Tíminn - 11.02.1989, Qupperneq 11

Tíminn - 11.02.1989, Qupperneq 11
Laugardagur 11. febrúar 1989 HELGIN 21 í BETRI SÆTUM TIME AFTER TIME: Nýju Ijósi varpað á hugmyndaflug H.G. Wells Aðalhlutverk: Malcolm McDovell, Davld Warner, Mary Steenburgen. Lelkstjóri: Nicholas Meyer Myndband: Steinar hf Tímavélar hafa lengi verið uppspretta gagnmerkra vísinda- skáldsagna. Það fer því vel á því að gera mynd um H.G. Wells þar sem hann ferðast í tíma - til framtíðar - enda rómað hversu sannspár hann reyndist í ýmsum framtíðar- lýsjngum sýnum. Myndin „Time after time“ grein- ir frá því hvernig H.G. Wells sem smíðað hefur tímavél eltir kunn- ingja sinn Dr. Stevenson inn í framtíðina. Málið æxlaðist þannig að upp kemst að Dr. Stevenson sem staddur er í heimsókn hjá mannvininum Welles, er geðsjúkur morðingi - enginn annar en „Jack the ripper" eða Kviðristu-Kobbi. Kvennamorðinginn kemst undan með því að stela tímavél H.G. Wells, en af tæknilegum ástæðum kemur vélin aftur. Wells tekst að finna út að vélin hafi flutt Dr. Stevenson fram til ársins 1979 og Stjörnugjöf = ★★★ ákveður að elta hann og flytja hann til baka svo unnt verði að láta hann svara til saka. Báðir enda þeir síðan í stórborginni San Fransisco. í stuttu máli upphefst nú að hluta til broslegur þáttur og að hluta til fróðlegur þáttur þar sem 19. aldar gáfumenni gera hvað þeir geta til að bjarga sér í nútíma- þjóðfélagi. Myndin er spennandi út í gegn og í henni eru atriði sem verða til þess að fá áhorfandann til að sjá samtímann frá nýju sjónarhorni, þ.e. sjónarhorni 19. aldar mannsins. Það kemur á óvart í raun hversu margt hefur gerst á einni öld og hversu ótrúlegar fram- farir (eða afturför) hafa í raun orðið. Aðalleikararnir eru vel kunnir og t.d. kemst Malcolm McDowell sérlega vel frá hlutverki sínu sem H.G. Wells. Sama má raunar segja um David Warner sem Kviðristu- Kobba. Óhætt er að mæla með þessari mynd við alla þá sem gaman hafa af vísindaskáldsögum. Hér er á ferðinni spennumynd, blandin bæði kímni og alvarlegum umhugs- unarverðum atriðum. - BG WALL STREET: Kauphallarhéðnum þykir fégræðgin af hinu góða Stjörnugjöf = ★★★★ mmmmsaBBamm Aðalhlutverk: Michael Douglas, Charlie Sheen, Daryl Hannah, Martin Sheen Leikstjóri: Oliver Stone Hér er á ferðinni stórmynd, eins og stjörnuflóð leikara ætti að gefa til kynna. Sögusviðið er jökulkald- ur og harður fjármálaheimurinn á Wall Street þar sem allt milli himins og jarðar fæst fyrir rétt verð. Skiptir þá engu hvort um er að ræða fyrirtæki sem keypt eru eða seld, hugmyndir, „ást“, holl- usta eða heiður. Fégræðgin er 'í raun dyggð í augum þessara manna. Myndin greinir frá afdrifaríkum samskiptum tveggja manna, annar ungur og lítt reyndur verðbréfasali sem vill allt til vinna að komast áfram í fjármálaheiminum og hinn er samviskulaus auðjöfur sem komist hefur á hátind fjármála- heimsins með dæmalausu kald- lyndi, útsjónarsemi og brögðum. Sú mynd sem dregin er upp af þeim sem vel gengur í kauphallarbrask- inu er ekki falleg og raunar undir- strikuð með því að þeir sem á annað borð sýna af sér einhverja mannlega eiginleika, ss. umburð- arlyndi, siðferði eða tilfinninga- semi verða undir í kvikmyndinni. Engu að síður snýst söguþráður myndarinnar upp í baráttu um gildismat og þar takast á annars vegar gengdarlaus peningahyggja kauphallarmanna og hins vegar heiður og stolt föður unga manns- ins sem heldur uppi vörnum fyrir þá lífsskoðun að ekki sé hægt að fá allt fyrir peninga. Leikurinn í myndinni er í háum gæðaflokki og er tilbreyting að sjá Michael Douglas í hlutverki hins tilfinningasnauða og kaldlynda fjáraflamanns, en áhorfendur eiga því að venjast að hann leiki „mýkri“ hlutverk. Sérlega minnis- stæ'ð er ein orðræða fjáraflamanns- ins þar sem hann lýsir því hver galdurinn er við að verða ríkur á skömmum tíma með því að kaupa og selja. Hann kunni þann galdur og hinir sem séu að burðast við að efnast á framleiðslu muni aldrei geta skilið eðli viðskiptalífsins eða leyndardóma kaupsýslunnar. Raunar er myndin full af athygl- isverðum samræðum eða einræð- um um gildi peningahyggju og þess hvort allt sé á endanum falt fyrir peninga. Óhætt er að mæla með þessari mynd við alla. -BG „TOPP ÞRJÁTÍU“ vikuna 1.2-8.2 1989 1. ( 1) Fatal Attraction (Háskólabíó) 2. ( 2) Vice Versa (Skífan) 3. ( 8) Wall Street (Steinar) 4. ( 7) Moonstruck (J.B: Heildsala) 5. ( 9) Colors (Háskólabíó) 6. ( 4) Þrirmennogbarn (Bergvik) 7. ( 6) Shakedown (Skífan) 8. ( 5) Suspect (J.B. Heildsala) 9. (-) Frantic (Steina) 10. (-) Timeaftertime (Steinar) 11. (12) The Principal (Bergvík) 12. (17) Rambo # 3 (J.B. Heildsala) 13. (19) The Untouchables (Háskólabíó) 14. (13) Bestseller (Skífan) 15. (10) Gardensof Stone (Steinar) 16. (16) Casual Sex (Laugarásbíó) 17. (-) Three Kindsof Heat (Myndbox) 18. (21) Tough Guys Don’t Dance (Myndbox) 19. (25) Magnum 44 - Dirty Harry (Steinar) 20. (20) Nuts (Steinar) 21. (11) Stakeout (Bergvik) 22. (20) Emma # 1-2 (Myndform) 23. (-) Enforcer- Dirty Harry (Steinar) 24. (14) Someone to watch over me (Skífan) 25. (26) Batteries not Included (Laugarásbió) 26. (23) Hallo Again (Bergvík) 27. (24) The Bedroom Window (J.B. Heildsala) 28. (28) Hotel Colonial (Skífan) 29. (*) Run if you can (Myndbox) 30. (-) Impulse (J.B. Heildsala) ( - ) Táknar að viðkomandi myndband (titill) er nýtt á listanum. (* ) Táknar að viðkomandi myndband (titill) er að koma inná listann á nýjan leik. HOUSE OF GAMES: , Saga um tru- verðuga en óprúttna bragðarefi Stjörnugjöf = ★★★ Aðalhlutverk: Lindsay Crouse, Joe Mantegna Leikstjóri: David Mamet Myndband: Skífan Allt frá því að myndin „Sting“ sló í gegn hefur áhugi manna á úthugsuðum bragðarefum og flóknu svindli þeirra aukist. Mynd- in „House of Games“ er einmitt af svipaðri gerð. Sagan greinir frá velmenntuðum sálfræðingi, konu sem skrifað hefur metsölubók um það að menn eigi í auknum mæli að láta stjórnast af tilfinningum sínum. Sjálf virðist hún þó eiga nokkuð erfitt með að lifa sam- kvæmt eigin kenningum og er gagntekin af vinnu sinni og starfs- frama þar sem aginn ræður ríkjum. Henni gengur hins vegar verr að slappa af og gera þá hluti sem hana raunverulega langar til að gera. Þetta tiltölulega örugga og smá- borgaralega lífsmynstur hennar raskast þó þegar hún kemst í kynni við nokkra svindlara og verður alvarlega skotin í einum þeirra. Hann sýnir henni hin ýmsu brögð sem þeir nota til að svindla fé út úr fólki og í ljós kemur að þessi virðulegi sáfræðingur og góðborg- ari fær ákveðna lífsfyllingu út úr því að brjóta þau gildi sem henni áður þóttu nokkuð heilög. Söguþráðurinn er góður og held- ur spennu í myndinni frá upphafi til enda. Áhorfandinn er ekki upp- lýstur um hinar ýmsu leikfléttur svindlaranna og því kynnist hann þeim fyrst og fremst í gegnum sálfræðinginn og verður jafn undr- andi og hún þegar lokaniðurstaðan kemur í ljós, þ.e. að svindlararnir standa eftir með misjafnlega mikið af peningum en fórnarlambið situr eftir með sárt ennið og veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Leikurinn gæti þó verið betri, eink- um hjá Lindsay Crouse sem leikur sálfræðinginn Margréti Ford. Þó virðist hún ná sér á strik í seinni hluta myndarinnar. Joe Mantegna sem leikur Mike, aðal hugsuð svindlaranna kemst hins vegar vel frá sínu og er nokkuð sannfærandi í sínu hlutverki. Sama má segja um þá sem leika í aukahlutverkum. í stuttu máli er hér á ferðinni ágætis spennumynd sem vel er þess virði að horfa á. -BG

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.