Tíminn - 12.12.1989, Side 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINQAR
Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu,
® 28822
SAMVINNUBANKINN
BYGGÐUM LANDSINS
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
DAGAR TIL JOLA
Tímiiin
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989
Júlíus Sólnes tilvonandi umhverfisráðherra segir sjálfstæðismenn tefja
framgang lagabreytinga er heimila stofnun umhverfisráðuneytis:
Tilburðir sjálf-
stæðismanna eru
aumkunarverðir
Umræður um breytingar á stjórnarráðslögunum, er
heimila stofnun sérstaks umhverfisráðuneytis, fóru fram í
neðri deild Alþingis í gær. Til stóð að fyrstu umræðu væri
lokið í síðustu viku, en þar sem Júlíus Sólnes, tilvonandi
umhverfisráðherra, var þá erlendis, krafðist stjórnarands-
taðan þess að málinu yrði frestað þar til hann kæmi til
baka.
Ragnhildur Helgadóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokks fór aftur
fram á frestun umræðna í gær og
krafðist þess að heilbrigðisráð-
herra væri viðstaddur, en hann var
í gær í Lúxemborg þar sem hann
undirritaði fyrir {slands hönd gagn-
kvæma samninga um almanna-
tryggingar.
Samkvæmt heimildum Tímans
mun nú vera útilokað að málið
verði afgreitt fyrir áramót. Júlíus
Sólnes formaður Borgaraflokksins
segist ekki hafa áhyggjur þó svo
verði. Hann er þó ekki ánægður
með þá töf sem hefur orðið á
afgreiðslu frumvarpsins, en upp-
haflega stóð til að Júlíus yrði
ráðherra umhverfismála um ára-
mót.
Júlíus sagði að sér þættu tilburðir
stjórnarandstöðunnar við að tefja
og hindra þetta mál í umræðum um
umhverfisráðuneytið vera aumk-
unarverðir. Hann minntist sérstak-
lega á sjálfstæðismenn í því sam-
bandi og sagði þá í aðra röndina
þykjast bera umhverfismál fyrir
brjósti sér, en á hinn bóginn gerðu
þeir allt sem í þeirra valdi stæði, til
þess að koma í veg fyrir að þessum
málaflokki yrði skipað með þeim
hætti að einhver árangur hlytist af.
„Það er eiginlega erfitt að átta
sig á þeirra afstöðu," sagði Júlíus,
„nema þá að þeir telji að umhverf-
ismál sé málaflokkur sem ekki eigi
að leggja neina áherslu á og þar af
leiðandi ekkert að sinna. Menn
geta velt því fyrir sér hvort það sé
skýringin á hegðun þeirra, eða er
skýringin bara sú að þeir séu hér í
einhverju pólitísku upphlaupi að
reyna að sprengja stjórnarsam-
starfið? Það virðist fara óskaplega
fyrir brjóstið á þeim að við skulum
vera í ríkisstjórn og ég og Óli Þ.
Guðbjartsson skulum vera ráð-
herrar. Það er kannski það sem
fyrst og fremst hrjáir þá öðru
fremur.“
- En hvað verður gert þegar ljóst
er að umhverfisráðuneytið kemst
ekki á laggirnar fyrir áramót?
„Við höldum áfram þingi eins
lengi og þarf í janúar, til þess að
klára öll mál sem við þurfum að
ljúka fyrir þinghlé,“ sagði Júlíus
Sólnes. „Það er alveg eins og var
bæði í fyrra og hittifyrra. Þetta
kemur mér í sjálfu sér ekki á óvart,
því ég tók þátt í þeim leik sjálfur í
stjórnarandstöðu að koma málum
á þann veg. Ég geri ráð fyrir að mál
verði með sama hætti núna.“
Júlíus sagði að þetta hefði ekki
annað í för með sér en að þinghlé
drægist fram til 10-12 janúar og þá
yrðu öll þau þingmál sem stjórnin
þyrfti að koma í gegn í öruggri
höfn. Aðspurður um tæknilega
örðugleika þess að koma á sérstöku
umhverfisráðuneyti á næstu
vikum, sagðist Júlíus vonast til
þess að málið færi til nefndar í
þessari viku, eða byrjun næstu.
„Ég hef nú séð þyngri mál en
þetta,“ sagði hann, og skírskotaði
í því sambandi til frumvarps um
stjórnun fiskveiða, sem samþykkt
var árið 1987, eftir miklar umræð-
ur. „Ég held að við höfum séð jrað
svartara.“ - ÁG
Kveikt á jólatré
við Austurvöll
Um helgina voru tendruð jólaljós
á jólatré á Austurvelli. Tréð er gjöf
Oslóarborgar til Reykjavíkur. Gíf-
urlegt fjölmenni kom saman á Aust-
urvelli af þessu tilefni. Veður var
sérstaklega gott og átti það án efa
mestan þátt í að svo margir brugðu
sér í bæinn til að horfa á ljósin
kvikna. Að sjálfsögðu komu jóla-
sveinarnir við á Austurvelli og
skemmtu ungum sem öldnum með
söng. En það voru fleiri en Reykvík-
ingar sem tendruðu jólaljós, því
víða um land voru slíkar athafnir um
helgina. -EÓ/Tímamynd Árni Bjarna
Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari
og fyrrum forseti Hæstaréttar:
Ekki íhugað að
segja af mér
vegna dómsins
„Ég svara því siuttlega að það hef
ég ekki íhugað,* sagði Þór Vil-
hjálmsson hæstaréttardómari og
fyrrum forseti Hæstaréttar, aðspurð-
ur hvort hann hafi íhugað að segja
af sér dómaraen bætti í ljósi þess
dóms sem fallinn -r í máli Magnúsar
Thoroddsen fyrrt m forseta Hæsta-
réttar.
Við rannsókn máls Magnúsar
komu áfengiskai ip fyrri forseta
Hæstaréttar fram. Upplýstist að Þór
hafði keypt verulc gt magn áfengis á
kostnaðarverði. í málflutningi verj-
anda Magnúsar fyrir Hæstarétti kom
fram að fyrirrennarar Magnúsar í
embætti forseta Hæstaréttar höfðu
notað sömu viðmiðunarreglu við sín
kaup, þ.e. svokallaða þumalputta-
reglu. Aðspurður hvort hann teldi
sig hafa farið út fyrir þær reglur sem
í gildi hafi verið kvað Þór nei við.
Hann sagðist aðspurður ekkert
getað úttalað sig um það hvort hann
teldi dóm Hæstaréttar í máli Magn-
úsar, sem féll á föstudag á einhvern
hátt rangan. -ABÓ
Salan á jólabókunum:
BEDID EFTIR
KORTATÍMABILI
Enn er jólabókasalan ekki kom-
in á fullt skrið og töldu margir
bókakaupmenn sem Tíminn talaði
við í gær, skýringuna vera þá að
fólk hefði verið að bíða eftir að
nýtt greiðslukortatímabil hæfist. í
flestum verslunum hófst nýtt korta-
tímabil f gær.
Verslunarmaður sem hefur unn-
ið við bóksölu í mörg ár ságði að
saian hæfist óvenju seint og blank-
heit væru einkennandi í þjóðfélag-
inu. Laugardagurinn hefði verið
mun lciegri hvað varðar bóksöluna
en sami dagur i fyrra. Spáði hann
því að salan kæmist ckki á fullt
skrið fyrr cn rétt fyrir jólin og „að
á Þorlák verði allt brjálað," eins og
hann orðaði það.
Þegar verslunarmennirnir sem
talað var við voru beðnir að nefna
íslenska titla sem þeim virtist að
seldust mest eða fólk sýni mestan
áhuga voru hinar ýmsu endurminn-
inga- og viðtalsbækur áberandi sem
fyrr: Sendiherrafrúin segir frá, eftir
Hebu Jónsdóttur, Ég og lífið, eftir
Ingu Huld Hákonardóttur, Skýrt
og skorinort, eftir Indriða G. Þor-
steinsson og Sagan sent ekki mátti
segja, eftir Nönnu Rögnvaldar-
dóttur. Af öðrum bókum má nefna
Fransí Biskví eftir Elínu Pálma-
dóttur, Náttvíg eftir Thor Vil-
hjálmsson, safn „Eyjabókanna,“
eftir Einar Kárason og Ég heiti
fsbjörg. Ég er ljón eftir Vigdtsi
Grímsdóttur og Undir eldfjalli,
eftir Svövu Jakobsdóttur.
Gott úrval er af barna- og ung-
lingabókum fyrir þessi jól og hefur
saia á þeim verið ntjög góð.
Einn verslunarmaður ncfndi sem
skýringu á því hve salan færi seint
af stað að bókatitlar fyrir þessi jól
væru óvenju margir, 40 fleiri en í
fyrra og salan væri jafnari og engir
titlar skæru sig úr. í fyrra hefðu
bækur eins og Ein á forsetavakt og
Býr íslendingur hér? skorið sig úr
hvað varðar sölu. SSH