Tíminn - 14.09.1989, Síða 5

Tíminn - 14.09.1989, Síða 5
Fimmtudagur 14. september 1989 Tíminn 5 „Landamæraskærur um starfssviö heilbrigöisstétta taka nýja stefnu: Ofaglærðir heilsuliðar á heilsugæslustöðvar? Hugmyndin er út af fyrir sig einföld. Hún gengur út á það að búa til nýja heilbrigðisstétt en gert er ráð fyrir því að í störf þau sem hún á að annast fáist hvort eð er ekki fólk sem er menntað sem hjúkrunarfræðingar eða sjúkraliðar,“ sagði Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir þegar hann var spurður um nýja starfsstétt sem hugmyndir eru um að komi til starfa við heilsugæslustöðvar, svonefnda heilsuliða. í drögum að skilgreiningu á starfs- aðstoðar við þetta þá yrði ég auðvit- sviði þessara starfsmanna sem hér- að miklu fljótari að afgreiða málið." aðslæknir Austurlands, Stefán Þór- „Við erum satt að segja bæði hefur sett á blað, segir undrandi og hneykslaðar yfir þessari annsson meðal annars að heilsuliðar skuli taka á móti sjúku og smáslösuðu fólki og veita aðhlynningu þar til læknir eða hjúkrunarfræðingur kem- ur til skjalanna. Þá skuli heilsuliðamir aðstoða fólk við að afklæðast og klæðast, þrífa áhöld og verkfæri á skiptistof- um, fylla á hjúkrunarvörur og gera annað sem til fellur í dagsins önn og vera læknum, hjúkrunarfræðingum og öðmm til aðstoðar og auka afköst þeirra. Um afkastaaukann sagði Stefán Þórarinsson: „Tökum mjög algengt dæmi úr mínu starfi: Slasaður maður kemur á heilsugæslustöðina og ef enginn er til staðar fyrir utan mig til að taka á móti manninum eins og oft kemur fyrir, þá verð ég að finna, þvo og hreinsa sárið, tína til áhöld og lyf sem þarf að nota og kannski í miðjum klíðum sækja eitthvað sem ég hef gleymt. Hefði ég einhvem til tillögu. í þessu sambandi höfum við bent á tillögur okkar í sambandi við breytingar á lögum um sjúkraliða á síðasta ári. Þar bentum við einmitt á ástandið á heilsugæslustöðvunum sem menn hyggjast bæta úr með þessari nýju stétt,“ sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkra- liðafélags íslands. Kristín sagði það Ijóst að vemlega vantaði fólk til starfa á heilsugæslu- stöðvunum. Fullur vilji væri hjá sjúkraliðum að vinna bæði innan og utan hjúkmnarsviðs sem í reynd þýðir að vinna hvort heldur sem er undir stjóm lækna eða hjúkmnar- fræðinga én lög um sjúkraliða kveða á um að þeir skuli einvörðungu vinna undir stjóm hjúkmnarfræð- inga. Þess vegna væri sjúkraliðum fyrirmunað að vinna á heilsugæslu- stöðvum. í fyrra var lögum um sjúkraliða breytt á þann veg að nú bera þeir ábyrgð á störfum sínum gagnvart hjúkmnarfræðingi en áður bar hjúkmnarfræðingur ábyrgð á störfum sjúkraliða. „Þegar unnið var að lagabreyting- unni um stöðu sjúkraliða bentum við á stöðuna á heilsugæslustöðvun- um og skort á fólki til að vinna þessi störf sem í tillögunni er gert ráð fyrir að heilsuliðar vinni og hve bilið milli hjúkmnarfræðinga og sjúklinga er orðið mikið og að vanti orðið tengil- ið þama í milli,“ sagði Kristín. Hún sagðist ekki sjá annað en einfaldast væri að lögum um sjúkra- liða yrði breytt þannig að þeir mættu vinna undir stjóm læknis ekki síður en hjúkmnarfræðings og þar með ætti þetta vandamál að vera úr sögunni. „Lögunum var nýlega breytt og því skyldi ekki vera hægt að breyta þeim aftur þannig að sjúkraliðar geti annast þessi störf?“ sagði Kristín. - Til hvers þarf þá að búa til nýja stétt í heilbrigðisgeiranum. Eiga heilsuliðar ekki að annast störf sem sjúkraliðar geta sem hægast unnið? Guðjón Magnússon aðstoðarland- læknir sagði að sjúkraliðar væm ekki menntaðir eða þjálfaðir til að vinna um það bil helming þeirra starfa sem ráð væri fyrir gert að heilsuliðar önnuðust. Þá væri ekki gert ráð fyrir að sjúkraliðar störfuðu við heilsgæslustöðvar og í lögum um þær væri aðeins gert ráð fyrir að ríkið geiddi laun lækna og hjúkmn- Sambandið sendir bréflega umkvörtun til Seðlabanka og viðskiptaráðherra: Kraf a um að lög gildi um Lúðvík „Við höfum skrifað bæði við- skiptaráðherra og Seðlabanka og farið við þá fram á að séð verði til að bankaráðsmenn fari að lögum og reglum í sínum ummælum. Að okkar mati er um greinilegt trúnaðarbrot að ræða hjá bankaráðsmanninum Lúðvík Jósepssyni auk þess að farið er rangt með tölur,“ sagði Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambands ís- lenskra samvinnufélaga í gær. Hann sagði það ekkert gamanmál að menn væm að fleipra með tölur eins og gert hefði verið. Það væri trúnaðarbrot og hugsanlegt brot á landslögum. Auk þessa hefðu verið hafðar uppi getgátur um hugsanleg viðbrögð erlendra fjármálastofnana. „Ég held að í raun geti enginn einn maður staðið undir að bera ábyrgð á slíku fleipri," sagði Guðjón. Guðjón sagði að fram kæmi í ársskýrslu Sambandsins að skulda- staðan í júní s.I. var 8,6 milljarðar og væri þar allt með talið. Veltan hefði síðastliðið ár verið 16,5 mill- jarðar þannig að miðað við umsetn- ingu væri skuldsetningin ekki mikil á íslenskan mælikvarða og mörg fyrirtæki skulduðu mun meir miðað við umsetningu og hefði það vart þótt tiltökumál hingað til. Þá væm skuldirnar í Landsbankanum mun minni en þær tölur sem fleiprað hefði verið með. Þar bæm hundruð milljóna króna í milli. Skuldir þessar væm og á engan hátt óeðlilegar. Guðjón sagði að Sambandið hefði um alllangt árabil staðið fyrir mikilli Guðjón B. Ólafsson. uppbyggingu víða um land. At- vinnurekstur þess hins vegar gengið misjafnlega og í sumum tilfellum ekki nógu vel. Þá hefði það vegið þungt þegar fjármagnskostnaður rauk upp úr öllu valdi fyrir tveim til þrem ámm. Þannig hefðu tiltölulega miklar skuldir sem þegar hvíldu á Sambandinu vafið gríðarlega upp á sig. Um Samvinnubankann sagði Guðjón að staða hans væri mjög sterk og hann afar vel rekinn. Það væri því fullkomið ábyrgðarleysi að vera að fleipra með fullyrðingar um veika stöðu hans, enda ættu þær við engin rök að styðjast. Guðjón var spurður um merkjan- legan skaða Sambandsins af síendur- teknum ummælum Lúðvíks Jóseps- sonar að undanförnu. Hann sagði að enn væri hann ekki áþreifanlegur en menn hlytu að gera ráð fyrir því að það gæti hann orðið og sagði síðan: „Ef til einhvers áþreifanlegs skaða kemur þá held ég sannast sagna að enginn einstaklingur sé borgunar- maður fyrir slíku.“ Aðspurður um hugsanlega máls- höfðun sagðist Guðjón ekkert vilja tjá sig um slíkt á þessu stigi. arfræðinga við þær-ekki sjúkraliða. Um hina nýju stétt sagði Guðjón síðan: „Hugmyndin með þessu er sú að mæta þörfum heilsugæslustöðva á minnstu stöðunum út um land en þessir starfsmenn eiga að geta gengið í flest störf án þess endilega að vera sérfræðingar í neinu þeirra." Hann sagði jafnframt að hér væri um að ræða mjög viðkvæmt mál gagnvart öðrum heilbrigðisstéttum sem gætu haft þá skoðun á þessum hugmynd- um að í framkvæmd færi hin nýja stétt inn á þeirra verksvið. Stefán Þórarinsson héraðslæknir á Egilsstöðum samdi drög að náms- og starfslýsingu fyrir stétt heiisuliða. Hann sagði að hjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöðvum ynnu nú meir en áður tíðkaðist að margs konar heilsuvernd m.a. í heimahúsum. Verkefni þeirra hefðu aukist mjög og því væru þeir ekki til staðar á stöðvunum að sinna þessum störfum sem ætlunin er að heilsuliðar sinni. Stefán sagði að sjúkraliðar væru menntaðir til að aðstoða við hjúkrun inni á sjúkrahúsum. Engu að síður væri í sjálfu sér ekkert því til fyrir- stöðu að hans áiiti að þeir sinntu þessum störfum. Vandinn væri bara sá að sjúkraliðar væru hörgulstétt á sama hátt og hjúkrunarfræðingar. Það vantaði hreinlega sjúkraliða út um allt. Hugmyndin um heilsuliðana væri til komin vegna þess að það vantaði, einkum á smærri heilsugæslustöðv- um úti um land, fólk til að sinna þessum störfum. „Ég lít svo á að menntun eða þjálfun til þessa starfs gæti orðið áfangi hjá þeim sem halda vildu áfram að mennta sig til sjúkra- liða og áfram til hjúkrunarfræðings, röntgentæknis eða hvaða starfs ann- ars sem vera kann innan heilsugæsl- unnar, í stað þess að hafa þetta eins og nú er í afskiptum básum og fólk rífist og klórist á yfir skilrúmin milli starfsgreinanna. Það væri nær að hafa eina sérgreinda heilsugæslu- braut i framhaldsskóla- og sérskóla- kerfinu þar sem fólk getur farið eins langt og það vill eða getur, „ sagði Stefán Þórarinsson. - sá Frá slysstað á Reykjanesbraut í gærmorgun. Taka þurfti þakið af bflnum til að ná ökumanninum út, en hann var einn í bflnum. Tfmamynd Árnl Bjama Gærdagurinn einkenndist af ótrúlegum sofandahætti í umferðinni: 24 árekstrar á 11 tímum Tveir menn voru fluttir á slysa- deild eftir mjög harða aftaná- keyrslu á homi Reykjanesbrautar og Bústaðavegar í gærmorgun. Annar mannanna slasaðist á hendi, en hinn kenndi eymsla í baki og hálsi. Áreksturinn varð með þeim hætti að bifreið af Trabant gerð var ekið norður Reykjanesbraut á vinstri akrein og stöðvast við gatna- mót Reykjanesbrautar og Bústaða- vegar, þar sem umferðarljósin voru að skipta frá grænu yfir á rautt. Ungur maður sem ók Suzuki bif- reið, í sömu átt á hægri akrein Reykjanesbrautar á eftir stórri rútu, sér að ljósin eru að skipta og að rútan muni stoppa. Hann ætlar sér sjálfur yfir gatnamótin og fer því yfir á vinstri akrein, en hefur þá ekki séð til Trabant bifreiðar- innar vegna rútunnar og skiptir engum togum að hann lendir aftan á Trabantinum sem var stopp. Trabantinn hendist norður yfir gatnamótin og upp á umferðareyju sem þar er, en Suzuki bifreiðin hendist áfram norður eftir Reykja- nesbrautinni og útaf henni að aust- anverðu. Að sögn lögreglu var dagurinn í gær í einu orði sagt hrikalegur, hvað árekstra varðar. Frá því klukkan sex í gærmorgun til að verða fimm síðdegis var lögreglan kölluð til í 24 skipti vegna stærri og minni árekstra, þar af voru fjórar þriggja bíla aftanákeyrslur. Ekki urðu slys á fólki, að aftanákeyrsl- unni á Reykjanesbraut undanskil- inni. Þá var ekið á dreng á reiðhjóli á Laugalæk síðdegis í gær, en hann slapp með skrámur. Gera má ráð fyrir að mun fleiri árekstrar hafi orðið en þessir 24, þar sem öku- menn hafa leyst úr sínum málum á staðnum. Lögreglumaður sem Tíminn hafði tal af sagði að sofandaháttur- inn í umferðinni hafi verið ótrúleg- ur. Svo virtist sem fólk hefði ekkert verið að hugsa um hvað það væri að gera. - ABÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.