Tíminn - 17.05.1989, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 17. maí 1989
Tíminn 15
llllllllllllllllllllllllllll ÁRNAÐHEILLA lllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllll
Áttræður:
Jóhann Þorvaldsson
Veturinn 1931-32 hafði ég fyrst
spumir af Jóhanni Þorvaldssyni.
Bróðir minn var við nám í Reykjavík
þann vetur og skrifaði heim um
félagslíf sem hann var í snertingu við
í höfuðstaðnum. Þann vetur var
stofnað Samband bindindisfélaga í
skólum. Það hafði vitanlega nokk-
um undirbúning og aðdraganda. Þar
kom Jóhann Þorvaldsson við sögu.
Hann var þá mjög fyrir þeim sem
mynduðu bindindisfélag Kennara-
skólans.
Fáum ámm sfðar bar svo við að
nokkrir templarar áttu leið hjá garði
heima á Kirkjubóli. Þeir vom að
koma af umdæmisþingi í Dýrafirði.
Svo vildi til að ég varð þeim sam-
ferða norður yfir Breiðadalsheiði.
Þá sá ég Jóhann Þorvaldsson fyrst.
Hann var þá kennari í Súgandafirði
og fulltrúi stúkunnar þar.
Nú hafa atvikin hagað því svo að
síðasta áratug höfum við Jóhann
verið samstarfsmenn við blaðið
Regin, málgagn templara. Það sam-
starf hefur verið nokkuð umhendis
þar sem við emm hvor á sínu
landshorni. Þó held ég að segja megi
að hvomgur hafi kvartað.
Þessi upprifjun sýnir að ég hef þau
kynni ein af Jóhanni Þorvaldssyni
jafnt í spum og raun að þar er
hugsjónamaður sem notar tóm-
stundir sínar til einlægrar þjónustu
við farsæla lífsstefnu. Áttræðum er
honum það ærin gleði að geta þar
gengið að starfi.
Jóhann Þorvaldsson er fæddur að
Tungufelli í Svarfaðardal 16. maí
1909, sonur búandi hjóna þar, Þor-
valdar Baldvinssonar og Sigrfðar
Sigurðardóttur. Þar ólst hann upp
og þar hefur hann eflaust mótast af
anda ungmennafélaganna strax í
bemsku. Þeim sem eitthvað þekkja
til koma f hugann ýmsir mætir Svarf-
dælingar í því sambandi, og því fleiri
sem þeir vita meira. Þar fengu ungir
menn ósvikið veganesti.
Þessi fáu orð em sett á blað til þess
að samfagna þeim sem notið hafa
samfylgdar og liðsinnis Jóhanns Þor-
valdssonar og þakka persónulega
fyrir góð kynni. Slíka menn ber að
muna.
Halldór Kristjánsson.
IHHIIIIIIIIIIIIIll MINNING HHHIIIIIIIa"- ... !|;llllllllllllllll|i^ .. .. -. ..
Magnús Sveinsson
kennari
Fæddur 6. september 1906
Dáinn 5. maí 1989
Magnús Sveinsson var fæddur 6.
september 1906 á Hvítsstöðum í
Mýrasýslu. Foreldrar hans vom
Sveinn Helgason bóndi og seinni
kona hans, Elísabet Guðrún Jóns-
dóttir. Svstkinin á Hvítsstöðum urðu
mörg. Árið 1913 var Sveinn búinn
að missa heilsuna og varð þá að
sundra fjölskyldunni. Sveinn lést
svo ári síðar. Magnús var tekinn í
fóstur að Valshamri. Þar ólst hann
upp og dvaldist til fullorðinsára hjá
hjónunum Soffíu Hallgrfmsdóttur
og Níelsi Guðnasyni. Magnús leit
alltaf á þessi hjón og böm þeirra sem
sína fjölskyldu og mun hann hafa
verið mjög lánsamur að lenda hjá
svo góðu fólki.
Snemma hafði Magnús hug á að
afla sér menntunar. Sú leið var þó
ekki greið snauðum unglingi. Samt
tókst honum að dvelja tvo vetur,
1928-1930, á Alþýðuskólanum að
Hvítárbakka og á Táma-lýðhá-
skólanum í Svíþjóð dvaldi hann
veturinn 1931-1932. Sfðan lá leið
hans í Kennaraskólann í Reykjavík.
Þaðan lauk hann kennaraprófi vorið
1935. Framhaldsmenntunar aflaði
hann sér einnig síðar. Lífsstarf
Magnúsar varð kennsla bama og
unglinga víðsvegar um land, síðast
við Réttarholtsskóla í Reykjavík.
Tólfta september 1948 giftist hann
móðursystur minni, Guðnýju Mar-
gréti Bjömsdóttur frá Núpsdals-
tungu í Miðfirði. Þau stofnuðu heim-
ili sitt á ísafirði, þar sem Magnús
gerðist kennari við Gagnfræðaskól-
ann. Þau sumur, sem Magnús og
Guðný Margrét áttu saman, komu
þau alltaf í heimsókn hingað í Mið-
fjörð til ættingja Guðnýjar. Batt
Magnús þá vináttu við okkur,
tengdafólk sitt, sem hélst órofa til
æviloka hans.
Þann 5. júní 1953 andaðist Guðný
Margrét, fáum dögum eftir að þau
hjón höfðu eignast dóttur. Henni
var gefið nafn móður sinnar, Guðný
Margrét og var hún föður sínum til
mikillar huggunar í þungum harmi.
Næstu árin urðu Magnúsi nokkuð
örðug. Samt tókst honum að halda
heimili fyrir þau feðgin. Á sumrum
dvaldi hann á heimili föðursystur
sinnar, Guðnýjar Níelsdóttur, sem
reyndist þeim feðginum frábærlega
vel. Eftir að Magnús missti Guðnýju
konu sína, hélt hann þeirri venju að
koma í heimsókn hingað í sveitina
og sá þannig um að dóttir hans
kynntist frændfólki sínu.
Tólfta júlí 1958 giftist Magnús
Guðnýju Sveinsdóttur frá Eyvindará
í Eiðaþinghá. Sá ráðahagur varð
Magnúsi til mikillar gæfu og ekki
síður dóttur hans, sem Guðný
Sveinsdóttir hefur gengið í móður
stað með miklum ágætum.
Guðný Margrét Magnúsdóttir (f.
1. júní 1953) stundaði nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands og
síðar í listaskóla í Finnlandi. Hún er
myndlistarkona og húsmóðir í
Reykjavík. Hún giftist 16. júní 1973
Helga Guðbergssyni lækni og eiga
þau þrjú börn.
Á efri árum fékkst Magnúst tals-
vert við ritstörf. Meðal annars skráði
hann sögu og nemendatal Hvítár-
bakkaskóla. Slíkar bækur hafa mikið
heimildagildi og því meira er frá
líður og færri verða til frásagnar.
Ég hygg að sterkustu eðlisþættir
Magnúsar hafi alltaf verið fróðleiks-
þrá, sjálfsbjargarviðleitni og trygg-
lyndi, sem aldrei brást. Hann varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að geta
dvalið við góða heilsu á ágætu heim-
ili sínu til hinsta dags, en hann
andaðist aðfaranótt 5. maí s.l.
Að leiðarlokum skulu Magnúsi
þökkuð löng og góð kynni. Fjöl-
skyldu hans og vinum sendum við
hjónin samúðarkveðjur.
Ásdís Magnúsdóttir.
Vinum fækkar eftir því sem líður
á lífsgönguna og söknuðurinn sárari
og tómleikinn meiri sem vináttan og
tryggðin hefur bundist traustari
böndum.
Jafnvel þótt öll ytri rök hnigi að
því að dauðinn hljóti að vera í næsta
skrefi, þegar löng ævi er að baki,
verður jafn erfitt að sætta sig við
staðreyndina að ekki er lengur hægt
að njóta samskipta vináttu og gleði
með þeim vinum, sem gæfa lífsins
gaf okkur á göngunni miklu.
Einn þessara vina okkar er Magn-
ús Sveinsson, kennari og fræðimað-
ur, sem lést 5. maí og okkur langar
til að kveðja með örfáum orðum.
Fyrir rúmu 30 árum lágu leiðir
okkar Magnúsar saman er við flutt-
um í sambýlishúsið í Álfheimum 64
hér f borg. Þar hófust samskipti og
vinátta milli fjölskyldna okkar, sem
aldrei sfðan hefur borið skugga á.
Þar lærðist okkur að meta mannkosti
hans, samviskusemi, heiðarleik og
góðlátlega kímni ásamt sérstakri
nákvæmni sem okkur fannst stund-
um nálgast sérvisku, en var þó aldrei
þreytandi og gaf persónuleika hans
skemmtilegt svipmót. Ljúflyndi hans
og glaðvært viðmót veitti öllum er
með honum voru og störfuðu hlýju
og friðsæla gleði sem vermir minning-
arnar um góðan vin nú að leiðarlok-
um.
Börnin okkar og einkadóttirin,
Guðný Margrét, lifðu bernskuárin
saman bæði í starfi og leik og voru
sem systkinahópur, og þar fundum
við best hvað þessi augasteinn hans
naut mikillar ástar og föðurlegrar
umhyggju í öllu því er verða mátti
henni til þroska og blessunar í lffinu
og var þar ekkert til sparað.
Ekki má þá gleyma þætti hins
uppalandans, seinni konu hans
Guðnýjar Sveinsdóttur, er tók að
sér móðurhlutverkið og sinnti því af
svo mikilli ástúð og næmleika að
aðeins er á færi þeirrar konu, er svo
á gott hjarta að þar er allt veitt án
kröfu. Hún hefur verið honum stoð
og stytta og skóp honum og litlu
stúlkunni hans heimili hlýju og
friðar, sem veitti skjól og öryggi í
amstri daganna. Hennar hlutur er
því stór og hann hefur Magnús
metið og þakkað að verðleikum. Og
virðing okkar og aðdáun hefur vaxið
fyrir þessari hógværu og hjartahlýju
konu, sem nú sér að baki eiginmanni
og tryggum vini, en hún taldi aldrei
eftir sér að gjöra það besta úr öllum
hlutum er að gagni máttu koma og í
hennar valdi stóðu.
Minningin lifir um góðan dreng og
við sendum á kveðjustundinni sam-
úð okkar til ástvina hans, eiginkonu
og dóttur, maka hennar og afabarna.
Guð blessi þeim minningar sam-
verustundanna og gefi þeim styrk í
sorg þeirra og söknuði.
Guðrún og Ólafur Örn.
Afmælis- og
minningargreinar
Þeitn, sem óska birtingar á afmælis- og eða minningar-
greinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast
a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að
vera vélritaðar.
Auglýsing frá
menntamálaráðuneytinu
Hátíðardagskrá
í Þjóðleikhúsinu í tilefni af aldarafmæli Gunnars
Gunnarssonar, skálds
fimmtudaginn 18. maí n.k. kl. 17.30.
Ávörp flytja Svavar Gestsson, menntamálaráð-
herra og Steinunn Sigurðardóttir, varaformaður
Rithöfundasambands íslands, Sveinn Skorri
Höskuldsson, prófessor flytur erindi um skáldskap
Gunnars Gunnarssonar.
Leiklestur úr Svartfugli: Þorsteinn Gunnarsson,
Jakob Þór Einarsson, Sigurður Karlsson og Gísli
Rúnar Jónsson flytja.
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir.
Arnar Jónsson les kafla úr Fjallkirkjunni og flytur
Ijóð eftir Guðmund Böðvarsson.
Gísli Halldórsson flytur Ijóð eftir Hannes Péturs-
son.
Gunnar Kvaran leikur einleik á selló.
Kynnir verður Kristbjörg Kjeld.
Menntamálaráðuneytið 11. maí 1989.
Oagskráln er öllum opin. Aðgangur ókeypls.
Tæknimenn
Ratsjárstofnun óskar eftir að ráða starfsmenn
vegna reksturs ratsjárstöðva hérlendis.
Umsækjendur verða að hafa lokið námi í rafeinda-
virkjun eða hafa sambærilega menntun.
Starfsmenn þurfa að sækja námskeið hérlendis á
árinu og erlendis á árinu 1990. Laun eru greidd á
námstímanum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Ratsjárstofn-
un.
Umsókn, ásamt prófskírteini eða staðfestu afriti af
því, sakavottorði og heilbrigðisvottorði, berist Rat-
sjárstofnun, Laugavegi 116, fyrir 26. maí n.k.
Ratsjárstofnun
Laugavegi116
Pósthólf 5374
125 Reykjavík
Heybindivél óskast
Óska eftir að kaupa notaða heybindivél.
Upplýsingar í síma 93-51388.
+
Sigríður Brynjólfsdóttir
frá Starmýri, Álftafirði
síðast til heimilis að Hjúkrunarheimilinu Skjóli
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. maí kl. 10.30.
SigríðurEyþórsdóttir Jón Arnalds
og frændsystkini hinnar látnu.
+
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaöir
Magnús Sveinsson
fyrrverandi kennari frá Hvítsstöðum,
Laufásvegi 27
sem lést í Landspítalanum 5. maí, veröur jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni miðvikudaginn 17. maí kl. 15:00.
Guðný Sveinsdóttir
Guðný Magnúsdóttir Helgi Guðbergsson