Tíminn - 24.02.1989, Síða 16
■i X
íi?t.r.i| j
16 Tíminn
lllllllllllll DAGBÓK llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Alþýðuleikhúsið:
Koss Kóngulóarkonunnar
Vegna mikillar aðsóknar verða enn
aukasýningar á leikriti Manuels Puig,
Kossi Kóngulóarkonunnar, á föstudag (í
kvöld) og á sunnudag, kl. 20:30 bæði
kvöldin.
Miðasalán er opin kl. 16:00-18:00.
Aðalfundur
Kvenfélags Neskirkju
Áðurboðaður aðalfundur Kvenfélags
Neskirkju verður haldinn mánudags-
kvöldið 27. febrúar kl. 20:30 í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
Kynningarfundur um
öldrunarfræði
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið og Samstarfsnefnd um málefni
aldraðra efna til kynningarfundar um
öldrunarfræði, öldrunarfræðslu og
menntun í öldrunarþjónustu á Islandi í
dag, föstud. 24. febr. að Borgartúni 6 í
Reykjavík (4. hæð).
Fundurinn er opinn öllum og hefst kl.
09:00 og lýkur kl. 16:00. Þátttakendur
greiði fyrir hádegisverð og morgun- og
síðdegiskaffi. (1500 kr.)
Framsögn á fundinum hafa dr. Andrew
Blaikie og frú J. Cridon, sem bæði koma
frá Lundúnaháskóla, svo og Guðrún
Jónsdóttir frá Félagsvísindadeild Háskóla
Islands og Hrafn Pálsson, deildarstjóri í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu. Hópvinna verður um fyrirspurnir til
frummælenda.
Neskirkja:
Félagsstarf aldraðra
Samverustund verður á morgun, laug-
ardaginn 25. febrúar, kl. 15:00 í safnaðar-
heimili kirkjunnar. Björn Jónsson skóla-
stjóri sýnir myndir.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardaginn
25. febrúar. Lagt af stað frá Digranesvegi
12 kl. 10:00.
„Með hækkandi sól gefur náttúran
tóninn um undanhald vetrarins. Njótið
þessara litbrigða í skemmtilegum félags-
skap í upphafi góðrar helgi. Nýlagað
molakaffi," segir í fréttatilkynningu frá
Frístundahópnum „Hana nú“.
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur
félagsvist á morgun, laugard. 25. febr. í
Húnabúð, Skeifunni 17, og hefst spila-
mennskan kl. 14:00.
Nú er 5 daga keppni að hefjast.
Frikirkjufólk
Messa kl. 14:(M) í Háskólakapellunni á
sunnudag. Sr. Gunnar Björnsson predik-
ar og þjónar fyrir altari. Organisti er
Jakob Hallgrímsson.
Sr. Gunnar Björnsson
Aðalfundur kjötiðnaðarmanna
Félag íslenskra kjötiðnaðarmanna
heldur aðalfund laugardaginn 25. febrúar
á Hótel Holiday Inn kl. 13:30. Dagskrá
fundarins: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Nýlistasafnið:
Sýning Kristjáns Steingríms
Kristján Steingrímur opnar sýningu á
málverkum sínum laugardaginn 25.
febrúar kl. 16:00. Sýningin er í Nýlista-
safninu, Vatnsstíg 3B í Reykjavík. Opið
er virka daga kl. 16:00-20:00 og um helgar
kl. 14:00-20:00. Sýningin stendur til 12.
mars.
Gítardúett í Kristskirkju
Laugard. 25. febrúar kl. 15:30 munu
Torvald Nilsson frá Svíþjóð og Símon
(varsson halda tónlcika í Kristskirkju.
Á efnisskrá eru verk frá endurreisnar-
tímanum og allt fram til okkar daga. Þeir
leika ýmist saman (dúetta) eða einleik.
Verkin eru m.a. eftir Vivaídi, Dowland,
Sor, Torroba og Albeniz.
Torvald Nilsson cr kcnnari í klassískum
gítarleik við Sundsgardens Folkhögskola,
við Tónlistarskóla Helsinki og við Tónlist-
arháskólann í Malmö, auk tónleikahalds
og fjölþættra annarra tónlistarstarfa.
Símon fvarsson nam í Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar og tók lokapróf
frá gítarkennaradeild skólans 1975, og
sama ár hóf hann nám í einleikaradeild
prófessors Karls Scheit við Tónlistarhá-
skólann í Vínarborg. Hann lauk einleik-
araprófi vorið 1980. Símon hefur starfað
sem gítarkennari við Tónlistarskólann í
Luzern í Sviss. Hann hefur undanfarin ár
starfað sem gítarkennari við Tónskóla
Sigursveins, en kennir einnig kennslu-
fræði við sama skóla. Símon hefur farið
margar tónleikaferðir um ísland og einnig
leikið í Austurríki og Svíþjóð. Hann
hefur gefið út hljómplötu ásamt dr.
Orthulf Prunner orgelleikara.
Um sl. helgi hélt Torvald Nilsson
námskeið í Reykjavík fyrir gítarleikara
úr Reykjavík og utan af landi, bæði
nemendur og kennara.
Egill Ólafsson og Pálmi Gestsson í hlutverkum sínum í leikritinu „Brestir".
Leikrit Valgeirs Skagfjörð
„BRESTIR" frumsýnt á Litla
sviði Þjóðleikhússins
Nýtt leikrit eftir Valgeir Skagfjörð
verður frumsýnt á Litla sviði Þjóðleik-
hússins sunnud. 26. febrúar.
Brestir er spennuverk sem lýsir sam-
skiptum tveggja bræðra og atvikum sem
leiða til uppgjörs milli þeirra. Þeir Egill
Ólafsson og Pálmi Gestsson fara með
hlutverk bræðranna. Leikritið gerist í
sumarbústað ei fjarri höfuðborginni.
Leikstjóri er Pétur Einarsson.
Úr nýja ævintýraleikriti L.R. „Ferðin á heimsenda“.
Nýtt barna- og fjölskylduleikrit.
FERÐIN Á HEiMSENDA í Iðnó
Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir nýtt
barna- og fjölskylduleikrit eftir Olgu
Guðrúnu í Iðnó laugardaginn 25. febrúar
kl. 14:00.
Ferðin á heimsenda er ævintýraleikur.
Þetta er fyrsta leikrit Olgu Guðrúnar sem
sett er upp hjá Leikfélagi Reykjavíkur,
en hún hefur samið leikrit fyrir útvarp og
barnaleikrit hennar „Amma þó“ var leik-
ið í Þjóðleikhúsinu 1984. Auk þess hefur
Olga Guðrún sungið inn á hljómplötur.
Kjartan Bjargmundsson leikur Hrapp
galdrakarl, Margrét Árnadóttir leikur
Skottu. Aðrir leikarar eru Edda Björg-
vinsdóttir, Ása Hlín Svavarsdóttir, Stefán
Sturla Sigurjónsson, Valgerður Dan Jóns-
dóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir, Ólöf
Sverrisdóttir, Arnheiður Ingimundar-
dóttir, Ólöf Söebeck, Margrét Guð-
mundsdóttir, Kristján Franklín Magnús
og Sigrún Edda Björnsdóttir.
Leikstjóri er Ásdís Skúladóttir. Leik-
mynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir,
tónlist Soffía Vagnsdóttir, aðstoðarleik-
stjórn: Margrét Árnadóttir, lýsing: Egill
Örn Árnason og Lárus Björnsson, og
dansar og hreyfing: Auður Bjarnadóttir.
Ferðin á heimsenda verður sýnd alla
laugardaga og sunnudaga kl. 14:00 í
IÐNÓ.
„Þetta leikrit er það síðasta sem Leik-
félag Reykjavíkur setur upp í IÐNÓ.
Með þessu verkefni lýkur 92 ára sögu
Leikfélagsins í þessu gamla vinalega
húsi,“ segir í lok fréttatilkynningar frá
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi.
Sýning í Fjóibrautaskóla
Vesturlands á Akranesi
( dag, föstud. 24. febr. verður opnuð
sýning á grafíkmyndum íslenskra lista-
nianna í Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi. Alls eru á sýningunni 56mynd-
ir eftir 11 listamenn. Myndirnar eru
keyptar á sl. ári fyrir fjárveitingu sem
skólinn fékk úr Listskreytingasjóði ríkis-
ins til að skreyta heimavist skólans.
Verður myndunum komið fyrir á heima-
vistinni að sýningu lokinni.
Þeir listamenn sem eiga myndir á
sýningunni eru: Baltasar Samper, Hall-
dóra Gísladóttir, Ingiberg Magnússon,
Ingunn Eydal, Jóhanna Bogadóttir, Jón
Reykdal, Ragnhciður Jónsdóttur, Rík-
harður Valtingojer, Sigrid Valtingojer,
Vignir Jóhannsson og Þórður Hall.
Sýningin verður opin föstud. 24. febr.
kl. 16:00-20:30, laugard. 25. febr. kl.
14:00-20:30, sunnud. 26. febr. kl. 14:00-
20:30 og föstud. 3. mars kl. 16:00-20:30.
Nokkrir aðstandenda Magnavökunnar.
MAGNAVAKA í Hafnarborg
Laugardaginn 25. febrúar gengst Mál-
fundafélagið Magni í Hafnarfirði fyrir
svonefndri Magnavöku í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjarð-
ar. Á vökunni koma fram ýmsir listamenn
og flytja fjölbreytta dagskrá í tali og
tónum. Vakan hefst kl. 14:00 og mun
standa yfir í u.þ.b. 2 klukkustundir.
Öllum er heimill ókeypis aðgangur, en
á vökunni verður tekið á móti frjálsum
framlögum í menningar- og listasjóð
Magna. Að þessu sinni mun það fé sem
safnast í sjóðinn renna til kaupa á „kons-
ertflygli“ fyrir Hafnarborg.
> \'j *f l'V'-t -> X ' i ( I | I ■> 2 -
Föstudagur 24. febrúar 1989
llllllllllll ÚTVARP/SJÓNVARP lilllllllllllllllllllllÍllllHllllll
Föstudagur
24. febrúar
6.45 Veöurtregnir. Bæn, séra Kristinn Ágúst Friö-
finnsson flylur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið með Ingveldi Ólafsdóttur.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn - „Sögur og ævintýri".
Höfundurinn, Þórunn Magnea Magnúsdóttir,
hefur lesturinn. (Einnig útvarpað um kvöldið kl.
20.00).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Björns-
dóttir.
9.30 Kviksjá-Hrollvekjuri íslenskumfrásögn-
um. Umsjón: Matthías Viöar Sæmundsson.
(Endurtekinn þáttur frá þriðjudegi).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Maðurinn á bak við bæjarfulltrúann.
Umsjón: Erna Indriðadóttir. (Frá Akureyri).
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Kynntur tónlistarmaður vik-
unnar: Gunnar Guðbjörnsson tenórsöngvari.
Umsjón: Anna Ingólfsdóttir. (Einnig útvarpað
eftir fréttir á miðnætti).
11.53 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.35 Miðdegissagan: „Blóðbrúðkaup“ eftir
Yann Queffeléc. Guðrún Finnbogadóttir þýddi.
Þórarinn Eyfjörð les (22).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Ljúflingslög. Svanhildur Jakobsdóttir
kynnir. (Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags
að loknum fréttum kl. 2.00).
15.00 Fréttir.
15.03 Samantekt - um snjóflóðahættu. Umsjón:
Guðrún Eyjólfsdóttir. (Endurtekinn þáttur frá
miðvikudagskvöldi).
15.45 Þingfréttir.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið - Símatími. Umsjón: Kristin
Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi. Leikin tónlist eftir Johan
Svendsen, Charles Gounod, Georges Enesco
og Johann Strauss.
18.00 Fréttir.
18.03 Þingmál. Umsjón: Arnar Páll Hauksson.
(Einnig útvarpað næsta morgun kl. 9.45).
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.33 Kviksjá. Þáttur um menningarmál. Umsjón:
Friðrik Rafnsson og Halldóra Friðjónsdóttir.
20.00 Litli barnatíminn - „Sögur og ævintýri".
Höfundurinn, Þórunn Magnea Magnúsdóttir,
hefur lesturinn. (Endurtekinn frá morgni).
20.15 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar.
21.00 Kvöldvaka. a. Þáttur af Sveini í Firði.
Vilhjálmur Hjálmarsson flytur síðari hluta frá-
sagnar sinnar um Svein Ólafsson alþingismann
í Firði í Mjóafirði. Einnig verður flutt brot úrerindi
Sveins frá 1940. (Úr safni Útvarpsins). b.
Róbert Arnfinsson syngur lög eftir Gylfa Þ.
Gíslason í raddsetningu Jóns Sigurðssonar. c.
Ævintýri og furðusögur. Kristinn Kristmundsson
les ur Þjóðsögum Jóns Árnasonar. d. Stúdenta-
kórinn syngur lög eftir Þorvald Blöndal, Ólaf
Þorqrímsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og
Pállsólfsson. Umsjón: Gunnar Stefánsson.
22.00 Fréttir.
22.07 Frá alþjóðlega skákmótinu í Reykjavík.
Jón Þ. Þór segir frá gangi skáka í tíundu umferð.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma. Guðrún Ægisdóttir les
29. sálm.
22.30 Danslög.
23.00 í kvöldkyrru. Þáttur í umsjá Jónasar Jónas-
sonar.
24.00 Fréttir.
00.10 Tónlistarmaður vikunnar - Gunnar Guð-
björnsson tenórsöngvari. Umsjón: Anna Ing-
ólfsdóttir. (Endurtekinn Samhljómsþáttur frá
morgni).
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
01.10 Vökulögin.
7.03 Morgunútvarpið. Leifur Hauksson og Ólöf
Rún Skúladóttir hefja daginn með hlustendum,
spyrja tiðinda víða um land, tala við fólk i
fréttum og fjalla um málefni liðandi stundar. Jón
örn Marinósson segir ódáinsvallasögur kl.
7.45. Fréttir kl. 8.00, veðurfregnir kl. 8.15 og
leiðarar dagblaðanna kl. 8.30.
9>.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun, Eva Ásrún
kl. 9. Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttur.
Afmæliskveðjur kl. 10.30.
11.03 Stefnumót. Jóhanna Harðardóttir tekur fyrir
það sem neytendur varðar.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu. Margrét Blöndal
og Gestur Einar Jónasson leika þrautreynda
gullaldartónlist.
14.05 Milli mála, Óskar Páll á útkikki og leikur
ný og fín lög. - Útkikkið kl. 14 og Arthúr
Björgvin Bollason talar frá Bæheimi.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp fyrir þá sem
vilja vita og vera með. Stefán Jón Hafstein,
Ævar Kjartansson og Sigríður Einarsdóttir. -
Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00, hlustenda-
þjónustan kl. 16.45. - lllugi Jökulsson spjallar
við bændur á sjötta timanum. - Stórmál dagsins
milli kl. 17 og 18. - Þjóðarsálin, þjóðfundur í
beinni útsendingu að loknum fréttum kl. 18.03.
Málin eins og þau horfa við landslýð, sími
þjóðarsálarinnar er 38500. - Hugmyndir um
helgarmatinn og Ódáinsvallasögur eftir kl.
18.30.
19.00 Kvöldfréttir.
19.33Áfram ísland. Dægurlög með íslenskum
flytjendum.
20.30 Vinsældalisti Rásar 2. Áslaug Dóra Eyjólfs-
dóttir kynnirtíu vinsælustu lögin. (Einnig útvarp-
að á sunnudag kl. 15.00).
21.30 FRÆÐSLUVARP: Lærum þýsku. Þýsku-
kennsla fyrir byrjendur á vegum Fjarkennslu-
nefndar og Bréfaskólans. Áttundi þáttur endur-
tekinn frá mánudagskvöldi.
22.07 Snúningur. Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir ber
kveðjur milli hlustenda og leikur óskalög.
23.45 Innskot frá Alþjóðlega skákmótinu i
Reykjavík. Jón Þ. Þór skýrir skák úr tíundu
umferð.
02.05 Rokk og nýbylgja. Skúli Helgason kynnir.
(Endurtekinn þáttur frá mánudagskvöldi).
03.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fréttir kl. 4.00 og sagðar fréttir
af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og
6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30,
9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20,14.00, 15.00,
16.00, 17.00,18.00, 19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Austurlands.
SJÓNVARPIÐ
Föstudagur
24. febrúar
18.00 Gosi (9). (Pinocchio). Teiknimyndaflokkur
um ævintýri Gosa. Leikraddir Örn Árnason.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
18.25 Kátir krakkar. (The Vid Kids) Annar þáttur.
Kanadískur myndaflokkur í þrettán þáttum. Um
er að ræða sjálfstæða dans og söngvaþætti
með mörgum af þekktustu dönsurum Kanada.
Þýðandi Reynir Harðarson.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Austurbæingar (Eastenders) Sautjándi
þáttur. Breskur myndaflokkur í léttum dúr.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
19.25 Meinlausi drekinn. (The Relucted Dragon).
Bresk teiknimynd um lítinn strák sem finnur
dreka í helli einum. Þorpsbúar vilja farga
honum, en strákurinn reynir að vernda hann.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
19.54 Ævintýri Tinna. Krabbinn með gullnu
klærnar (7).
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Spurningakeppni framhaldsskólanna.
Fjórði þáttur. Menntaskólinn í Kópavogi gegn
Flensborgarskóla. Stjórnandi Vernharður
Linnet. Dómari Páll Lýðsson.
21.15 Þingsjá. Umsjón Ingimar Ingimarsson.
21.35 Derrick. Þýskursakamálamyndaflokkurmeð
Derrick lögregluíoringja. Þýðandi Kristrún Þórð-
ardóttir.
22.35 Sniðug stelpa. (Funny Girl). Bandarísk
kvikmynd frá 1968. Leikstjóri William Wyler.
Aðalhlutverk Barbra Streisand, Omar Sharif,
Kay Medford og Anne Francis. Myndin fjallar
um Fanny Brice, ófríöa gyðingastúlku frá New
York, sem einsetur sér að komast áfram í
skemmtanaiðnaðinum. Brautin er þyrnum stráð
en Fanny Brice lætur sér ekki allt fyrir brjósti
brenna. Þýðandi Gunnar Þorsteinsson.
01.15 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Föstudagur
24. febrúar
15.45 Santa Barbara. Bandarískur framhalds-
myndaflokkur.
16.30 Uppgangur. Staircase. Gamansöm mynd
um tvo homma og sambýlismenn sem komnir
eru nokkuð til ára sinna. Aðalhlutverk: Richard
Burton og Rex Harrison. Leikstjóri og framleið-
andi: Stanley Donen. Þýðandi: PéturS. Hilmars-
son. 20th Century Fox 1969. Sýningartími 90
mín. Lokasýning. «
18.10 Myndrokk. Góð blanda af tónlistarmynd-
böndum. Stöð 2.
18.25 Pepsi popp. íslenskur tónlistarþáttur þar
sem sýnd verða nýjustu myndböndin, fluttar
ferskar fréttir úr tónlistarheiminum, viðtöl get-
raunir, leikir og alls kyns uppákomur. Þættirnir
eru unnir í samvinnu við Sanitas hf. sem kostar
gerð þeirra. Umsjón: Helgi Rúnar Óskarsson.
Kynnar: Hafsteinn Hafsteinsson og Nadia K.
Banine. Dagskrárgerð: HilmarOddsson. Stöð2.
19.19 19:19. Frétta- og fréttaskýringaþáttur ásamt
umfjöllun um þau málefni sem ofarlega eru á
baugi.
20.30 Klassapíur. Golden Girls. Þá eru klassa-
píurnar frá Flórida komnar á skjáinn aftur. Walt
Disney Productions.
21.00 Ohara. Bandarískur lögregluþáttur. Aðal-
hlutverk: Pat Morita, Kevin Conroy, Jack Wall-
ace, Catherine Keener og Richard Yniguez.
21.50 Anastasia. Saga myndarinnar er rakin til
þess atburðar þegar öll rússneska keisaraættin
var myrt árið 1918 og kunngjört var að leiðtogi
fjölskyldunnar eða siðasti keisari Rússlands
hefði skilið eftir kynstur auðæfa dóttur sinni
Anastasíu, til handa, en hún átti einnig að hafa
verið myrt. Aðalhlutverk: Ingrid Bergman, Yul
Brynner, Helen Hayes og Akim Tamiroff. Leik-
stjóri: Anatole Litvak. Framleiðandi: Buddy
Adler. 20th Century Fox 1956. Sýningartími 115
mín. Aukasýning 31. mars.
23.45 Fjarstýrð örlög. Videodrome. Myndin fjallar
um hið ólíklegasta sem gæti hent nokkurn
mann. Að þessu sinni býr hin illskeytta ofsóknar-
vera í bandarískum sjónvarpsþætti en hann er
þeim krafti gæddur að ná tangarhaldi álífi þeirra
sem í þættinum birtast. Aðalhlutverk: James
Woods og Deborah Harry. Leikstjóri: David
Broenberg. Framleiöendur: Victor Solnicki og
Pierre David. Universal 1982. Sýningartími 90
mín. Alls ekki við hæfi barna. Aukasýning 4.
apríl.
01.15 Snerting Medúsu. Medusa Touch. í mynd-
inni leikur Richard Burton mann meðyfirnáttúru-
lega hæfileika. Með viljanum einum saman
getur hann drepið fólk, orsakað flugslys og látið
skýjakljúfa hrynja. Aðalhlutverk: Richard
Burton, Lino Ventura og Lee Remick. Leikstjóri:
Jack Gold. Framleiðendur: Arnon Milchan og
Elliot Kastner. ITC1978. Sýningartími 105 mín.
Alls ekki við hæfi bama. Lokasýning.
03.00 Dagskrárlok.
I