Tíminn - 10.08.1989, Page 4

Tíminn - 10.08.1989, Page 4
4 Tíminn Fimmtudagur 10. ágúst 1989 ARMULA 11 SIMI 681500 Rafgirðingar knúnar solarorku ! Nýju RED SN/^P’R rafgirðingastöðvarnar nota solarorkuna til að gefa straum á allt að 40 km langa rafgirðingu. Innbyggð rafhlaða. Sérlega auðveld uppsetning. FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU Lausar stöður Við Flensborgarskóla f Hafnarfirði er laus til umsóknar 1/2 staða kennara í frönsku. Við Fósturskóla íslands er laus til umsóknar 1/2 staða kennara í fslensku og barnabókmenntum. Frekari upplýs- ingar veittar á skrifstofu skólans milli kl. 10.00-15.00 alla virka daga. Við Menntaskólann á Egilsstöðum er laus til umsóknar staða kennara í tölvufræði, stærðfræði og viðskiptagrein- um. Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, framlengdur er um- sóknarfrestur um stöðu kennara í íslensku. Við Menntaskólann f Hamrahlíð er laus til umsóknar staða stundakennara í vélritun. Frekari upplýsingar veittar á skrifstofu skólans. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 21. ágúst næstkomandi. Við Landsbókasafn íslands er laus til umsóknar staða deildarstjóra í deild erlendra rita. Ráðið verður f stöðuna frá 1. október næstkomandi. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið háskólaprófi f bókasafnsfræði. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 4. sept- ember næstkomandi. Við sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri eru eftirtald- ar stöður lausar til umsóknar: 1) Staða forstöðumanns sjávarútvegsdeildar. 2) Staða lektors í stærðfræði, aðal kennslugreinar stæi fræði og tölfræði. 3) Staða lektors í tölvufræði. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf um- sækjanda, ritsmíða og rannsóknir, námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 10. september 1989. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. PÓSTFAX TÍMANS Ný ópólitísk stjórnmálasamtök að fæðast? Gunnar Harðarson: Samtökin ísland verða vettvangur meðaljónsins „Viðbrögðin hafa verið góð og miðað við að auglýsingin birtist í dagblaði fyrir verslunarmannahelgina þá mega þau teljast afbragðs- góð,“ sagði Gunnar Harðarson í Hafnarfirði, en hann birti svohljóðandi smáauglýsingu í dagblaði rétt fyrir helgina: „Hefur þú ekki fengið nóg af pólitískri óráðsíu, sóun, sukki og skattpíningu?“ Finni menn jákvætt svar við þessu í hugskoti sínu geta þeir hringt í Samtökin ísland í vinnusíma Gunnars. „ Við höfum komið saman nokkrar sálir sem erum óánægð með þjóðfél- agskerfið og þá hrikalegu skattpín- ingu sem hér viðgengst. Það er verið að drepa allt og alla með sköttum og ofstjórn og þetta er tilefni þess að við hittumst og að ég birti auglýsing- una,“ sagði Gunnar. Hann sagði að ekki væri komið fast form enn á Samtökin ísland en í undirbúningi væri fundur þar sem stefna yrði mörkuð og félag formlega stofnað með þeim kjama sem þegar hefði hist og vildi láta að sér kveða um breytingar á þjóðfélagskerfinu. Vonir stæðu til að sá fundur yrði haldinn um næstu helgi. „Auðvitað vaknar sú spurning; hvernig á að gera hlutina en beinast tel ég liggja við að verulegur fjár- magnsflutningur verði frá opinbera geiranum til heimilanna sérstaklega en auk þess til bæði íslensks iðnaðar og annarra atvinnufyrirtækja. Mér sýnist að flestir séu sammála um þetta þótt deilt sé um aðferðir," sagði Gunnar. Hann vildi ekki tilgreina neina skatta sem hann og þeir sem að auglýsingunni standa, hefðu sérstak- an ímugust á og vildu koma fyrir kattarnef. Þó sagði hann ljóst vera að söluskatturinn væri orðinn brjál- æðislegur en auk hans mætti tiltaka fasteignagjöld sem kæmu illa við marga, einkum eldra fólk. „Mér finnst í slíkum tilfellum sé verið að tvískatta fólk; leggja skatt á tekjur sem þegar væri búið að greiða skatta af,“ sagði hann. í augnablikinu er ég forsvarsmað- ur Samtakanna ísland. Ég birti aug- lýsinguna og gegnum hana hef ég náð saman smá kjama sem mun móta stefnuna á næstu dögum. Mik- ill fjöldi fólks hefur síðan hringt og rætt málin og ég á von á að í kjölfar þess muni margir slást í hópinn þegar línur skýrast frekar. Gunnar sagði að ekki væri um að ræða neina pólitík í málinu í skiln- ingnum hægri-vinstri. Aðaláherslan væri á að skapa meðaljóninum úti í bæ, sem væri að berjast við að hafa í sig og á, gmndvöll til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. „í jafn gjöfulu þjóðfélagi og okkar hlýtur eitthvað að vera að þegar fólk rétt skrimtir þótt það skili fullri vinnu. Það eiga allir að geta haft vel til hnífs og skeiðar og jafnframt haft tíma til að sinna fjölskyldu sinni og bömum. Á þetta leggjum við höfuð- áherslu," sagði Gunnar Harðarson. -sá í nýjasta tölublaði tímaritsins Heilsuvernd er að fínna viðtal við dr. Hallgrím Magnússon svæfíngalækni um leyndir lífs og heilsu. Kennir margra grasa í spjalli Hallgríms, en hann veitir forstöðu Heilsuræktarstöð úti á Seltjarnarnesi og iðkar þar m.a. nálarstunguaðferðina víðfrægu. Lætur læknirinn vel af lækninga- mætti hennar, og kveður sannað að hún reynist halddrjúg gegn hinum margvíslegustu meinum, þó einatt þurfi reyndar bæði tíma og þolinmæði til. Þú ert það sem þú borðar Dr. Hallgrímur ræðir nokkuð forvarnir við sjúkdómum og fjallar í því sambandi sérstaklega um mikil- vægi mataræðis: „Ég trúi því, að matur sé mannsins megin og að maður sé það sem maður lætur í sig“, segir hann, en bætir reyndar við: „En við erum öll svo ólík og það sem hentar einum er ekki víst að annar þoli.“ í viðtalinu predikar dr. Hallgrím- ur gegn „kemískum" efnum og tekur sérstaklega fyrir það hið fræga Nutrasweet. Staðfestir hann þrálát- an og útbreiddan orðróm um að gervisykur þessi geti valdið sjóntrufl- unum eða jafnvel blindu. Mun hann einkum varasamur, að sögn Hallgríms, sé efnisins neytt í bland við önnur á borð við koffein og nikótín. Einnig slævist geta líkamans til að brjóta þessi efni niður, sé nauðsynlegum vítamínum og stein- efnum ekki fyrir að fara: „Við erum fyrsta kynslóðin sem neytir mikið unninnar fæðu og við vitum raun- verulega ekkert hvað við erum að gera... Neyti menn mestmegnis fæðu sem er mikið unnin og bæti- efnasnauð , fer ekki hjá því að vítamínskortur fari að gera vart við sig.“ Eftirtektarverð er sú skoðun Hallgríms, að sannfæringarkraftur sjúklings fái flutt fjöll, jafnt til betri sem verri vegar. Trúi fólk nógu sterkt á bata sinn, fái það a.m.k. stórlega bætta líðan sína og með sama hætti fari ekki hjá því að sá veikist er staðfastur trúir á eigin krankleika. Grasrótin gæðafæða Sá kafli í i;æðum Hallgríms, sem líklegastur er til að ýta við skeyting- arlausum sælkerum, er þó þau um- mæli hans, að maðurinn sé grasæta. Hann hafi ekki rándýrseðli og kjötát sé honum ekki eðlilegt frekar en neysla hvers kyns kemiskra efna sem nú megi finna í mörgum fæðuteg- undum. Við hringdum í Hallgrím og inntum hann eftir hvort kjötát gæti þá verið mannskepnunni skaðlegt. Hann staðfesti að undir vissum kringumstæðum gæti svo verið, eink- um ef meltingarvegur viðkomandi skilaði ekki úrgangi, gerlum og gróðri úr þörmunum með reglu- bundnum hætti. Nái Ieifar að gerjast í þörmunum, geti neysla kjöts verið líkamanum skaðvæn. Erfitt væri þó að alhæfa nokkuð í þessu efni. Fjallalambið blífur Hallgrímur kvað helstu tímarit um heilsuvemd, báðum megin At- lantsála, mæla með að kjöt væri ekki á borðum nema einu sinni til tvisvar í viku. Hér væri þó um „ræktað kjöt“ að ræða, þ.e. kjöt af skepnum sem ekki séu aldar á náttúruefnum. Hormónar og „kemiskar" fæðu- blöndur berist með þessu móti í líkama fólks með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Ekki er íslenskur land- búnaður öllum heillum horfinn, því slíkur ófögnuður fyrirfinnst ekki í íslensku sauðfé, enda mun lamba- kjötið eina kjötmetið sem „eðlilegt" er að snæða, miðað við núverandi aðstæður. Á misjöfnu þrífast börnin best Að sögn Hallgríms hefur sitthvað í rannsóknum bandarískra aðila hin síðari ár fært að því rök að kjöt- neysla sé manninum ekki eðlileg. Sjálfur segist hann þó ekki vera hallur undir einstefnu í mataræði, hvorki í neyslu jurtafæðis né annars. Vandamál nútíma-neytenda sé þó fyrst og fremst fólgið í þeim ónátt- úrulegu aðferðum sem beitt sé við framleiðslu, ekki aðeins kjötvara heldur og annarra fæðutegunda. Neysla unninna matvæla, hvíts sykurs, hvíts hveitis og brauða er gerjuð væru fram mjög hratt í bakar- íum væri óhófleg. Sem dæmi nefndi hann að aðeins væri unnt að fá ósvikin heilhveitibrauð í einu bakar- íi í Reykjavík, önnur notuðust við hveitiklíð og litað hveiti. Einasta vörnin sé sú, að vekja neytendur til umhugsunar og hvetja þá til að gaumgæfa matarinnkaup, í stað þess að hrúga hugsunarlaust ofan í körfumar. - JBG

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.