Tíminn - 18.10.1989, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP
NTJTIMA FLUTNINGAR
Halnorhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
Leigjum út sali fyrir
fundi og einkasamkvæmi
og aðra mannfagnaði
Guömundur Bjarnason um hugsanlegar
úrsagnir sérfræðinga úr sjúkrasamlögunum:
Þjónustan veitt
með öðrum hætti
Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra segir að ef
sérfræðingar segi upp samningum við Tryggingastofnunina
í kjölfar upptöku tilvísanakerfis þá sé sá möguleiki fyrir
hendi að veita sambærilega þjónustu með því að efla
göngudeildir spítalanna og fyrirbyggja þannig að kostnaður
lendi alfarið á sjúklingunum. í samtali við Tímann sagði
Guðmundur að viðræður væru hafnar við sérfræðinga og
hann vonaðist til þess að samkomulag næðist um þetta mál
og ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.
„Eitt hlýtur að blasa við að ef þar veittu sérfræðingar verulegan
sérfræðingarnir segja sig upp samn-
ingum við tryggingakerfið þá þarf
sjúklingurinn að greiða sjálfur fyrir
sérfræðiþjónustuna. Það form geta
heilbrigðisyfirvöld ekki sætt sig við
og eiga þá jafnvel ekki annan kost
en að auka á ný göngudeildarþjón-
ustu sjúkrahúsanna til að geta veitt
sjúklingunum þjónustu án þess að
þeir þurfi að greiða allan kostnað,“
sagði Guðmundur í samtali við
Tímann í gær.
Samkvæmt óbreyttum lögum
kemur tilvísanakerfi sjálfkrafa til
framkvæmda um næstu áramót. Á
síðasta þingi var lögunum breytt á
þann veg að frestur var gefinn á því
að taka upp tilvísanakerfið í eitt ár
í viðbót. Þessi lagabreyting var í
samræmi við ákvæði kjarasamn-
ings sem gerður var við sérfræðinga
um síðustu áramót um að málið
yrði tekið til endurskoðunar síðar
á þessu ári í ljósi þess hvernig
samningurinn myndi reynast en
afslátt gegn fyrrnefndri frestun á
upptöku kerfisins.
Guðmundur sagði að á undan-
förnum dögum hefðu farið fram
viðræður við læknafélögin um
hvernig mætti standa að þessu
máli, en markmiðið væri að bæta
samskipti sérfræðinga og heilsu-
gæslunnar. „Málið snýst auðvitað
ekki eingöngu um kostnaðarhlið-
ina eða sparnað. Við höfum einnig
viljað hafa inn í umræðunni að
samskiptin verði betri milli heilsu-
gæslunnar annarsvegar og sér-
fræðinga hinsvegar. Þannig að
heilsugæslan geti betur fylgst með
sjúkraskrá hvers einstaklings. Því
ntiður, hvort sem mönnum líkar
betur eða verr, þá eru þessi sam-
skipti ekki í lagi í dag. Málið snýst
um það að taka upp ákveðið sam-
skiptaform og það tel ég bæði
eðlilegt og nauðsynlegt."
Guðmundur bætti því við að
sérfræðingarnir hafi haldið því
Guðmundur Bjarnason.
fram að þjónusta á einkastofnun-
um sé betri og ódýrari en inni á
sjúkrahúsunum. Heilbrigðisyfir-
völdum virtist að að sömu rök giltu
fyrir því veita þá þjónustu sem
mögulegt er á heilsugæslustöðvun-
um áður en leitað er til sérfræði-
þjónustunnar.
Guðmundur sagði að lokum að
hann vildi ekki ræða þessi mál
ítarlega í fjölmiðlum þar sem við-
ræður væru í gangi við læknafélög-
in og hann hefði ekki trú á öðrú en
samkomulag næðist. SSH
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
liminn.
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1989
Þrymur aftur til
Patreksfjarðar
í gær benti allt til þess að togskipið
Þrymur komi aftur til Patreksfjarðar
í dag, en sem kunnugt er var Byggða-
stofnun slegið skipið á uppboði í
ágústmánuði síðastliðnum. Síðast-
liðinn föstudag samþykkti Byggða-
stofnun að selja hlutafélaginu Odda
hf. á Patreksfirði Þrym fyrir 165
milljónir samkvæmt heimildum
Tímans. Fyrst í stað mun skipið leigt
meðan gengið er frá kaupsamningi.
Þorskkvóti Þryms er rúm 400 tonn.
í framhaldi af því að Stöpum hf.
lánaðist ekki að kaupa togarann
Sigurey til Patreksfjarðar á ný var
ákveðið að besta lausnin til að koma
atvinnulífinu af stað væri að gera
Odda hf., sem er rótgróið fyrirtæki
á Patreksfirði, að almenningshluta-
félagi. Samþykkti sveitarstjórn að
taka þátt í fyrirtækinu, þannig að
segja má að Oddi hf. hafi tekið við
hlutverki Stapa hf. Oddi er stærsta
fyrirtækið á staðnum, auk útgerðar-
innar starfrækir fyrirtækið fisk-
vinnslu.
Forsvarsmenn Patreksfjarðar eiga
þessa dagana í viðræðum við Fisk-
veiðasjóð um kaup á vertíðarbátun-
um Patreki sem var seldur á sjóðnum
á nauðungaruppboði í júlímánuði sl.
Stálskip vilja úrskurð
Lögfræðingur Stálskipa hf. í Hafn-
arfirði hefur krafist úrskurðar sýslu-
manns Barðastrandarsýslu um upp-
boðskostnað vegna sölu á togaran-
um Sigurey frá Patreksfirði. Við
afhendingu togarans var kaupend-
unum gert að greiða um 5.2 milljónir
króna í sölulaun til ríkisins auk þess
sem veiðarfæri voru ekki talin vera
innifalin í kaupverðinu en í öllum
veðbréfum er gert ráð fyrir að veið-
arfæri fylgi skipinu. Gera kaupend-
urnir kröfu um að veiðarfærin fylgi
með skipinu.
Ágreiningur er uppi um af hvaða
fjárhæð kostnaður við uppboðið
skuli greiðast. Til ríkisins renna 1%
í sölulaun og 24 þúsund krónur er
útlagður kostnaður við uppboðið.
Telur lögfræðingur Stálskipa að að-
eins eigi að greiða sölulaun af út-
borgun í skipið en ekki þeirri fjár-
hæð sem samið hefur verið um að
standi óhreyfð sem veð af skipinu.
SSH
Eldur í íbúðar-
húsi á Hólmavík
Eldur kom upp í íbúðarhúsi að
Höfðagötu 9 á Hólmavík í gær.
Skamma stund tók að ráð niðurlög-
um eldsins er komið hafði upp á
miðhæð hússins sem er þrjár hæðir.
Miklar skemmdir urðu á hæðinni
þar sem eldurinn kom upp, en auk
þess skemmdist innbú á efstu hæð,
þar sem einu íbúar hússins búa, ung
kona og sonur hennar. Drengurinn
var einn heima og var honum bjarg-
að út um glugga. Eldsupptök eru
ókunn.
-ABÓ
Hlutaféð nú
30 milljónir
Hlutafé Þörungavinnslunnar hf. í
Reykhólasveit hefur verið aukið úr
þrettán milljónum í þrjátíu. Nýir
erlendir hluthafar hafa bæst við og
eiga nú norskir aðilar nú 40% í
Þörungavinnslunni, Byggðastofnun
á 38,5%, en afgangur hlutfjár Þör-
ungavinnslunnar er í eigu heima-
manna.
Að sögn Bjarna Einarssonar hjá
Byggðarstofnun er hlutafjáraukning
innlendra aðila við það miðuð að
halda eðlilegu jafnvægi eignarhalds
í fyrirtækinu, þegar nýtt erlent hluta-
fé bætist við. „Þarna eru menn að
hugsa um að ná ákveðnu jafnvægi og
styrkja þetta fyrirtæki um leið“,
sagði Bjarni. Eginfjárhlutfall Þör-
ungavinnslunnar er mun sterkara á
eftir að sögn Bjarna og er gert ráð
fyrir að hagnaður verði af rekstrin-
um eftir þessar breytingar.
Fyrirtækið hefur verið rekið með
smávægilegu tapi undanfarið, en var
áður rekið með umtalsverðum halla.
Rekstur er byggir á vinnslu þörunga
getur verið sveiflukenndur milli árs-
tíða og veðurfars, en prammar þeir
sem skera þang fyrir verksmiðjuna
eru ekki verulega sjóhæfir og söfnun
hráefnis fyrir verksmiðjuna þar af
leiðandiháðj veðriogvindum.'
-ÁG
EFNAGERÐIN
lom ER FYRIRTAK
FLÓRU KAKÓ
VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI
«....
AKUREYRI
SÍMI 96-21400