Tíminn - 17.05.1989, Page 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 17. maí 1989
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA — Hlnn íhalds-
sami meðlimurstjórnarnefndar
sovéska kommúnistaflokksins,
Yegor Ligachev hefur vísað á
bug ásökunum um að hann
tengist skipulegri glæpastarf-
semi í Moskvu, en honum
hefur verið borið það á brýn að
undanförnu.
JERÚSALEM - israelski
herinn skipaði Aröbum frá
Gazasvæðinu að hypja sig frá
(srael og halda heim til sín á
hið hernumda svæði. Á sama
tíma hófu ísraelar fjöldahand-
tökur í nokkrum þorpum á
Vesturbakkanum. Jafnframt
sökuðu fimm leiðtogar Palest-
(numanna fsraela um að reyna
að eyðileggja friðarumleitan
sína með bví að handtaka
nokkra leiðtoga Palestínu-
manna svo þeir komist ekki á
fund Dennis Ross sérlegs
sendimanns utanríkisráðu-
neytis Bandaríkjanna.
HÖFÐABORG — Helen
Suzman sem er þekktasti hvíti
andstæðingur aðskilnaðar-
stefnunnar í Suður-Afríku
sagði af sér þingmennsku, en
hún hefur krafist réttinda til
handa lituðum Suður-Afríku-
mönnum undanfarin ár.
WASHINGTON - Tals-
maður Hvfta hússins skýrði frá
þvf að Sovétmenn hafi lofað
að stöðva vopnasendingar til
Níkaragva, en segja að þessi
ákvörðun og önnur sovésk
friðartilboð séu einungis til
þess að fegra sig í augum
almennings á Vesturlöndum.
NEW YORK - Helstu al-
þjóðlegu bankar í Bandaríkj-
unum nafa hvatt hóp sjö helstu
iðnrfkja til þess aó brúka Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn og Al-
þjóðabankann sem uppsprettu
nýrra bankalána til ríkja sem
eiga f greiðsluerfiðleikum.
SÍDON — Vopnaðir menn
rændu fjórum Vestur-Þjóðverj-
um f hafnarborginni Sídon f
suðurhluta Lfbanon. Þetta er f
annað sinn sem þremur þess-
ara manna er rænt í þessum
mánuði. Áður var þeim sleppt
eftir nokkrar klukkustundir.
ÚTLÖND
Mikhaíl Gorbatsjof hittir Deng Xiaoping að máli í Peking:
Sögulegur leiðtogafundur
í skugga hungurverkfalls
Það var söguleg stund í Kína þegar Mikhaíl Gorbatsjof
æðsti leiðtogi Sovétríkjanna og Deng Xiaoping hinn aldni og
vísi leiðtogi Kínverja skáluðu fyrir bættum samskiptum
þessara risavelda eftir þrjátíu ára úlfúð. Hins vegar tókst þeim
ekki að ná samkomulagi um málefni Kambódíu sem var eitt
aðalmálið í viðræðum þeirra, sem fram fóru í skugga
hungurverkfalls og mótmælafunda hundruð þúsunda kín-
verskra alþýðumanna á Torgi hins himneska friðar.
- Ljúkum hinu liðna og hefjum
framtíðina, sagði Deng f gær í byrjun
fyrsta leiðtogafundar Sovétríkjanna
og Kína í þrjá áratugi.
- Notum tækifærið og lýsum nú
yfir eðlilegum samskiptum landa
okkar, sagði Deng og lyfti glasi.
Eftir þessi ávarpsorð sem Deng
flutti í hádegisverði sem haldinn var
til heiðurs hjónum Mikhaíl og Raisu
Gorbatsjof í Alþýðuhöllinni í Pek-
ing tókust leiðtogarnir f hendur
undir dynjandi lófataki kínverskra
og sovéskra embættismanna.
Á meðan höfðingjarnir gæddu sér
á kræsingunum sátu rúmlega þrjú
þúsund kínverskir námsmenn fyrir
framan höfuðstöðvar kínverska
kommúnistaflokksins og föstuðu
fjórða daginn í röð. Krefjast náms-
mennirnir lýðræðis og frelsis í Kína
í anda perestrojku Gorbatsjofs.
Tugir þúsunda manna úr öllum
stéttum komu við á Torgi hins himn-
eska friðar til að taka undir kröfur
hinna fastandi námsmanna. Stöðv-
aðist öll umferð í miðborg Peking
vegna mótmælanna.
Á fimmta hundrað námsmanna
hafa verið fluttir á sjúkrahús ör-
magna eftir vökur og föstur í heitri
maísólinni. Þar hafa þeir fengið
sykurupplausn til að hressa sig við
og haldið að nýju í mótmælaföstuna.
Sumir hinna ungu mótmælenda
hafa gengið svo langt að skipuleggj-
endur mótmælaaðgerðanna hafa
þurft að telja þá af því að brenna
sjálfa sig á torginu.
Eins og áður segir náðu þeir Deng
og Gorbatsjof ekki samkomulagi
um hvemig best skuli haga málum í
Kambódíu og er mikill meiningar-
munur í því máli. Kínverjar hafa
alla tíð stutt hina Rauðu Khmera, en
Sovétmenn styðja Víetnama og nú-
verandi ríkisstjórn Kambódíu.
Það var einmitt dvöl víetnamska
herliðsins í Kambódíu sem verið
hefur ein helsta hindrun þess að
Sovétmenn og Kínverjar tækju upp
eðlileg samskipti að nýju. Nú hafa
Víetnamar heitið því að síðasti
víetnamski hermaðurinn yfirgefi
Kambódíu fyrir lok septembermán-
aðar.
Alþýða Pekingborgar var I sviðsljósinu í gær þegar Deng Xiaoping og
Mikhafl Gorbatsjof hittust á ieiðtogafundi í Peking, þeim fyrsta sem haldinn
er í þrjátiu ár. Tugir þúsunda tóku þátt í mótmælafundi og kröfðust iýðræðis
og frelsis. Þrjú þúsund eru í hungurverkfaili.
Leiðtogi sunníta drep-
inn í sprengjutilræði
Helsti leiðtogi sunní músiíma í
Líbanon lést þegar öflug sprengja
sprakk í bil hans fyrir utan skrifstofur
hans í fjölmennu íbúðahverfi í Beir-
útborg. Að minnsta kosti fimmtán
aðrir létust og fimmtíu særðust alvar-
lega í sprengingunni sem er ein sú
öflugasta bflasprengja sem sprengd
hefur verið í Beirút.
Hassan Khaled sjeik var stórmúfti
lýðveldisins og því æðsti trúarleið-
togi hinna 700 þúsund sunní mús-
líma í Líbanon. Hann var hófsamur
og ein helsta sprautan f tilraunum til
að koma á friði milli stríðandi fylk-
inga múslíma og kristinna manna í
Líbanon.
Hassan Khaled varð mörgum
harmdauði, þar á meðal mörgum
leiðtogum kristinna manna sem
hörmuðu og fordæmdu sprengjutil-
ræðið strax og það fréttist og kölluðu
það hræðilegan glæp.
Útvarpsstöðvar kristinna jafnt
sem múslíma í Líbanon syrgðu Khal-
ed sem píslarvott.
Mikið öngþveiti varð kringum
hinn örlagaríka stað þar sem fram-
hliðar húsa stórskemmdust, þar á
meðal höfuðstöðvar Hoss forsætis-
ráðherra ríkisstjómar múslfma í Lí-
banon. Sýrlenskir hermenn skutu úr
vélbyssum sínum í loft upp til að
dreifa örvæntingarfullum mafin-
fjöldanum til þess að sjúkrabifreiðar
kæmust að hinum slösuðu.
Starfsmönnum sjúkrahúsa, sem
— ýmm. fni .mnir.. «ftir-fjArtdn.. dra
Enn ríkir óöld í Beirút:
borgarastyrjöld í Líbanon, var mjög
brugðið þegar slasað og látið fólk
tók að streyma inn á móttökur eftir
sprenginguna, svo illa var fólk
slasað. Tveggja metra djúpur gígur
myndaðist undir bíl Khaleds og var
hann fjórir metrar í þvermál, svo
öflug var sprengingin.
Þetta er sjötta bílasprengjan sem
sprengd er í Beirút á þessu ári.
Síðast sprakk sprengja 17. mars í
bakaríi í hinum kristna hluta Beirút-
borgar. Þá létust tólf manns og
hundrað og fimmtfu slösuðust.
Nýjustu rannsóknir í
Bandaríkjunum:
Lýsi lukku-
legtímaga
Nýjustu rannsóknir vísinda-
manna benda til að neysla lýsis sé
ekki einungis góð fyrir hjartað og
komi í veg fyrir kransæðastíflur
og þessháttar hjartans krank-
leika, heldur sé lýsið eindæma-
gott fyrir meltingarfærin. Vís-
indamennimir telja nokkuð víst
að lýsið dragi úr myndun gallste-
ina og getur komið í veg fyrir
ristilbólgur.
Þessar upplýsingar komu fram
á þingi meltingarsjúkdómafræð-
inga í Washington um helgina.
Þar var skýrt frá niðurstöðum
tveggja rannsókna á áhrifum lýsis
á meltingarfærin.
í annarri rannsókninni sem
Richard nokkur Fedorak doktor
við Albertaháskólann í Edmond
hefur gert ásamt aðstoðarfólki
sínu kemur fram að fæði sem ríkt
er af fiskilýsi dregur mjög úr
ristilbólgum og læknar þær
jafnvel. Reyndar á það við um
tilraunarottur í Edmond, sem
Fedorak hefur gert rannsóknir
sínar á, en nú er verið að hefja
sambærilegar rannsóknir á
mönnum.
í hinni rannsókninni sem gerð
var við John Hopkins sjúkrahús-
inu í Baltimore voru það valdir
hundar sem tóku lýsi undir stóm
Dr. Tómasar Magnússonar.
Rannsóknirnar benda til þess að
lýsið komi í veg fyrir gallsteina-
myndun þá er verður vegna of
mikils kólesterólsmagns, en slíkir
steinar eru algengastir í gallblöðr-
um Bandaríkjamanna.
riii tifj uiy) ii.icj (iJt
Hermenn umkringja varnarmálaráðuneytiö í Addis Ababa:
Bylting í Eþíópu?
Hermenn úr her Eþíópíu um-
kringdi varnarmálaráðherra landsins
í Addis Ababa í gær og virðist allt
benda til þess að um byltingu sé að
ræða, en Mengistu Haile Mariam
forseti Eþíópíu er í opinberri heim-
sókn í Austur-Þýskalandi.
Skriðdrekar og brynvarðar bif-
reiðar umkringdu varnarmálaráðu-
neytið og herþyrlur og orrustuþotur
flugu yfir miðborg Addis Ababa. Þá
eru miklir herliðsflutningar á vegin-
um að alþjóðaflugvellinum við borg-
ina. Frá þessu hafa vestrænir starfs-
menn hjálparstofnana skýrt í símtöl-
um til Vesturlanda.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna skýrði frá því, að samkvæmt
fréttum frá bandaríska sendiráðinu í
Addis Ababa hafi einhverjir bardag-
ar brotist út, en ekki er vitað hversu
víðtækir þeir eru. Hins vegar taldi
j talsmaður ráðuneytisins að Banda-
ríkjamenn og aðrir Vesturlandabúar
séu ekki í hættu og tóku hjálpar-
starfsmenn í sama streng.
- Greinilegt er að aðgerðir þessar
eru mjög vel skipulagðar og vel
tímasettar. Það bendir allt til þess að
um valdarán sé að ræða, en aðrir
möguleikar eru í myndinni, sagði
kanadískur sendiráðsmaður í sím-
tali.
Eþíópíumenn hafa átt í miklum
efnahagslegum erfíðleikum og hefur
borgarastyrjöldin í landinu sem ríkt
hefur milli aðskilnaðarsinna í Erítr-
eu og skæruliða í Tígerhéraði annars
vegar og stjómarhersins hins vegar,
ekki bætt ástandið. Eþíópíuher hef-
ur farið mjög halloka í borgarastyrj-
öldinni að undanfömu og bauðst
Mengistu til þess á mánudag að
hefja friðarviðræður við skæmliða.
Það gæti hafa farið illa í einhverja
hershöfðingjaiuw- j.,i-.,..