Tíminn - 17.05.1989, Page 20
V
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
Atjan man. binding
SAMVINNUBANKiNN
; T'*
q \ B » L A S 7*.
ÞRttSTUR
685060
VANIR MENN
Tímiiiii
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ1989
Það er vart hægt að merkja á
þessari mynd að kominn sé miður
maí. Myndin var tekin á Ólafsfirði á
hvítasunnudag og sýnir snjóalögin
við eina götuna í bænum. Skaflar
eru víða þriggja metra háir og verða
vart horfnir fyrr en langt verður liðið
á samar, ef sú árstíð greinist á annað
borð norðanlands í ár.
Ástandið á Vestfjörðum er enn
verra og mikinn snjó setti niður þar
um helgina, svo að 20 sentimetra
djúpur jafnfallinn snjór var á ísafirði
í morgun. Vegagerðarmenn unnu að
því í gær að ryðja fjallvegi á Vest-
fjörðum.
Um helgina gerði vitlaust veður á
suður- og vesturhluta landsins og á
ísafirði var talið að vindurinn hefði
komist upp í níu eða tíu vindstig á
mánudeginum. Snjóflóð féll úr Ös-
hlíðinni og vegurinn um hana lokað-
ist um sjö leytið. „Þetta er einsdæmi
að veðrið sé svona hér á þessum
árstíma. Við héldum að þetta væri
að verða búið en því miður reyndist
það ekki vera. Það skemmdist ekk-
ert í látunum, svo við vitum til, en
bílar voru fastir hér og hvar. í gær
var unnið að því að moka bæinn og
heiðarnar í kring og það hefur
gengið ágætlega. Við sjáum ekki
fram á að losna við þennan snjó í
bráð nema þá að það fari að rigna,
sem væri óskandi," sagði lögreglu-
þjónn á staðnum.
Veður var heldur kyrrara fyrir
norðan en þar er allt á kafi í snjó.
Öxnadalsheiðin var rudd á mánu-
daginn og á Akureyri eru víða stórir
snjóskaflar í görðum. Þar var mjög
þungbúið í gær og gekk á með éljum
eða slyddu.
Bílvelta í Þrengslunum:
Tveir á
spítala
Tveir menn voru fluttir á slysa-
deild Borgarspítalans eftir að bifreið
fór út af Þrengslaveginum og valt að
morgni laugardagsins. Annar mann-
anna fékk að fara fljótlega heim að
skoðun lokinni, en hinn slasaðist
eitthvað meir og þurfti að dveljast
áfram á sjúkrahúsinu. -ABÓ
Ekki hægt
að amast
við vísa
Siðanefnd um auglýsingar komst
að niðurstöðu s.l. fimmtudag varð-
andi kæru Visa íslands á hendur
Eurocard og GBB Auglýsingaþjón-
ustunni.
Siðanefndin telur að ekki sé hægt
að amast við notkun sagnarinnar að
vísa þar sem sögnin er notuð fyllilega
í samræmi við íslenska málvenju.
Vegna upplýsinga um fjölda við-
tökustaða greiðslukorta dregur
nefndin þá ályktun að gætilega skuli
farið með slíkar tölur og án stóryrtra
fullyrðinga.
Siðanefndin telur útvarpsauglýs-
ingu þar sem sagt er beinlínis að
hægt sé að þekkja heiðvirt fólk á því,
að það noti Eurocard brot á 2.gr.,
4.gr. og 5.gr. siðareglna. Mælist
nefndin til þess að auglýsingin verði
ekki birt oftar óbreytt. -gs
Söluskáli Esso á Hvolsvelli:
Vífilsstaðaspítali og Kópavogshæli:
Matareitrun eftir
hvítasunnumáltíð
Helgarvelt-
unni stolið
Brotist var inn í söluskála Esso á
Hvolsvelli aðfaranótt mánudags og
þaðan stolið töluverðri upphæð í
peningum.
Þjófurinn braut sér leið inn um
hurð sem er bakatil á húsinu og
síðan var peningaskápur sem hafði
að geyma afrakstur helgarinnar
sprengdur upp og úr honum teknir
peningarnir. Ekki er að fullu ljóst
hversu mikið þjófurinn hafði á brott
með sér, en ljóst er að um töluverða
upphæð er að ræða, sem gæti jafnvel
skipt hundruðum þúsunda.
Ekki eru nema nokkrar vikur
síðan brotist var inn í bensínstöð í
Hveragerði og stolið þaðan verulegri
peningaupphæð. Hvort innbrotin
tvö tengjast er óvíst, en óneitanlega
tengja menn þessa tvo verknaði.
Málið er til rannsóknar hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins og í gær
hafði rannsókn lítið miðað.
-ABÓ
Fjöldi sjúklinga á Vífílsstaðaspít-
ala og vistmanna á Kópavogshæli
ásamt hluta af starfsfólki stofnan-
anna sýktist af matareitrun að kvöldi
hvítasunnudags. Fullvíst er talið að
orsakanna sé að leita í hádegismat
sem var matreiddur í eldhúsi Vífils-
staðaspítala fyrir báðar stofnanirnar.
Alls voru matreiddir 350 skammt-
ar af hangikjöti og veiktust flestir
þeirra sem borðuðu en ekki er vitað
nákvæmlega hve margir þeir voru.
Um var að ræða væga matareitrun
sem einkenndist af niðurgangi og
magaverkjum sem stóðu í um sól-
arhring.
Að sögn Davíðs Gíslasonar setts
yfirlæknis á Vífilsstaðaspítala
skapaðist ekki neyðarástand vegna
veikinda starfsfólks. Þeir sem voru á
vakt á hádegi veiktust ekki fyrr en
seint á sunnudagskvöldi en þá voru
nýir starfsmenn mættir á vakt.
í gær fengust engar nákvæmar
upplýsingar um orsakir eitrunarinn-
ar þar sem málið er í rannsókn. í
frétt DV af þessu máli í gær var
sterklega látið að því liggja að orsak-
anna væri að leita í hangikjötinu og
jafnframt tekið fram að það væri frá
Sláturfélagi Suðurlands. Að sögn
starfsmanns Heilbrigðiseftirlits
Hafnarfjarðarsvæðis er talið nánast
útilokað að orsakanna sé að leita í
kjötinu sjálfu, þar sem í því er mikil
vörn bæði vegna salts og reykingar
sem m.a. leiða til þurrkunar á kjöt-
inu. Líklegra verður að telja að
orsakanna sé að leita í meðhöndlun
á því meðlæti sem var borið fram
með kjötinu. Sýni af matnum hafa
verið send til rannsóknar en vegna
verkfalls BHMR getur eitthvað
dregist að þær fari fram þar sem leita
verður til undanþágunefndar varð-
andi rannsóknir af þessu tagi. Að-
spurður sagðist starfsmaður heil-
brigðiseftirlitsins ekki vita til þess að
mál af þessu tagi hefði áður komið
upp vegna matar sem matreiddur
var í eldhúsi Vífilsstaðaspítala.
Hjá rannsóknarstofu Sláturfélags-
ins fengust þær upplýsingar að marg-
umrætt hangikjöt verði tekið til
rannsóknar og ættu niðurstöður að
liggja fyrir í lok vikunnar. Að sögn
Níelsar Hjaltasonar yfirmanns rann-
sóknarstofunnar verður að telja
ólíklegt að eitrunin eigi upptök sín í
kjötinu sjálfu þar sem svo mikið er
framleitt af þessari vöru og ekki hafa
borist neinar kvartanir eða grun-
semdir um veikindi vegna neyslu á
hangikjöti sem framleitt var á sama
tíma og hangikjötið sem var matreitt
í eldhúsi Vífilsstaðaspítala.
SSH