Tíminn - 10.08.1989, Blaðsíða 3

Tíminn - 10.08.1989, Blaðsíða 3
Kvikmyndaklúbbur íslands: Annað starfstíma- bil hefst Kvikmyndaklúbburinn mun hefja Ingveldur hús- freyja að Brúna- stöðum látin Ingveldur Ástgeirsdóttir fyrr- um húsfreyja að Brúnastöðum í Hraungerðishreppi í Árnessýslu er látin á sjötugasta aldursári. Maður iiennar Ágúst Þorvalds- son bóndi og alþingismaður lést fyrir tæpum þremur árum. Síð- ustu tvö árin hefur Ingveldur verið búsett á Selfossi. Ingveldur var fædd 15. mars 1920 að Syðri- Hömrum í Ásahreppi. Þau hjón eignuðust 16 böm sem öll eru á lífi. Útför Ingveldar fer fram frá Hraungerðiskirkju á morgun föstudaginn 11. ágúst klukkan 14.00. 17.ágúst annað starfstímabil sitt 17. ágúst nk. Sem fyrr verða sýningar í Regnbog- anum og verða einstakar myndir auglýstar jafnharðan, en einnig má fá prentaða dagskrá á sýningastað. Á kynningarfundi, er forráða- menn klúbbsins stóðu fyrir í gær, kom fram að undirtektir við starf- semi hans var með ágætum á um- liðnu misseri, sýningar fjölsóttar, og um 550 manns gerðust félagar. Klúbburinn er sameiginlegt framtak Kvikmyndasafns íslands, Félags kvikmyndagerðarmanna, Kvik- myndasamtakanna Gríms, Listafé- lags M.R. og Félags áhugamanna um kvikmyndir við H.l. Að vanda hefur Kvikmynda- klúbburinn leitast við að fá til sýn- inga fágætar myndir er hafi listrænt gildi og kvikmyndahúsagestir hafa ella ekki færi á að sjá. Á dagskrá klúbbsins fram til ársloka var lögð aðal-áhersla á þýska expressionism- ann í kvikmyndagerð, breskar myndir frá seinni árum og japansk- ættuð kvikmyndaverk áranna 1950- 60. í ágústmánuði verða teknar til sýninga myndir eftir breska leik- stjórann Derek Jarmann og Banda- ríkjamanninn Godfrey Reggio. Septembermánuður verður helgað- ur 3 myndum Austurríkismannsins Fritz Lang, en ein mynda hans verður einnig sýnd í byrjun október. Á þeirri tíð fallandi laufa gefst gestum einnig kostur á að sjá tvær af myndum þýska leikstjórans F.W. Mumau. Nóvembermánuður verður síðan helgaður þremur verkum japönsku leikstjóranna Mizoguchi og Ozu, auk eins af snilldarverkum Frakkans Jacques Toumeur. JBG. Fimmtudagur 10. ágúst 1989 Tíminn 3 Kona fannst í Hvítár- gljúfri Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt eftir hádegi í gær til að sækja vestur-þýska konu, sem lá slösuð í Hvítárgljúfri. Konan mun hafa verið að klifra í gljúfr- inu með þeim afleiðingum að henni skrikaði fótur og féll. Hún var ein á ferð en ferða- langur kom auga á hana þar sem hún lá niðri í gljúfrinu. Enginn vissi hvað hún var búinn að liggja þar lengi, en samkvæmt óstað- festum heimildum Tímans átti slæm kunnátta viðstaddra í þýsku sinn þátt í því; enginn skildi konuna þegar hún kom upp úr gljúfrinu. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á staðinn um tvöleytið. Læknir seig niður í gljúfrið og var hún flutt til Reykjavíkur. Hún mun hafa ökklabrotnað og marist og er það talin hin mesta mildi að ekki fór verr. GS Skipulagi á skrifstofu Alþingis breytt. 10 hætta fyrir aldurs sakir: Skrifstofa Alþingis skiptist í tvö svið Nýtt skipulag skrifstofu Alþingis hefur nú litið dagsins ljós, en fyrir skömmu lauk endurskoðun á skipu- lagsmálum og starfsháttum skrifstof- unnar. Henni er nú skipt í tvö meginsvið, annars vegar þingsvið, og hins vegar fjármála- og rekstrar- svið. Tekin verða upp nokkur ný starfsheiti, en það leiðir þó ekki til fjölgunar starfsmanna, vegna þess að í næsta mánuði láta 10 starfsmenn Alþingis af störfum fyrir aldurs sakir. Að sögn forsvarsmanna skrifstof- unnar er stefnt að því með þessari skiptingu sé greint sem best á milli almenns rekstrar hennar og þess þáttar í rekstrinum sem lýtur að verkefnum löggjafans. í stjómunar- legu tilliti heyra sviðin tvö undir skrifstofustjóra Alþingis sem fer með yfirstjóm alls daglegs rekstrar í umboði forseta Alþingis. f kjölfar þess að starfsmenn hætta fyrir aldurs sakir verða starfsmanna- málin endurskipulögð á gmndvelli hins nýja skipulags og er þegar búið að ganga frá ráðningum í nokkrar af hinum nýju stöðum: Forstöðumaður fjármála- og rekstrarsviðs hefur ver- ið ráðinn Karl M. Kristjánsson við- skiptafræðingur. Forstöðumaður þingsviðs hefur verið ráðinn Helgi Bernóduson íslenskufræðingur, en hann gegndi áður starfi deildar- stjóra. Nefndarritari hefur verið ráð- inn dr. Þorsteinn Magnússon stjóm- málafræðingur. Deildarstjóri útgáfu hefur verið ráðinn Steingrímur Jóns- son B.A. í stað Kristins Arasonar. Deildarstjóri tölvumála hefur verið ráðinn Haukur Amþórsson tölvu- fræðingur í stað Þórarins Friðjóns- sonar. Deildarstjóri fasteigna- og húsbúnaðardeildar hefur verið ráð- inn Gunnar Ingibergsson innanhús- arkitekt og fulltrúi í nefnda- og þingmáladeild hefur verið ráðin Sól- veig Jónsdóttir B.A. - ÁG Grillkjötið um þriðjungi dýrara í Hagkaupum heldur en Júllabúð: Fjallalambið á hæsta verði í stórmðrkuðum Sú óvænta niðurstaða kom út úr nýlegri verðkönnun á kjöti, að það er orðið hvað dýrast í stórmörkuðum m.a. Hagkaupum, en aftur á móti á hvað lægsta verði í litlum búðum og hverfisverslunum, sem fjöldi höfuðborgarbúa hefur aldrei lagt leið sína í. Margir borgarbúar gætu því verið að leita langt yfir skammt ef þeir aka Iangar leiðir í stórmarkaði til að kaupa steikina. Þær alþekktu verslanir sem taldar Samanlagt kílóverð þeirra 21 kjöttegundar sem fengust í stærstu verslun landsins, Hagkaupum, var tæplega 17.000 kr., en aðeins rúm- lega 12.500 kr. í Júllabúð í Álfheim- um. I Hagkaupum og Nóatúni kost- uðu 11 kg af lambakjöti hátt í 8 þús.kr. en hægt var að fá sama skammt fyrir aðeins rúmlega 6 þús. í Vörðufelli í Kópavogi. Tölur þessar eru úr könnun sem Verðlagsstofnun gerði á 23 tegund- um af lamba-, nauta- og svínakjöti í 60 verslunum á höfuðborgarsvæð- inu. í mörgum tilvikum var miðað við kjöt í sneiðum sem heppilegt þykir að grilla. Athygli vekur að margar verslanir selja kjötið á sama verði þótt það sé kryddlegið (marin- erað), en aðrar selja kílóið af krydd- uðu kjöti allt upp í 200 kr. dýrara en ókryddað. Aðeins fjórar búðir seldu allar þær 23 tegundir sem könnunin náði til. Samanlagt verð þeirra var sem hér segir: Júllabúð Álfheimum 13.170 kr. Kjötstöðin Glæsibæ 14.160 kr. Brekkuval Kóp. 14.840 kr. KRON Eddufelli 16.040 kr. eru hér að neðan seldu allflestar tegundimar og sýnir taflan hvað samanlagt verð þeirra tegunda sem til var í hverri þeirra var miklu hærra komu. Krónutölumar sýna saman- lagt verð 12 kílóa (og tegunda). En 12 kíló geta t.d. svarað nokkumveg- inn til tveggja poka af „lambakjöti á lágmarksverði“, sem mundu kosta um 4.400 til 4.600 miðað við tilboðs- verð að undanfömu. Þar sem kjötið er dýrast (Kjötmiðstöðinni Gb.) kosta 12 kílóin því álíka og 24 kg á „lágmarksverði“. (Svigatölur sýna meðalverð á kíló.) Vörðufell Brekkuval Kjötstöðin .340 kr. .490 — .700 — 6.710 Kjötmiðstöðin Garðabæ 38% Kjötkaup 6.860 — Hagkaup Skeifunni 35% Júllabúð 6.960 — Fjarðarkaup 7.040 —? Mikligarður 28% Starmýri 7.120 —? SS Háaleitisbraut 25% Austurstr.17 7.130 — Starmýri 24% Laugarás 7.370 — Fjarðarkaup 14% SS Háaleitisb. 7.400 —? Gmndarkjör 13% Kron Edduf. 7.440 — Svo dæmi sé tekið kostaði eitt kíló af marineruðum lambalærissneiðum (1.198 kr.) í Kjötmiðstöðinni. f Júllabúð var hægt að fá kíló af svínahnakka til viðbótar fyrir sömu upphæð í Júllabúð (824 + 375 = 1.199 kr.). Þegar litið er á „fjallalambið“ sérstaklega er það Vörðufell í Kópa- vogi sem býður 12 tegundir þess á lægsta meðalverði. Flestar verslan- imar sem hér em taldar áttu allar tegundimar en smávegis varð að geta í eyðumar með eina tegund hjá öðmm - þó ekki svo að nema óvemlega geti munað á heildarút- Kaupstaður Mikligarður Kjötmiðst. Ll. Kjb.Hraunbæjar Nóatún Kóp. (529) (540) (558) (559) (571) (580) (587) (594) (594) (614) (617) (620) (634) 7.630 — ? (636) 7.740 — ? (645) 7.780 — (649) 7.810 —? (651) 7.970 — ? (665) Hagkaup 8.090 —? (674) Hagabúðin 8.250 —? (679) Kjötmiðst.Gb. 9.040—? (753) Hve lambakjötið er jafnaðarlega miklu dýrara í stærstu og þekktustu verslununum heldur en í mörgum minna þekktum hverfisbúðum kem- ur hér glöggt í ljós. Merkið (?) þýðir að smávegis hefur verið getið í eyður. í Hagkaupum og Kjötmið- stöðinni var t.d. giskað á hvað ókrydduð rif (sem ekki fengust þar) mundu vera miklu ódýrari en krydduð, út frá verðmun á öðm krydduðu og ókrydduðu kjöti. Verðmunurinn er allt að 224 kr. á kg (42%) að meðaltali (frampartur, hrýggur, síður og læri), eða sem nemur 2.700 kr. á magni sem svarar til eins kjötskrokks. Miðað við að „vísitölufjölskyldan“ borðar um 135 kg af lambakjöti á ári þýðir þessi 224 kr. verðmunur á kíló samtals rúm- lega 30.000 kr. á ársneyslu meðal- fjölskyldu af þessari einu kjötteg- und. Það virðist benda til að álagning sé í sumum tilfellum mjög há (og að . spamaður í matarútgjöldum getur legið víðar en f kjötinnflutningi).HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.