Tíminn - 14.09.1989, Qupperneq 20

Tíminn - 14.09.1989, Qupperneq 20
AUGLÝSINGASfMAR: 680001 — RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnarhúsinu v/Tryggvogötu, S 28822 SAMVINNUBANKINN í BYGGÐUM LANDSINS ÁTTHAGAFÉLÖG, FYRIRTÆKI OG EINSTAKLINGAR Glasil»gur snlur tU leigu fyrir lamkvami og fundarhöld á daginn sem á kvöldin. ..... BRAUTAHHOLTI 20. SlMI 23333 £□: ÞRttSTllR 685060 VANIR MENN Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra segir að það hafi verið staðið við fyrirheit ríkisstjórnarinnar sem gefin voru í sammngunum í vor: Vonar að kindakjötið hækki um minna en 7% Ríkisstjórnin leitar nú allra leiða til að halda verði á landbúnaðarvörum niðri. Horfur eru á að kindakjötshækk- un sem er væntanleg á næstu dögum, verði innan við 7%. I bréfi sem forsætisráðherra sendi ASÍ í gær kemur fram að hann telur að ríkisstjórnin hafi staðið við þær skuldbind- ingar sem hún gaf verkalýðssamtökunum í vor. „Ég og landbúnaðarráðherra höfum átt í viðræðum við fuiltrúa bænda þar sem farið hefur verið vandlega yfir þessi mál,“ sagði forsætisráðherra í samtaii við Tímann í gærkvöldi. „Við erum að reyna að leita allra leiða til að draga úr hækkunum á landbún- aðarvörum. Ég er sannfærður um að það ber árangur. Ríkis- stjórnin hefur þegar ákveðið að verja þeirri hækkun söluskatts sem varð þegar mjólkurvörur hækkuðu um mánaðamótin, til að greiða þær niður með ein- hverju móti. Par er um 25 miil- jónir að ræða. í þessum viðræðum hefur ein- nig verið rætt nokkuð um birgðastöðuna í kjötvörum og samkomulag er um að stjórnvöld reyni með öllum ráðum að minnka hana sem fyrst. Bændur hafa einnig fallist á að dreifa þeirri launaleiðréttingu sem þeir eiga að fá á lengra tímabil. Bændur hafa sjálfir miklar áhyggjur af þessum hækkunum og þeim er fullkomlega Ijóst að búast má við sölutregðu ef kinda- kjötið hækkar eins mikið og talað hefur verið um að það muni gera. Það hafa verið nefnd- ar tölur allt upp í 14%. Ég er að gera mér vonir um að hækkunin verði ekki nema helmingurinn af þeirri tölu.“ Forsætisráðherra hefur svarað bréfi ASÍ frá 30. ágúst síðastliðn- um en í því bréfi spurðist ASf fyrir um framkvæmd nokkurra atriða sem Alþýðusambandinu voru gefin fyrirheit um við undir- ritun 1. maí samninganna. í svari forsætisráðherra kemur fram að hann telur að það hafi verið staðið við þau fyrirheit sem • ríkisstjórnin gaf í vor. Verð- hækkanir á opinberri þjónustu hafi verið í samræmi við forsend- ur fjárlaga og hækkanir hjá ríkis- fyrirtækjum og öðrum opinber- um stofnunum hafi verið í sam- ræmi við fjárhagsáætlanir við- komandi stofnana fyrir yfir- standandi ár. Að hálfu verðlags- stofnunar hafi verið beitt ströngu aðhaldi en þurft hafi að leyfa nokkrar hækkanir sem stafi að langmestu leyti af gengisbreyt- ingum. í bréfi forsætisráðherra segir ennfremur að ríkisstjórnin hafi þegar ákveðið að verja 700 mill- jónum króna til aukinna niður- greiðslna landbúnaðarvara um- fram það sem fjárlög gera ráð fyrir. Ríkisstjórnin telur því að staðið hafi verið við loforð stjórnarinnar um að halda niður- greiðslum óbreyttum í krónum talið til áramóta. Jafnframt segir í bréfinu að vegna þeirra hækk- ana sem þegar hafa orðið á mjólkurvörum og liggja í loftinu á kjötvörum eigi -stjórnvöld í viðræðum við bændasamtökin. Vonast er til að þessar verð- hækkanir verði þegar upp er staðið minni en ráðgert hafi verið. ASÍ var með miðstjórnarfund í gær og BSRB er með stjórnar- fund í dag. Verkalýðsforingjar segjast vilja sjá hver kindakjöts- hækkunin verður áður en þeir gefa frekari yfirlýsingar um verð- lagshækkanirnar. Ögmundur Jónasson formaður BSRB sagði í samtali við Tímann að hækkan- irnar sem dunið hafa á lands- mönnum séu á skjön við það sem skýrt er tekið fram í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 1. maí. „Við ætlumst til þess að það sé staðið við samninga en það hefur ekki verið gert. Málið er ekki flóknara en það,“ sagði Ög- mundur. - EÓ Landhreinsunareldur á Keldum Kveikt var í gömlu húsi sem stóð skammt frá Keldum síðdegis í gær. Hér var um að ræða bruna sem komið var af stað, að yfirlögðu ráði, enda hefur húsið ekki verið notað til neins í langan tíma og hafði ráðsmaðurinn á staðnum og hundurinn Brúnó eftirlit með því sem fram fór. Unglingar eða full- orðnir höfðu gert sér það að leik að brjóta rúður og mölva allt sem hægt var að mölva innan dyra, auk þess sem einhverjir höfðu, oftar en einu sinni, gist í húsinu. ABÓ/Tímamynd Pjetur Tvær hvalstöðvar í næstu framtíð? Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra scgir að ef skynsamleg nýting hvalastofnanna eigi að eiga sé stað í framtíðinni þurfi að sinna því frá tveimur stöðum á landinu. Of langt sé að sigla frá einni landsstöð og því sé eðlilegt að miða við að tvær stöðvar séu fyrír hendi, önnur á Vesturlandi og hin á Austurlandi. „Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að þessa stofna eigi að nýta. Þegar við höfum fengið nægilegar upplýsingar um þá og vitum um afrakstursgetu þeirra, þurfum við að stefna að jafnri nýtingu, eftir að hafa rætt það á alþjóðlegum vettvangi. Jöfn nýting á ekki aðeins við hluta af landinu heldur landið allt. Þannig var hér áður fyrr, að þessi starfsemi var rekin í mjög miklum mæli við austurströndina og það er eðlilegt að huga að því á nýjan leik,“ sagði sjávarútvegsráðherra. Hugsanleg verðmætasköpun sagði ráðherrann að gæti verið í kringum tveir milljarðar á ári, þá af tveimur landsstöðvum, þ.e.a.s. hvalstöðinni sem fyrir er í Hvalfirði og þeirri sem væntanlega bættist við á Austurlandi. „Ég vil ekki fullyrða neitt um það en tel þó að þessi tala gæti orðið nokkuð hærri, það fer að sjálfsögðu eftir því hvað hvalastofnarnir þola mikla nýt- ingu og endanlegum niðurstöðum rannsókna. Ég held að það sé alveg ljóst að það hefur ekki átt sér stað nein ofnýting á stofnum og í reynd hafa þeir verið lítt nýttir við austanvert landið.“ Halldór sagði það seinni tíma mál hvar hugsanleg hvalstöð á Austurlandi yrði staðsett. aðstæður í austfirsku fjörðunum væru á mörgum stöðum svipaðar og þær eru í Hvalfirði. „Ég er fyrst og fremst að geta um þá mögu- leika sem menn gætu átt til að skapa meiri tekjur í landinu. Þegar dregur saman í okkar þjóðarbúskap er það nú svo að menn hafa meiri áhuga fyrir því að líta til nýrra hluta.“ - ÁG/ABÓ Texacoánú hlut í Olís í gær var undirritaður kaup- samningur milli Olíuverslunar Is- lands og Texaco Danmark APS um kaup síðarnefnda félagsins á 30% hlutabréfa í Olís. Þessi samningur skiptir Olís yniklu því að hann ræður úrslitum um viðskipti félagsins við Lands- banka íslands sem hafa verið ærið brösótt undanfarna mánuði og ár og sagði Óli Kr. Sigurðsson forstjóri og aðaleigandi Oiíss að með sölunni væri fyrirtækið laust úr kreppu. - sá

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.