Tíminn - 14.09.1989, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 14. september 1989
llllllllllllllllilliilll DAGBÓK
Nessókn
Opið bús fyrir aldraða f dag, fimmtu-
dag, frá kl. 13:00-17:00 í safnaðarheimili
kirkjunnar.
Spilakvöld í Hafnarfirði
Um 40 ára skeið hafa stúkumar f
Hafnarfirði haldið spilakvöld í Góð-
templarahúsinu þar í bæ. Á þessu hausti
hefjast þau með félagsvist fimmtudaginn
21. september kl. 20:30 og verður síðan
spilað annan hvern fimmtudag. Allir eru
velkomnir á spilakvöldin.
Félag eldri borgara Kópavogi
Farin verður síðdegisferð til Nesjavalla
laugardaginn 16. september kl. 13:30 frá
Sparisjóði Kópavogs.
Ekið verður um hinn nýja veg (hita-
veituveginn) um Mosfellsheiði. Jarðfræð-
ingur verður leiðsögumaður og veitir
þátttakendum innsýn í það hvemig há-
hitasvæði Nesjavalla er beislað.
Farseðlapantanir og sala á skrifstof-
unni, sími 41226, eftir kl. 13:00 á föstu-
dag.
Frá Félagi eldri borgara
í Reykjavík
Göngu-Hrólfar hittast kl. 10:00 á laug-
ardaginn á skrifstofu félagsins að Nóatúni
17.
Hallgrimskirkja:
Starf aldraðra
Viðeyjarferð er frestað til föstudags 15.
september. Lagt verður af stað frá kirkj-
unni kl. 13:30.
Nánari upplýsingar gefur Dómhildur í
sfma 39965.
Aðalfundur HINS
ÍSLENSKA SJÓRÉTTARFÉLAGS
Aðalfundur Hins íslenska sjóréttarfé-
lags verður haldinn fimmtudaginn 14.
september. Fer fundurinn fram í stofu
308 í Lögbergi og hefst kl. 17:30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjómin
Málverkasýning í Ásmundarsal
Föstudagskvöldið 15. september kl.
20:00 opnar Björg Sveinsdóttir málverka-
sýningu í Ásmundarsal við Freyjugötu.
Þar verða sýnd olíumálverk unnin á
síðustu tveim ámm. Myndimar era gjarn-
an náttúrastemmningar og táknrænir
hlutir koma oft fyrir í þeim.
Björg nam við Myndlista- og handíða-
skóla lslands og útskrifaðist úr málunar-
deild 1987. Sama sumar tók hún þátt í
samsýningu við opnun Hafnargallerís, en
sýningin í Ásmundarsal er hennar fyrsta
einkasýning.
Sýningin verður opin kl. 16:00-20:00
virka daga og kl. 14:00-22:00 um helgar
og stendur til 1. október.
Námskeið Heilunarskólans
Vetramámskeið Norræna Heilunar-
skólans era að hefjast og er skráning
hafin í sfmum 624464, 674373 og 74074.
Kynningarfundur verður haldinn fimmtu-
daginn 14. sept. kl. 20:00 að Laugavegi
163, III. hæð. Dagsnámskeið verður á
Selfossi sunnud. 17. sept kl. 10:00-16:00,
en vetramámskeiðið hefst 30. september
í Reykjavík.
Annað hvort fimmtudagskvöld kl.
20:00 er opið hús fyrir almenning.
lslenska heilunarfélagið.
r'bOAnuV? ■ M'nr
UNGIR
FRAMSÓKNARMENN
Fundur verður haldinn í húsakynnum
Framsóknarflokksins, Nóatúni 21,
sunnudaginn 17. sept. kl. 20:00
Fundarefni:
Þriðja ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar
Pramkvæmdastjóm
Sambands ungra framsóknarmanna
Halidór
Ásgrímsson
Sunnlendingar
Almennur stjórnmálafundur með Halldóri Ásgrímssyni verður haldinn
á Hótel Selfoss, fimmtudaginn 28. september kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss.
Sunnlendingar
Félagsvist
Spilað verður að Eyrarvegi 15, Selfossi á þriðjudögum, 19. sept., 26.
sept. og 3. okt. kl. 20.30. (Stök kvöld).
Góð verðlaun í boði.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss.
Helgarferðir F.Í. 16. og 17. sept.
1. Emstrur - Þórsmörk ki.08:00.Ekið
um Fljótshlíð inn á Emstrar. Þar verður
nýja brúin á Emstraá tekin formlega f
notkun. Þeim sem vilja gefst kostur á að
ganga í Þórsmörk. (u.þ.b. 20 km) Hinir
fara með bílunum til Þórsmerkur.
2. Þórsmörk kl. 08:00. Þetta er fyrir-
huguð fjölskylduferð, þar sem boðið
verður upp á léttar gönguferðir, ratleik,
tilsögn í meðferð ljósmyndavéla og ör-
stutt námskeið í notkun brodda og ísaxa.
Um kvöldið verður svo kvöldvaka. Allar
nánari upplýsingar og farmiðasala á skrif-
stofunni, Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands
Soroptimistahreyfingin
á íslandi 30 ára
Um þessar mundir era þrjátíu ár síðan
Soroptimastaklúbbur Reyícjavfkur var
stofnaður, en það var 19. september 1959.
Upphaflega var Soroptimistahreyfingin
stofnuð í Kalifomíu árið 1921 sem nokk-
urs konuar systrafélag við Rotarýklúbb-
ana. Nú era um 100 þúsund konur í
þessari hreyfingu og klúbbar era starfandi
í 88 þjóðlöndum. Á íslandi era 14
klúbbar með 342 félögum.
Klúbbamir á lslandi hafa einkum látið
sig varða málefni aldraðra og fatlaðra. 1
tilefni afmæhsins ætlar Soroptimista-
klúbbur Reykjavíkur að gefa Hjúkranar-
heimilinu Skjóli eina milljón króna til
kaupa á tækjum sem notuð verða við
hjúkran vistmanna.
Einnig gefur Landssamband Soroptim-
ista út myndarlegt afmælisrit, þar sem
rakin er 30 ára saga samtakanna á Islandi.
Soroptimistar og gestir þeirra munu
halda afmælið hátíðlegt í hófi að Hótel
Islandi að kvöldi 16. sept.
Formaður Soroptimistaklúbbs Reykja-
víkur er Sigrún Klara Hannesdóttir, en
forseti Landssambands Soroptimista er
Steinunn Einarsdóttir frá Soroptimista-
klúbbi Seltjarnamess.
Inntökupróf ffyrir nýja söngvara
í Mótettukór Hallgrímskirkju
Mótettukór Hallgrímskirkju er að
hefja áttunda starfsár sitt. Á verkefnaskrá
vetrarins era allar mótettur eftir J.S.
Bach, sex að tölu, en þær verða fluttar á
Listahátíð í júní á næsta ári. Af öðrum
verkefnum má nefna Jólaóratóríu eftir
Saint-Saéns, fyrir 5 einsöngvara, kór,
strengi, hörpu og orgel. Æfingar era
tvisvar í viku. Litlir hópar kórfélaga leiða
safnaðarsönginn f guðsþjónustum á
sunnudögum og á hátfðum kemur allur
kórinn fram.
Kórinn getur bætt við sig örfáum söngv-
uram og býður þeim sem áhuga hafa til
inntökuprófs í Hallgrímskirkju föstud.
15. sept. kl. 17:00-19:00 og laugard. 16.
sept. kl. 10:30-12:30. Inntökuskilyrði eru
að menn séu á aldrinum 18-40 ára og hafi
einhverja reynslu af söng eða hljóðfæra-
leik. Stjórnandi Mótettukórs Hallgríms-
kirkju er Hörður Áskelsson.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opið allan sólarhringinn
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hringinn.
EINN MEÐ ÖLLU
einfalt og ódýrt.
Verð frá
kr. 33.500,-
Sturtuhurðir,
baðkarhliðar úr áli
og hvítu, gler og piast.
K AUDUNSSON
GRENSASVEGI 8
S: 68 67 75 8 68 60 88
Ása Hlín Svavarsdóttir og Halldór Bjömsson í hlutverkum sínum í „Isaðar gellur" hjá
Alþýðuleikhúsinu.
„ísaðar gellur“ frumsýndar
hjá Alþýðuleikhúsinu í IÐNÓ
Alþýðuleikhúsið framsýnir í Iðnó nú
um helgina leikritið „Isaðar gellur“ eftir
breska höfundinn Frederick Harrison.
I verkinu segir frá dvöl þriggja stúlkna
frá Hull á Englandi í sjávarþorpi á
norðanverðum Vestfjörðum. Þær hafa
flúið bágt atvinnuástand heima fyrir í von
um betri lífsafkomu og bjartari framtíð á
íslandi. Leikritið snýst síðan um þann
raunveraleika sem við þeim blasir í
fiskvinnu f íslensku sjávarþorpi og kynni
þeirra af Islendingum. Verkið er óspart
kryddað hispurslausri gamansemi og fá
Islendingar sinn skammt ekki síður en
aðrir sem við sögu koma.
Verkið „ísaðar gellur“ var framsýnt í
Hull í apríl sl. og hefur sýningin farið víða
um England og notið mikilla vinsælda.
Leikarar í „Isaðar gellur“ era Ása Hlín
Svavarsdóttir, Halldór Björnsson, Ingrid
Jónsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
Leikmynd ogbúninga gerir Gerla, lýsingu
annast Sveinn Benediktsson og leikstjóri
er Hávar Sigurjónsson.
Fmmsýning verður föstud. 15. sept. kl.
20:30 og 2. sýning sunnud. 17. september
kl. 20:30.
Bessi Bjamason og Rúrík Halldórsson í hlutverkum sínu ji í leiknum
Gríniðjan h/f:
„Brávallagatan - Arnamesið“
Sýningar á gamanleik Gríniðjunnar
„Brávallagatan - Arnarnesið" hefjast að
nýju í íslensku Óperanni, Gamla bíói,
föstudaginn 15. september og laugardag-
inn 16. september. Næstu sýningar era
fyrirhugaðar föstudaginn 22. og laugar-
daginn 23. september. Gamanleikurinn
fjaUar um þau landsfrægu hjón Bibbu og
Halldór og var sýndur við mikla aðsókn
sl. vor. Sýningar urðu samtals 22 og var
uppselt á þær allar.
I hlutverkum hjónanna Bibbu og Hall-
dórs era þau Edda Björgvinsdóttir og
Júlíus Brjánsson. Með önnur stór hlut-
verk fara: Jóhann Sigurðarson, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Bríet Héðins-
dóttir, Rúrik Haraldsson, Kjartan Bjarg-
mundsson og Bessi Bjamason. Höfundar
gamanleiksins era Edda Björgvinsdóttir,
Júlíus Brjánsson og Gísli Rúnar Jónsson,
sem jafnframt er leikstjóri.
Gríniðjan býður starfshópum, félaga-
samtökum og stórfjölskyldum afslátt á
gamanleikinn.
Veitingahúsin „Óperakjallarinn" og
„Við Tjömina“ bjóða upp á sérstakt
afsláttarverð á matseðli sínum fyrir leik-
húsgesti Gríniðjunnar.
Gamanleikurinn „Brávallagatan - Am-
araesið" verður aðeins sýndur í takmark-
aðan tíma.
Ljósmyndasýning í Slunkaríki
Sýning á ljósmyndaverkum Arthurs
Bell verður opnuð laugardaginn 2. sept-
ember í Slunkaríki á lsafirði.
Arthur Bell er Bandaríkjamaður og
stundaði nám í Ijósmyndun við Listahá-
skóla Chicagóborgar og var m.a. undir
leiðsögn hins heimsfræga ljósmyndara
Aaron Siskind.
Bell hefur sýnt myndir sínar víða í
Bandaríkjunum og Mið-Ameríku, en
sýningin í Slunkaríki er sú fyrsta héma
megin Atlantshafs.
Sýningin stendur til 17. september og
er opin fimmtudaga-sunnudaga kl. 16:00-
18:00.
Heyrnar- og talmeinastöð íslands:
Móttaka á Austurlandi
Móttaka verður á vegum Heymar- og
talmeinastöðvar lslands í Heilsugæslu-
stöðinni á Neskaupstað fimmtud. 28.
sept., Reyðarfirði föstud. 29. sept. og
Egilsstöðum laugard. 30. sept. og 1. okt.
Þar fer fram greining heymar- og
talmeina og úthlutun heymartækja. Sömu
daga, að lokinni móttöku Heymar- og
talmeinastöðvarinnar, verður almenn
lækningamóttaka sérfræðings í háls-, nef-
og eymalækningum.
Tekið er á móti viðtalsbeiðnum f
Heilsugæslustöðvum á viðkomandi
stöðum.