Tíminn - 14.09.1989, Side 9

Tíminn - 14.09.1989, Side 9
Fimmtudagur 14. september 1989 Tíminn 9 ÚTLÖND FRÉTTAYFIRLIT Ný von fyrir Norðmenn: BERN - Svissneska stiórnin ákvað í gær að greiða skjótar úr beiðnum um pólitískt hæli og efla gæslu á landamærum rikisins. Flóttamönnum, er flestir koma ólöglega til landsins, hefur fjölgað mjög að undanförnu og var því ákveðið að fjölga hinum opinberu starfsmönnum er um landvist- arleyfisbeiönir fjalla, til að grynnka á þeim 34.199 beiðn- um er bíða umfjöllunar. I síð- asta mánuði höfðu 13.872 út- lendingar hellst inn i landið, flestir Tyrkir, en Svisslendingar eru vandlátir, svo aðeins 5% umsækjenda fá óskir sínar uppfylltar. VARSJÁ - Sendiráð Vest- ur-Þýskalands austantjalds eru með vinsælli stöðum þar eystra þessa dagana. Um 50 Austur-Þjóðverjar hafa hreiðr- að um sig ( sendiráði Vestur- Þýskalands í Varsjá, í þeirri von að fá að fylgja þeim 12000 löndum sinum er þegar eru komnir vestur yfir. Þá þrauka um 180 manns enn (sendiráð- inu i Prag, þó svo um 300 séu horfnirtil sins heima. Pólverjar, sem ásamt Ungverjum eru f framvarðasveit þjóðfélags- umbóta í Austur-Evrópu, hafa ekki tjáð sig um hópferðir Aust- ur-Þjóðverja yfir hin opnu, ung- versku landamæri, en Tékkar og Rúmenar, er aftar eru á umbótamerinni, hneykslast hástöfum. MEXICO CITY - Liðsmenn skæruliðasveita I El Salvador, er eldað hafa grátt silfur við stjórnarherinn, hafa boðið vopnahlé er gerir ráð fyrir að bardögum verði hætt fyrir 31. janúar á næsta ári. Skærulið- 'arnir setja þó þau skilyrði að stjórnin beiti sér fyrir umbótum á sviði réttarfars, stjórnmála og hermála. Samningaviðræð- ur hófust í Mexíkóborg í gær. NIKOSIA - Æðsti æjatollinn i (ran, Ali Khamenei, sagði ( útvarpsviðtali í gær, að (ranar ættu aldrei að treysta Banda- rikjamönnum, hversu fleðuleg- ir sem þeir gerðust, þvi isl- amska byltingin í (ran 1979 hefði eyðilagt mikilvæga hags- muni fyrir Bandaríkjamönnum og þeir mundu seint fyriraefa það. Allt friðarhjal frá ameriskri hendi væri aðeins yfirskin nýrra tilrauna til arðráns á ír- anskri grund. Einnig barst til- kynning frá sveitum Byltingar- varðanna í (ran þar sem for- dæmd var beiðni nokkurra bandarískra þingmanna um að stjórn „hins mikla Satans „ - sem mun vera Bush veslingur- inn - styrkti liðssveitir er and- vigar eru irönskum stjómvöld- um. BEVERLY HILLS - Óþekktur aðili tók sig til og bauð 1,2 miljarða dala (Metro- Goldwyn-Mayer/United Artists kvikmyndasamsteypuna, og yfirbauð þar meo ástralska fyrirtækið Quintex, en kaup- samningur var næstum i höfn. MGM/UA-samsteypan hefur átt litlu kvikmyndagengi að fagna og erfjárhagsstaða þess svo slæm, að hinn nýi kaup- andi yrði að standa skil á tveimur milljörðum alls, ef af kaupunum verður. Getum er að því leitt að ýmis stórfyrirtæki standi að baki tilboðinu. Nefnd hafa verið nöfn á borð við Paramount, Walt Disney, News Corp og Sony. PARÍS - Verslunareigendur við glæsigötuna Ódáinsvelli - Champs Élysées - ( París kvarta sáran yfir áganai hvers kyns rumpulyðs, s.s. betlara, eiturlyfjasala, götusalaog lista- verkafalsara, er leggi bokstaf- lega undir sig gangstéttar breiðgötunnar fyrir viðskipti sín. Gangstéttir þessar virðast vel f sveit settar, þvi þess eru dæmi að höndlarar greiði allt að 120.000 krónum íslenskum á dag fyrir að fá að stunda þar viðskipti sin. Hagen hinn harðráði sameinar Noreg á ný Nýgengnar kosningar í Noregi urðu utangarðsflokki Carls Hagen sætur sigur. Kjósendur, er skildu hina hefðbundnu risa norskra stjómmála eftir úti í kuldanum, lyftu Framfara- flokki Hagens úr 2 þingsætum upp í 22 og gerðu Hagen þar með að hálfgerðum Stefáni Valgeirssyni í norskum stjómar- myndunarþreifíngum. Er nú af sem áður var, þegar enginn stærri flokkanna taldi Framafaraflokkinn svara verðan í norsku stjórnmálalífí, hvað þá að tillit þyrfti að taka til stefnumála hans. Carl Iiagen tíl hægrí ásamt varaformanni Framfaraflokksins, Pál Atle Skjervengen, og formanni ungliðahreyfingar flokksins, Thor Mikkel Wara. Mörg teikn voru þó á lofti fyrir kosningarnar um betri tíð með blóm hjá Hagen. Óánægja almennings með velferðarríki Sósialistaflokksins hefur aukist mjög á undanfömum ámm, enda æri margar brotalamir í velferðinni þar sem verðlag slær oft og tíðum jafnvel ísland út. Margir óttast að tryggingakerfið sé að verða gjaldþrota, að hluta til sökum óstjómar hjá yfirmönnum trygginga- mála. Samt fara 37% af útgjöldum ríkisins til félagsmála. Biðraðir eftir sjúkrahúsvist lengjast sífellt og margir halda nú til Bretlands í hjartaaðgerðir - á kostnað norska ríkisins. Bankastjóri norska seðla- bankans hefur opinberlega hvatt fólk til að kaupa sér tryggingar á eigin spýtur og ungt fólk kvartar undan ótöldum vandkvæðum á gæslu og skólavist fyrir böm sín. Þá þykja sósialistar hafa flækt skrif- stofuveldi hins opinbera að mun. Líkt og víðar á Norðurlöndum er fólk orðið langþreytt á gamalkunn- ugum andlitum stjómmálamanna er ekkert virðast bæta ástandið, þrátt fyrir áralanga setu í valdastólum. Hagen kemur inn í myndina sem ferskur blær, 45 ára markaðs- fræðingur er nam fræði sín í New- castle í Bretlandi. Um árabil starfaði hann hjá bresku sykurfyrirtæki og landar hans nefna hann því „sykur- drenginn", enda maðurinn hinn föngulegasti og hefur lag á að hrífa áheyrendur sína með sér. Hann getur leyft sér að dansa diskódansa í sjónvarpinu og tefla á tæpasta vað í ummælum. Þá hefur hann hár- lakksbrúsann alltaf til reiðu, ef fjöl- miðlar skyldu rekast inn. Gro Bmndtland tekur hins vegar engin spor í sjónvarpssölum og þykir ekki líkleg til að „sjarmera“ tilheyrendur sína. Norskum ökuþórum fannst lítið til um er forsætisráðherrann boðaði nýjan skatt á bensínlítrann er kostar 53 krónur í þessu landi flóandi olíuauðlinda. Ekki er þó einvörðungu við stjóm sósialista að sakast, enda draga. Norðmenn á eftir sér timburmenn fjárfestingafyllerís í byrjun áratugar- ins, undir ríkisstjórn Hægri flokksins. Lögðust þá frændur vorir í hið mesta bílífi, keyptu sumarhús með fjörðum fram, snekkjur og sportbíla, hver sem betur gat. Síðan kreppti að, húsin, bátar og bílar hurfu aftur í eigu kaupleigufyrir- tækjanna og fasteignaverð hrapaði um 30%. Vofa atvinnuleysis knúði dyra hjá 200.000 manns, tekjuskatt- ar spmttu í 60%, bifreiðagjöld í 100%, og matarskattur í 20%. Andstaða við innflytjendur vex hraðbyri, Oslóbúar neita að senda böm sín í skóla með börnum 50.000 innflytjenda, flestra af asísku bergi, sprengjur hafa spmngið í afdrepum innflytjenda og tveir Pakistanar vom stungnir til dauða í sumar. Hagen er slíkum óánægjuöldum sannkallað lausnarorð. Hann hyggst lækka tekjuskatt úr 60% í 35% og aðstöðugjald í 25%. Hann vill selja ríkisfyrirtæki, þar á meðal eyðslu- klóna Statoil, boðar einkaspítala og aukið val í skólamálum, auk þess sem hann vill skella hurðum á inn- flytjendur. Loks verður „sósialur- inn“ tekinn rækilega til endur- skoðunar, fái Hagen sínu framgengt. Eftir er að sjá hversu lausan taum aðrir flokkar gefa honum. Fram, þjáðar leyniþjónustur... Frá Moskvuborg með ástarkveðju Tfðkast þau nú, hin breiðu spjótin. Á blaðamannafundi, er KGB-leyniþjónustan sovéska hélt nýverið, voru viðstaddir „trakterað- ir“ á tveimur heimildarmyndum, er færðu áhorfendum heim sanninn um að starfsemi KGB væri öll að færast í betra horf. Eftir sýningu myndanna svaraði yfirmaður leyniþjónustunnar, Vlad- imir Kryuchkov, spurningum No- vosti-fréttastofunnar og spáði því þá m.a. að samvinna KGB og vest- rænna starfsbræðra mundi aukast verulega á næstunni í málum þar sem báðir hefðu sameiginlegra hags- muna að gæta. „Við erum hlynntir samvinnu og góðu sambandi... margir eru þeir glæpir er virða engin landamæri og ef okkur á að auðnast að berjast gegn þeim með áhrifarík- um meðulum, verðum við að hafa nána samvinnu við Vesturlönd, „ sagði Kryuchkov. Hann tilgreindi sérstaklega hryðjuverkastarfsemi, smygl og eiturlyfjaverslun er hann sagði ryðja sér stöðugt meir til rúms innan landamæra Sovétríkjanna. Blaðamannafundir og heimilda- myndagerð heyra til nýmæla í ranni KGB og þótti hvoru tveggja tíðind- um sæta, þó stofnunin og starfsemi hennar hafi komið æ meir fram í dagsljósið síðan Gorbatsjov tók við völdum. Ýmsir forsvarsmenn leyni- þjónustunnar sátu fyrir svörum á fundinum og voru vestrænir blaða- menn viðstaddir. Einn þeirra spurði hvort KGB hefði í hyggju að hætta símahlerunum og fékk greið svör, á þá leið að slíkt væri ekki lengur tíðkað nema um sérstaka glæparann- sókn væri að ræða. Einnig sögðust hvítþvegnir fulltrúar leyniþjónust- unnar hættir að leggja andófsmenn og aðra pólitíska andstæðinga stjómvalda í einelti, þótt ekki segi þeir allir sömu sögu. Mal Palestínuaraba: Verður útlögum leyfð þátttaka? Reuters-fréttastofan hafði eftir ónefndum forsvarsmanni PLO-sam- takanna í gær, að Bandaríkjamenn hefðu fallist á að veita palestínskum útlögum hlutdeild í samningum við ísraelsmenn um væntanlegar kosn- ingar á hemumdu svæðunum. Hin ónefnda heimild hermdi að Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hefði fært Yasser Arafat, leiðtoga PLO, þessi tíðindi á fundi þeirra í Túnis á föstudag. PLO lagði til, í síðustu viðræðum aðila, 14. ágúst sl., að palestínskum útlögum yrði heimilað að vera með í ráðum varðani væntanlegar kosn- ingar, en fulltrúi Bandaríkjamanna hafnaði þá þeirri málaleitan. ísraels- menn voru einnig andsnúnir tillög- unni, enda viðurkennir Ísraelsríki ekki að Palestínumenn í útlegð séu aðilar mála. Frétt þessi mun ekki hafa fengist staðfest í bandarískum garði og segir PLO að ágreiningur um efni og umfang viðræðna muni einnig geta hamlað fundi aðila. Ermarsundsgöng Eftir eitilharða samkeppni er sænsk-svissneska rafverktakafyr- irtækið Asea Brown Boveri búið að hreppa samning um fram- leiðslu á fjörutíu 6-axla eimreið- um er draga skulu lestir um Ermarsundsgöngin nýju eftir fjögur ár. ABB mun annast verk- ið í samkrulli við breska fyrirtæk- ið Brush Eletrical Machines og féll þeim verkið út á framúr- stefnulegan dráttarbúnað, byggð- an á örtölvustýringu, er sam- starfsaðilamir nefna þrífasa knúningstækni og mun hún valda sáralftilli loftmengun í göngun- um. Folksfjöldi í heiminum: 11 milljarðar eftir öld? Talið er að jarðarbúar séu nú um 5.2 miiljarðar og samkvæmt spám bandarísku manntalsskrifstofunnar má gera ráð fyrir að mannkyni fjölgi um einn milljarð á hverjum tíu árum, a.m.k. næstu þrjátíu ár. Um næstu aldamót mun þá mannkyn ná 6.2 milljörðum og 8,2 milljörðum árið 2020. Ekki er talið fjarri lagi að 11 milljarðar manna hrærist á jörðu hér árið 2050. Af fjölgun næsta áratugar er að- eins gert ráð fyrir að um 7% - þ.e. um 70 milljónir - verði í löndum Evrópu, Norður-Ameríku, Sovét- ríkjanna, Japan og Ástralíu saman- lagt. Hins vegar er búist við 110 milljónum í Mið- og Suður-Amer- íku, 260 milljónum í Afríku og 280 milljónum í Indlandi og löndum SA-Asfu. Alls er óljóst hvemig fæða skuli og klæða þennan fjölda og telja má Iíklegt að fjárhagur ríkja þriðja heimsins eigi síst eftir að fara batn- andi. Samanlagðar skuldir þriðja heims ríkja munu nú nema 1,2 billjónum bandarískra dála.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.