Tíminn - 10.08.1989, Síða 3
Kvikmyndaklúbbur íslands:
Annað starfstíma-
bil hefst
Kvikmyndaklúbburinn mun hefja
Ingveldur hús-
freyja að Brúna-
stöðum látin
Ingveldur Ástgeirsdóttir fyrr-
um húsfreyja að Brúnastöðum í
Hraungerðishreppi í Árnessýslu
er látin á sjötugasta aldursári.
Maður iiennar Ágúst Þorvalds-
son bóndi og alþingismaður lést
fyrir tæpum þremur árum. Síð-
ustu tvö árin hefur Ingveldur
verið búsett á Selfossi. Ingveldur
var fædd 15. mars 1920 að Syðri-
Hömrum í Ásahreppi. Þau hjón
eignuðust 16 böm sem öll eru á
lífi. Útför Ingveldar fer fram frá
Hraungerðiskirkju á morgun
föstudaginn 11. ágúst klukkan
14.00.
17.ágúst
annað starfstímabil sitt 17. ágúst nk.
Sem fyrr verða sýningar í Regnbog-
anum og verða einstakar myndir
auglýstar jafnharðan, en einnig má
fá prentaða dagskrá á sýningastað.
Á kynningarfundi, er forráða-
menn klúbbsins stóðu fyrir í gær,
kom fram að undirtektir við starf-
semi hans var með ágætum á um-
liðnu misseri, sýningar fjölsóttar, og
um 550 manns gerðust félagar.
Klúbburinn er sameiginlegt framtak
Kvikmyndasafns íslands, Félags
kvikmyndagerðarmanna, Kvik-
myndasamtakanna Gríms, Listafé-
lags M.R. og Félags áhugamanna
um kvikmyndir við H.l.
Að vanda hefur Kvikmynda-
klúbburinn leitast við að fá til sýn-
inga fágætar myndir er hafi listrænt
gildi og kvikmyndahúsagestir hafa
ella ekki færi á að sjá. Á dagskrá
klúbbsins fram til ársloka var lögð
aðal-áhersla á þýska expressionism-
ann í kvikmyndagerð, breskar
myndir frá seinni árum og japansk-
ættuð kvikmyndaverk áranna 1950-
60. í ágústmánuði verða teknar til
sýninga myndir eftir breska leik-
stjórann Derek Jarmann og Banda-
ríkjamanninn Godfrey Reggio.
Septembermánuður verður helgað-
ur 3 myndum Austurríkismannsins
Fritz Lang, en ein mynda hans
verður einnig sýnd í byrjun október.
Á þeirri tíð fallandi laufa gefst
gestum einnig kostur á að sjá tvær af
myndum þýska leikstjórans F.W.
Mumau.
Nóvembermánuður verður síðan
helgaður þremur verkum japönsku
leikstjóranna Mizoguchi og Ozu,
auk eins af snilldarverkum Frakkans
Jacques Toumeur. JBG.
Fimmtudagur 10. ágúst 1989
Tíminn 3
Kona
fannst í
Hvítár-
gljúfri
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út rétt eftir hádegi í gær til
að sækja vestur-þýska konu, sem
lá slösuð í Hvítárgljúfri. Konan
mun hafa verið að klifra í gljúfr-
inu með þeim afleiðingum að
henni skrikaði fótur og féll.
Hún var ein á ferð en ferða-
langur kom auga á hana þar sem
hún lá niðri í gljúfrinu. Enginn
vissi hvað hún var búinn að liggja
þar lengi, en samkvæmt óstað-
festum heimildum Tímans átti
slæm kunnátta viðstaddra í þýsku
sinn þátt í því; enginn skildi
konuna þegar hún kom upp úr
gljúfrinu.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
kom á staðinn um tvöleytið.
Læknir seig niður í gljúfrið og var
hún flutt til Reykjavíkur. Hún
mun hafa ökklabrotnað og marist
og er það talin hin mesta mildi að
ekki fór verr. GS
Skipulagi á skrifstofu Alþingis breytt. 10 hætta fyrir aldurs sakir:
Skrifstofa Alþingis
skiptist í tvö svið
Nýtt skipulag skrifstofu Alþingis
hefur nú litið dagsins ljós, en fyrir
skömmu lauk endurskoðun á skipu-
lagsmálum og starfsháttum skrifstof-
unnar. Henni er nú skipt í tvö
meginsvið, annars vegar þingsvið,
og hins vegar fjármála- og rekstrar-
svið. Tekin verða upp nokkur ný
starfsheiti, en það leiðir þó ekki til
fjölgunar starfsmanna, vegna þess
að í næsta mánuði láta 10 starfsmenn
Alþingis af störfum fyrir aldurs
sakir.
Að sögn forsvarsmanna skrifstof-
unnar er stefnt að því með þessari
skiptingu sé greint sem best á milli
almenns rekstrar hennar og þess
þáttar í rekstrinum sem lýtur að
verkefnum löggjafans. í stjómunar-
legu tilliti heyra sviðin tvö undir
skrifstofustjóra Alþingis sem fer
með yfirstjóm alls daglegs rekstrar í
umboði forseta Alþingis.
f kjölfar þess að starfsmenn hætta
fyrir aldurs sakir verða starfsmanna-
málin endurskipulögð á gmndvelli
hins nýja skipulags og er þegar búið
að ganga frá ráðningum í nokkrar af
hinum nýju stöðum: Forstöðumaður
fjármála- og rekstrarsviðs hefur ver-
ið ráðinn Karl M. Kristjánsson við-
skiptafræðingur. Forstöðumaður
þingsviðs hefur verið ráðinn Helgi
Bernóduson íslenskufræðingur, en
hann gegndi áður starfi deildar-
stjóra. Nefndarritari hefur verið ráð-
inn dr. Þorsteinn Magnússon stjóm-
málafræðingur. Deildarstjóri útgáfu
hefur verið ráðinn Steingrímur Jóns-
son B.A. í stað Kristins Arasonar.
Deildarstjóri tölvumála hefur verið
ráðinn Haukur Amþórsson tölvu-
fræðingur í stað Þórarins Friðjóns-
sonar. Deildarstjóri fasteigna- og
húsbúnaðardeildar hefur verið ráð-
inn Gunnar Ingibergsson innanhús-
arkitekt og fulltrúi í nefnda- og
þingmáladeild hefur verið ráðin Sól-
veig Jónsdóttir B.A. - ÁG
Grillkjötið um þriðjungi dýrara í Hagkaupum heldur en Júllabúð:
Fjallalambið á hæsta
verði í stórmðrkuðum
Sú óvænta niðurstaða kom út úr nýlegri verðkönnun á
kjöti, að það er orðið hvað dýrast í stórmörkuðum m.a.
Hagkaupum, en aftur á móti á hvað lægsta verði í litlum
búðum og hverfisverslunum, sem fjöldi höfuðborgarbúa
hefur aldrei lagt leið sína í. Margir borgarbúar gætu því verið
að leita langt yfir skammt ef þeir aka Iangar leiðir í
stórmarkaði til að kaupa steikina.
Þær alþekktu verslanir sem taldar
Samanlagt kílóverð þeirra 21
kjöttegundar sem fengust í stærstu
verslun landsins, Hagkaupum, var
tæplega 17.000 kr., en aðeins rúm-
lega 12.500 kr. í Júllabúð í Álfheim-
um. I Hagkaupum og Nóatúni kost-
uðu 11 kg af lambakjöti hátt í 8
þús.kr. en hægt var að fá sama
skammt fyrir aðeins rúmlega 6 þús.
í Vörðufelli í Kópavogi.
Tölur þessar eru úr könnun sem
Verðlagsstofnun gerði á 23 tegund-
um af lamba-, nauta- og svínakjöti í
60 verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu. í mörgum tilvikum var miðað
við kjöt í sneiðum sem heppilegt
þykir að grilla. Athygli vekur að
margar verslanir selja kjötið á sama
verði þótt það sé kryddlegið (marin-
erað), en aðrar selja kílóið af krydd-
uðu kjöti allt upp í 200 kr. dýrara en
ókryddað.
Aðeins fjórar búðir seldu allar
þær 23 tegundir sem könnunin náði
til. Samanlagt verð þeirra var sem
hér segir:
Júllabúð Álfheimum 13.170 kr.
Kjötstöðin Glæsibæ 14.160 kr.
Brekkuval Kóp. 14.840 kr.
KRON Eddufelli 16.040 kr.
eru hér að neðan seldu allflestar
tegundimar og sýnir taflan hvað
samanlagt verð þeirra tegunda sem
til var í hverri þeirra var miklu hærra
komu. Krónutölumar sýna saman-
lagt verð 12 kílóa (og tegunda). En
12 kíló geta t.d. svarað nokkumveg-
inn til tveggja poka af „lambakjöti á
lágmarksverði“, sem mundu kosta
um 4.400 til 4.600 miðað við tilboðs-
verð að undanfömu. Þar sem kjötið
er dýrast (Kjötmiðstöðinni Gb.)
kosta 12 kílóin því álíka og 24 kg á
„lágmarksverði“. (Svigatölur sýna
meðalverð á kíló.)
Vörðufell
Brekkuval
Kjötstöðin
.340 kr.
.490 —
.700 —
6.710
Kjötmiðstöðin Garðabæ 38% Kjötkaup 6.860 —
Hagkaup Skeifunni 35% Júllabúð 6.960 —
Fjarðarkaup 7.040 —?
Mikligarður 28% Starmýri 7.120 —?
SS Háaleitisbraut 25% Austurstr.17 7.130 —
Starmýri 24% Laugarás 7.370 —
Fjarðarkaup 14% SS Háaleitisb. 7.400 —?
Gmndarkjör 13% Kron Edduf. 7.440 —
Svo dæmi sé tekið kostaði eitt kíló
af marineruðum lambalærissneiðum
(1.198 kr.) í Kjötmiðstöðinni. f
Júllabúð var hægt að fá kíló af
svínahnakka til viðbótar fyrir sömu
upphæð í Júllabúð (824 + 375 =
1.199 kr.).
Þegar litið er á „fjallalambið“
sérstaklega er það Vörðufell í Kópa-
vogi sem býður 12 tegundir þess á
lægsta meðalverði. Flestar verslan-
imar sem hér em taldar áttu allar
tegundimar en smávegis varð að
geta í eyðumar með eina tegund hjá
öðmm - þó ekki svo að nema
óvemlega geti munað á heildarút-
Kaupstaður
Mikligarður
Kjötmiðst. Ll.
Kjb.Hraunbæjar
Nóatún Kóp.
(529)
(540)
(558)
(559)
(571)
(580)
(587)
(594)
(594)
(614)
(617)
(620)
(634)
7.630 — ? (636)
7.740 — ? (645)
7.780 — (649)
7.810 —? (651)
7.970 — ? (665)
Hagkaup 8.090 —? (674)
Hagabúðin 8.250 —? (679)
Kjötmiðst.Gb. 9.040—? (753)
Hve lambakjötið er jafnaðarlega
miklu dýrara í stærstu og þekktustu
verslununum heldur en í mörgum
minna þekktum hverfisbúðum kem-
ur hér glöggt í ljós. Merkið (?) þýðir
að smávegis hefur verið getið í
eyður. í Hagkaupum og Kjötmið-
stöðinni var t.d. giskað á hvað
ókrydduð rif (sem ekki fengust þar)
mundu vera miklu ódýrari en
krydduð, út frá verðmun á öðm
krydduðu og ókrydduðu kjöti.
Verðmunurinn er allt að 224 kr. á
kg (42%) að meðaltali (frampartur,
hrýggur, síður og læri), eða sem
nemur 2.700 kr. á magni sem svarar
til eins kjötskrokks. Miðað við að
„vísitölufjölskyldan“ borðar um 135
kg af lambakjöti á ári þýðir þessi 224
kr. verðmunur á kíló samtals rúm-
lega 30.000 kr. á ársneyslu meðal-
fjölskyldu af þessari einu kjötteg-
und. Það virðist benda til að álagning
sé í sumum tilfellum mjög há (og að .
spamaður í matarútgjöldum getur
legið víðar en f kjötinnflutningi).HEI