Tíminn - 14.09.1989, Side 10

Tíminn - 14.09.1989, Side 10
10 Tíminn Fimmtudagur 14. september 1989 Fimmtudagur 14. september 1989 Tíminn 11 Hjúkrunarfræðingar stuðla að umræðu um iila meðferð á börnum á íslandi, en þessi mál virðast nokkuð öðruvísi hér en á öðrum löndum Mkýí UWm , : W$s éHs mm Ofbeldið Eftir Sigrúnu S. Hafstein „111 meðferð á börnum bæði andleg og líkamleg virðist útbreiddara og alvarlegra vandamál hér á landi en íslendingar gera sér almennt grein fyrir og umræðan um þessi mál hefur farið lágt.“ Þetta eru upphafsorð tilkynningar sem Hjúkrunar- félag íslands hefur sent fjölmiðlum vegna námstefnu sem tvær deildir félagsins standa fyrir dagana 21. og 22. september næstkomandi. Deild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga og deild barnahjúkrunarfræðinga efna til námstefnunnar og vilja með því opna umræðuna um þessa dökku hlið samfé- lagsins. Einnig telja hjúkrunarfræðingar að opnari umræða um illa meðferð á börnum sé fyrsta skrefið til lausnar vandans. Engar rannsóknir verið gerðar 111 meðferð á börnum er skilgreind sem líkamlegt og andlegt ofbeldi, líkamleg og andleg vanræksla og kynferðislegt of- beldi. Síðastnefndi þátturinn hefur verið í vaxandi mæli til umræðu meðal fag- manna en einnig hefur umræðan í fjöl- miðlum aukist mjög mikið. Er það talin helsta skýringin á því að sifjaspellsmál sem tekin eru til meðferðar hjá Barna- verndarnefndum eru mun fleiri en áður. Tuttugu slík mál voru tekin fyrir hjá Barnaverndarnefnd Reykjavíkur á síð- astliðnu ári. Engin rannsókn hefur verið gerð hér á landi um illa meðferð á börnum og er samanburður við önnur lönd hvað þetta varðar byggður á tilfinningu þeirra sem til þekkja hér á landi og annarsstaðar. Þess má geta að til umræðu hefur verið að gera könnun, þar sem tekin yrði fyrir ill meðferð á börnum, á viðkomandi stofnunum, eins og slysadeildum, barna- deildum og geðdeildum, en hvort sem um er að kenna tímaskorti eða áhugaleysi hefur enn ekki orðið af framkvæmd slíkrar könnunar. Fremur vanræksla en misþyrmingar Gunnar Sandholt framkvæmdastjóri Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er einn fyrirlesara á námstefnunni. í samtali við Tímann sagði Gunnar að þær tölur ; sem Félagsmálastofnun og Barnavernd- arnefnd hafa tekið saman byggðu ekki á sömu greiningu og er notuð á spítölunum. Tölur um afskipti Barnaverndarnefndar segðu þó til um alvarlegri þætti þessara mála og þar væri vanræksla meira áber- andi en grófar líkamlegar misþyrmingar. . „Þá er einnig þess að gæta að það er ekki gefið að allt líkamlegt harðræði gagnvart börnum komi til meðferðar hjá Barna- verndarnefnd. Það hefur mikið verið talað um að slíkt eigi sér stað án nokkurra afskipta og segja má að þessi umræða sé ný af nálinni. Þannig að starfsfólk á heilbrigðisstofnunum, dagheimilum og skólum er að verða meira vakandi fyrir þessum hlutum en áður.“ Gunnar sagði jafnframt að tilfinning manna væri sú að minna væri um grófar misþyrmingar á börnum hér á landi en í nágrannalöndunum. Vanræksla, aftur á móti væri jafnmikil eða jafnvel meiri hérlendis. „Þarna endurspeglast að ein- hverju leyti almenn viðhorf. Það eru . ýmsir þættir sem hægt er að nefna mildari form, en jafnframt almennari form á vanrækslu, sem snertir þá bamagæslu, samfelldan skóladag og yfirleitt þá hlið sem nefna mætti pólitíska hlið þessara mála. Þessum málum er að mörgu leyti lakar sinnt hér en annarsstaðar. Til dæmis held ég að mér sé óhætt að segja að slysatíðni á börnum sé hærri hér landi heldur en í nágrannalöndunum.“ Flest þau mál er koma fyrir Barna- verndarnefnd og snerta illa meðferð á börnum er vegna vanrækslu og óstöðug- leika í uppeldi barnanna. Þessir þættir tengjast oft öðrum vandamálum eins og geðrænum kvillum, skertri greind eða óreglu. Sagði Gunnar að langur tími liði á milli þess að nefndin fengi til meðferðar mál þar sem um er að ræða grófar misþyrmingar á börnum. Aftur á móti hafi komið inn fleiri mál vegna kynferðis- legs ofbeldis og væri það í kjölfar aukinn- ar umræðu um þessi mál, meðal annars í fjölmiðlum. 760 málárið 1987 í ársskýrslu Félagsmálastofnunar fyrir árið 1987 segir eftirfarandi: „Aðspurðir um hvort tilvist barna hafi verið mikilvæg í vinnslu málsins, meta starfsmenn málin þannig, að þau hafi verið það í tæplega 760 málum. Þessi tala gefur okkur ein- hverja hugmynd um það hvað starfsmenn telja alvarleg barnaverndarmál vera mörg.“ í skýrslunni kemur fram að 250 málum var vísað til Félagsmálastofnunar sérstak- lega vegna aðbúnaðar eða aðstæðna barna. I 40% tilvika var málum vegna barna vísað til stofnunarinnar vegna lélegra eða erfiðra heimilisaðstæðna. í fimmta hverju máli var um barnaverndar- kæru að ræða. Aðrar ástæður sem eru oftast tilgreindar eru í eftirtaldri röð: Skólavandi, ofbeldi á heimili, afbrot, flökkulíf og vímuefnavandi. Algengast er að eftirtaldir aðilar vísi málum af þessu tagi til stofnunarinnar: Sálfræðideild skóla, foreldrar, ættingjar, skóli, einstaklingar úti í bæ, dagvistar- stofnanir, lögregla, sjúkrahús og læknir, barnageðdeild, barnaverndarnefndir og félagsmálastofnanir úti á landi. Þá kemur fram í skýrslunni að 65% allra tilvísana vegna barna eru í hverfi III, þ.e.a.s. Breiðholtshverfum, og unglingadeild Fél- agsmálastofnunar. Enginn tengiliður við lögreglu Bonnie Laufey Dupvis lögreglumaður mun flytja erindi á námstefnunni um það meðal annars hvernig ill meðferð á börn- um birtist lögreglumönnum í starfi. Bonnie sagði í samtali við Tímann að það væru fá mál sem varða beinlínis illa meðferð á börnum sem kæmu beint til lögreglunnar. Frekar tengdist slíkt öðrum málum sem lögreglan sinnir. Það væri þá helst um að ræða óreglu á heimilum sem leiðir til þess að börn fá litla umönnun og í slíkum tilfellum væri haft samband við félagsmálastofnun. Sérstakri forvarnardeild var komið á fót innan lögreglunnar fyrir um það bil ári. í störfum deildarinnar er komið inn á þætti sem varða illa meðferð á börnum og hvernig megi fyrirbyggja hana, meðal annars með því að hvetja almenning til að hafa augun opin fyrir slíku. Aðspurð sagði Bonnie að ekki væri starfandi hjá lögreglunni sérstakur starfs- maður sem hefði umsjón með málum af þessu tagi og sinnti því að vera tengiliður milli lögreglu og Félagsmálastofnunar. Þó munu vera upp áform um það að slíkir tengiliðir taki til starfa. í dag eru það lögregluþjónarnir sem fara á staðinn sem kalla til yfirvarðstjóra sem úrskurðar í framhaldi af því hvort leitað skuli til barnaverndarnefndar og koma fulltrúar nefndarinnar þá á staðinn. „Það sem mér vanrækslan meiri Vanræksla frekar en líkamlegt harðræði einkennir illa meðferð á bömum á íslandi. persónulega finnst í sambandi við þetta er að það eru sífelld afskipti af sömu fjölskyldunum. Það virðist lítið vera gert til úrbóta hjá Félagsmálastofnun. En þeir þurfa sjálfsagt að fara eftir vissum reglum og þetta kerfi er allt mjög þungt í vöfum.“ - Eruð þið þá að hafa afskipti af sömu fjölskyldunum og koma að svipuðu ástandi hvað eftir annað? „Já, maður getur orðið mjög gáttaður á því að það hafi ekkert afgerandi verið gert, jafnvel börnin tekin af sumum fjölskyldum. En þetta er auðvitað mitt persónulega mat. Einnig er það svo, að oft virðist vera horft framhjá þessum málum hjá lögreglunni í Reykjavík, því miður." Endurskoðun laganna Frá því vorið 1987 hefur nefnd unnið að endurskoðun laga frá 1966 um vernd barna og ungmenna og er ráðgert að unnt verði að leggja lögin fyrir Alþingi á næstu mánuðum. Sigríður Ingvarsdóttir for- maður Barnaverndarráðs íslands er for- maður nefndarinnar sem hafði endur- skoðun laganna með höndum. Sigríður sagði í samtali við Tímann að í lögunum sé gengið út frá því að það séu fyrst og fremst foreldrarnir sem beri ábyrgð á börnunum. Ef hinsvegar komi í ljós að aðbúnaði, umönnun eða uppeldi barns sé áfátt vegna vanrækslu eða framferðis foreldra þá eigi Barnaverndarnefnd að láta málið til sín taka. Sigríður sagði að í tillögum nefndarinnar væru þessi atriði útfærð nánar og kveðið skýrar á um skyldur foreldra gagnvart börnunum og skyldur barnaverndaryfirvalda til að grípa inn í. Sigríður bætti við: „Þó að þetta séu sömu meginhugmyndimar og eru í núgildandi lögum, þá er reynt að hafa útfærsluna námkvæmari og þá skil- greiningu á því hvaða atriði það eru sem leiða til afskipta barnaverndaryfirvalda og hvenær er komið að því að sömu yfirvöld grípi til alvarlegra aðgerða. í núgildandi lögum er þessu meira og minna blandað saman og ekki nægilega skýrt hvenær má gera hvað, heldur er það lagt í hendur barnaverndaryfirvalda að meta slíkt.“ Sigríður sagði að ef tillögurnar næðu fram að ganga ættu allir að átta sig betur á því hverjar skyldurnar væru. Bæði foreldrar og barnaverndaryfirvöld en ekki síst tilteknar starfsstéttir sem eiga að hafa samvinnu við barnaverndaryfirvöld. Má þar nefna stéttirinnan heilbrigðisgeir- ans, kennara og lögreglu. í núgildandi lögum er kveðið á um tilkynningaskyldu bæði almennings og tiltekinna starfs- stétta. Með tillögunum verður sú breyting að reynt er að taka þennan þátt fyrir í sérstökum kafla og með því móti gert aðgengilegra fyrir alla hlutaðeigandi. 19 fyririesarar Aðalfyrirlesarar á námstefnunni verða Norðmennirnir dr. Karen Killen Heap, félagsráðgjafi og Peer Skjælaaen, yfir- læknir á barna- og unglingageðdeild. Þau hafa bæði unnið mikið starf með börnum og unglingum í Noregi, sem hafa orðið að þola illa meðferð, andlega og líkamlega. Auk þeirra verða sautján íslendingar með innlegg á námstefnunni, en þeim er ætlað að varpa ljósi á stöðu mála hér á landi á þessu sviði. Meðal þeirra sem tala á námstefnunni eru fulltrúar heilbrigðis- stétta, m.a. heilsugæsluhjúkrunar- fræðingar, barnahjúkrunarfræðingar, bamageðlæknar, félagsráðgjafar svo og fyrirlesarar úr dómskerfinu. Námstefnan er fyrst og fremst ætluð hjúkrunarfræðingum sem starfa á barna- Tímamynd Ari • deildum, heilsugæslustöðvum, sængur- kvennadeildum og slysadeildum. öðmm heilbrigðisstéttum svo og kennurum og fóstrum er boðin þátttaka. Eftir nám- stefnuna er ráðgert að starfshópur, þar sem sæti eiga fulltrúar allra heilbrigðis- stétta, finni leiðir til að starfa áfram að þessum málum. Að lokum má geta þess að deild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga er 20 ára og deild barnahjúkrunarfræðinga 10 ára um þessar mundir. Báðar eru þessar deildir innan vébanda Hjúkmnarfélags íslands sem verður 70 ára í nóvember næstkomandi. Þessar tvær deildir vilja minnast tímamótanna með því að leggja þörfu máli lið. nm —

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.