Tíminn - 14.09.1989, Síða 12

Tíminn - 14.09.1989, Síða 12
12 Tíminn Fimmtudagur 14. september 1989 llllllllllllllllilliilll DAGBÓK Nessókn Opið bús fyrir aldraða f dag, fimmtu- dag, frá kl. 13:00-17:00 í safnaðarheimili kirkjunnar. Spilakvöld í Hafnarfirði Um 40 ára skeið hafa stúkumar f Hafnarfirði haldið spilakvöld í Góð- templarahúsinu þar í bæ. Á þessu hausti hefjast þau með félagsvist fimmtudaginn 21. september kl. 20:30 og verður síðan spilað annan hvern fimmtudag. Allir eru velkomnir á spilakvöldin. Félag eldri borgara Kópavogi Farin verður síðdegisferð til Nesjavalla laugardaginn 16. september kl. 13:30 frá Sparisjóði Kópavogs. Ekið verður um hinn nýja veg (hita- veituveginn) um Mosfellsheiði. Jarðfræð- ingur verður leiðsögumaður og veitir þátttakendum innsýn í það hvemig há- hitasvæði Nesjavalla er beislað. Farseðlapantanir og sala á skrifstof- unni, sími 41226, eftir kl. 13:00 á föstu- dag. Frá Félagi eldri borgara í Reykjavík Göngu-Hrólfar hittast kl. 10:00 á laug- ardaginn á skrifstofu félagsins að Nóatúni 17. Hallgrimskirkja: Starf aldraðra Viðeyjarferð er frestað til föstudags 15. september. Lagt verður af stað frá kirkj- unni kl. 13:30. Nánari upplýsingar gefur Dómhildur í sfma 39965. Aðalfundur HINS ÍSLENSKA SJÓRÉTTARFÉLAGS Aðalfundur Hins íslenska sjóréttarfé- lags verður haldinn fimmtudaginn 14. september. Fer fundurinn fram í stofu 308 í Lögbergi og hefst kl. 17:30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjómin Málverkasýning í Ásmundarsal Föstudagskvöldið 15. september kl. 20:00 opnar Björg Sveinsdóttir málverka- sýningu í Ásmundarsal við Freyjugötu. Þar verða sýnd olíumálverk unnin á síðustu tveim ámm. Myndimar era gjarn- an náttúrastemmningar og táknrænir hlutir koma oft fyrir í þeim. Björg nam við Myndlista- og handíða- skóla lslands og útskrifaðist úr málunar- deild 1987. Sama sumar tók hún þátt í samsýningu við opnun Hafnargallerís, en sýningin í Ásmundarsal er hennar fyrsta einkasýning. Sýningin verður opin kl. 16:00-20:00 virka daga og kl. 14:00-22:00 um helgar og stendur til 1. október. Námskeið Heilunarskólans Vetramámskeið Norræna Heilunar- skólans era að hefjast og er skráning hafin í sfmum 624464, 674373 og 74074. Kynningarfundur verður haldinn fimmtu- daginn 14. sept. kl. 20:00 að Laugavegi 163, III. hæð. Dagsnámskeið verður á Selfossi sunnud. 17. sept kl. 10:00-16:00, en vetramámskeiðið hefst 30. september í Reykjavík. Annað hvort fimmtudagskvöld kl. 20:00 er opið hús fyrir almenning. lslenska heilunarfélagið. r'bOAnuV? ■ M'nr UNGIR FRAMSÓKNARMENN Fundur verður haldinn í húsakynnum Framsóknarflokksins, Nóatúni 21, sunnudaginn 17. sept. kl. 20:00 Fundarefni: Þriðja ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar Pramkvæmdastjóm Sambands ungra framsóknarmanna Halidór Ásgrímsson Sunnlendingar Almennur stjórnmálafundur með Halldóri Ásgrímssyni verður haldinn á Hótel Selfoss, fimmtudaginn 28. september kl. 20.30. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Selfoss. Sunnlendingar Félagsvist Spilað verður að Eyrarvegi 15, Selfossi á þriðjudögum, 19. sept., 26. sept. og 3. okt. kl. 20.30. (Stök kvöld). Góð verðlaun í boði. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Selfoss. Helgarferðir F.Í. 16. og 17. sept. 1. Emstrur - Þórsmörk ki.08:00.Ekið um Fljótshlíð inn á Emstrar. Þar verður nýja brúin á Emstraá tekin formlega f notkun. Þeim sem vilja gefst kostur á að ganga í Þórsmörk. (u.þ.b. 20 km) Hinir fara með bílunum til Þórsmerkur. 2. Þórsmörk kl. 08:00. Þetta er fyrir- huguð fjölskylduferð, þar sem boðið verður upp á léttar gönguferðir, ratleik, tilsögn í meðferð ljósmyndavéla og ör- stutt námskeið í notkun brodda og ísaxa. Um kvöldið verður svo kvöldvaka. Allar nánari upplýsingar og farmiðasala á skrif- stofunni, Öldugötu 3. Ferðafélag íslands Soroptimistahreyfingin á íslandi 30 ára Um þessar mundir era þrjátíu ár síðan Soroptimastaklúbbur Reyícjavfkur var stofnaður, en það var 19. september 1959. Upphaflega var Soroptimistahreyfingin stofnuð í Kalifomíu árið 1921 sem nokk- urs konuar systrafélag við Rotarýklúbb- ana. Nú era um 100 þúsund konur í þessari hreyfingu og klúbbar era starfandi í 88 þjóðlöndum. Á íslandi era 14 klúbbar með 342 félögum. Klúbbamir á lslandi hafa einkum látið sig varða málefni aldraðra og fatlaðra. 1 tilefni afmæhsins ætlar Soroptimista- klúbbur Reykjavíkur að gefa Hjúkranar- heimilinu Skjóli eina milljón króna til kaupa á tækjum sem notuð verða við hjúkran vistmanna. Einnig gefur Landssamband Soroptim- ista út myndarlegt afmælisrit, þar sem rakin er 30 ára saga samtakanna á Islandi. Soroptimistar og gestir þeirra munu halda afmælið hátíðlegt í hófi að Hótel Islandi að kvöldi 16. sept. Formaður Soroptimistaklúbbs Reykja- víkur er Sigrún Klara Hannesdóttir, en forseti Landssambands Soroptimista er Steinunn Einarsdóttir frá Soroptimista- klúbbi Seltjarnamess. Inntökupróf ffyrir nýja söngvara í Mótettukór Hallgrímskirkju Mótettukór Hallgrímskirkju er að hefja áttunda starfsár sitt. Á verkefnaskrá vetrarins era allar mótettur eftir J.S. Bach, sex að tölu, en þær verða fluttar á Listahátíð í júní á næsta ári. Af öðrum verkefnum má nefna Jólaóratóríu eftir Saint-Saéns, fyrir 5 einsöngvara, kór, strengi, hörpu og orgel. Æfingar era tvisvar í viku. Litlir hópar kórfélaga leiða safnaðarsönginn f guðsþjónustum á sunnudögum og á hátfðum kemur allur kórinn fram. Kórinn getur bætt við sig örfáum söngv- uram og býður þeim sem áhuga hafa til inntökuprófs í Hallgrímskirkju föstud. 15. sept. kl. 17:00-19:00 og laugard. 16. sept. kl. 10:30-12:30. Inntökuskilyrði eru að menn séu á aldrinum 18-40 ára og hafi einhverja reynslu af söng eða hljóðfæra- leik. Stjórnandi Mótettukórs Hallgríms- kirkju er Hörður Áskelsson. KVENNAATHVARF Húsaskjól er opið allan sólarhringinn og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun. Síminn er 21205 - opinn allan sólar- hringinn. EINN MEÐ ÖLLU einfalt og ódýrt. Verð frá kr. 33.500,- Sturtuhurðir, baðkarhliðar úr áli og hvítu, gler og piast. K AUDUNSSON GRENSASVEGI 8 S: 68 67 75 8 68 60 88 Ása Hlín Svavarsdóttir og Halldór Bjömsson í hlutverkum sínum í „Isaðar gellur" hjá Alþýðuleikhúsinu. „ísaðar gellur“ frumsýndar hjá Alþýðuleikhúsinu í IÐNÓ Alþýðuleikhúsið framsýnir í Iðnó nú um helgina leikritið „Isaðar gellur“ eftir breska höfundinn Frederick Harrison. I verkinu segir frá dvöl þriggja stúlkna frá Hull á Englandi í sjávarþorpi á norðanverðum Vestfjörðum. Þær hafa flúið bágt atvinnuástand heima fyrir í von um betri lífsafkomu og bjartari framtíð á íslandi. Leikritið snýst síðan um þann raunveraleika sem við þeim blasir í fiskvinnu f íslensku sjávarþorpi og kynni þeirra af Islendingum. Verkið er óspart kryddað hispurslausri gamansemi og fá Islendingar sinn skammt ekki síður en aðrir sem við sögu koma. Verkið „ísaðar gellur“ var framsýnt í Hull í apríl sl. og hefur sýningin farið víða um England og notið mikilla vinsælda. Leikarar í „Isaðar gellur“ era Ása Hlín Svavarsdóttir, Halldór Björnsson, Ingrid Jónsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Leikmynd ogbúninga gerir Gerla, lýsingu annast Sveinn Benediktsson og leikstjóri er Hávar Sigurjónsson. Fmmsýning verður föstud. 15. sept. kl. 20:30 og 2. sýning sunnud. 17. september kl. 20:30. Bessi Bjamason og Rúrík Halldórsson í hlutverkum sínu ji í leiknum Gríniðjan h/f: „Brávallagatan - Arnamesið“ Sýningar á gamanleik Gríniðjunnar „Brávallagatan - Arnarnesið" hefjast að nýju í íslensku Óperanni, Gamla bíói, föstudaginn 15. september og laugardag- inn 16. september. Næstu sýningar era fyrirhugaðar föstudaginn 22. og laugar- daginn 23. september. Gamanleikurinn fjaUar um þau landsfrægu hjón Bibbu og Halldór og var sýndur við mikla aðsókn sl. vor. Sýningar urðu samtals 22 og var uppselt á þær allar. I hlutverkum hjónanna Bibbu og Hall- dórs era þau Edda Björgvinsdóttir og Júlíus Brjánsson. Með önnur stór hlut- verk fara: Jóhann Sigurðarson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Bríet Héðins- dóttir, Rúrik Haraldsson, Kjartan Bjarg- mundsson og Bessi Bjamason. Höfundar gamanleiksins era Edda Björgvinsdóttir, Júlíus Brjánsson og Gísli Rúnar Jónsson, sem jafnframt er leikstjóri. Gríniðjan býður starfshópum, félaga- samtökum og stórfjölskyldum afslátt á gamanleikinn. Veitingahúsin „Óperakjallarinn" og „Við Tjömina“ bjóða upp á sérstakt afsláttarverð á matseðli sínum fyrir leik- húsgesti Gríniðjunnar. Gamanleikurinn „Brávallagatan - Am- araesið" verður aðeins sýndur í takmark- aðan tíma. Ljósmyndasýning í Slunkaríki Sýning á ljósmyndaverkum Arthurs Bell verður opnuð laugardaginn 2. sept- ember í Slunkaríki á lsafirði. Arthur Bell er Bandaríkjamaður og stundaði nám í Ijósmyndun við Listahá- skóla Chicagóborgar og var m.a. undir leiðsögn hins heimsfræga ljósmyndara Aaron Siskind. Bell hefur sýnt myndir sínar víða í Bandaríkjunum og Mið-Ameríku, en sýningin í Slunkaríki er sú fyrsta héma megin Atlantshafs. Sýningin stendur til 17. september og er opin fimmtudaga-sunnudaga kl. 16:00- 18:00. Heyrnar- og talmeinastöð íslands: Móttaka á Austurlandi Móttaka verður á vegum Heymar- og talmeinastöðvar lslands í Heilsugæslu- stöðinni á Neskaupstað fimmtud. 28. sept., Reyðarfirði föstud. 29. sept. og Egilsstöðum laugard. 30. sept. og 1. okt. Þar fer fram greining heymar- og talmeina og úthlutun heymartækja. Sömu daga, að lokinni móttöku Heymar- og talmeinastöðvarinnar, verður almenn lækningamóttaka sérfræðings í háls-, nef- og eymalækningum. Tekið er á móti viðtalsbeiðnum f Heilsugæslustöðvum á viðkomandi stöðum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.