Tíminn - 12.12.1989, Page 7

Tíminn - 12.12.1989, Page 7
Þriðjudagur 12. desember 1989 Tíminn 7 llllllllllllllllllllllllllll VETTVANGUR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Þórarinn Þórarinsson: Omakleg árás á Olaf Jóhannesson Lúðvík Jósepsson á mikinn þátt í sögu landhelgismálsins og því ekki undarlegt að hann hefur á efri árum séð ástæðu til þess að skrifa bók um þennan þátt sinn í sögunni. Það kemur heldur ekki á óvart að hann gerir hlut sinn góðan. Hitt kemur hins vegar á óvart að hann vegur mjög óvægilega og ómaklega að Ólafi Jóhannessyni og reynir að gera hlut hans sem minnstan og verstan. Sú mannlega skýring er til á þessu að Ólafur gnæfir hæst af þeim sem komu við sögu landhelgisbaráttunnar á þessum árum og Lúðvík virðist óttast að hann skyggi á sig. Það er óumdeilanlegt að forusta í landhelgismálum við útfærslur fiskveiðilögsögunnar í 12 mílur og síðar í 50 mílur hvíldi mest á herðum Ólafs bæði sem forsætis- ráðherra og sem dómsmálaráð- herra og yfirmanns landhelgisgæsl- unnar. Þessu forustuhlutverki gegndi Ólafur með miklum sóma og er því almennt talinn í hópi merkustu stjórnmálamanna Is- lands á þessari öld. Hann markaði sér í upphafi stefnuna með þeim orðum að sýna bæri einbeitni og festu með hæfiiegri gætni. Þessi orð einkenndu alveg sérstaklega stjórn hans á landhelgisgæslunni. Því urðu árekstrarnir við Breta á hafinu hættuminni en búast mátti við ef tillit er tekið til liðsmunar. Lúðvík áfellist Ólaf fyrir að hafa sýnt linkind og stundum gefið varð- skipunum fyrirmæli um að halda að sér höndum. Hér verður að gæta þess að bæði mannslíf og skip voru í hættu ef fyllstu hörku væri ávallt beitt. Bresku togaraskip- stjórarnir heimtuðu sífellt að stjórn þeirra veitti þeim aukna herskipa- vernd en hún þráaðist við, m.a. vegna þess að hún lá undir þrýstingi frá öðrum NATO-ríkjum að þjarma ekki úr hófi fram að íslend- ingum og neyða þá þannig til brottgöngu úr NATO sem hefði getað orðið upphafið að upplausn þess. Það er rétt hjá Lúðvfk að Islendingar lágu einnig undir þrýst- ingi frá NATO en þó voru Bretar sennilega undir enn meiri þrýstingi frá samtökunum sem hvöttu þá til að fara gætilega. Það var Ólafur Jóhannesson sem tók þá ákvörðun í byrjun þorska- stríðsins um 12 mílna útfærsluna að beita klippunum svonefndu en þær reyndust mjög áhrifamikil vopn; þess vegna varð að beita þeim með gætni. í viðtali við Baldur Möller, sem var ráðuneytisstjóri í dómsmála- ráðuneytinu, er birt er í Ólafsbók, er að finna glögga lýsingu á ástand- inu á miðunum á þessum árum, en Baldur hafði öðrum betri aðstæðu til að fylgjast með þessum málum. Baldur lýkur viðtalinu með þessum orðum: „Ólafur sýndi landhelgisgæsl- unni, skipherrum varðskipanna og áhöfnum þeirra mikið traust og hann sýndi það í verki að hann mat réttilega og skildi þá sífelldu hættu sem þeir voru í við þessar sérstöku aðstæður. Að tillögu Ólafs var ákveðið að varðskipsmönnum skyldu greidd 10% áhættuþóknun ofan á laun. Ólafur bar hag landhelgisgæsl- unnar mjög fyrir brjósti og vildi að hún yrði sem best búin tækjum á sjó og í lofti og sótti fast á um fjárveitingar. Einkum efldist land- helgisgæsla úr lofti í ráðherratíð hans. Það má telja mikla gæfu að ekki skyldi hljótast af mannskaði og meiri háttar tjón í þessum hættu- legu átökum. Hér voru mestu hags- munamál íslensku þjóðarinnar í veði, sjálfur lífsgrundvöllur hennar. Það var ekki síður gæfa þjóðarinnar að eiga Ólaf Jóhannes- son sem leiðtoga á þessum viðsjár- verðu baráttutímum.“ Undir þessi orð Baldurs Möller má hiklaust taka hvað sem líður hinum afbrýðifullu ummælum Lúðvíks Jósepssonar, enda er Baldur Möller viðurkenndur einn heiðarlegasti og grandvarasti emb- ættismaður þjóðarinnar á þessum tíma. Það kemur fram í bók Lúðvíks að í raun hafi viðræður Ólafs Jóhannessonar við Edward Heath verið óþarfar því samkvæmt ensk- um blöðum á þeim tíma hefðu margir breskir togaraskipstjórar neitað að láta úr höfn vegna ónógr- ar herskipaverndar á íslandsmið- um. Þetta var vitanlega gert til þess að leggja áherslu á kröfur um aukna herskipavernd. Hefði það svo bæst við að íslendingar hefðu neitað viðræðum við Breta hefði það styrkt þessar kröfur. Viðræð- urnar við Breta drógu úr því að stjórn þeirra léti undan kröfunni um aukna herskipavernd. Morguninn áður en Ólafur svar- aði boði Heaths bað hann okkur Eystein Jónsson að koma heim til sín og sagði okkur frá boðinu. Eysteinn var fyrrverandi formaður flokksins en ég var þá formaður þingflokksins. Við hvöttum hann eindregið til fararinnar, enda var þá staðan í þorskastríðinu þannig að á hverjum degi var hægt að búast við frétt um að íslenskt varðskip hefði verið siglt niður og óvíst væri um áhöfn þess. Það hefði verið hreint ábyrgðarleysi að neita viðræðum undir þessum kringumstæðum. Sem söguritari hefur Lúðvík ein- kenni þeirra sagnamanna sem láta viljandi eða óviljandi gleymast ýmis mikilvæg atriði. T.d. finn ég hvergi í bókinni getið um þá tillögu sem Hermann Jónasson og Skúli Guðmundsson fluttu á Alþingi 1946 um uppsögn landhelgissamn- ingsins frá 1901 sem Danir höfðu gert fyrir íslands hönd. Uppsögn þessa samnings var fyrsta skrefið sem stíga þurfti til útfærslu. Sam- kvæmt ósk Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra var sú tillaga Ólafur Jóhannesson. dregin til baka en hann upplýsti að Ólafur Thors hefði falið Hans G. Andersen þjóðréttarfræðingi at- hugun þessa máls. Málið frestaðist til 1949 þegar Alþingi samþykkti uppsögn samningsins. f kjölfar þess var fiskveiðilögsagan færð út 1952, eftir að Alþjóðadómstóllinn kvað upp dóm í máli Breta og Norðmanna en samkvæmt honum var fjögurra mílna landhelgi viður- kennd lögleg og innan hennar voru allir okkar firðir og flóar. Þá sýnist mér það vanta í frásögn Lúðvíks að á allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna 1949 fengu ís- lendingar því framgengt að al- þjóðalaganefnd samtakanna yrði falið að fjalla um lögsögu ríkja yfir sjávarsvæðum með ströndum fram. Þetta mætti mikilli mót- spyrnu ríkja sem vildu engar breyt- ingar. Því töfðu þau að nefndin skilaði áliti á næstu þingum. Hans Andersen var fulltrúi íslands í nefndinni og fylgdi því fast fram að hún skilaði áliti. Það tókst fyrst vorið 1956 þegar hún skilaði áliti á þann veg að lög leyfi ekki stækkun landhelgi út fyrir 12 mílur. Vinstri stjórnin, sem fór með völd vorið 1956, greip þetta ákvæði í áliti nefndarinnar fegins hendi og túlkaði á þann veg að leyfilegt væri að færa landhelgina út í 12 mílur. í maí 1956 gaf hún út reglugerð um 12 mílna fiskveiðilögsögu. Deilur risu um framkvæmd málsins milli Alþýðuflokksins og Alþýðubanda- lagsins og munaði minnstu að stjórnin springi. Framsóknar- flokknum tókst þó að jafna þá deilu og tók reglugerðin þá gildi 1. september 1956. Jafnframt tókst Framsóknarflokknum að afstýra því að í reglugerðinni væru undan- þága fyrir íslenska togara til veiða innan fiskveiðiiögsögunnar en Al- þýðubandalagið hafði boðist til að fallast á hana. Á allsherjarþinginu 1957 var ákveðið að kalla saman hafréttar- ráðstefnu á næsta ári (1958), og kom þar í ljós vaxandi fylgi við útfærslu lögsögunnar. Næsta allsherjarþing ákvað að boða til nýrrar hafréttarráðstefnu 1960. Á henni styrktist enn staða þeirra ríkja sem lögðu áherslu á frekari útfærslu. Eftir hana lét Tíminn svo um mælt í fyrirsögn: „Tólf mílum okkar er borgið." Þá birti Tíminn viðtal við Hermann Jónasson, sem var fulltrúi á ráð- stefnunni, undir þessari fyrirsögn: „Baráttan í landhelgismálinu held- ur áfram og er nú komin út fyrir tólf mílur.“ Þessi þróun í hafréttarmálum hélt áfram á alþjóðlegum vettvangi og vegna hennar gátu íslendingar fært fiskveiðilögsöguna út í 50 mílur 1972 eftir að það hafði verið einróma samþykkt á Alþingi fyrir atbeina Framsóknarflokksins. Þótt þróunin á alþjóðavettvangi stefndi hraðfara í 200 mílna efna- hagslögsögu reyndu Bretar að halda áfram herskipavernd á ís- landsmiðum, enda þótt þeir hefðu lýst því yfir að þeir myndu sjálfir taka sér 200 mílur. Eftir vonlausa valdbeitingu gáfust þeir loks upp í Osló vorið 1976. Smátt er fagurt Ingibjörg Haraldsdóttir: Nú eru aörir timar, Mál og menning, 1989. Þetta er frekar smágerð og fínleg ljóðabók, en margt er þó vel í henni gert ogaf efalausri vandvirkni. Þegar í fyrsta ljóðinu kveikir bókin áhuga og vekur forvitni. Það ljóð heitir Auglýsing og er svona: Lýst er eftir konu sem fór að heiman í árdaga fáklædd og loguðu eldar í augum lagði á brattann og hvarf inn í viðsjála þokuna æskurjóð og hefur ekki sést ekki sést síðan. Hér er að vísu ort um konu, en ætli það séu samt ekki býsna margir af báðum kynjum sem geta yfirfært ljóð á borð við þetta yfir á sjálfa sig eða aðra kunnuga? Þá sem eru að byrja að eldast og finna kannski hugsjónaeld æsku sinnar vera farinn að kulna? Þetta er að vísu margnot- að yrkisefni, en hér er þó vel haldið á því, og vafalaust skírskotar það til margra kvenna dagsins í dag vegna umræðunnar um stöðu og réttindi þeirra nú á dögum. Og reyndar þarf ekki að fletta nema örfáar blaðsíður aftur eftir bókinni, þá er þar annað ljóð sem einhvern veginn er þannig gert að maður stansar aftur líkt og ósjálfrátt við það. Það heitir Römm er sú taug: Þegar konan hafði staðið í sömu sporum nokkra hríð varð henni litið niður fyrir fætur sér og sjá: þeir höfðu skotið rótum. Stundu síðar var hún sokkin ígljúpan svörðinn. Hér er í rauninni annað tilbrigði við sama stefið á ferðinni: hvernig fólk getur orðið rótfast í daglegu lífi sínu, komist hvorki strönd né lönd. Og getur víst raunar átt við um einstaklinga af báðum kynjum. Styrkur bestu ljóðanna hér liggur að mínum dómi í skírskotunum á borð við þessar, þ.e.a.s. að þau vísa beint til efna sem vænta má að venjulegum dæmigerðurm íslend- ingum finnist að komi sér við. Af þeim ástæðum er sitthvað hér sem verður að teljast lífvænlegt. Þarna er til dæmis ljóð um Breiðholtið í Reykjavík, annað um útsýnið yfir borgina, það þriðja um næturhrafna Reykjavíkur og það fjórða um leður- klædda vélhjólamenn. Allt eru þetta efni sem dregin eru beint út úr raunverulegum samfélagsveruleika okkar og eru því líkleg til þess að vekja áhuga. Aftur á móti er það greinilegt að höfundur sækist hér öllu meir eftir yrkisefnum sem snúast um mannleg- ar tilfinningar heldur en um efnis- Þjónn Efivarð Ingólfsson Aml i Hólminum Engum líkur Æviþættlr Árna Helgasonar, fyrrum sýslus- krifara, póstmeistara og gamanvísnahöf und- ar. Æskan Árni Helgason er mjög sérstakur maður, enda löngu orðinn þjóð- sagnapersóna. Af því er nokkuð sagt í inngangi þessarar bókar og verður ekki endurtekið hér. Tvennt vita flestir um Árna. Hann er hugsjónamaður, áhugamaður um heilbrigt líf og bindindi á banvæn efni og óholl. Og hann er sérstakur skemmtikraftur, hefur samið og sungið gamanvísur við frábærar undirtektir. Og hér er komin bók þar sem Árni rekur minningar sínar. Árni segir vel frá foreldrum sfnum. Hins vegar virðist sagan verða lausari í reipum þegar hann á sjálfur í hlut. En frá mörgu skemmti- legu segir hann. kennda hluti úr daglegu lífi okkar. Meðal annars ber hér talsvert á ástinni og ýmsum tilbrigðum hennar, sem og skyldum atriðum. Má vera að þar þyki ýmsum að séu heldur margnotaðri viðfangsefni á ferðinni. í bókarlok eru þó hins vegar nokkur ljóð um efni frá Chile, Kúbu og Moskvu, sem óneitanlega auka aftur á fjölbreytnina. Árni fer ekki dult með það að hann fylgir Sjálfstæðisflokknum. Þó leggur hann enga áherslu á að túlka það sem hann kallar sjálfstæðis- stefnu. Og ekki færir hann fram nein málefnaleg rök sem varða ágreining í flokknum þó að hann víki lauslega að því. Þetta er ekki pólitískt spurn- ingakver. Árni segir frá því að honum hafi verið boðið að sækja Stjórnmála- skóla Sjálfstæðisflokksins 1938. „Ólafur Thors talaði við Magnús Gíslason sýslumann og bað hann um að koma þeim orðum til mín að ég yrði að koma, hann skyldi sjá um mig eftir komuna til Reykjavíkur." Þetta er eflaust rétt. En af hverju talaði Ólafur ekki sjálfur við Árna? Mér dettur í hug að Ólafur Thors hafi sagt Magnúsi að finna einhvern ungan og efnilegan mann til að koma og Magnús hafi þá nefnt Árna og fengið skilaboðin samkvæmt því. J heild verður þetta að teljast nokkuð vönduð og vel unnin ljóð- abók. Hún er ekki stór í sniðunum, en bætir það upp með þeirri vand- virkni og alúð sem hún ber með sér að hefur verið beitt við alla smíði ljóðanna. Eysteinn Sigurðsson. Þegar Árni segir frá því að fjár- málaráðuneytið hafi falast eftir sér til að vinna á sýsluskrifstofunni í Stykkishólmi set ég það í samband við að Magnús Gíslason var þá orðinn skrifstofustjóri í fjármála- ráðuneytinu. Árni hafði unnið hjá honum eystra svo að Magnús átti að vita hvers vænta mátti af honum. Gamanvísumar hans Áma njóta sín ekki í annarra flutningi eins og hans sjálfs. Samt mun hann mörgum skemmta með þessari bók. Það er ekkert ósamræmi í því að vera bindindismaður og gaman- vísnaskáld. Hvort tveggja er af sömu rótum runnið. Það er viljinn til að gleðja, gera lífið bjartara, ánægju- legra, fegurra. Og bókin um Árna sýnir okkur hann eins og hann er, góðgjarn og hjartahreinn. Þannig er hann og þannig viljum við eiga hann. H.Kr. lífsgledinnar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.