Tíminn - 12.12.1989, Page 4

Tíminn - 12.12.1989, Page 4
4 Tíminn Þriðjudagur 12. desember 1989 FRÉTTAYFIRLIT SAN SALVADOR - Kaþ ólski erkibiskupinn i San Sal- vador hefur sakaö Alríkislög- reglu Bandaríkjanna um að hafa heilaþvegiö konu sem var eini sjónarvotturinn aö morö- unum á sex jesúítaprestum í San Salvador og fengið hana meö þvingunum til að breyta upphaflegum framburði sínu. Konan haföi áöur sagt aö morðingjarnir hafi klæöst grænum herklæðum og benti allt til þess aö um stjórnarher- menn heföi verið aö ræöa. Eftir strangar yfirheyrslur hjá FBI breytti hún framburði sínum og sagðist ekki viss um hvort búningarnir heföu verið grænir. Bandaríkjamenn styðja af alefli rfkisstjórn San Salvador og fær El Salvador mestu hernaö- araðstoö og efnahagsaðstoö frá Bandaríkjunum aö ísrael slepptu. BERLÍN - Sendiherrar Bandamanna í Berlín hittust á fundi í Vestur-Berlín í gær og var það fyrsti fundur þeirra í átján ár. Sovétríkin, Bandarík- in, Bretland og Frakkland skiptu Þýskalandi niöur í her- námssvæði eftir síöari heims- styrjöldina og gildir sú skipting í raun enn þann dag í dag hvað Berlín varðar. Hernáms- stjórnir hinna vestrænu Bandamanna eru í raun æðstu valdhafar í Vestur-Berlín og það sama gildir um Sovétmenn í austurhlutanum. VARSJÁ - Ríkisstjórn Pól- lands sem er undir forsæti Samstööu er nú um þaö bil að ná samningum við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn um hagstæð lán upp á hundruð milljóna dollara til að rétta við efna- hagslíf landsins sem er í rústum. BONN - Vestur-þýska lög- reglan skýrði frá því að hún hafi komið í veg fyrir sprengju- árás Rauðu herdeildarinnar á rannsóknarmiðstöð iðnfyrir- tækis nærri Dusseldorf eftir að vegfarandi fann miða á götu þar sem skýrt var frá sprengju- árásinni. BELGRAD - Kommúnista- flokkurinn í Króatíu, sem er næst stærsta lýðveldið í Júgó- slavíu, fór fram á það að frjáls- ar fjölflokka kosningar færu fram í landinu og að Júgóslav- ar fylgi þannig lyðræðisþróun- inni í Austur-Evrópu. Með þessu skipa Króatar sér við hlið Slóvana gegn Serbum, en Serbía er langstærsta lýðveld- ið í ríkjasambandinu. LONDONDERRY - Þrír breskir hermenn særðust í sprengjutilræði á Norður-(r- landi og er gert ráð fyrir því að (rski lýðveTdisherinn sé að hefja sprengjuherferð nú fyrir jólin. Illllllllllllllllllllllll AÐUTAN llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^ Raddirharölínumanna í miöstjórn sovéska kommúnistaflokksins aö styrkjast á ný: Gorbatsjof bauð upp á afsögn Mikhafl Gortbatsjof forseti Sovétríkjanna bauðst til að láta af völdum á fundi miðstjórnar sovéska kommúnistaflokksins um helgina. Ástæðan var óvægin gagnrýni harðlínumanna sem vildu fá Gorbatsjof til að hægja á umbótastefnu sinni. Það var Sovétleiðtoganum ekki að skapi og sagðist hann ætla að standa staðfastur við umbótastefnu sína, en bauðst til að segja af sér embætti ef meiríhluti miðstjórnar æskti þess. Fréttaskýrendur í Moskvu telja að með því að bjóðast til að segja af sér hafi Gorbatsjof viljað styrkja stöðu sína og fá endurnýjað umboð miðstjórnar til að halda ótrauður áfram stefnu sinni og setja ofaní við harðlínumennina. Það var forsætisráðherra Eist- lands, Indrek Toome sem skýrði frá þessu í viðtali við æskulýðsblaðið Noorte Haal í Eistlandi. - Það voru ræðumenn sem lýstu yfir óánægju sinni með núverandi umbótastefnu miðstjórnarinnar, sagði Toome í viðtalinu. - Rök þeirra voru að okkur væri sífellt hrósað í hinum kapitalfska heimi og það væri nokkuð ákveðin merki þess að eitthvað væri ekki í lagi. Gorbatsjof gat ekki látið þessu ósvarað og sagði: „Ef þetta er skoðunin, við munum ræða það mál, þá er ég ekki að halda í stöðu mína. Þetta er lífsstarf mitt. Það er ekki minn háttur að sjá ofsjónir, ég mun ekki gefa eftir,“ hafði forsætisráð- herra Eistlands eftir Gorbatsjof. Á fundi miðstjórnar tók Gorbat- sjof mjög ákveðið fram að forystu- hlutverk sovéska kommúnista- flokksins yrði ekki skert í Sovétríkj- unum í náinni framtíð, þó einhvern tíma gæti komið að því að stjórnar- skrárákvæðið sem tryggir forystu- hlutverk flokksins yrði numið úr gildi. Yfirlýsing Gorbatsjof þessa efnis er andsvar þeirrar ákvörðunar Lít- háa um að koma á fót fjölflokkakerfi í sovétlýðveldinu og afnema forrétt- indi kommúnistaflokksin. Um helgina fóru fram sveitar- stjórnarkosningar í Lettlandi og Eistlandi. í Lettlandi er næsta víst að Þjóðfylkingin hlaut um það bil 60% atkvæða, en óljóst er hvernig úrslitin urðu í Eistlandi. Kasmír: Herskáir múslímar hefta áfengissölu Herskáir múslímar sem berjast fyrir aðskilnaði Kasmír, eina hérað- inu í Indlandi þar sem múslímar eru í meirihluta, náðu að loka síðustu áfengisútsölu héraðsins sem er í einkaeign. Múslímarnirsem tilheyra herskáum hóp er kallar sig Tígrar Allah stormuðu gráir fyrir járnum inn í síðustu vínverslunina í Sringar og kröfðust þess að dyrum verslunar- innar yrði lokað að eilífu. Annars virtist í gær allt stefna í að svo færi, enda hafa yfirvöld í Kasmír komið að einhverju leyti til móts við kröf- urnar. Innanríkisráðherra Indlands er múslími og sá fyrsti slíkur sem gegnir því embætti. Hann tók við í síðustu viku þegar V.P. Singh for- sætisráðherra myndaði nýja ríkis- stjórn Indlands. Mikhail Gorbatsjof forseti Sovétríkjanna bauðst til að segja af sér er harðlínumenn gagnrýndu stefnu hans. Hlýtt haust í Prag, eftir tuttugu ára hret: Kommúnistar í minni- hluta í nýrri stjórn Ný ríkisstjórn tók við völdum í Tékkóslóvakíu á sunnudag- inn og er það fyrsta ríkisstjórnin í fjörutíu ár þar sem kommúnistar eru ekki í meirihluta. Á sama tíma sagði harðlínumaðurinn Gustav Husak af sér embætti forseta, en hann hefur haldið um valdataumanna frá því Vorið í Prag var kæft af herjum Varsjárbandalagsins árið 1968. Er talið að andófsmaðurinn og leikritaskáldið Vaclav Havel muni taka við sem forseti landsins, en Havel er helsti leiðtogi Borgara-' legs vettvangs sem neytt hefur kommúnista til umbóta og til að láta af forystuhlutverki sínu. fengi blóð eigandans að fljóta um gólfin. Yfirvöld í Kasmír þrjóskast hins vegar við að loka sínum áfengisútsöl- um, en þeirra er gætt af vopnuðum vörðum. Nokkrir hópar múslíma berjast vopnaðri baráttu gegn yfirvöldum í Kasmír. Samkvæmt trú þeirra er áfengisneysla bönnuð og sýnir lokun fjölmargra staða í einkaeign þar sem áfengi hefur verið á boðstólum, að hinir herskáu múslímar hafa víðtæk áhrif í héraðinu. Þeir gerðu sitt til að koma í veg fyrir að fólk greiddi atkvæði í jjingkosningunum á dögunum og tókst það bærilega, því kjörsókn losaði ekki 30 prósentin. Sumir hópanna vilja að Indlands- hluti Kasmír verði sameinaður Pak- istan, en einn þriðji héraðsins lenti þeim megin landamæranna þegar ríkin hlutu sjálfstæði frá Bretum. Aðrir vilja að Kasmír verði samein- að að nýju og hljóti fullt sjálfstæði. Um helgina bættu herskáir músl- ímar um betur og rændu dóttur innanríkisráðherra Indlands og hót- uðu að myrða hana ef fimm félagar þeirra yrðu ekki leystir úr haidi. Stjórnvöld í Pakistan hvöttu músl- ímana til að þyrma dótturinni og Forsætisráðherra í hinni nýju stjórn er kommúnistinn Marian Calfa, en auk hans eru níu ráðherrar úr kommúnistaflokknum. Hins veg- ar eru sjö ráðherrar óflokksbundnir, tveir koma frá Sósíalistaflokknum og tveir frá Þjóðarflokknum, en þessir flokkar hafa feneið að starfa mjög takmarkað unair járnhæl kommúnista gegnum tíðina. Calfa skýrði frá því á blaðamanna- fundi eftir fyrsta ríkisstjórnarfund hinnar nýju stjórnar, að ríkisstjórnin væri einungis bráðabirgðastjórn sem muni stjórna landinu fram að frjáls- um kosningum sem gætu verið haldnar í júnímánuði. Calfa skoraði á alla þá Tékka og Slóvana er flúið hafa Tekkóslóvakíu að koma aftur, annaðhvort til að heimsækja föðurland sitt eða setjast þar að á ný. - Dyrnar standa öllum opnar, sagði forsætisráðherrann. Það var mjög táknrænt að í gær var hafist handa við að rífa niður landamæragirðinguna að Austur- ríki, en Tékkar ákváðu það í síðustu viku að nema járntjaldið illræmda á brott. Þess má geta að hin nýja ríkis- stjórn hefur í undirbúningi að leita til vestrænna ríkja um efnahagsað- stoð, en efnahagslíf landsins er í kaldakoli líkt og efnahagslíf flestra Austur-Evrópuríkj a.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.