Tíminn - 14.09.1989, Page 7

Tíminn - 14.09.1989, Page 7
Fimmtudagur 14. september 1989 Tíminn 7 VETTVANGUR Úr skýrslu formanns Fjórðungssambands ISIorðlendinga, Björns Sigurbjörnssonar á þingi sambandsins fyrir skömmu: Skýrsluskrifin byggðastefnu skammt Það verkefni sem tók hvað mest- an tíma hjá stjórninni voru tillögur um verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og tekjustofnamál sveitarfélaganna. Síðasta fjórð- ungsþing ályktaði um bæði þessi mál og fól stjóminni að vinna að framgangi þeirra. Vinna Fjórðungssambands Norðlendinga, framkvæmdastjóra þess og starfsliðs, vegna þessa málaflokks var mikil og öruggt má telja að sú vinna skilaði góðum árangri. Mjög ítarleg kynning fór fram meðal sveitarstjórnarmanna á Norðurlandi. Fjórðungssamband- ið stóð fyrir fundarferð um allt Norðurland í samstarfi við stjóm Sambands íslenskra sveitarfélaga 7. og 8. mars í vetur. Fjórir fundir vom haldnir, 2 á Norðurlandi vestra og 2 á Norður- landi eystra, um 90 sveitarstjómar- menn mættu á þessa fundi. Sveit- arstjómarmenn höfðu uppi efa- semdir um einstaka þætti fmm- varpanna og áherslur vom misjafn- ar. í umsögn um fmmvarpið benti fjórðungsstjóm á nokkra þætti sem að hennar áliti máttu betur fara en áhersla var lögð á að Alþingi samþykkti lögin. Það kom fram mjög sterkur vilji sveitarstjómar- manna um að Alþingi samþykki þessi lög. Markmiðið með breyttri verkskiptingu er að gera samskipti ríkisins og sveitarfélaganna ein- faldari. Auka fjárhagslegt sjálf- stæði sveitarfélaganna og koma á valddreifingu. I vor vom þessi lög bæði sam- þykkt á Alþingi. Lagasetning þessi á sér langan aðdraganda og margar ríkisstjómir hafa unnið að málinu. Verkskiptingin og tekjustofnamál hafa verið eitt aðalumræðuefni sveitarstjómarmanna áratugum saman. Reynsla næstu mánaða og ára mun skera úr um ágæti iaganna, en með endurskoðun er hægt að betmmbæta ef þörf er á. Það er nauðsynlegt að stjóm Sambands ísl. sveitarfélaga og full- trúar landshlutasamtakanna fái að fylgjast mjög vel með gerð allra reglugerða þessa málaflokks og fái að hafa áhrif þar á. Um fulltrúaráðsfund Sambands íslenskra sveitarfélaga Haldnir vom tveir samráðsfund- ir með fulltrúum Norðlendinga í fulltrúaráði Sambands ísl. sveitar- félaga. Annar fundurinn sem var hald- inn 21. nóvember fjallaði að vem- legu leyti um starfshætti Sambands ísl. sveitarfélaga í framhaldi af ályktun sem gerð hafði verið á fjórðungsþinginu á Húnavöllum. A þennan fund mættu einnig full- trúar Norðlendinga úr stjóm Sam- bands ísl. sveitarfélaga til skrafs og ráðagerða. Þann 17. mars var haldinn fund- ur með fulltrúaráðsmönnum til að ræða um málefni fulltrúaráðsfund- ar sem halda átti 30. til 31. mars á Akureyri. Rædd var tillaga frá fulltrúum af Suðurlandi um störf nefndar, sem Iandsþingið 1986 kaus til að endurskoða fyrirkomu- lag kosninga þ.e. kosning stjómar og fulltrúaráðs. í tillögunum kemur m.a. fram: a) Stjóm Sambands fslenskra sveit- arfélaga verði kosin á fulltrúaráðs- fundi þess. b) Aðalfundur landshlutasamtaka sveitarfélaganna kjósi fulltrúaráð- ið hver úr sínu umdæmi. c) Kjörtímabil stjómar og fulltrúa- ráðs verði tvö ár. d) Seta í fulltrúaráði og stjóm verði ekki lengri en átta ár samfellt. Þegar þessar tillögur vom kynnt- ar á fulltrúaráðsfundinum var áhersla lögð á að tillögur nefndar- innar liggi fyrir eigi síðar en á næsta reglulegum fulltrúaráðsfundi árið 1990. Jafnrétti um orkuverð í landinu Á fundi fjórðungsstjómar 19. maí var gerð samþykkt þar sem lagt var til að allar almenningsveit- ur í landinu sitji við sama borð um verð á raforku. Rafmagnsverð til notenda verði jafnað í framhaldið af jöfnun heildsöluverðs á raf- magni. Skattlagning á raforku í smásölu miðist við sama verð á orkuein- ingu. 1 framhaldi af þessari ályktun var myndaður samstarfshópur frá Norðurlandi, Suðurlandi og Aust- urlandi. Fulltrúar Norðlendinga eru' þeir Bjarni Þór Einarsson bæjarstjóri á Húsavík og Sigurður Ágústsson rafveitustjóri á Sauðár- króki. Fundur var haldinn með iðnað- arráðherra Jóni Sigurðssyni og fleiram á Húsavík 18. júlí sl. um jöfnun raforkuverðs í landinu og var ákveðið að þiggja boð ráðherra um frekari viðræður um málefnið síðar í haust. Þetta er stórmál sem skiptir miklu fyrir landsbyggðina og veltur á miklu að samstarfshópurinn nái árangri. Oft hefur veirð þörf á samstöðu landsbyggðarmanna, en nú er nauðsyn ef koma á í veg fyrir enn frekari byggðaröskun. Atvinnuhorfur ém fremur dökk- ar og við þurfum virkilega að halda vöku okkar í þeim málaflokki. Byggðastefna er ekkert annað en hugtak sem hver og einn fyllir inn í með eigin skilgreiningu. Ræt- ur byggðastefnu liggja í atvinnuá- standi, samgöngum og þeirri þjón- ustu sem boðið er upp á á lands- byggðinni. Athuganir hafa verið gerðar um nánast alla hluti, allt frá jarðganga- gerð, hafnarmannvirkjum til loð- dýraræktunar. Margt hefur áunnist en skýrslur einar duga skammt. Skýrslur sem gerðar hafa verið og eiga að hjálpa okkur til að: Koma í veg fyrir stöðnun og samdrátt. Koma i veg fyrir að fólk flytjist á brott. Koma í veg fyrir að fyrirtæki lokist. Koma í veg fyrir að norðlensk byggð leggist af til sjávar og sveita. Því miður hafa þær flestar aðeins orðið orðin tóm og enn ein skýrsla í skúffu eða rykfallið uppi í hillu, meðal annars vegna þess að sjaldn- ast hefur verið útvegað það fjár- magn til góðra verkefna sem til þurfti til að hrinda þeim f framkvæmd. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi segir svo í kvæði sínu Byggð deyr: Hvaðerað gerast, hvaðerá seyði, hvort er það illt eða gott? Enn hefur fjörður farið í eyði og fólkið tiörfað á brott. Engin er þörf að þakka né gæla við þjóðlega viðurstyggð. Auðnin nægir til eftirmæla um íslenska- dauða byggð. Síðar segir Davíð: Hörku þarf til að heyja strfðið við hafrót, frost og kröm. Sé kjamanum hafnað, en kosið hýðið er komið á ystu þröm. Ef napur gustur norrænna vetra næðir um slitna flík, hyggur æskan, að allt sé betra í annarri Grundavík. Það er einmitt sú hætta sem nú virðist vera hver mest að menn haldi að allt sé betra annarstaðar en heima hjá sér og sæki í raun oft vatnið yfir lækinn. Ef við, sem hér emm, norðlensk- ir sveitarstjómarmenn og einnig þingmenn þessara tveggja kjör- dæma sem mynda Norðurland kynnum mál okkar vel, undirbúum þau vel, komum fram sem einn samstæður hópur, getum við náð árangri og náð góðum málum fram. Við verðum að varast að láta hrepparíg verða þess valdandi að mál komist ekki í framkvæmd. Haft hefur verið á orði að lands- byggðin sé sjálfri sér verst, því allir vilji fá allt til sín, en sjái ofsjónum yfir velgengni nágrannans. Er þetta ástæðan fyrir því að ekki hefur þokast meir en raun ber vitni? Fyrir um 100 ámm sagði Einar Benediktsson skáld í Dagskrá: „Mesti og besti auður hvers iands, er fólkið sjálft, sem lifir þar, hugsar og starfar.“ Mesta auðlind Norðurlands ligg- ur í fólkinu sjálfu sem býr hér. Óteljandi möguleikar eru fyrir hendi til að skapa heilbrigt mannlíf sem hefur upp á að bjóða allt hið besta. Við verðum að standa fast í ístaðið og gefa hvergi eftir. Eilífur barlómur gerir illt verra. Vissulega steðja að okkur gífurleg vandamál, en það er ekki í fyrsta sinn sem slfkt gengur yfir landsbyggðina. Einhvemtímann var sagt að erfið- leikarnir væm til að sigrast á. í upphafi af Gullna hliðinu segir Davíð Stefánsson: „Aldimar lfða. Kynslóðimar hverfa. En hvað er það, sem bömin erfa? Við sem emm í forsvari sveitarfé- laganna reynum að leggja gmnn að því að gott mannlíf blómgist hér í byggðum Norðurlands, þannig að afkomendur okkar geti fundið sér hér lífshamingju og lífsfyllingu. Við sem erum nú, verðum að standa vörð um það sem er og kappkosta að leggja gmnn að framtíð sem vekur vonir þeirra sem erfa eiga landið. Til að svo megi verða má ekkert til spara: ekki fjármagn, ekki þekk- ingu, en fyrst og fremst verðum við að starfa saman, til heilla norð- lenskri byggð og um leið fyrir þjóðarheill. Bjöm Sigurbjörnsson skólastjóri LESENDUR SKRIFA Hin nýju líffræðivísindi „Ný vísindi um lífið“ (A new science of life) nefndist bók, sem kom út í Englandi árið 1984, og hafði ég fyrir áeggjan vinar míns, Nýalssinna, sem nú er látinn, skrifað um höfundinn nokkru fyrr. En sá nefnist Rupert Sheldrake og er líf- efnafræðingur. Fannst kunningja mínum nafn hans hljóma vel, og hafa á sér hreinlegan, norrænan svip. Gerðí hann sér í hugarlund, að Sheldrake væri knár maður og karl- mannlegur og sópaði að honum, en sannleikurinn er sá, að hann mun ekki vera neitt mikill fyrir mann að sjá, heldur grannur á vöxt, unglings- legur og óvenjulega lágvær í tali, svo að ekki sópar að honum á þann hátt. En því meira bragð er að rithætti hans, þekkingu og hugsun! í því hafði félaga mínum síst skjátlast, og hefur þar mikið vatn til sjávar mnnið síðan. Það eru ekki margar vísinda- bækur á þessari öld, sem hafa kallað yfir sig yfirlýsingar um nauðsyn bókabrennu, allrasíst frá jafn hátt- virtu tímariti og „Nature", en sjálfur aðalritstjóri þess lét sér sæma að komast þannig að orði um bókina „Ný vísindi". Enda hefur R.A. Wil- son skrifað: „Rupert Sheldrake er umdeildasti vísindamaður þessarar aldar“. Það þarf varla að taka fram, að hinar illvígu árásir urðu til þess að vekja athygli á bókinni og auka sölu hennar umfram allt annað. - En svo að örstutt sé vikið að viðbrögðum slíkra manna við kenn- ingunni um formskapandi aflsvæði (morphogenetic fields) og ástæði (morphic resonance) þá em það þrjú atriði, sem fara fyrir brjóstið á þeim öllu öðru fremur. 1. fjarhrif („aaad“, hvort sem er á líffræðilegu sviði eða öðru vísi), 2. að minni sé eiginleiki efnisheimsins, og 3. þróun- arskilningur (evolution, framvinda). Þessi þrjú atriði em hin mesta ögmn við vísindakurfa, og af þeim stafaði uppnámið út af Sheldrake 1984-5 og ýmsar deilugreinar síðan. Nú víkur sögunni upp til Borgar- fjarðardala, en þar er maður á tíræðisaldri enn að hugsa um eðli heimsins, tilgang og örlög. Þó að ellistirðleiki sé eitthvað farinn að hrjá hann, bæði líkamlega og gagn- vart almennum viðburðum, er vís-' indaleg og heimspekileg hugsun hans jafn vökul og fyrr. „Það er töluvert éftir af þessum karli enn“, hevrði ég haft eftir Sigurði á Reykj- um. I hvert skipti sem ég hef hitt hann nú um árs skeið hefur hann farið að fara um framþróunarkenninguna, í þeirri mynd sem Lamarck gaf henni um 1800, en síður eins og Darwin gerði um 1860, og þó einkum síðari Darwins-sinnar, sem ekki hirtu um, hvað Darwin sjálfur kenndi. Darwin sannaði það, sem Lamarck hafði áður skilið, skýrt, tengt og nefnt réttast allra. Hvenær sem ég hitti gamla manninn fer hann að tala um Lamarck. „Ég gæti best trúað, að Lamarck færi að koma aftur“. „Ég geri mér mestar vonir um, að við- reisnin komi frá Lamarck (í vísinda- legum efnum, og síðan annað)“, segir hann aftur og aftur. Ég hef ekki getað vikið þessu með öllu frá mér, því að mér hefur fundist vera einhver sannfæringar-hiti á bak við það, þó að mér hafi einnig komið í hug, að þetta væri eins og hvert annað elli- stagl. En ég þurfti ekki lengi að bíða, því maður kom nýlega færandi hendi, með nýja bók eftir Rupert Sheldrake: Nálægð fortíðarinnar (The Presence of the Past), gefna út árið 1986, og það er ekki um að villast, að þama er Lamarck kominn aftur, minningu hans haldið á loft og þó einkum líffræðiskilningi hans: áunninni þróun, minni lífsins (ætt- minni), náttúrulögmálin ekki eilíf, heldur sköpuð af endurtekningu og löngum vana, fjarhrif og lífaflsvæði (morphogenetic fields): vísinda- mennirnir geta orðið heimssköpuð- ir, því að hið athugaða hefur ekki tilvist sína óháða athugandanum. Það er með öðrum orðum til mikils að vinna að stunda vísindi. Að skrifa rækilega um vísindabók slíka sem „Nálægð fortíðarinnar" eftir Sheldrake er naumast auðvelt á íslandi. En til þess að gera hina ósögðu sögu stutta, skal þess getið, hvað fyrst varð fyrir augum mínum, þegar ég opnaði bókina; var þar verið að tala um „samhljóm hnatt- anna“. En það er hugtak, sem mönn- um hefur orðið tíðrætt um í vísinda- sögu, og jafnan rakið til Pýþagóras- ar. „Pýþagóras er sagður hafa fýllyrt, að raunverulega hafi hann sjálfur heyrt þessa tónlist himingeimsins, samhljóm hnattanna, enda þótt það væri, „ekki með venjulegri heyrn“, segir Sheldrake. Þetta er nokkuð, sem ég hef ekki séð áður svo skýrt fram tekið í vísindabókum. „Dular- gáfur“ og vísindasnilli er ekki sitt hvað, eins og mörgum hefur hætt við að halda, heldur náskylt. 1. sept. 1989 Þorsteinn Guðjónsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.