Tíminn - 21.02.1989, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Þriðjudagur 21. febrúar 1989
FRETTAYFIRLIT
Kabul — Forsætisráðherra
Afganistan, Mohammad Hass-
an Sharq sagði af sér i gær
samhliða því að 20 manna
yfirstjórnarnefnd hersins tók
við völdum í landinu.
Islamabad - Deiiur miiii
strangtrúaðra og hófsamra á
ráðgjafaþingi skæruliða í Afg-
anistan töfðu framgang samn-
ingaumleitana við að koma á
fót bráðabirgðastjórn í landinu.
Brussel — Diplómatar
sögðu í gær að samkomulag
væri í grundvallaratriðum um
jsað innan Evrópubandalags-
ins að kalla heim sendiherra
EB landa frá íran til þess að
mótmæla opinberum tilskipun-
um íranskra stjórnvalda um að
breski rithöfundurinn Salman
Rushdie, höfundur bókarinnar
SöngvarSatans, sé réttdræpur
hvar sem er.
Belarad — Júgóslavneskir
útgefendur virðast gefa lítið
fyrir hótanir múhameðstrúar-
manna og kepptust um að fá
að prenta hina fordæmdu bók,
Söngvar Satans, á sama tíma
og forsætisráðherra írans, Ali
Khamenei kom þangað í opin-
bera heimsókn.
Moskva - Mikail Gobatsjov
flaug í aær til Úkraínu í kosn-
ingaferðalag. Opinberir em-
bættismenn í Sovétríkjunum
sögðu að hann myndi koma
við í kjarnorkuverinu í Chern-
obyl, í fyrsta sinn eftir hið
hörmulega slys er varð þar
árið 1986.
Varsja — Nú standa yfir
samningaviðræður milli
pólskra stjórnvalda og hinna
bönnuðu verkalýðssamtaka
Samstöðu um efnahagsum-
bætur í landinu, en slíkar um-
bætur eru nú orðnar mjög
brýnar. Samningaviðræður
þessar hófust í kjölfar sam-
komulags þessara aðila um
breytta tilhögum á kosningafyr-
irkomulagi í landinu.
Jóhannesarborg - Tvö
suður-afrísk ungmenni komu
fyrir rétt í aær ákærð fyrir að
hafa drepið þeldökkan lækni
sem var aðalvitni í málatilbún-
aðinum í kringum meint morð
lífvarða Winnie Mandela á
unglingi fyrir skömmu.
Dublin — írski lýðveldisher-
inn lýsti í gær ábyrgð á hendur
sér vegna sprengingar í búð-
um hermanna í Shropshire í
Englandi
Kuwait — Trúarleiðtogar í
Líbanon hittust í gær í Kuwait
til viðræðna sem lýst hefur
verið sem síðasta möguleikan-
um til að koma á sáttum milli
stríðandi aðila.
ÚTLÖND
lllllllllllllllllllllllllilli
Rússar rétta Israelum sáttahönd:
Shevardnadse bauð
Arens upp á fund
Óvænt boð Eduards She-
vardnadse, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, til utan-
ríkisráðherra Israels, Moshe
Arens, um að koma til við-
ræðna í Kaíró gefur til kynna
bætt samskipti ríkjanna á
sama tíma og Rússar eru
reiðubúnir að taka meiri þátt
í friðarumleitunum í Mið-
Austurlöndum.
Sovétríkin, sem slitu öllum stjórn-
málasamskiptum við fsrael í stríðinu
1967, hafa í tvo áratugi sent helstu
óvinum Ísraelsríkis, Sýrlandi og
PLO, vopn og veitt allan þann
stuðning sem þau hafa mátt. En nú
er haft eftir ísraelskum embætt-
ismönnum og erlendum sendifull-
trúum að Rússum sé farið að skiljast
að þeir verði að hafa jákvæð áhrif á
báða aðila í átökum Araba og fsra-
ela.
Rússar séu farnir að skilja að þeir
verði að hafa samskipti við ísraels-
menn til að geta tekið þátt í því að
koma á friði. Þeir geri sér líka grein
Sovéski utanríkisráðherrann
drekka vinarskál með fsraelum
fyrir því að samvinna við lsrael vinni
þeim frekari tiltrú í Bandaríkjunum,
sem á hinn bóginn hafi hafið viðræð-
ur við PLO.
Shevardnadse sagði í Damaskus á
sunnudag að viðræðunum í Kaíró
væri ætlað að sigrast á þrjóskulegri
afstöðu ísraelsmanna, en þeir hafna
alþjóðlegri friðarráðstefnu eða
friðarumræðum við PLO.
En ísraelskir embættismenn sögðu
að í einkasamtölum létu sovéskir
forystumenn í ljós meiri skilning á
áhyggjum fsraelsmanna og virtust
vera að leita annarra leiða til að
hrinda af stað friðarumleitunum,
ásamt Bandaríkjamönnum.
Aðstoðarmenn Arens sögðu að
hann myndi segja Shevardnadse að
ekkert minna en endurupptaka á
fullum stjórnmálasamskiptum við ís-
rael gæfi Rússum rétt til að taka þátt
í tilraunum til að koma á friði.
Háttsettur ísraelskur embættis-
maður hefur sagt að stöðugt benti æ
fleira til þess að Rússar hafi í hyggju
að endurreisa stjórnmálasambandið
á þessu ári og að það væri óhyggilegt
að hafna boði Sovétmanna á þessu
stigi málsins.
SmRússar hafa leyft fleiri gyðingum
að flytjast til ísrael en fyrr, heimilað
samskipti á menningar- og íþrótta-
sviðum, þegið með þökkum aðstoð
fsraelsmanna eftir jarðskjálftann í
Armeníu og þakkað fsraelsríki opin-
berlega fyrir að hafa bundið hljóð-
lega enda á flugvélarán sem framið
var í Sovétríkjunum í desember sl.
og endaði í Tel Aviv.
Rússar hafa líka unnið að því að
fá bandamenn sína í Mið-Austur-
löndum til að taka hófsamari afstöðu
til ísraels.
Skoðun Sovétmanna er sú að
besta lausnin væri stofnun tveggja
ríkja, þar sem stofnað yrði ríki
Palestínumanna á vesturbakkanum
og Gaza, sem hafa verið hernumin
af ísraelum síðan í stríðinu 1967.
Tíminn til ferðar Shevardnadse
um Mið-Austurlönd, þar sem hann
hefur mælt fyrir tillögum um að
smátt og smátt verði komið á friðar-
ráðstefnu undir vernd Sameinuðu
þjóðanna, virðist valinn til að taka
frumkvæði á þeim tíma sem ný
ríkisstjórn Bandaríkjanna er að
endurskoða varlega stefnu sína.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í sjónvarpi á
sunnudag að bandarísk stjórnvöld
myndu fara sér hægt í átökum Araba
og ísraela og styðjast þar við viðræð-
ur sem ekki yrði haft hátt um.
Þíða í hormóna-
stríði EB og BNA
Utanríkisráðherrar Evrópu-
bandalagsins samþykktu í gær
vopnahlé í viðskiptadeilunni við
Bandaríkin vegna svokallaðs horm-
ónakjöts. þ.e. kjöts sem hefur verið
meðhöndlað með hormónum, að
sögn talsmanns Evrópubandalags-
ins. Utanríkisráðherrarnir ákváðu
að hrinda ekki af stað hefndarað-
gerðum þar sem goldið yrði líku líkt
eftir að embættismenn bandalagsins
sögðust hafa samþykkt frið við
bandaríska viðskiptasamningamenn
í viðræðum sem fram fóru í Was-
hington um helgina.
Deilan gaus upp vegna banns
Evrópubandalagsins á innflutning á
kjöti frá Bandaríkjunum af naut-
gripum sem meðhöndlaðir hefðu
verið með vaxtarhormónum. Banda-
lagið setti bannið á 1. jan. sl. vegna
krafna neytenda.
Því sem næst allt nautakjöt í
Bandaríkjunum er meðhöndlað á
þennan hátt og yfirvöld í Washing-
ton héldu því fram að innflutnings-
bann Evrópubandalagsins væri
ósanngjarnt og bryti alþjóðleg lög.
Viðbrögð bandarísku stjórnarinn-
ar við innflutningsbanninu á horm-
ónakjötinu voru að leggja tolla upp
á 100 milljónir dollara á vörur frá
þjóðunum 12 sem skipa Evrópu-
bandalagið. Evrópubandalagið
hafði hugleitt að mæta þeim með
lista yfir aðgerðir sem hafði verið
samþykktur og settur í geymslu.
„Listinn er enn gildur, það vantar
ekkert á hann nema dagsetninguna
þegar hann tekur gildi," sagði tals-
maður bandalagsins.
Á laugardaginn var sættust svo
málsaðilar á að taka sér 75 daga frest
til að reyna að róa sig niður og
verður hann notaður til að leita
lausnar á deilunni.
Evrópskir neytendur hafa mótmælt því að keypt sé hormónakjöt frá
Bandaríkjunum. Sjálfir hafa þeir þó ekki hreinan skjöld í þessum málum og
í fyrra kom upp hneykslismál í Þýskalandi þegar upp komst að hormónum
var sprautað í kálfa.
Ráðherrar bandalagsins sögðu
þetta samkomulag spor f rétta átt
segir talsmaður bandalagsins. En
hvorugur aðilinn vill láta líta svo út
að hann hafi látið undan.
82ára
ítalskur
Rómeó“
ítalskt gamalmenni á sínu 83.
aldursári, sem hafði verið gert að
dveljast í stofufangelsi fyrir að
hafa myrt ástkonu sína, liggur nú
undir grun um að hafa ennfremur
myrt konuna sína, að sögn lög-
reglu.
Slökkviliðsmenn sem brutust
inn í íbúð gamla mannsins, Gu-
elfo del Gobbo, og konu hans
þegar íbúðin stóð í björtu báli
fyrir skömmu, komu að eiginkon-
unni látinni á stofugólfinu, en
Guelfo del Gobbo hafði læst sig
inni á baðherbergi. Gamli maður-
inn þurfti að fara á sjúkrahús
vegna reykeitrunar en þegar hann
var fyrir rétti vegna morðsins á 64
ára gamalli ástkonu sinni fyrir
tveimur árum sagðist hann hafa
stungið hana í afbrýðiskasti þegar
hann kom að henni í rúminu með
öðrum manni.
Kasparov skrifar bréf til fyrrverandi heimsmeistara:
VIII að Fischer tefli
Garry Kasparov, heimsmeistari í
skák hefur skorað á fyrrverandi
heimsmeistara Bobby Fischer að
koma fram og tefla á skákmótum á
ný. Það var bandaríski stórmeistar-
inn Boris Gulko, sem áður lék fyrir
hönd Sovétríkjanna, sem skýrði frá
því að Kasparov hefði sent Fischer
bréf í tilefni af því að hann hyggst
fara til Washington síðar í vikunni.
Kasparov mun hafa byrjað bréfið á
orðunum „kæri meistari og félagi'",
en Fischer varð sem kunnugt er
heimsmeistari 1972 og varði þann
titil aldrei þegar Karpov fékk hann
1975.
Erindi Kasparovs til BNA er að fá
bandaríska þingmenn til að styðja
þá tilhögun að undirbúningur fyrir
heimsmeistarakeppnina á næsta ári
verði færður úr höndum Alþjóða
skáksambandsins yfir í hendur Sam-
taka stórmeistara.