Tíminn - 24.02.1989, Side 3
Föstudagur 24. febrúar 1989 Tíminn 3
Bjórinn gerir kröfu um
bætta salernisaðstóðu
Ölstofur og veitingastaðir mega vænta þess að þurfa að
fjölga salernum sínum þegar endurskoðuð heilbrigðisreglu-
gerð lítur dagsins Ijós, en búast má við að það verði upp úr
næstu áramótum. Tímanum er kunnugt um áhyggjur manna
þess efnis að með tilkomu bjórsins verði þörfin fyrir. fleiri
salerni á bjórstofum og smærri veitingahúsum meiri, en sem
kunnugt er hefur bjór, sem og annað áfengi, þvagræsandi
áhrif.
Nú er gert ráð fyrir að 50 gestir séu
um hvert salerni, en í endurskoðaðri
reglugerð er lagt til að fjögur salerni
verði á hverja hundrað gesti.
Tryggvi Þórhallsson hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavfkur sagðist
aðspurður ekki hafa heyrt að gerðar
yrðu auknar kröfur um salernisað-
stöðu á veitingahúsum, með tilkomu
bjórsins. Hann sagði að reglan um
hversu mörg salerni ættu að vera
væri þannig að gert væri ráð fyrir að
fimmtíu gestir væru á hvert salerni
og ef um þvagskálar væri að ræða, er
gert ráð fyrir að 25 gestir deili með
sér hverri þvagskál.
Heilbrigðiseftirlitið er umsagnar-
aðili áður en stöðum er veitt veit-
ingaleyfi hjá lögreglustjóra. Pá er
meðal annars litið eftir þeirri salern-
isaðstöðu sem til staðar er fyrir
leyfisveitingu og fjöldi salerna mið-
aður við þann gestafjölda sem hús-
inu er ætlað að rúma.
Halldór Runólfsson hjá Hollu-
stuvernd ríkisins og formaður nefnd-
ar sem vinnur að endurskoðun heil-
brigðisreglugerðar sagði í samtali
við Tímann að vinnureglan væri sú
að eitt salerni jafngilti tveim þvag-
skálum og kröfur væru gerðar um
__ 37. þing Norðurlandaráðs:
Efnahags- og
umhvemsmáí
ákveðinn fjölda salerna miðað við
fjölda fólks sem húsnæðinu er ætlað
að rúma. Hann sagði að heilbrigðis-
nefndir hefðu heimild til að krefjast
þess að fleiri en tvær þvagskálar
konti í stað eins salernis, í sérstökum
tilfellum, td. á bjórstöðum.
í heilbrigðisreglugerðinni sem
verið er að endurskoða er sérstakur
kafli um salerni og frárennsli þar
sem reglur um fjölda salerna eru
hertar til muna frá því sem áður var.
í tillögum nefndarinnar er gert ráð
fyrir að á hverja 100 gesti skuli koma
tvö salerni fyrir karla og tvö fyrir
konur. Þetta þýðir að 25 manns
verði um hvert salerni. „Þó er gert
ráð fyrir að salernum fari stigfækk-
andi þegar um stærri samkomuhús
er að ræða, til að það verði ekki bara
eintóm röð af salernunt," sagði
Halldör, „allavega fyrir fyrstu
hundraö gestina skulu vera fjögur
salerni, tvö á hvort kyn og annað
karlasalernið má vera í tveim þvag-
stæðum eða fleirum.“
Þar sern reglugerðin hefur ekki
fengið endanlega afgreiðslu ráðu-
neytis þá geta orðið breytingar á
þessum tillögum nefndarinnar.
-ABÓ
Þegar bjórinn segir til sín getur verið
erfítt að halda í sér langtímum
saman. Viðbúið er að slíkar biðraðir
sjáist víða á öldurhúsum borgarinnar
verði ckki liugað að salernismálum.
Tímumynd: Arni Bjurna
Þrítugasta og sjöunda þing
Norðurlandaráðs verður haldið í
Stokkhólmi dagana 27. feb. til 3.
mars n.k. íslenskir fulltrúar á þingið
eru 7 þingmenn sem eiga sæti í
Norðurlandaráði, 7 ráðherrar, 7 frá
ungliðahreyfingumstjórnmálaflokk-
anna og 13 starfsmenn.
Búist er við að umhverfismál og
efnahagsmál verði áberandi á þing-
inu. Sameiginlegur markaður EB og
viðbrögð Norðurlandanna við þeirri
breytingu er mál sem kemur til kasta
þingsins og einnig má búast við
umræðum um hertar reglur varðandi
umhverfismál. Fulltrúar íslands er
hafa atkvæðisrétt á 37. þingi Norður-
landaráðs eru, Páll Pétursson, Ólaf-
ur G. Einarsson, Eiður Guðnason,
Valgerður Sverrisdóttir, Þorsteinn
Pálsson, Óli Þ. Guðbjartsson og
Hjörleifur Guttormsson. - ág
Dæmdur fyrir tilraun
til manndráps:
SEX ÁRA
FANGELSI
Tuttugu ogfimm áragamall Reyk-
víkingur, Víðir Kristjánsson var í
fyrradag dæmdur í sex ára fangelsi í
Sakadómi Reykjavíkur fyrir mann-
drápstilraun.
Víðir stakk fjörutíu og eins árs
gamlan mann með hnífi í kviðarhol
þann 13. nóvember sl. á heimili hins
særða og hlaut hann af miklar inn-
vortis blæðingar sem voru stöðvaðar
með skurðaðgerð. Víðir hefur borið
að húsráðandi hafi sýnt sér kynferð-
islega tilburði og við það hafi hann
misst stjórn á sér.
Til frádráttar refsingu Víðis kem-
ur 99 daga gæsluvarðhald. Þá er
honum gert að greiða allan sakar-
kostnað, samtals 195 þúsund krónur.
Þar sem Víðir Kristjánsson var í
Sakadómi dæmdur í meira en fimm
ára fangelsi fer dómurinn til Hæsta-
réttar lögum samkvæmt.
Dóminn kvað upp Sverrir Einars-
son sakadómari í Sakadómi Reykja-
víkur. -ABÓ
Sauðárkrókur - Akureyri - Reykjavík
STÓRSÝNING
UM HELGINA
Veitum styrkþegum Tryggingarstofnunar ríkisins
sérstakan afslátt.
Við aukum styrk þeirra um 10% með aukaafslætti m.a. á
NISSAN MICRA og NISSAN SUNNY 89, sjálfskiptum.
NISSAN SUNNY 4 dyra SEDAN NISSAN MICRA 3 dyra GL Sýnum einnig hjá umboðsmönnum okkar á Sauðárkróki og á Akureyri. veríð veikomin.
Ingvar Helgason hf. Sýningarsalurinn, Rauðagerði Sími: 91 -3 3560