Tíminn - 12.12.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Þriójudagur 12. desember 1989
Miklar breytingar á vaxtabótum sem samþykktar voru s.l. vor:
Vaxtabæturnar lækkaðar
áður en þær taka gildi
Hafa menn menn í fjármálaráðuneyti misreiknað sig á
því hvað ríkið kæmi til með að greiða í vaxtabætur á
komandi hausti? Eða þóttu þær kannski of ríflega skammt-
aðar þegar nánar var að gætt? Meðal skattalagabreytinga
sem fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um eru
margar breytingar á hinum nýju vaxtabótum sem sam-
þykktar voru á Alþingi s.l. og eiga að taka gildi frá
áramótum. Flestar miða þær að almennri lækkun bótanna
frá enn gildandi lögum. En auk þess á að „stoppa í göt“ í
núverandi lögum.
Annars vegar að koma í veg fyrir
að menn gætu notið fullra vaxta-
bóta þrátt fyrir tugmilljóna eignir
t.d. í spariskírteinum. Og hins
vegar að koma að nokkru í veg
fyrir nýjan „ekknaskatt" sem
óbreytt lög hefðu í mörgum tilfell-
um valdið.
Ein veigamesta breytingin er sú,
að sú vaxtaupphæð sem menn
verða að borga bótalaust hækkar
úr 5% í 6% af tekjum (tekjuskatts-
stofni). Af þessari breytingu leiðir
t.d. að einstaklingur með 900
þús.kr. árslaun fær ekki vaxtabæt-
ur fyrr en greiddir vextir fara yfir
54.000 kr. í staðinn fyrir 45.000 kr.
nú.
í öðru lagi eru upphæðir há-
marks vaxtabóta lækkaðar frá
6.700 kr. til einstaklings upp í
11.500 kr. til hjóna. Hámark vaxta-
bóta miðað við verðlag í desember
1988 er samkvæmt núgildandi
lögum:
Einstaklingar 95.000 kr.
Einstætt foreldri 125.000 kr
Hjón__________________155.000 kr.
í frumvarpi fjármálaráðherra
eru upphæðir miðaðar við láns-
kjaravísitölu í desember 1989, sem
hefur hækkað um 19,7% frá fyrri
viðmiðun. Þar er gert ráð fyrir að
hámark vaxtabóta verði eftirfar-
andi (innan sviga hverjar upphæðir
væru með 19,7% hækkun frá des.
1988):
Einstakl. 107.000 kr. (113.700)
Eins.for. 140.000 kr. (149.400)
Hjón 174.000 kr. (185.500)
Á hinn bóginn er gert ráð fyrir
hærri eignamörkum áður en eignir
valda skerðingu á vaxtabótum
einkanlega hjá einstaklingum.
Þessi mörk (m.v. hækkun láns-
kjaravísitölu frá des. 1988) eru nú
2.035 þús.kr. fyrir einstaklinga og
einstæð foreldri og 4.070 þús. fyrir
hjón. 1 frumvarpinu hækka þær í
2.500 þús. og4.150 þús. Vaxtabæt-
ur falla niður þegar eignaskatts-
stofn nemur tvöföldum þessum
upphæðum.
Við útreikning vaxtabóta er nú
sett undir „leka“ í gildandi lögum
hvað varðar eignaskattsstofninn.
Eftir breytinguna verður miðað
við allar framtalsskyldar eignir
(m.a. skattfrjáls ríkisskuldabréf
húsbréf) að frátöldum skuldum.
Þá er nú lagt til að sett verið
„þak“ á leyfilegan vaxtafrádrátt á
ári: 400 þús.kr. hjá einstaklingi,
525 þús.kr. hjá einstæðu foreldri
og 650.000 kr. hjá hjónum. Þetta
„þak“ er hins vegar svo hátt að t.d.
tekjur hjóna geta farið upp undir 8
millj.kr. á ári áður en þær valda
skerðingu bótanna.
Samkvæmt gildandi lögum hefðu
vaxtabætur lækkað og jafnvel fallið
niður við fráfall annars hjóna sem
rétt eiga á bótum. í frumvarpinu er
lagt til að eftirlifandi maki, sem
situr í óskiptu búi skuli fá vaxtabæt-
ur eins og um hjón væri að ræða
næstu fimm árin eftir lát maka.
-HEI
Fræðslurit
um eldvarnir
Brunamálastofnun ríkisins hefur
gefið út upplýsingarit um eldvarnir í
iðnaðar- og atvinnuhúsnæði.
í ritinu er fjallað meðal annars um
brunavarnir frá sjónarhóli Raf-
magnseftirlitsins, viðbrögð við elds-
voða, tegundir elds, ábendingar til
forráðamanna fyrirtækja og val á
viðvörunar og slökkvibúnaði.
í inngangi brunamálastjóra kemur
fram að á undanförnum árum hcfur
orðið nokkur öfugþróun hér á landi
hvað brunatjón varðar. Nokkrir
stórbrunar hjá atvinnufyrirtækjum
hafa árlega orðið til þess að bruna-
tjón hér á landi hafa vaxið frá því að
vera með þeim lægstu í heimi á íbúa
upp í það að vera sambærileg við
brunatjón í hinum stóru iðnríkjum
Vesturlanda. SSH
. aOVARKIR
I ÍONAÐAfl- OG
atvi
BR'IJNAMAIA
STOfNUN
KÍKÍSINS
Bergsteinn Gizurarson brunamálastjóri með bæklinginn sem Brunamála-
stofnun hefur gefíð Út. Tímamynd: Pjelur
Uppsafnaður söluskattur við kaup á aðföngum
til fiskvinnslu:
Endurgreiðsla
fellur
í ljósi óvissu um fjármögnun
endurgreiðslu vegna uppsöfnunar
söluskatts við kaup á aðföngum
fiskvinnslu hefur sjávarútvegsráðu-
neytið ákveðið að fella að svo stöddu
niður endurgreiðslu söluskatts til
fiskvinnslufyrirtækja vegna útflutn-
ings í desember 1989.
Ákvörðun um frekari endur-
greiðslu verður tekin í upphafi næsta
árs, en líkur benda til að íækka þurfi
endurgreiðsluhlutföllin, þar sem
niður
óvissa ríkir um aukafjárveitingar til
endurgreiðslu uppsafnaðs sölu-
skatts.
Söluskattur vegna útflutnings í
nóvembermánuði verður endur-
greiddur og eru endurgreiðsluhlut-
föllin eftirfarandi: frysting 2%,
rækjuvinnsla 2%, hörpudiskvinnsla
2,5%, síldarsöltun 1%, söltun 1%,
hersla 1%, mjöl- og lýsisvinnsla
2%, lyfrarlýsi 1% og ísvarin og kæld
flök 1,%. -ABÓ
aARBABA
**'> Stee„
Erik Nerlöe
SVIKAVEFUR
k»,ob»w
SKUGGSJÁ
EKKI ER ALLT SEM SÝNIST. Theresa Charles.
Annabella hafði verið yfir sig ástfangin af Davíð, og var niðurbrotin, þegar
hann fór skyndilega til Ástralíu. En hún var viss um að hann myndi snúa
aftur til hennar, þó aðrir væru ekki á sama máli.
LYKILORÐIÐ. Else-Marie Nohr.
liugo Mein biðurásamt lítilli dótturdóttursinni eftir móður litlu telpunnar.
En hún kemur ekki. Skelfingu lostinn sér gamli maðurinn að dóttur hans
er rænt. Litla telpan stendur einmana og yfirgefin. Mamma er horfin.
AUÐUG OG ÓFRJÁLS. Barbara Cartland.
Ail að bjarga föður sínum frá skuldafangelsi giftist Crisa Silas P. Vander-
hault. Nokkru síðar er Crisa orðin ekkja eftir einn af ríkustu mönnum í
Ameríku. En nú er hún eins og fangi í gylltu búri.
SVIKAVEFUR. Erik Nerlöe.
Elún hefur að því er virðist allt, sem hugurinn girnist. liún hefur enga
ástæðu til að stela, en samt er það einmitt það sem hún gerir. Eða hvað?
Er einhver að reyna að koma rangri sök yfir á hana?
ENGINN SÁ ÞAÐ GERAST. Eva Steen.
Elún er daufdumb. Mún hefur búið hjá eldri systursinni, frá því aðforeldrar
þeirra fórust í bílslysi. Systirin hefur haldið vandlega leyndu fyrir yngri
systur sinni leyndarmálinu, sem foreldrar þeirra tóku með sér í gröfina.
SKUGGSJÁ - BÓKABVÐ OUVERS STEINS SF