Tíminn - 21.02.1989, Blaðsíða 11
10 Tíminn
Þriðjudagur 21. febrúar 1989
Þriðjudagur 21. febrúar 1989
Tíminn 11
:!ii
ÍÞRÓTTIR
Jlllll
lll'lliliillll
(ÞRÓTTIR
Handknattleikur:
Frábær sigur þrátt
fyrir mikið mótlæti
fslenska landsliðið í handknattleik
vann það v-þýska í gær, er liðin
mættust í milliriðli í B-keppninni í
handknattleik í Strasborg í Frakk-
landi í gær. Lokatölur voru 23-21, t
eftir að V-Þjóðverjar höfðu verið
yfir í hálflcik 10-9.
íslendingar hófu leikinn af krafti
og Guðmundur Guðmundsson gerði
fyrsta markið. ísland komst síðan í
3-1 og 4-2, en V-Þjóðverjar jöfnuðu
úr tveimur vítaköstum. Þjóðverjar
komust tveimur mörkum yfir 8-6 en
munurinn í leikhléinu var I mark
eins og áður segir 10-9.
í síðari hálflcik gerðu V-Þjóðverj-
ar aðeins 1 mark á fyrstu 13 mín. á
Körfuknattleikur:
ÍBK sigur
ÍBK sigraði Hauka 97-86 í Flug-
leiðadeildinni á sunnudagkvöld eftir
að staðan í hálfleik var 54-44. Sigurð-
ur Ingimundarson skoraði 30 stig
fyrir ÍBK og Axel Nikulásson 26 og
hjá Haukum gerði Pálmar 18 og ívar
21 stig.
meðan íslendingar gerðu 6 mörk.
Staðan var 15-11 fyrir ísland þegar
Kristján Arason fékk sína þriðju
brottvísun og var hann þar með
útilokaður frá frekari þátttöku í
leiknum. Góður leikkafli V-Þjóð-
verja á næstu mín. þar sem þeir
gerðu 4 mörk gegn einu fslendinga
gaf þeim vonir um að sigra, en
staðan var 16-15 fyrir ísland. Þá
gripu frönsku dómararnir til þess
ráðs að útiloka Alfreð Gíslason frá
leiknum, með því að vísa honum af
leikvelli í þriðja sinn. Það blés því
ekki byrlega fyrir okkar mönnum
með tvo sterkustu mennina jafnt í
vörn sem sókn með rauð spjöld. En
maður kemur í manns stað og þeir
Sigurður Sveinsson og Héðinn Gils-
son sýndu hvað í þeim býr á loka-
mín. og þeir tryggðu íslandi sigur
23-21. Þeir félagar gerðu 6 af síðustu
8 mörkum íslands með þrumuskot-
um.
Sigur ísland í þessum leik var
mikið afrek því allt gekk okkar
mönnum á móti. Dómgæslan var
V-Þjóðverjum mjög í hag og þeir
Kristján og Alfreð voru hreinlega
teknirfyrir. Einar Þorvarðarson lok-
aði markinu á síðustu mín. þegar
útlitið var hvað svartast. Sigurður
Sveinsson var hetja íslands í þessum
leik. Hann var óhræddur við að láta
skotin vaða í v-þýska markið og
sömu sögu er að segja um Héðin.
Guðmundur Guðmundsson átti ein-
nig góðan Ieik og skoraði mikilvæg
mörk. Sigurður Gunnarsson gerði 2
glæsileg mörk og Alfreð gerði 3
mörk. Annars á allt íslenska liðið
hrós skilið fyrir góðan leik.
Leikurinn var mjög skemmtilegur
á að horfa og spennandi. V-Þjóð-
verjar hafa valdið vonbrigðum í
keppninni með því að tapa fyrir
Sviss og ekki bætir ósigurinn í gær úr
skák. Þessi sigur var mjög mikilvæg-
ur fyrir íslenska liðið í baráttu þess
fyrir sæti í A-keppninni. Það sæti
ætti að vera tryggt með þessum sigri.
í dag mæta fslendingar Svisslend-
ingum og á morgun verður leikið
gegn Hollendingum.
Mörkin: Sigurður Sveinsson 9/4,
Guðmundur Guðmundsson 4, Héð-
inn Gilsson 3, Alfreð Gíslason 3,
Sigurður Gunnarsson 2, Kristján
Arason 1 og Valdimar Grímsson 1.
Hjá V-Þjóðverjum gerði Fratz 8
mörk. BL
Körfuknattleikur:
Hreinn gerði útslagið
NlmrAvilrinnar InnnAii cinnm finrAtl l<‘ÍL
Njarðvíkin|>ar töpuðu sínum fjórða leik
í Flugleiðadeildinni í körfuknattleik á
sunnudagskvöld er þeir léku gegn Vals-
mönnum að Hlíöarenda. Lokatölur leiks-
ins voru 15 sliga sigur Valsnianna 90-75
og stærsta tap Njarðvíkinga í vetur var
staðreynd.
„Við eruin að spila leiki núna sem
skipta engu máli, við höfum fyrir löngu
tryggt okkur rctt til að leika i úrslita-
keppninni og einbeitinguna virðist skorta
í leikjum okkar þessa dagana. Þetta getur
komið sér illa fyrir okkur í úrslitakeppn-
inni, ef við náum ckki upp baráttu og
einbeitingu,” sagöi Teitur Örlygsson
Njarðvíkingur eftir leikinn.
Valsmenn voru með yfirhöndina fram-
an af leiknum, en Njarðvíkingar náðu
forystunni um miðjan hálfleikinn 19-21
og 21-22. Það var í eina skiptið sem
gestirnir voru yfir og Valsmenn náðu 8
stiga forskoti stuttu fyrir leikhlé, 40-32.
Þegar gcngið var til búningsherbergja í
leikhléinu voru Valsmenn 7 stigum yfir
47-40.
Njarðvíkingar mættu ákveðnir til leiks
í síðari hálfleik og náðu þegar að minnka
muninn í 1 stig með því að skora 3 körfur
í röð og staðan var oröin 47-46. Valsmenn
komu í veg fyrir að gestirnir næðu að
jafna og voru 6-9 stigum vtir lengst af
síðari hálfleik. Munurinn jókst í 11 stig
68-57 og þegar 4 mín. voru til leiksloka
voru Valsmenn komnir 13 stigum yfir
81-68. Mótlætið fór mjög í skapið á
Njarövíkingum og ísak Tómassyni var
vísað af leikvelli fyrir að henda boltanum
í Sigurð Val Halldórsson dómara. Stuttu
síðar varö besti maður vallarins, Hreinn
Þorkelsson Val, að fara af leikvelli með 5
villur, eftir að hafa átt stórleik og skorað
31 stig.
Ekki kom það að sök og Valsmenn
innbyrtu öruggan sigur 90-75. Fimmtán
stiga ósigur Njarðvíkinga og undirritaður
man ekki eftir svo stóru tapi hjá liðinu í
mörg ár. Hittni liðsins í þessum leik var
mjög slök alls staðar á vcllinum. Víta-
hittnin var til að mynda varla mikið yfir
20%. Helgi Rafnsson stóð upp úr hjá
Suöurnesjamönnum að þessu sinni og var
sá eini sem hitti í Valskörfuna á tímabili.
Athyglisvert var að Helgi skoraði 3 körfur
í stðari hálfleik af löngu færi, en hann er
vanur að skora sín stig undir körfunni.
Teitur Örlygsson og Hreiðar Hreiðarsson
skoruðu báðir 16 stig, en hittni þeirra
mjög slæm. Kristinn Einarsson, ísak
Tómasson og Friðrik Ragnarsson hittu
einnig illa og þegar allir þessir leikmenn
eiga slæman dag er varla við öðru að
búast en ósigri hjá liðinu.
Hreinn stóð uppúr hjá Valsliðinu og
honum geta þeir þakkað sigurinn, Tómas
Holton átti einnig góðan leik í síðari
hálfleik og Ragnar Þór Jónsson og Matt-
ías Mattíasson léku vel.
Njarðvíkingar hafa mjög misst flugið í
dcildinni að undanförnu. Það hlýtur að
vera áhyggjuefni þvt mikilvægustu vikur
keppnistímabilsins eru framundan hjá
liðinu, sem bæði er í fjögurra liða úrslitum
í dcildinni og bikarnum.
Þessi sigur Valsmanna er þeint mjög
mikilvægur í baráttunni við Grindvíkinga
um sæti í úrslitakeppninni. Valsmenn eru
4 stigum á eftir, en eiga frestaðan leik á
móti Tindastól til góða. Þá eiga Valsmenn
eftir að leika gegn Þór, en Grindvíkingar
eiga eftir að mæta Njarðvíkingum. Liðin
eiga síðan eftir innbyrðis leik sín á milli,
en hann verður í Grindavík 5. mars. Ef
að líkum lætur verður það úrslitaleikur
um hvort liðið kemst í úrslitakcppnina
ásamt Njarðvíkingum. í hinum riðlinunt
komast Keflvíkingar í úrslitakeppnina og
KR-ingar fylgja þeim að öllum líkindum
eftir.
Leikinn dæmdu þeir Sigurður Valur
Halldórsson og Leifur Garðarsson og
höfðu þeir góð tök á leiknum. BL
Kjörin sem aukabúgrein fyrir
bændureöatil búháttabreytinga.
Bátasmiðjan sf.
Drangahrauni 7
220 Hafnarfirði
Sími 652146
Kvöldsími 666709
Handknattleikur:
Alfreð átti
góðan leik
íslendingar urðu í öðru sæti í
C-riðli á B-heimsmeistaramótinu í
handknattleik í Frakklandi um helg-
ina. í síðasta leik sínum í riðlinum
töpuðu Íslendingar fyrir Rúmenum
21-23.
Leikurinn var mjög jafn og spenn-
andi en Rúmenar höfðu yfirleitt
frumkvæðið. Þeir komust í 1-4 í
upphafi en ísland náði að jafna.
Síðan var jafnt á öllum tölum allt þar
til ísland komst í 10-8. Rúmenar
jöfnuðu og staðan í hálfleik var
10-10.
Rúmenar komust í 10-13, en Is-
land jafnaði 14-14. Aftur komust
Rúmenar yfir 16-18 og þegar 5 mín.
voru eftir var staðan 18-22. Enn
náðu íslendingar að sækja á brattann
og minnka muninn í 21-22. Síðasta
markið var rúmenskt og þeir sigruðu
því 21-23.
Leikurinn var mjög vel leikinn og
íslenska liðið lék vel þrátt fyrir
tapið. Rúmenska liðið var mjög
sterkt og er til alls líklegt í keppn-
inni. AlTerð Gíslason átti stórleik í
íslenska liðinu og skoraði 9 mörk, en
aðrir leikmenn stóðu vel fyrir sínu.
Mörkin ísland: Alfreð 9/3, Krist-
ján 5, Sigurður Gunn. 2, Guðmund-
ur 2, Valdimar I, Héðinn 1 og
Þorgils Óttar 1. BL
Létt hjá Grindavík
Grindvíkingar áttu ekki í miklum
vandræðum með að sigra Stúdenta
er liðin mættust í Grindavík á sunnu-
dagskvöld í Flugleiðadeildinni. í
hálfleik var staðan 38-26 og þegar
Guðmundur Guðmundsson lék vel í leik fslendinga og V-Þjóðverja í B-keppninni í gær. Hér
skorar hann í leik gegn A-Þjóðverjum á Ólympíuleikunum í Seoul. Tímamynd Pjetur.
IR vann UMFN-b
ÍR sigraði b lið Njarðvíkur í fyrri
leik liðanna í undanúrslitum bika-
rkeppni KKÍ í gær með 87 stigum
gegn 71. ___________
upp var staðið höfðu Grindvíkingar
sigrað 83-56.
Stigin UMFG: Guðmundur 20,
Steinþór 12, Rúnar 11, Ólafur 9,
Sveinbjörn 9, Ástþór 7, Jón Páll 6,
Hjálmar 5, Eyjólfur 2 og Dagbjartur
2. ÍS: Valdimar 19, Guðmundur 11,
Helgi 10, Sólmundur 4, Auðunn 4,
Jón4, Heimir2, Bjarni 1 ogGísli 1.
Harlem Globtrotters
til Islands í apríl
- snillingarnir veröa meö tvær sýningar á Laugardalshöll
„Það bendir allt til þess að körfuknatt-
leikssnillingarnir Harlem Globtrotters
komi hingað til lands og haldi tvær sýningar
í Laugardalshöll 22. og 23. apríl,“ sagði
Pétur Hrafn Sigurðsson framkvæmdastjóri
KKf í samtali við Tímann í gær.
„Við eigum aðeins eftir að fá endanlega
staðfestingu frá umboðsfyrirtæki Glob-
trotters, en það bendir allt til þess að þeir
Körfuknattleikur:
Misskildu
leiktímann
Leikur KR og Tindastóls sem vera
átti á Hagaskóla á sunnudaginn
kl.14.00 fór ekki fram. Ástæðan var
sú að norðanmenn mættu ekki til
leiks, þar sem þeir töldu að leikurinn
ætti að fara fram kl.20.00.
Þegar hringt var norður á Sauðár-
krók, kom í Ijós að þeir töldu að
leikurinn ætti að fara fram kl. 20.00.
Þeir báðu um frest til kl. 17.30 en
KR-ingar höfnuðu því. Sigurður
Valgeirsson dómari leiksins flautaði
leikinn því af, sem þýðir að KR
sigraði 2-0.
Tindastólsmenn vildu ekki una
þessum málalokum og sóttu fast að
leikurinn yrði settur á að nýju. í
gærmorgun samþykktu KR-ingar að
verða við þeim óskum og verður
leikurinn því leikinn í byrjun mars.
BL
komi. Það komu 11 þúsund manns að sjá
3 sýningar hjá þeim þegar þeir komu
hingað 1982 og við vonum að fólk komi og
sjái þessa frábæru snillinga sýna listir
sínar. Það er rándýrt að fá liðið hingað
þannig að við verðum að fá all marga
áhorfendur til þess að þetta standi undir
sér. í augnablikinu er staðan sú að Glob-
trotters verða með tvær sýningar hér að
þessu sinni, en ef aðsókn verður góð er
aldrei að vita nema reynt verði að hafa
þriðju sýninguna," sagði Pétur.
Færri komust að en vildu þegar snilling-
arnir í Globtrotters heimsóttu ísland árið
1982. ísland var 100. landið sem þeir
heimsóttu og sýningar þeirra hér voru
hreint frábærar. Fólki er ráðlagt að fylgjast
vel með hvenær forsala aðgöngumiða
hefst, því ásókn í miðana verður áreiðan-
lega ekki minni nú, en fyrir 7 árum. BL
lítasjónvarp
er fjárfestíng
ív-þýskum
gæöumog
fallegum
IlTfitum
SKIPHOLTI 7 SIMAR 20080 & 26800
FLUGLEIDIR
Aðalfundur Flugleiða hf.
Aðalfundur Flugleiða h/f verður haldinn þriðjudaginn
21. mars 1989 í Kristalsal Hotels Loftleiða og hefst
kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa og breyting á 4. gr. samþykkta því
til samræmis.
3. Breytingar á samþykktum félagsins:
a) Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins, um heimild til stjórnar
til að hækka hlutafé með áskrift nýrra hluta.
b) Tillaga um breytingu á 10. gr., um að frestur til boðunar aðalfundar verði
minnst 2 vikur.
c) Tillaga um breytingu á 6. mgr. 9. gr., um að fellt verði út ákvæði um
takmörkun á meðferð atkvæða í félaginu.
d) Tillaga um breytingu á 4. gr. 3. mgr., 3. málsgreinin orðist svo: „Til frekari
hækkunar hlutafjár þarf samþykki hluthafafundar. Ákvæði 2. mgr. 17. gr.
samþykkta gilda um tillögur um hækkun hlutafjár."
e) Tillaga um að aðalfundur sé lögmætur, ef hann sækja hluthafar eða
umboðsmenn þeirra, sem hafa yfir að ráða meira en helmingi hlutafjárins
(11 - gr.).
Tillögur um að samþykktum Flugleiða um aukinn meirihluta við atkvæða-
greiðslur, um breytingar á samþykktum, verði breytt til samræmis við
ákvæði hlutafélagalaga, sbr. 76. gr. hlutafélagalaga (4. gr. og 17. gr.
samþykkta).
f) Tillaga um að 2. mgr. g. liðar 5. gr. falli niður.
Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins
hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á skrifstofu
félagsins, hlutabréfadeild á 2. hæð, frá og með 14. mars n.k. frá kl. 09.00
til 17.00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrir kl. 12.00
á fundardegi.
Stjórn Flugleiða h/f.
Frá heimsókn Harlem Globtrotters til íslands 1982. Eins og sjá má var Laugardalshöllin troðfull
af áhorfendum og hrifningin skín úr andlitum barnanna.
JAFNAR TÖLUR • ODDATÖLUR • HAPPATÖLUR
Þetta eru tölurnar sem upp komu 18. febrúar.
Heildarvinningsupphæð var kr. 5.115.168,-
1. vinningur var kr. 2.354.802,- Einn var með fimm tölur réttar.
Bónusvinningur (fjórar tölur + bónustala) var kr. 409.464,- skiptist á 3 vinningshafa
og fær hver þeirra kr. 136.488,-
Fjórar tölur réttar, kr. 706.314,-, skiptast á 134 vinningshafa, kr. 5.271,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.644.588,- skiptast á 4.153 vinningshafa, kr. 396,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnlr frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15
mínútum fyrir útdrátt.
Sími685111. Upplýsingasímsvari 681511.