Tíminn - 03.11.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Föstudagur 3. nóvember 1989
ur\rvuv> i Hnr
30. þing Kjördæmissambands fram-
sóknarfélaganna á Suðurlandi
á Hótel Selfossi, dagana 3. og 4. nóv. 1989.
Steingrímur
Hermannson
Bjarney
Bjarnadóttir
Gissur
Pétursson
Sigurður
Kristjánsson
Oddur
Gunnarsson
Paul
Richardsson
Björn S.
Lárusson
Ragnheiður
Sveinsbjörnsdóttir
GuðmundurKr.
Jónsson
Dagskra: - Föstudagur 3. nóv.
Kl. 20.00 Þingsetning. Kjörnir starfsmenn þingsins. Skýrsla formanns K.S.F.S.
Skýrsla gjaldkera K.S.F.S. Skýrsla Þjóðólfs. Umræður um skýrslur
og reikninga. Álit kjörbréfanefndar.
Kl. 21.00 Ávörp gesta.
Kl. 21.20 Stjórnmálaviðhorfið. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
flytur erindi og svarar fyrirspurnum.
Kl. 22.20 Mál lögð fyrir þingið. Nefndastörf.
Laugardagur 4. nóv.
Kl. 9.00 Nefndastörf (framhald)
Kl. 10.00 Atvinnumál í nútiðogframtið. Framsögumenn: SigurðurKristjáns-
son, kaupfélagsstjóri, Oddur Gunnarsson, iðnráðgjafi. Björn S.
Lárusson, markaðsfulltrúi. Paul Richardsson, framkvæmdastjóri.
Ferðaþjónusta bænda. Pallborðsumræður.
Kl. 12.00 Matarhlé.
Kl. 13.00 Sveitarstjórnarkosningarnar, Ragnheiður Sveinbjörnssdóttir Hafnar-
firði, Guðmundur Kr. Jónsson Selfossi, Andrés Sigmundsson
Vestmannaeyjum. - Umræður.
Kl. 14.30 Nefndir skila áliti. Umræður. Afgreiðsla mála.
Kl. 16.00 Kosningar.
Kl. 17.00 Þingslit.
Kl. 20.00 Árshátíö K.S.F.S. að Hótel Selfossi.
(Með fyrirvara um breytingar)
Kjördæmissamband framsóknarfélaganna á Suðurlandi.
Kvöldfagnaður K.S.F.S.
Haldinn í Hótel Selfossi laugardaginn 4.
nóvember 1989.
Húsið opnað kl. 19.30.
Borðhald hefst kl. 20.00.
Matseðill:
Rjómalöguð grænmetissúpa.
Glóðarsteikt lambafillet með bakaðri kartöflu,
salati og grænmeti.
Mintu- og kókostriffle.
Dagskrá:
Ávörp.
Gamanmál.
Einsöngur: Loftur Erlingsson.
Karl Sighvatsson leikur „dinner“-músík.
LÚDÓ og STEFÁN
Borðapantanir á Hótel Selfossi í síma 22500.
Allir velkomnir - Góða skemmtun
Loftur Erlingsson
Skagfirðingar -
Sauðárkróksbúar
Stefán
alþingismaður
Stefán Guðmundsson alþingismaður verður með viðtalstíma föstu-
daginn 3. nóvember kl. 16-19 í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki.
REYKJAVÍK
Létt spjall á laugardegi
Laugardaginn 4. nóvember kl. 10.30 verður rabbfundur, „Létt spjall
á laugardegi", haldinn í Nóatúni 21.
Fulltrúaráðið
Á myndinni eru m.a. Sigurður Líndal prófessor, Smári Geirsson höfundur bókarinnar og Jón Böðvarsson ntstjori
Iðnsögu íslendinga. Timamynd Árni Bjarna
„Frá eldsmíði til eleksírs“
Út er komin fjórða bókin í Safni
til iðnsögu íslendinga, „Frá eldsmíði
til eleksírs" eftir Smára Geirsson
fyrrverandi skólameistara Verk-
menntaskóla Austurlands á Nes-
kaupstað. Þetta er fyrra bindið að
iðnsögu Austurlands. í bókinni er
fjallað um prentiðnað, bókband,
efnaiðnað, skinnaverkun og málm-
iðnað á Austurlandi. Höfundur
bókarinnar vann að hcimildasöfnun
í tvö ár. Hann ferðaðist um allt
Austurland og talaði m.a. við 136
menn. Bókin er um 300 síður og
hana prýða rösklega 200 myndir.
Aður hafa komið út þrjú bindi í
Safni til iðnsögu íslendinga. Þau eru
„Eldur í afli“, saga málmiðnaðar á
19. öld og á fyrri hluta 20. aldar eftir
Sumarliða íslejfsson, „Ull verður
gull“, saga ullariðnaðar á síðari
hluta 19. aldar og á 20. öld eftir
Magnús Guðmundsson og „Brotin
drif og bílamenn", saga bifvéla-
virkjunar frá upphafi fram að síðari
heimsstyrjöld eftir Ásgeir Sigur-
gestsson. Nú er unnið að fjórum
nýjum bókum í Safni til iðnsögu
Islendinga. Ritstjóri verksins er Jón
Böðvarsson fyrrverandi skólameist-
ari. - EÓ
BYGGINGARNEFND
ÞJÓÐARBÓKHLÖÐU
MÓTMÆLIR
Tilraun til
manndráps:
Sex ára
fangelsi
Hæstiréttur hefur dæmt 25 ára
Reykvíking, Víði Kristjánsson í
sex ára fangelsi fyrir tilraun til
manndráps. Gæsluvarðhald Víð-
is frá 15. nóvember sl. kemur til
frádráttar refsingu. Víðir stakk
mann um fertugt með hníf á
heimili þess síðamefnda að
morgni sunnudagsins 13. nóvem-
ber 1988.
Tildrög málsins voru þau að
mennirnir tveir hittust í miðbæ
Reykjavíkur á laugardagsnótt og
bauð maðurinn Víði með sér
heim í íbúð í vesturbæ Reykja-
víkur. Til ósættis mun hafa komið
milli mannanna og lagði Víðir til
mannsins með stórum hníf og
stakk hann í kviðarhol. Hann
hlaut mikil meiðsl af, enda hnífs-
blaðið um 20 sm langt og 4 til 5
sm breitt. Að svo búnu fór Víðir
úr íbúðinni, en manninum tókst
að gera lögreglu viðvart. Víðir
var síðan handtekinn síðdegis á
sunnudeginum og hefur hann sætt
gæsluvarðhaldi frá 15. október á
fyrra ári. -ABÓ
Byggingarnefnd Þjóðarbókhlöðu
ákvað á fundi sínum 31. október að
skrifa menntamálaráðherra bréf, þar
sem því yrði mótmælt, hversu bæði
lögin um þjóðarátak til byggingar
Þjóðarbókhlöðu 1986 og lögin um
Þjóðarbókhlöðu og endurbætur
menningarbygginga 1989 hafa verið
þverbrotin. Þótt lagðar hafi verið á
684 m. kr. samkvæmt fyrri lögunum,
hefur einungis 249 m. kr. enn verið
ráðstafað til bókhlöðunnar.
f seinni iögunum frá í vor er
tvívegis tekið fram, að verja skuli
sjóðnum, sem myndaður skal, í
upphafi til að Ijúka byggingu Þjóðar-
bókhlöðunnar. Þ.e. „þar til bygg-
ingu Þjóðarbókhlöðu er lokið, skal
sérstakur eignarskattur samkvæmt
lögum þessum renna til þeirra fram-
kvæmda eftir því sem þörf krefur“,
eins og segir að lokum í ákvæði til
bráðabirðga.
í 8. grein laganna segir svo:
„Sjóðsstjórn ákveður framlög úr
sjóðnum í byrjun hvers árs, þegar
fjárlög hafa verið samþykkt." Þrátt
fyrir þetta ákvæði og hin fyrrnefndu
um forgang Þjóðarbókhlöðu, eru
fjárlagasmiðir þegar búnir að ráð-
stafa sjóðnum fyrirfram, eins og
fjárlagafrumvarpið fyrir árið 1990
sýnir, og skeyta þar í engu um
ákvæði laganna.
Til framkvæmda við Þjóðarbók-
hlöðu 1990 eru einungis ætlaðar 60
m. kr. úr hinum nýja sjóði, þótt
ráðgert sé að leggja á 270 m. kr. En
Háskóla íslands síðan ætlað að
leggja byggingarsjóði bókhlöðunnar
til 60 m. kr. af happdrættisfé sínu.
Þessu hafa forráðamenn Háskólans
og margir fleiri mótmælt harðlega,
eins og kunnugt er.
Skorað er á menntamálaráðherra
og Alþingi að sjá til þess, að fyrr-
nefndum lögum verði fylgt og bók-
hlöðunni tryggt það fé, sem henni
ber samkvæmt þeim. Jafnframt, að
ríkisstjórnin standi við þau fyrirheit,
er hún gaf í stefnuyfirlýsingu sinni
haustið 1988, að lokið verði bygg-
ingu Þjóðarbókhlöðu innan fjögurra
ára, þ.e. á árinu 1992.
Foreldrafélag misþroska barna:
Hyggja á stofnun
Norðurlandsdeildar
Foreldrafélag misþroska barna
hefur í hyggju að stofna Norður-
landsdeild á morgun þann 4. nóv-
ember ef nægur áhugi er fyrir hendi.
Starfsemi félagins hefur einkum
verið bundin við Stór-Reykjavíkur-
svæðið, en þar eru félagar flestir og
boðið er upp á flesta þá þjónustu
sem þessum börnum stendur til
boða, auk þess sem þar eru allir
stjórnarmenn búsettir. Félagið hefur
á stefnuskrá sinni að færa úr kvíarnar
og stendur til að stofna fyrstu deild-
ina í félaginu.
Þann 4. nóvember nk. kl. 14.00
verður haldinn fundur í Síðuskóla á
Akureyri. Gestir fundarins verða
þau Sigrún Sveinbjörnsdóttir, sál-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Svæðisstjórnar um málefni fatlaðra,
Geir Friðgeirsson, barnalæknir og
Matthías Kristiansen formaður For-
eldrafélags misþroska barna. Sigrún
mun ræða um misþroska barna
almennt, Geir útskýrir ýmislegt
tengt greiningu og Matthías segir frá
störfum og skipulagi foreldrafélags-
ins. Að þessum erindum loknum
mun verða stofnuð deild, Norður-
landsdeild, ef áhugi er fyrir hendi.
Allt áhugafólk, jafnt foreldrar
sem fagfólk er hvatt til þess að mæta
á fundinn og eru allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir. - ABÓ
Foreldrafélag misþroska barna hefur
gefið út bækling til að kynna mis-
þroska.
v^1.\
}/1
' PA
Er barn þitt \ \
óvenjulega ™
ÓRÓLÉC1! fí
i ‘J V
■y
Eru vandamálin svo mikil og langvarandi aö þaö
veldur vandræðum heima, hjá nágrönnunum, I
leikskólanum eöa i skölanum ? Á bamiö í erfiöleikum
meö aö lesa og skrifa ?