Tíminn - 14.09.1989, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 14. september 1989
Tíminn 17
GLETTUR
-- Hertu upp hugann, kæra frú. Ef þú vilt koma lagi
á fjármálin hjá þér, þá settu öll greiðslukortin þín
hérna í rifuna oq lokaðu svo auqunum...
... en góðu fréttirnar eru þær, -að þú þarft ekki að
þvo bílinn um helgina...
- En það er eitt sem mér líkar ágætlega við hann
son þinn sem nemanda,.. hann mætir svo sjaldan
í skólann
- Ég er bara allt of þunnur til að geta spilað golf í
dag... við skulum heldur koma aftur upp á spítala
að skera einhvern upp... .
Shelley lét setja saman þessa mynd af sér, eins og hún var þegar hún byrjaði kúrinn og þegar árið ’88 var liðið. Það var
mikill munur að sjá hana á myndunum, og þá fannst henni það mikill kostur hvað hún var allt í einu orðin létt á fæti!
Shelley Winters segir frá:
Pundin hrynja burt-
en koma stundum aftur
Leikkonan Shelley Wint-
ers hefur allt sitt líf verið
hætt við að fitna um of. Hún
er nú orðin 67 ára, er fædd f
St. Louis, Missouri í Banda-
rfkjunum 18. ágúst 1922.
Shelley segist hafa farið í
ótal megrunarkúra um æv-
ina, og að minnsta kosti 20
sinnum losað sig við 20 pund,
- en þau hafi bara komið
smátt og smátt aftur.
Shelley Winters fékk Osc-
ars-verðlaunin fyrir „besta
aukahlutverk" í myndinni
„Dagbók Önnu Frank“ og
„A Patch of Plue“ og var
. tilnefnd til verðlauna fyrir
leik sinn í myndunum „A
Place in the Sun“ og „The
Poseidon Adventure“
Megrunarsamtókin
OA(líktogAA)
Á síðastliðnu ári var
leikkonan orðin 210 pund,
en þá fór hún í megrunarkúr
í „Línunni“, eða samsvar-
andi félagsskap í Bandaríkj-
unum, þ.e. „Overeaters An-
onymous" og er byggt á
svipuðum reglum og AA-
samtökin gegn ofdrykkju.
Shelley segist fá mikinn
styrk frá vinum sínum í sam-
tökunum, og þegar henni
finnst hún vera að falla í ofát
og sælgætisbruðl, þá hringir
hún í ofboði í einhvem félag-
ann.
Þegar árið 1988 var á enda
runnið hafði Shelley losnað
við 60 pund (ensk pund) og
fór nú að hafa gaman af að
máta föt og fá sér eitthvað
nýtt sem sýndi nýja vöxtinn.
Nú var hún um 75 kíló, eða
150 pund.
„Það er mikils virði fyrir
þá sem eru að reyna að gæta
að holdafarinu, að hafa nóg
að gera og eins verða þeir að
gæta þess, að hafa ekki nein
fitandi matvæli í kæliskápn-
um. Einungis grænmeti og
ávexti sem hægt er að fá sér
sem aukabita," segir Shelley
Winters við þá sem em að
reyna að grenna sig.
En þessi mynd er ný af Shelley Winters og Jackie Stallone
(t.v.) sem er móðir Sylvester Stailone. Þær eru báðar
klæddar nokkuð sérkennilega. í myndatexta er spurt kald-
ranalega, hvort nærliggjandi listasöfn hafi athugað hvort
rænt hafi verið málverki eftir Picasso, því að jakkinn hennar
Shelley se eins og listmálari í mikium ham hafi Iátið penslana
dansa yfir efnið. Shelley virðist hafa fengið nokkur aukakðó-
in á sig aftur eftir megrunarkúrinn í fyrra