Tíminn - 14.09.1989, Qupperneq 17

Tíminn - 14.09.1989, Qupperneq 17
Fimmtudagur 14. september 1989 Tíminn 17 GLETTUR -- Hertu upp hugann, kæra frú. Ef þú vilt koma lagi á fjármálin hjá þér, þá settu öll greiðslukortin þín hérna í rifuna oq lokaðu svo auqunum... ... en góðu fréttirnar eru þær, -að þú þarft ekki að þvo bílinn um helgina... - En það er eitt sem mér líkar ágætlega við hann son þinn sem nemanda,.. hann mætir svo sjaldan í skólann - Ég er bara allt of þunnur til að geta spilað golf í dag... við skulum heldur koma aftur upp á spítala að skera einhvern upp... . Shelley lét setja saman þessa mynd af sér, eins og hún var þegar hún byrjaði kúrinn og þegar árið ’88 var liðið. Það var mikill munur að sjá hana á myndunum, og þá fannst henni það mikill kostur hvað hún var allt í einu orðin létt á fæti! Shelley Winters segir frá: Pundin hrynja burt- en koma stundum aftur Leikkonan Shelley Wint- ers hefur allt sitt líf verið hætt við að fitna um of. Hún er nú orðin 67 ára, er fædd f St. Louis, Missouri í Banda- rfkjunum 18. ágúst 1922. Shelley segist hafa farið í ótal megrunarkúra um æv- ina, og að minnsta kosti 20 sinnum losað sig við 20 pund, - en þau hafi bara komið smátt og smátt aftur. Shelley Winters fékk Osc- ars-verðlaunin fyrir „besta aukahlutverk" í myndinni „Dagbók Önnu Frank“ og „A Patch of Plue“ og var . tilnefnd til verðlauna fyrir leik sinn í myndunum „A Place in the Sun“ og „The Poseidon Adventure“ Megrunarsamtókin OA(líktogAA) Á síðastliðnu ári var leikkonan orðin 210 pund, en þá fór hún í megrunarkúr í „Línunni“, eða samsvar- andi félagsskap í Bandaríkj- unum, þ.e. „Overeaters An- onymous" og er byggt á svipuðum reglum og AA- samtökin gegn ofdrykkju. Shelley segist fá mikinn styrk frá vinum sínum í sam- tökunum, og þegar henni finnst hún vera að falla í ofát og sælgætisbruðl, þá hringir hún í ofboði í einhvem félag- ann. Þegar árið 1988 var á enda runnið hafði Shelley losnað við 60 pund (ensk pund) og fór nú að hafa gaman af að máta föt og fá sér eitthvað nýtt sem sýndi nýja vöxtinn. Nú var hún um 75 kíló, eða 150 pund. „Það er mikils virði fyrir þá sem eru að reyna að gæta að holdafarinu, að hafa nóg að gera og eins verða þeir að gæta þess, að hafa ekki nein fitandi matvæli í kæliskápn- um. Einungis grænmeti og ávexti sem hægt er að fá sér sem aukabita," segir Shelley Winters við þá sem em að reyna að grenna sig. En þessi mynd er ný af Shelley Winters og Jackie Stallone (t.v.) sem er móðir Sylvester Stailone. Þær eru báðar klæddar nokkuð sérkennilega. í myndatexta er spurt kald- ranalega, hvort nærliggjandi listasöfn hafi athugað hvort rænt hafi verið málverki eftir Picasso, því að jakkinn hennar Shelley se eins og listmálari í mikium ham hafi Iátið penslana dansa yfir efnið. Shelley virðist hafa fengið nokkur aukakðó- in á sig aftur eftir megrunarkúrinn í fyrra

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.