Tíminn - 25.02.1989, Side 12
24 Tíminn
Laugardagur 25. febrúar 1989
Kjarvalsstofa í París
Kjarvalsstofa í París er íbúö og vinnustofa, sem
ætluö er til dvalar fyrir íslenska listamenn. Reykja-
víkurborg, menntamálaráðuneytið og Seðlabanki
íslands lögðu fram fé til þess að koma upp slíkri
starfsaðstöðu í Parísarborg með samningi við
stofnun, sem nefndist Cité Internationale des Arts
og var samningurinn gerður á árinu 1986. Kjarvals-
stofa er í miðborg Parísar, skammt frá Notre
Dame dómkirkjunni.
Sérstök stjórnarnefnd fer með málefni Kjarvals-
stofu og gerir hún tillögu um úthlutun dvalartíma
þar til stjórnar Cité Internationale des Arts, er tekur
endanlega ákvörðun um málið. Dvalartími er
skemmstur 2 mánuðir en lengst er heimilt að veita
listamanni afnot Kjarvalsstofu í 1 ár.
Þeir, sem dvelja í Kjarvalsstofu greiða dvalargjöld,
er ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts
og miðast við kostnað af rekstri hennar og þess
búnaðar, sem þeir þarfnast. Þessi gjöld eru lægri
en almenn leiga í Parísarborg. Dvalargestir skuld-
binda sig til þess að hlíta reglum Cité Internation-
ale des Arts varðandi afnot af húsnæði og
vinnuaðstöðu og jafnfram skuldbinda þeir sig til
þess að dvöl lokinni að senda stjórn Kjarvalsstofu
stutta greinargerð um störf sín.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot
Kjarvalsstofu, en stjórnin mun áfundi sínum í apríl
fjalla um afnot listamanna af stofunni tímabilið 1.
júlí 1989 - 30. júní 1990. Skal stíla umsóknir til
stjórnarnefndar Kjarvalsstofu. Tekið er á móti
umsóknum til stjórnarnefndarinnar í skjalasafni
borgarskrifstofanna að Austurstæti 16, en þar
liggja einnig frammi umsóknareyðublöð og afrit af
þeim reglum, sem gilda um afnot af Kjarvalsstofu.
Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að
koma til greina við þessa úthlutun.
Umsóknum skal skila í síðasta lagi 22. mars n.k.
Reykjavík, 22. febrúar 1989
Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu
II!
DAGVI8T BAKIVA
Fóstrur, þroskaþjálfar
eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfsfólki
í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi. Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtal-
inna dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277.
VESTURBÆR
Hagakot Fomhaga8 s. 29270
AUSTURBÆR
Hlíðarborg v/Eskihlíð s. 20096
Lækjarborg v/Leirulæk s. 686351
Nóaborg Stangarholti 11 s. 29595
Stakkaborg v/Bólstaðarhlíð s. 84776
Múlaborg v/Ármúla s. 685154
BREIÐHOLT - GRAFARVOGUR
Bakkaborg v/Blöndubakka s. 71240
Foldaborg Frostafold 33 s. 673138
Jöklaborg v/Jöklasel s. 71099
HEIMAR
Sunnuborg Sólheimum19 s. 36385
VETTVANGUR
Gengisfellingar hafa leikið
sparifjáreigendur grátt
Oft heyrist það, að íslensk fyrir-
tæki standi verr að vígi en erlendir
keppinautar þeirra og sé ástæðan
ekki síst sú, að eiginfjárstaða
þeirra sé yfirleitt miklu lakari.
Hvað veldur þessu? Sumir segja,
að því valdi háir skattar, sem
gleypi mikinn hluta þess arðs, sem
fyrirtækin leggja fyrir. Staðreyndin
er samt sú, að tekju- og eignaskatt-
ar eru með lægra móti hérlendis.
Meginástæða þess, að eigin-
fjárstaða íslenskra fyrirtækja er
léleg er allt önnur en skattarnir.
Meginástæðan eru hinar miklu og
mörgu gengisfellingar, sem beitt
hefur verið sfðan 1960 sem bráða-
birgðaráðstöfunum í efnahagsmál-
um. Smátt og smátt hafa þær rýrt
sparifé fyrirtækjanna og gerðu það
næstum að engu. Glöggt dæmi um
þetta eru sjóðir kaupfélaganna.
Kaupfélagsmenn héldu, að með
þeim væru þeir að tryggja framtíð
félagsskapar síns. Raunin hefur
orðið önnur. Sjóðirnir hafa fuðrað
upp í báli gengisfellinganna.
t>ess vegna hafa þeir eða þau,
sem eru á svipuðum aldri og ég,
orðið áhorfendur að því, að mörg
þau fyrirtæki á landsbyggðinni,
sem þóttu einna traustust fjárhags-
lega fyrir 20-30 árum, hafa nýlega
verið tekin til gjaldþrotaskipta og
hafa því lokið sögu sinni. Rústir
þeirra eru alvarleg áminning um
afleiðingar gengisfellinga.
Til eru fákænir hagfræðingar,
sem segja að þessum afleiðingum
gengisfellinga hafi mátt verjast
með því að hækka vextina. Reynsl-
an sýnir þó glöggt, að það er leiðin
til fleiri gengisfellinga. Þegar
fjármagnskostnaður eykst, fara
margir atvinnurekendur að hrópa:
Það verður að lækka gengið og
skrá krónuna rétt. Þetta hrópa líka
eigendur þeirra fyrirtækja, sem
grætt hafa á okurlánum. Afleiðing
er m.a. sú, að gengið hefur verið
þrífellt á tæpu ári en efnahags-
ástandið samt haldið áfram að
versna. Flestir ættu að geta séð
hvernig slík öfugþróun endar.
Gengisfellingamar hafa gert
meira en að eyða sjóðum traustra
fyrirtækja. í raun hafa þær leikið
enn verr efnalitla einstaklinga, sem
hafa verið að safna smáupphæðum
til efri áranna. Gengisfellingarnar
þrjár að undanförnu hafa rýrt verð-
gildi þessara litlu sjóða verulega á
sama tíma og verðbólga hefur
aukist.
Nýlega hefur verið stofnað félag
sparifjáreigenda, sem er ætlað það
hlutverk að því sagt er, að sporna
gegn rýrnun sparifjár. Fyrsta verk-
efni slíks félagsskapar hlýtur að
vera að hamla gegn frekari gengis-
fellingum. Annað verkefni hlýtur
að vera að tryggja hóflega raun-
vexti, því að of háir raunvextir
auka óeðlilega mikið fjármagns-
kostnað fyrirtækja og leiða til
kröfugerðar um gengislækkun.
Mesta hagsmunamál sparifjár-
eigenda er að raungildi krónunnar
haldist stöðugt, líkt og t.d. sviss-
neskur franki. í raun er það hags-
munamál allrar þjóðarinnar, því
að fyrr byggist ekki efnahagur
hennar á öruggum grundvelli.
Þórarinn Þórarinsson:
Sala getraunaseðla með ensku knattspyrnunni lokar á laugardögum kl. 14:45.
X .21
8. LEJKVIKA- 25. FEBRÚAR 1989 111
Leikur 1 Aston Villa - Charlton
Leikur 2 Derby - Everton
Leikur 3 Millwall - Coventry
Leikur 4 Norwich - Man. Utd.
Leikur 5 Southampton - Tottenham
Leikur 6 Wimbledoiv, - Sheff. Wed.
Leikur 7 Bournemouth - Portsmouth
Leikur 8 Barnsley - Blackburn
Leikur 9 Brighton - Watford
Leikur 10 Oxford - Ipswich
Leikur 11 Stoke - Leicester
Leikur 12 Sunderland - Hull
Símsvari hjá getraunum á laugardögum eftir kl. 17:15 er 91-84590 og -84464. Sprengipotturinn aekk ekki út, svo nú er pofiurinn : -ekki bara tvöfaldur!
ITT
lítasjónvarp
er Qárfestíng
ív-þýskum
gæðumog
fallegum
ITTfitum