Tíminn - 12.12.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 12. desember 1989
lllllllllllllllllllllll DAGBÓK llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Signý Sæmundsdóttir sópransöngkona
og Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari.
Háskólatónleikar
í Norræna húsinu
Á morgun, miðvikudaginn 13. des.,
verða Ijóðatónleikar haldnir í Norræna
húsinu Id. 12:30. Að þessu sinni koma
fram Signý Sæmundsdóttir, sópransöng-
kona og Fríða Sæmundsdóttir píanóleik-
ari.
Á efnisskrá eru eingöngu lög við texta
Goethes, m.a. öll ljóð Mignon úr bókinni
„Wilhelm Meisterjahre" við tónlist Schu-
manns og einnig ljóð Grétu úr Fást við
tónlist Schuberts og Hugos Wolf.
Jólasýning í Nýhófn
Nýlega var opnuð jólasýning í listasaln-
um Nýhöfn, Hafnarstræti 18.
Á þessari sýningu, sem er sölusýning,
eru verk eftir fjölda listamanna.
Opnunardaginn verður boðið upp á
veitingar og sungin jólalög.
Sýningin er opin virka daga kl. 10:00-
18:00 á laugardögum kl. 14:00 að lokunar-
tíma verslana og á Þorláksmessu kl.
10:00-23:00. Sýningin stendur fram yfir
áramót.
KJÖLFAR KRÍUNNAR
Ljósmyndasýning í Norræna húsínu
Nýlega var opnuð ljósmyndasýning í
anddyri Norræna hússins.
Sýndar eru ljósmyndir eftir Þorbjörn
Magnússon og Unni Þóru Jökulsdóttur,
sem þau hafa tekið á ferðalögum sínum
um heiminn undanfarin fimm ár. Þau
smíðuðu skútuna Kríu og sigldu á henni
um heimsins höf, frá Danmörku til Ástr-
alíu, með viðkomu á Grænhöfðaeyjum,
Senegal, Grenada, Venesúela, Galapag-
os, Tahiti, Tonga og Fiji-eyjum, svo
eitthvað sé nefnt.
Sýningin nefnist „Kjölfar Kríunnar“.
Þorbjörn og Unnur ætla að segja frá
ferðum sínum og bregða litmyndum á
tjald áður en Ijósmyndasýningin verður
formlega opnuð. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
Sýningin verður opin alla daga kl.
09:00-19:00, nema sunnudaga kl. 12:00-
19:00 og stendur til 17. desember.
Bamagæsla í Bemhöftstorfu
Nemar á 3. ári í Fósturskóla Islands
bjóða upp á barnagæslu í Bernhöftstorfu
í desember fyrir börn 2ja-8 ára.
Opið verður frá kl. 14:00 á föstudögum
og frá kl. 10:00 á laugardögum.
Margt verður til skemmtunar: leikir,
föndur og ýmsar uppákomur.
Myndakvöld F.Í.
Myndakvöld Ferðafélags Islands verð-
ur miðvikudaginn 13. desember í Sóknar-
salnum, Skipholti 50a, og hefst kl. 20:30
stundvíslega.
Fyrst sýnir Eygló Sigurðardóttir, hús-
vörður F.í. í Þórsmörk, myndir frá lífi og
starfi húsvarða á þessum vinsæla stað.
Eftir hlé verður stuttur annáll um vinnu-
ferðir F.I. á liðnum árum.
Veitingar í hléi. Allir velkomnir, félag-
ar og aðrir. (Aðg. 200 kr.).
Tónlistarvika 10.-17. des.
í tilefni 40 ára afmælis
Laugarneskirkju
Dagana 10.-17. desember verður Tón-
listarvika í Laugarneskirju í Reykjavík í
tilefni 40 ára afmælis kirkjunnar.
Haldnir verða 9 tónleikar, þá verður
messað báða sunnudagana og verður þá
einnig boðið upp á fjölbreytta tónlist.
Alla virka daga vikunnar mun Ann
Toril Lindstad halda hádegistónleika kl.
12:00. Hún flytur þá orgelverk eftir ýmsa
höfunda.
Þriðjudaginn 12. des. verða tónleikar
með Blásarakvintett Reykjavíkur, sem
þeir kalla „Kvöldlokk á jólaföstu". Kvint-
ettinn mun leika verk eftir W.A. Mozart,
Ludwig van Beethoven og J. Haydn.
Aðalfundur íslenska
mannfræðifélagsins
Islenska mannfræðifélagið heldur
aðalfund sinn í veitingastofu Tæknigarðs,
Dunhaga5,miðvikud. 13. des. kl. 17:30.
Félagið var stofnað 1969 og hefur
staðið að fjölmörgum fræðslufundum fyr-
ir almenning um mannfræðileg efni og
skyldar greinar.
Að loknum aðalfundarstörfum talar
dr. Jens Ó.P. Pálsson, forstöðumaður
Mannfræðistofnunar Háskóla Islands, um
starfsemi stofnunarinnar og lslenska
mannfræðifélagsins. Skýrt verður m.a.
frá því hverjir munu flytja fyrirlestra á
vegum félagsins og Mannfræðistofnunar-
innar á næsta ári.
Kvenfélag Kópavogs
Spilað verður í kvöld, þriðjud. 12.
des., í Félagsheimili Kópavogs. Byrjað
verður að spila kl. 20:30.
ÚTVÖRÐUR 2. tbl. 4. árg.
Það er byggðahreyfingin Útvörður
(áður Samtök um jafnrétti milli lands-
hluta), sem gefur ritið út. Útvörður hefur
aðsetur á Egilsstöðum á Héraði.
Meðal efnis í blaðinu greinin Jafnvægi
í byggðaþróun verður að nást, sem Gunn-
laugur Júlíusson skrifar. Hlöðver Þ.
Hlöðversson skrifar: Við þurfum menn,
en Hlöðver er form. stjórnar Útvarðar.
Elísabet Benediktsdóttir segir frá
„Átaksverkefninu á Egilsstöðum og
Seyðisfirði", en það hefur staðið í tvö ár.
Guðrún Hallgrímsdóttir veltir fyrir sér
hvar muni verða næsta virkjun á landinu
í grein sinni: Næsta virkjun?
Sveinn Runólfsson á þarna grein sem
hefur að fyrirsögn: Stiklað á stóru í
gróðurverndarstarfi Landgræðslu ríkisins
og Björn Benediktsson skrifar: Land-
græðsla og gróðurvernd. Þá er minnst
Hvanneyrar og sagt frá afmælishátíð sem
haldin var í júní sl. vegna 100 ára afmælis
skólans.
Hörður Bergmann fjallar um margvís-
leg mál í grein sinni „Byggðastefna í
umbúðaþjóðfélagi" og Sigurður Helga-
son fjallar um „Byggðaþróun á Norður-
löndum“.
Margar fleiri greinar eru í blaðinu og
frásagnir, svo sem af fiskeldi o.fl. Einnig
eru fréttir af félagsstarfi Útvarðar.
k! Fl*
Blásarar
Fyrirliggjandi
Fyrirliggjandi
■ Gott verð -
SÍMI: 681500 - ÁRMÚLA 11
Myndlistarsýning í MJÓDD
Halla Haraldsdóttir, myndlistarkona
frá Keflavík, heldur sýningu á verkum
sínum í verslun Hjartar Nielsen, Mjódd-
inni, í desember og janúar.
Halla er fædd og uppalin á Siglufirði.
Hún var við nám í Myndlistar- og hand-
íðaskóla íslands í tvo vetur og seinna í
kennaradeild skólans í einn vetur. Aðal-
kennari hennar þar var Erró. Síðan hélt
hún til Danmerkur og stundaði nám hjá
dönskum listmálara, Sören Esbjerg, í tvo
vetur.
Frá árinu 1978 hefur Halla verið í
tengslum við gler- og listiðnaðarverkstæði
D.H. Oidtmann í Þýskalandi, fyrst við
nám og seinna við störf hjá fyrirtækinu.
Hún hefur haldið fjölda einka- og samsýn-
inga heima og erlendis og hlotið margvís-
legar viðurkenningar fyrir list sína.
Myndir Höllu á þessari sýningu eru
vatnslitamyndir unnar með blandaðri
tækni, auk glerlistaverka. Öll verkin eru
unnin á þessu ári. Sýningin, sem er
sölusýning, er opin á verslunartíma, alla
virka daga kl. 10:00-18:30 og kl. 10:00-
16:00 á laugardögum.
Brúðusýning í
Bogasai Þjóðminjasafns
Jón E. Guðmundsson opnaði sýningu í
Bogasal Þjóðminjasafnsins 5. desember
og stendur hún til 17. des. Jón hóf
starfsemi lslenska Brúðuleikhússins fyrir
35 árum, 5. des. 1954, og hefur starfrækt
það síðan.
Fyrsta verkefnið var leikritið Rauð-
hetta í þýðipgu Ævars Kvarans, og mun
það einnig verða sýnt núna. Einnig eru á
sýningunni krítar- og vatnslitamyndir,
ennfremur ýmsir munir skornir út í ís-
lenskt birki.
Upplýsingar um leikbrúðusýningar
meðan á sýningum stendur eru í síma
28888.
Sýningar í Norræna húsinu
Laugardaginn 9. des. opnaði Jóhanna
Bogadóttir sýningu á grafíkmyndum í
bókasafni Norræna hússins. Á sýningunni
eru litógrafíur og myndir með blandaðri
tækni, unnar á sl. tveimur árum.
Sýningu Jóhönnu á málverkum og
teikningum er nýlokið á Kjarvalsstöðum.
Síðan er hún á förum til Bandaríkjanna
með sýningu í boði háskólans í Tacoma.
Sýningin er opin kl. 13:00-19:00 alla
daga nema sunnudaga, en þá er bókasafn-
ið opið kl. 14:00-17:00. Sýningunni lýkur
22. desember.
í anddyrí sýna Þorbjöm Magnússon og
Unnur Þóra Jökulsdóttur Ijósmyndir sem
þau hafa tekið á ferðum sínum um
heimsins höf. Sýninguna nefna þau
„KJÖLFAR KRlUNNAR", en skútan
þeirra heitir Krían. Sýningin stendur til
17. desember.
Minningarkort
Félags nýmasjúkra
Minningarkort félagsins eru til sölu á
eftirtöldum stöðum: IKirkjuhúsinu, hjá
Hönnu í síma 672289 og hjá Salóme í
síma 681865.
Jólakort eftir málverki
Jónasar Guðmundssonar
Komið er á markaðinn nýtt jólakort
sem gert er eftir málverki Jónasar Guð-
mundssonar, listmálara og rithöfundar,
sem lést fyrir um það bil tveimur árum.
Fyrirmyndin að jólakortinu heitir
„Sjómenn". Kortin fást í bókabúðum og
eins hjá Jónfnu H. Jónsdóttur, en hún
hefur einnig eftirprentanir af málverkum
Jónasar til sölu.
Vinningar í happdrætti
Félagsheimilis tónlistarmanna
Dregið var í happdrætti Félagsheimilis
tónlistarmanna 10. nóvembersl. Vinning-
ar komu á eftirtalin númer:
1. vinningur: Skoda Favorit 1990 kom
á númer 1504.
2. vinningur: Ferð fyrir tvo til Mallorca
á vegum ferðaskrifstofunnar Atlantik að
verðmæti kr. 70.000 kom á númer 4770.
3. -6. vinningur: 40 tímar í hljóðveri:
Hljóðrita, Stúdíó Bjartsýni, Stúdíó Stef,
Stúdíó Stöðin (án upptökumanns) komu
á númer 404 - 272 - 2356 - 442.
7.-8. vinningur: Innborgun á vöruút-
tekt hjá Molto kr. 50.000 komu á númer
4162 - 3141.
9. vinningur - Yamaha laser geislaspil-
ari frá Hljóðfæraverslun Poul Bernburgs
hf. kom á númer 1573.
10. -11. vinningar: Sony tvöfalt segul-
band frá Japis hf. komu á miða númer
4577 - 3569.
12.-13. vinningar: Myndverk að eigin
vali að upphæð kr. 10.000 komu á miða
númer 3711 - 4501.
14.-18. vinningar: Maturog drykkurað
eigin ósk samkvæmt matseðli á veitinga-
staðnum Mongolian Barbeque komu á
númer 4182 - 3777 - 2005- 2750.
19.-20. vinningar: íslensk tónlist (8
plötur og geisladiskar) heildarútgáfa kom
á númer 3701 - 637.
Heidi sýnir í Hlaðvarpanum
í Gallerí Hlaðvarpanum stendur nú
yfir sýning Heidi Kristianscn á myndtepp-
um, sem saumuð eru með ásaums- og
quilt-tækni. Á sýningunni eru 25 teppi,
flest saumuð á þessu ári.
Heidi er frá Þrándheimi í Noregi og
Iærði þar, en hefur verið búsett á íslandi
síðan 1980.
Sýningin er opin alla daga til kl. 18:00
fram til 17. desember og er aðgangur
ókeypis.
Sprek úr fjöru
eftir Jón Kr. Guðmunds-
son, fræðimann á Skálds-
stöðum í Reykhólasveit.
Bók full af fróðleik um örlög
genginna kynslóða við
innanverðan Breiðafjörð.
Verð aðeins kr. 1.870.-
IBHENfilK
CAVl.LNG
herrann
SPREK
FJORU
ÞJ ÓDLÍFSÞÆTTIR
JÓN KR. GUDMUNDSSON
ó Skóldsstöðum
Sendiherrann
eftir Ib H. Cavling
Höfundinn þarf vart að
kynna fyrir íslenskum les-
endum, slíkar hafa vin-
sældir bóka hans verið hér-
lendis. í þessari bók Cavl-
ings er spennan í hámarki.
Verð aðeins kr. 1.995.-
BÓKAÚTGÁFAM HILDUR
AFGREIÐSLA: AUÐBREKKU 4 - 200 KðPAVOGI1
SÍMAR 641890 - 93-47757
TIL SÖLU
Toyota Corolla 1600 Gti 1988
ekinn 32.000 km
□ Rafmagn í rúðum □ Raflæsingar □ Sóllúga □
□ Vökvastýri □ Vetrar- og sumardekk. □
Skipti möguleg. Verðhugmynd 1.050.000.-
Upplýsingar í síma 686300 frá kl. 9.00 til 14.30
og 675603 eftir kl. 18.00.
ATHUGASEMD
vegna viötals við Gunnar Bjarnason,
fyrrverandi ráðunaut
Vegna þess sem kom fram í
sjónvarpsviðtali við Gunnar
Bjarnason, fyrrverandi ráðunaut,
18. nóvember sl. og snerti Búnað-
arfélag íslands og störf Gunnars
hjá því, þykir stjórn félagsins
ástæða til að taka eftirfarandi fram.
Gunnar sagði í viðtalinu: „Þeir
samþykktu aldrei ferð(ir) mína(r)
og hafa aldrei kostað mig í nokkurn
hlul“ og átti þar greinilega við
Búnaðarfélag íslands.
Af þessu mátti skilja að Gunnar
hafi ekki á sinni löngu starfstíð hjá
Búnaðarfélagi íslands fengið
starfsfé eða greiddan ferðakostnað
eins og aðrir ráðunautar félagsins.
Að sjálfsögðu er það rangt. Gunn-
ar var „kostaður“ af fjármunum
B.f. til ferðalaga innanlands og
utan, m.a. til fjölmargra ferða til
að kynna íslenska hestinn. Þetta
veit Gunnar vel þó að honum hafi
hrotið annað af munni.
Á öðrum stað í viðtalinu tók
Gunnar þannig til orða: „Mér
hefur fimm sinnum verið ýtt úr
störfum eða stöðum sem ég átti að
fá vegna þess að mér var ekki
treyst.“ Ekki er ljóst hvað hann
hefur átt við með þessu eða hvaða
störf hann telur sig hafa átt að fá í
lífinu. En hitt er ljóst að Gunnari
var aldrei vikið úr starfi hjá Búnað-
arfélagi íslands. Hann kom fyrst til
starfa hjá félaginu árið 1940 sem
hrossaræktarráðunautur og gegndi
því til ársins 1961 að hann sagði
starfi sínu lausu og gerðist skóla-
stjóri á Hólum.
Árið 1963 var hann aftur ráðinn
til félagsins, sem ráðunautur í ali-
fugla- og svínarækt í hálfu starfi,
og var það til ársins 1974. Eftir það
var hann ráðunautur um útflutning
hrossa í 1/4 starfi fram á árið 1987
að hann hafði einn um sjötugt.
Jafnframt störfum sínum hjá B.í.
gegndi Gunnar lengst af öðrum
störfum sem hér verða ekki rakin.
Þá leyfir stjórn B.í. sér að gera
athugasemd við þau ummæli
stjórnanda þáttarins er hún hóf
spurningu til Gunnars með þeim
orðum að gengið hefði á ýmsu í
samskiptum Gunnars og Búnaðar-
félags Islands. Með þessu er verið
að gefa hluti í skyn sem ekki eru í
samræmi við raunveruleikann. Af
hálfu Búnaðarfélagsins á þetta alls
ekki við, hvað sem Gunnari kann
að finnast nú.
Stjórn Búnaðarfélags íslands
þykir miður að Gunnar Bjarnason
skuli nú að loknum löngum starfs-
degi fyrir félagið og í þágu land-
búnaðarins vera svo neikvæður í
afstöðu sinni til fyrrverandi vinnu-
veitenda og samstarfsmanna og
fara um þá niðrandi orðum eins og
hann gerði í umræddu sjónvarps-
viðtali. Hún furðar sig m.a. á
ummælum Gunnars um dr. Hall-
dór Pálsson sem alla tíð sýndi
honum hollvild þó að skoðanir
þeirra væru oft mjög ólíkar. Enda
hefur Gunnar aldrei verið látinn
líða fyrir skoðanir sínar, hvað þá
að litið hafi verið á hann sem
„andstæðing" félagsins á meðan
hann starfaði fyrir það.
F.h. stjómar
Búnaðarfélags íslands
Hjörtur E. Þórarinsson