klukkustund eða svo,
fékk sér súkkulaðibolla og hélt svo
heimleiðis. Vinirnir voru vissir um
að hún hefði verið ein á ferð.
Bíll Danae var ekki á bílastæðinu
við húsið, en hann var tveggja dyra
Chevrolet Monte Carlo 1974, silf-
urgrár með hvítum toppi. Hann var
með krómfelgum að aftan, skemmd
í framstuðara og hliðarspegilinn
vinstra megin vantaði. Númerið var
l-AG-458. Lýsing á bílnum var þeg-
ar send út.
Larry Roberts lögregluforingja
var falin rannsókn málsins og þegar
hann hafði kynnt sér málavexti, velti
hann fyrir sér hvort morðin hefðu
verið fyrirfram ákveðin eða hvort
tilviljun hefði ráðið atburðum. Hann
hallaðist að síðari kenningunni.
Danae Cook hafði verið lagleg
stúlka og einhver gat hafa komið
auga á hana á veitingastaðnum, elt
hana heim, klifið upp á svaiirnar og
farið inn. Þegar hún reyndist ekki
ein, hefði maðurinn hugsanlega ráð-
ist fyrst á Kevin án þess að vekja
konurnar. Síðan hefði hann ráðist
að þeim sofandi.
Patrick Hankins í handjárnum.
Hann myrti þrjár mannneskjur af
því honum var ekki boðið í af-
mælisveislu.
Hvar var meðleigjandinn?
Eini gallinn á kenningunni var sá
að bílinn vantaði og líklegast var að
morðinginn hefði tekið hann. Það
gat bent til að hann hefði verið
fótgangandi og séð Danae þegar hún
kom akandi.
Ástæðan gat einnig verið eitthvað
persónulegt og sú manneskja sem
líklegust var til að þekkja til einka-
mála Danae var systir hennar. Þegar
hún var farin að jafna sig var hún
spurð hvort Danae hefði sagt henni
eitthvað sem gæti hugsanlega verið
ástæða til morðanna.
Hún sagði m.a. að þær systur
hefðu þekkt 23 ára mann síðan á
skólaárunum og hann væri vinur
þeirra, öllu nánari Danae en sér en
þó aðeins vinur. Hann hefði starfað
á vörubílamiðstöð á daginn og þau
Danae hefðu komið sér saman um
að hann tæki þátt í húsaleigunni með
henni og svæfi í íbúðinni á næturnar,
meðan hún ynni.
Systirin var handviss um að ekkert
hefði verið á milli Danae og
mannsins, fyrirkomulagið hefði ein-
ungis verið svona af hagkvæmni.
Þegar Barbara og Kevin boðuðu
komu sína frá Colorado, bað Danae
manninn að fara úr íbúðinni meðan