Tíminn - 14.09.1989, Side 4

Tíminn - 14.09.1989, Side 4
4 Tíminn Fimmtudagur 14. september 1989 Laust embætti er forseti íslands veitir Embætti héraðsdýralæknis í Skagafjarðarum- dæmi er laust til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist landbúnaðarráðuneytinu, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík, fyrir 15. október n.k. Embættið veitist frá 1. nóvember 1989. Landbúnaðarráðuneytið, 11. september 1989. Slgrún ÓlafurÞ. Pétur Sturludóttlr Þóröarson Bjarnason Kjördæmisþing framsóknarmanna í Vestfjarðakjördæmi, haldið á Patreksfirði 15.-16. sept. 1989 Dagskrá Föstudagur 15. sept. 1. Kl. 17.00 Þingsetning 2. Kl. 17.10 Kosning starfsmanna þingsins. 3. Kl. 17.15 Skýrslur stjórnar a) Formaður, b) Gjaldkeri, c) Blaðstjórn Isfirðings 4. Kl. 17.40 Ávörp gesta. a) Sigrún Sturludóttir, LFK b) Gissur Pétursson, SUF c) Sigurður Geirdal, framkvstj. Framsóknarfl. 5. Kl. 18.00 Stjómmálaviðhorfið - Staða og horfur. Steingrímur Hermannsson, form. Framsóknarfl. 6. Kl. 19.00 MATARHLÉ 7. Kl. 20.00 Skipað f nefndir Atvinnumál, stjórnmála- og flokksmálanefnd. 8. Kl. 20.15 Ávörp þingmanns og varaþingmanns a) Ólafur Þ. Þórðarson b) Pétur Bjarnason 9. Kl. 21.00 Almennar stjórnmálaumræður (Til kl. 22.00). Laugardagur 16. sept. 10. Kl. 10.00 Nefndir starfa 11. Kl. 12.00 Hádegisverður 12. Kl. 13.00 Afgreiðsla mála 13. Kl. 14.00 Kjör stjórnar og nefnda 14. Kl. 14.30 önnurmál 15. Kl. 15.00 Þingsllt Stjórn KSV Uff Jón Kristjánsson Halldór Ásgrímsson og Jón Kristjánsson, ræða stjórnmálaviðhorfið og atvinnumál á eftirtöldum stöðum á Austurlandi: Eskifirði i Valhöll, sunnudaginn 17. sept. kl. 20.30. Reyðarfirði í verkalýðshúsinu, mánudaginn 18. sept. kl. 20.30. Seyðisfirði f Herðubreið, þriðjudaginn 19. sept. kl. 20.30. Neskaupstað í Egilsbúð, miðvikudaginn 20. sept. kl. 20.30* Fundirnir eru öllum opnir. Halldór Ásgrímsson Jón Kristjánsson. Halldór Ásgrímsson VmÐUM LIF : ÚL i : 1|& u "i 1 1 / Æ ’ * JH Stjórnmálaályktun LFK 4. landsþing Landssambands framsóknarkvenna haldið á Hvann- eyri 8.-10. sept. 1989 starfaði undir kjörorðinu: „Virðum líf - Verndum jörð“. Aukin áhersla á umhverfisvernd og bætt lífsskilyrði fyrir komandi kynslóðir. Þingið telur að við núver- andi aðstæður í íslenskum þjóðmál- um sé það stjórnarmynstur sem nú hefur verið myndað án kosninga líklegast til að takast á við þann vanda sem við er að etja í atvinnu- málum þjóðarinnar. Þingið lýsir megnri óánægju með hversu hægt hefur gengið að lækka vexti og telur það málefni algjört forgangsverkefni þeirrar ríkisstjórn- ar sem nú tekur við völdum. Slíkt er ekki einungis nauðsynlegt atvinnu- lífinu, heldur einnig öllum þorra launafólks. Við blasir að útflutningstekjur munu minnka stórlega, verði farið að tilmælum Hafrannsóknarstofnun- ar um samdrátt í veiðum. Mikilvægt er því að sem mest af sjávarfangi nýtist íslensku atvinnulífi. Þingið lýsir yfir stuðningi við þær tillögur sjávarútvegsráðherra, að þeir út- gerðarmenn sem flytja út ferskan fisk, missi hluta af fiskveiðikvóta sfnum. Þingið telur að heildarathugun þurfi að fara fram á því hvemig hagræða megi í ríkisrekstrinum enn frekar en gert hefur verið á þessu ári. Nauðsynlegt er að virðisauka- skattur verði lægri á mikilvægum innlendum matvömm, ekki hvað síst vegna minnkandi kaupmáttar. í því sambandi minnir þingið á nýsam- þykkta þingsályktunartillögu heil- brigðisráðherra um manneldis- og neyslustefnu, en það hefur verið baráttumál Landssambandsins síðan 1986. Þingið styður heilshugar þá sam- þykkt Stéttarsambands bænda að setja það sem forgangsverkefni að leita leiða til lækkunar búvömverðs og telur fráleitt að hefja innflutning á landbúnaðarafurðum. Þykir undr- un sæta hvað ýmsir fjölmiðlar hafa gleypt við vanhugsuðum og lítt út- reiknuðum tölum „skýjaglópa" um hugsanlegan sparnað því samfara. Þingið telur að slík ráðagerð yrði stórhættuleg sjálfstæði þjóðarinnar. Það er ljóst að viðskiptaráðherra ber mikla ábyrgð á auknum þrýstingi á innfluting þar sem hann rauf fyrsta skarðið í stífiuna. Á tslandi ætti það ekki að vera til umræðu hvort reka eigi byggðar- stefnu, heldur hvemig. Þingið lýsir áhyggjum yfir sívaxandi byggða- röskun. Mikilvægt atriði til úrbóta er m.a. jöfnun á raforkuverði og síma- kostnaði sem þegar er hafinn í áföngum og verði því verki hraðað eins og kostur er. Lykilatriði í baráttunni fyrir jafn- vægi í byggð landsins er að heilbrigt og fjölbreytt atvinnulíf fái þrifist um land allt og þar geta stjómvöld ráðið miklu um. Landssamband framsóknar- kvenna telur að íslendingar eigi ekki erindi í Efnahagsbandalag Evrópu. Með aðild að bandalaginu yrðu ís- lendingar að fórna sjálfsákvörðunar- rétti sínum í hendur yfirþjóðlegu valdi. Með því yrði þjóðmenningu okkar og þjóðfélagsgerð stefnt í voða. Þingið vill að síðustu minna á að kosið verður til sveitastjóma næsta vor. Konur em aðeins 19,2% sveita- stjómarfulltrúa á landinu öllu. Landsþingið hvetur framsóknarkon- ur til að gefa kost á sér á framboðs- lista til að bæta hlut kvenna, landi og þjóð til heilla. Atvinnumál Þing Landssambands framsóknar- kvenna haldið á Hvanneyri 8.-10. sept. 1989 bendir á að ýmsar hættur steðja að íslensku atvinnulífi. Stefnumótun stjórnvalda í atvinnu- og efnahagsmálum hefur ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt. Atvinnulíf okkar hefur um langt árabil verið háð sjávarafla. Afkoma sjávarútvegs hefur áhrif á flesta þætti íslensks atvinnulífs. Með minnkandi afla reynir æ meira á aukna hagræðingu hjá sjáv- arútveginum bæði til lands og sjávar. Framleiðsla landbúnaðarvara hef- ur verið skorin niður síðustu ár og er enn ekki lokið. Ekki má fara offari í nýjum búgreinum líkt og gert var í loðdýrarækt og fiskeldi. Aðgæslu og aðhalds er þörf við fjárfestingar og rekstur. Nauðsynlegt er fyrir bændur og stjómvöld að vinna saman að aukinni hagkvæmni til þess að hinar hollu og ómenguðu afurðir verði sem ódýrastar neytendum til handa. Frjáls innflutningur yrði engum til góðs. Samdráttur í undirstöðuat- vinnuvegunum hefur fyrst og fremst bitnað á landsbyggðinni. Því ber stjómvöldum að skapa ný atvinnutækifæri einmitt þar, ekki síst með sérstaka áherslu á atvinnu kvenna í huga. Samhliða slíku átaki þarf hvatningu til kvenna til að taka virkan þátt í atvinnuuppbygging- unni. Oft hefur skapast tímabundið atvinnuleysi, en nú virðist það við- varandi. Því verður að leggja áherslu á eftirfarandi atriði: ★ Að eyða tortryggni og togstreitu milli dreifbýlis og þéttbýlis og ganga samhent til markvissrar og svæðisbundinnar uppbyggingar íslensks atvinnulífs. ★ Auka framleiðni í öllum greinum atvinnulífsins og vinna markvisst að bættri markaðssetningu. ★ Færa stjómsýsluverkefni til landsbyggðarinnar. ★ Styrkja smáfyrirtæki til að hefja rekstur og stuðla að áframhald- andi uppbyggingu í ferðaþjón- ustu. ★ Veita í auknum mæli fjármagni í þróunarverkefni í iðnaði. ★ Stefna að fjölbreyttari fram- leiðslu í fiskiðnaði og skipuleggja úrvinnslu sjávarafurða þannig að vinnan og afrakstur hennar fari ekki úr byggðarlaginu. * Styrkja stöðu dreifbýlisverslunar og kaupfélaganna. * Stefna beri markvisst að þvf að konur séu ekki stærsti Iáglauna- hópur landsins og að allir geti lifað af Iaunum sínum. * Standa fast gegn innflutningi á landbúnaðarvörum, sem fram- leiddar eru hér á landi. Aukinn innflutningur þýðir aukið at- vinnuleysi. * Þjónustustörf munu aukast á komandi ámm og tryggja verður á öruggan hátt, hlut landsbyggð- arinnar. Samgöngumál Góðar samgöngur eru gmndvöllur þess að jafnvægi haldist í byggð landsins. Á þeim byggjast öll félags- leg samskipti og sú öryggis- og heilbrigðisþjónusta sem tryggja ber öllum landsmönnum auk þess sem að góðar samgöngur styrkja atvinnu- líf landsmanna. Hraða þarf varan- legri vegagerð, þannig að bundið slitlag verði á öllum aðalvegum, viðhald vega stórbætt og lífshættu- legar samgönguæðar lagðar niður og aðrar öruggari gerðar í staðinn t.d. með ganga- og brúargerð. Aukin áhersla verði lögð á vegagerð þar sem ferðir milli byggðarlaga em erfiðar og stundum lífshættulegar og snjómokstri verði stjómað frá heimabyggð. Leita þarf leiða til að tryggja ömggar ferðir fólks og flutn- inga á vömm á milli landshluta. Tryggja þarf afkomu lítill flugfélaga á landsbyggðinni, en þau gegna stöðugt mikilvægara hlutverki við farþegaflutninga og öryggisþjón- ustu. Ríkið tryggi ömgga flutninga á sjó allt árið. Bættar samgöngur stuðla að byggð landsins alls sem er lykil- atriði í menningu okkar og tilveru sem frjálsrar þjóðar. Umhverfismál Þing Landssambands framsóknar- kvenna haldið á Hvanneyri 8.-10. sept. 1989 fagnar ákvörðun um stofnun umhverfisráðuneytis. Aukin áhersla á þennan málaflokk mun efla forvarnarstarfið og bæta Iífsskil- yrði fyrir komandi kynslóðir. Fram- fylgja þarf reglum um vamir gegn ofnýtingu, mengun og öðmm spjöll- um af manna völdum. Varast ber þó oístjómun í umhverfismálum, sem getur svipt þegna umgengnisrétti við land sitt. Þingið vill hvetja til skipu- legrar nýtingar auðlinda, án þess að of nærri þeim sé gengið eða umhverfi og lífríki spillt. 4. landsþing Landssambands Framsóknarkvenna skorar á félags- mála-, landbúnaðar- og sjávarút- vegsráðuneyti að lengja starfstíma verkefnisstjóra er vinnur að eflingu atvinnu fyrir konur í dreifbýli.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.